Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1998, Qupperneq 10
10
lenmng
FÖSTUDAGUR 7. AGUST 1998
Skyldu það
verða bókajól?
Þó enn sé sumar er ákveðinn hópur
fólks strax farinn að hugsa með til-
hlökkun til jólanna. Þetta eru bóka-
ormar sem eru orðnir leiðir á að þvæl-
ast um bókaverslanir í leit að nær-
ingu og finna ekkert nema landkynn-
ingarbækur um Island, ætlaðar út-
lendingum. Þó að það sé gaman að
lesa Njálu og Gerplu í enskum þýðing-
um (sérstaklega þegar bækur fá jafn-
skemmtilegan titil eins og The Happy
Warrior) þá þyrstir marga í eitthvað
nýtt og ferskt íslenskt. Látum okkur
dreyma um það sem koma skal.
Mmmm desember.
Bjartur stendur í stórræðum
Snæbjörn Arngrímsson hjá Bóka-
forlaginu Bjarti sagði í samtali við DV
að nú væri mjög viðkvæmur tími hjá
bókaútgáfunum. Höfundar eru margir
að keppast við að klára verk sín og
það fer að koma í ljós á allra næstu
dögum hverjum tekst það og hverjum
ekki. Enn erú línur að skýrast en
Snæbjörn féllst á að ljóstra upp hverj-
ir yrðu örugglega með bók í haust.
Greinilegt er að Bjartur er að færa út
kvíarnar og gefur út fleiri bækur en
hin síðari ár.
Af íslenskum bókum vill Snæbjörn
nefna bók eftir Jón Karl Helgason sem
hefur enn ekki fengið endanlegt nafn,
en hefur vinnuheitið Næturgalinn.
Þetta er skáldsaga „Essay-Roman“
eins og það heitir á flnu máli, ástarsaga
sem gerist um aldamótin í Reykjavík.
Einnig þykir
Guðbergur Bergsson sendir frá sér síðari hluta skáldævisögunnar
Faöir og móöir og dulmagn bernskunnar en fyrir fyrri hlutann fékk
Guöbergur fslensku bókmenntaverölaunin. Nammi.
sem hann gefur út því hann óttist að kalla
þar með yfir sig ólukku.
til að
skáld-
eftir
Breið-
Ævisaga Steingríms Her-
mannssonar kemur út hjá
Vöku-Helgafelli. Dagur B. Egg-
ertsson skráöi sögu Steingrfms
og fékk vfst aö lesa allar dag-
bækur hans og einkabréf.
Hljómar spennandi.
ástæða
nefna
sögu
Huldar
fjörð en hún
er ferðasaga
ungs manns
um Island.
„Þetta er
Huldar Breið-
fjörð sjálfur
sem segir sög-
una. Hann
hefur aldrei
komið út fyrir
borgarmörk-
in, utan einu
sinni þegar
hann fór í
ferðalag með
foreldrum sín-
um og keypti
sér pulsu í
Shellskálan-
um á Akur-
eyri. Hann
ákveður því
um hávetur að kaupa sér Lapplander-jeppa
og keyra hringinn, kynnast landinu og
kynnast höfundinum. Þetta er sem sagt
ferðalag hans um eigið land og eigin huga.
Hann býr og sefur í jeppanum og er að
drepast úr myrkfælni og kulda allan tím-
ann. Þetta er ótrúlega fyndin og flott bók
hjá stráknum," segir Snæbjörn.
Huldar er ekki eini ungi höfundurinn
sem Bjartur hefur á sínum
snærum þar sem Guðrún
Eva Mínervudóttir gefur
þar út smásagnasafn. Hún
er 23 ára gömul og mikið
efni, að sögn Snæbjöms.
