Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1998, Side 44

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1998, Side 44
52 MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1998 DV onn Ummæli Maraþonræða Jóhönnu „Flestir ræöa um viðbótar- borðið sem hún fékk undir gögn- I in. en fæsnr hafa J hugmynd um * hvert var inni- hald ræðunn-1 ar.“ Guðni Ágústs- son alþingis- maður um maraþonræðu Jóhönnu Sigurðardóttur á Alþingi, í DV. Stjómað frá Reykjavík „Útgerðarfélagi Akureyr- inga er stjórnað frá Reykjavík \ og við það verðum við að sætta okkur.“ Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, í Degi. Fótboltaklúður „Það er algjört klúður að horfa eingöngu í hvað hægt er að fá í leigutekjur fyrir útsendingu á knattspymu- leikjum en gleyma því að þessi íþrótt á að- dáendur út um allt land sem hafa misjafna möguleika á að komast á völlinn." Sr. Pétur Þórarinsson í Lauf- ási, i Degi. Hljómsveit allra landsmanna „Með þessari útgáfu má segja að Stuðmenn séu sannar- | lega orðnir hljómsveit allra J landsmanna því nú er ellilif- - eyrisþegum ekkert að vanbún- aði aö meðtaka stuðið." Gunnar Hjálmarsson í dómi um geislaplötuna íslenskir karlmenn, í DV. Hin þjóðin „Enginn botn fæst í hið raun- verulega mál, hvort til sé for- réttindastétt á íslandi sem ekki lýtur sömu lögum og almenn- ingur og býr f við lífskjör sem eru svo frábrugðin því sem venju- i legt fólk þekkir að óhætt er að kalla hana „hina þjóðina“.“ Ármann Jakobsson íslensku- fræðingur, í DV. Var bara lúði „Ég var nú bara lúði langt fram eftir aldri. Sat heima hjá mér og var að dunda við að búa til leirkarlamyndir.“ Sigurður Helgason, einn eig- anda Zoom, í Morgunblað- inu. Guðmundur Rúnar Júlíus Guðmundsson, form. Suðurnesjadeildar Rauða krossins: Hef átt mótorhjól frá 16 ára aldri DV, Suöurnesjum: „Deildin á og rekur þrjár sjúkra- bifreiðar sem Brunavamir Suður- nesja annast og manna. Stjóm deild- arinnar hefur lagt metnað sinn í að þjálfun sjúkraflutningsmanna sé með því besta sem gerist á landinu, sjúkrabifreiðar séu ávallt með því fullkomnasta hvað varðar búnað og ástand,“ sagði Guðmundur Rúnar Júlíus Guðmundsson, þekktur und- ir nafninu Guðmundur R.J. Guð- mundur tók nýlega við formennsku í Suðumesjadeild Rauða kross ís- lands af Gísla Viðari Harðarsyni. Guðmundur hefur átt sæti í stjórn deildarinnar frá árinu 1991, gegnt stöðu varaformanns og gjaldkera í stjórn deildarinnar frá 1992. Þá er Guðmundur stjórnarmaður í Rauða krossi íslands. „Deildarstarfið er mjög líflegt og stendur deildin okk- ar fyrir ýmsum námskeiðum, svo sem skyndihjálp, barnfóstrunám- skeiði og öflugu unglingastarfi allt árið um kring.“ Það hefur verið og verður mikið að gera hjá Guðmundi og hans fólki næstu daga. „Næstu daga verður opnuð sjálfboðamiðstöð og fatamót- taka að Smiðjuvöllum 8 í Reykjanes- bæ, ásamt Svæðaskrifstofu Rauða kross íslands. Þar verður einn starfs- maður í hlutastarfi. Sjálfboðamið- stöðin og fatamóttakan er sameigin- legt verkefni Grindavíkurdeildar og Suðurnesjadeildar RKÍ. Þar verður tekið á móti fatnaði, hann flokkaður og íbúum á Suðurnesjum gefinn kostur á að velja sér föt til eigin nota. Það sem ekki nýt- ist hér á svæðinu er Guðmundur sent til hjálparstarfs er- lendis. Það hefur sýnt sig að þörf er á þessari þjónustu deildanna, þar sem fjöldi einstaklinga hefur nýtt sér þennan kost, að fá fatnað sem safn- ast með þessum hætti, enda í flestum Maður dagsins tilfellum mjög góð fót. Deildirnar hafa um langt skeið tekið á móti fata- framlögum í félagsheimilum sínum, en húsnæðið að Smiðjuvöllum mun gjörbreyta allri aðstöðu til hins betra.“ Guð- mundur hefur geysileg- an áhuga á starfi deild- arinnar og eflaust fáir sem finnast í heiminum með slíkan áhuga á félagsstörfum. „Það er mjög gefandi að starfa í Rauða krossin- um. Þessi mannúðar- hugsjón hreyfingar- innar á við mig. Þá er ánægjulegt hvað þeir einstaklingar sem sinna málefn- um deildarinnar gera það vel og hafa alltaf verið til starf- ans reiðubúnir. Þá er þetta mjög R.J. Guömundsson. DV-mynd Ægir Má.r Listaklúbbur Listahátíðar V Listaklúbburinn í Iðnó er opinn öll kvöld meðan á Listahátíð stendur og er alltaf eitthvað um að vera. í kvöld kemur fram söngkon- an Ósk Óskarsdóttir og Kór Slökkviliðsins í Reykjavík. Hvers vegna götur og torg Björn Ólafs arkitekt mun halda spjallfund undir yfir- skriftinni Hvers vegna götur og torg? á Kjarvalsstöðum í kvöld kl. 20. Björn hefur ver- ið búsettur í Frakklandi um árabil. Niðurstöður sveitar- stjórnarkosninga í dag mun Félag stjórn- málafræðinga halda hádegis- verðarfund á efri hæð veit- ingastaðarins Lækjarbrekku um niðurstöðu sveitarstjórn- arkosninga. Frummælendur eru: Ólafur Þ. Stephensen, Valgerður Jóhannsdóttir og Linda Blöndal. Samkomur Menningardagar Vikuna 25.-29. maí verða Menningardagar í félags- starfi Gerðubergs og kennir þar margra grasa. Handa- vinnu- og listmunasýning verður alla dagana. Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd Rabbfundur um verkefni sumarsins verður á Kaffi Romance, Lækjargötu 2, í kvöld kl. 20. Myndgátan Lausn á gátu nr. 2110: Hjónasvipur Myndgátan hér aö ofan lýsir oröasambandi. skemmtilegt fólk og á miklar þakkir skildar." Guðmundur starfar sem skrif- stofustjóri hjá Skipaafgreiðslu Suð- urnesja ehf. Eiginkona Guðmundar er Sólveig Þórðardóttir, ljósmyndari með meiru og eigandi Nýmyndar i Reykjanesbæ. Þau eiga eina dóttur, Sólrúnu Björk, 24 ára. Þrátt fyrir miklar annir hjá Guð- mundi á hann sér afar forvitnileg áhugamál. Á sunnudögum sést hann aka um stræti bæjarins á Yamaha V-max 1200 mótorhjóli, en hann er félagi í Bifhjólasamtökum lýðveldisins, Sniglum. „Ég hef áhuga á mannúðar- og félagsmál- um. Einnig hef ég mikinn áhuga á siglingu á seglskipum og akstri mótor- hjóla. Reyndar hef ég átt mótor- hjól frá 16 ára aldri og á enn.“ -ÆMK Nýja lífið hennar írinu Irinas Nya Liv er nafn á gaman- leik sem sænski leikhópurinn Unga Klara flytur á vegum Lista- hátíðar í Borgarleikhúsinu í kvöld. Leikgerðina samdi Nils Gredeby upp úr bók skáldkonunn- ar Irinu von Martens sem er með Downs-heilkenni. Hér er á ferð- inni óvenjulegt leikrit sem fjallar um þroska- hefta ein- staklinga sem allir hafa Downs- heilkenni og búa sam- an á sam- býli. Þá dreymir um að vera eins og hinir; þá langar i sambúð og vera færir um að vinna fyrir laun- um. Þá langar að vera eðlilegir en löngunin er blandin hræðslu og margar spurningar vakna. Verkið er leikið á sænsku en persónurn- ar ættu að vera mörgum íslend- ingum að góðu kunnar því þær lifa sig inn í heim Ronju ræn- ingjadóttur. Sylvia Rauan verki sínu. hlut- Leikstjóri sýningarinnar er Suzanne Osten en hún stofnaði leikhópinn Unga Klara árið 1975. Með aðalhlutverk i sýningunni fara þau Lennart Jahkel, Simon Norrthon, Ann Petrén, Sylvia Rauan og Cilla Thorell. Auk sýn- ingarinnar á sunnudagskvöld verður leikverkið einnig sýnt á mánudags- og þriðjudagskvöld. Bridge Þegar þetta spil kom fyrir á vor- leikunum í Reno í Bandaríkjunum voru það tvö pör sem sögðu sig alla leið í 7 spaða. Sá samningur er alls ekki svo lélegur og vinnst reyndar í þessari legu. Sagnir gengu þannig á öðru borðanna, norður gjafari og allir á hættu: ♦ 1052 44 K2 4 D865 * DG64 4 AKD963 * 83 * ÁK * K82 N V A S 4 G8 44 ÁD7 -f G9432 * Á97 4 74 44 G109654 4- 107 4 1053 Norður Austur Suður Vestur pass 1 4 pass 2 4 pass 2 grönd pass 3 4 pass 4 * pass 44 pass 4 44 pass 4 grönd pass p/h 5» pass 7 4 Báðir sagnhafanna fengu út tromp og alslemman vannst með eft- irfarandi spilamennsku. Drepið heima á trompás, ÁK í tígli lagðir niður, spaða spilað á gosa, tígull trompaður hátt og úr þvi tíguldrottningin birtist ekki var nauðsynlegt að svína hjartadrottn- ingu til að fría fimmta tígulinn í blindum. Þannig fengust 6 tromp- slagir, 3 tígulslagir og tveir á hjarta og lauf. Sjö grönd virðist vera mun verri samning- ur en 7 spaðar, en eini sagn- hafinn sem endaði í 7 gröndum var ekki í vandræðum með að vinna þau. Sjö gröndin voru spiluð á hendi austurs og útspil suðurs var hjartagosi. Sagnhafi tók strax tvo slagi á hjarta, tvo slagi á tígul og renndi síðan niður öllum spöðum sínum. Síðasti spaðinn bjó til tvö- falda kastþröng á vömina. Norður varð að passa tíguldrottninguna og varð að kasta sig niður á 2 lauf. Suð- ur varð að passa hjartalitinn og gat ekki heldur haldið valdi á lauflitn- um. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.