Af þýðingum kemur
m.a. út Kossinn eftir
Kathryn Harrison í þýð-
ingu Ástu Garðarsdóttur,
áframhald á I leit að glöt-
uðum tíma eftir Marcel
Proust í þýðingu Péturs
Gunnarssonar og smá-
sagnasafnið Konan með
hundinn eftir Anton Tsjek-
hov í þýðingu Árna Berg-
mann. Snæbjöm segir að
bækumar verði mun fleiri
en þegar hann er spurður
að þvi hvað þær verði
margar alls, segist hann
aldrei þora að telja bækur
Thor Vilhjálmsson sendir frá sér
mikla sögu sem hann hefur veriö meö
Guðbergur og Thor með stórvirki
Hjá Máli og menningu hefur hin síðari ár
verið gefið út stærsta hlutfall bóka á mark-
aðinum. Forlagið hefur vinsæla höfunda,
eins og Guðberg og Gyrði, á sínum snærum
en þau undur og stórmerki gerast nú að
Gyrðir, sá afkastamikli og
indæli rithöfundur, sendir
ekki frá sér bók í ár en
hann hefur skrifað eina til
tvær bækur á ári svo lengi
sem elstu menn muna. Þó
hvíslaði lítill fugl hjá Máli
og menningu því að blaða-
manni að ef til viU myndi
Gyrðir senda frá sér þýð-
ingu í ár. Þýðingu á hverju
er leyndarmál.
Guðbergur Bergsson sló
sjálfan sig út í fyrra þegar
hin unaðslega Faðir og
móðir og dulmagn bemsk-
unnar kom út. Engin leið
er að halda vatni yfir
þeirri bók, enda gerði fólk
það ekki, og Guðbergur 'e(n9! ' smíöum- Hun ber na,niö
fékk góð verðlaun, en lof- sa9a'
aði jafnframt að síðari hluti bókarinnar
kæmi út nú um jólin. Hann hefur staðið við
það og því fá unnendur bráðlega að lesa
Föður og móður og dulmagn bemskunnar,
part two.
Af skáldsagnahöfundum sem eru með
nýja bók má nefna Fríðu Á. Sigurðardóttur,
Einar Kárason og Áma Þórarinsson. Árni
sendir frá sér spennusögu með
flottu plotti og heyrst hefur að
hulduhöfundurinn Stella Blóm-
kvist ætli einnig í slaginn í ár.
Það sem vekur ef til vill
einna mesta athygli er að Thor
Vilhjálmsson sendir nú frá sér
bók sem hann hefur tekið lang-
an tíma í að skrifa. Sagan mun
eflaust teljast mjög merkileg og
þar er Thor að glíma við fræga
tíma, sem er Sturlungaöldin.
Bókin ber nafnið Sturlusaga.
Athyglisvert er einnig að Auð-
ur Jónsdóttir, barnabarn Hall-
dórs Kiljans Laxness, hefur
skrifað skáldsögu. Þetta er sam-
tímasaga sem gerist í sjávar-
plássi, staðsetning sem mann
rámar í að afmn hafi nýtt sér
sögn sömu leið og í sagnagerð sinni og
blandar súrrealismann einhverri teg-
und af frjóu raunsæi. Sveinbjöm I.
Baldvinsson verður einnig með ljóða-
bók og það sem mesta athygli vekur er
að Hallgrímur Helgason, sem oft hefur
verið nefndur Papa X af gárungum,
gengst nú við afkvæmi sínu og ætlar,
líkt og ábyrgu foreldri sæmir, að
kenna X-kynslóðinni að yrkja. Eins og
margir hafa heyrt lét Hallgrímur hafa
það eftir sér að ungt fólk í dag kynni
ekki að yrkja, gæti ekkert skrifað, og
hann fyndi sig einfaldlega knúinn til
að kenna því. Kveðskapur bókarinnar,
sem ber vinnuheitið Ljóðmæli, er all-
ur undir ströngum íslenskum bragar-
háttum.
Ævisaga Steingríms og
smásögur Þórarins Eldjárns
Vaka-Helgafell hefur yfir að ráða
dreifingu á bókum Halldórs Kiljans
Laxness, auk þess sem forlagið gefur
nú út bækur Þórarins Eldjárns en Þór-
arinn sendir frá sér smásagnasafn í
haust.
Það sem hæst ber í
jólabókaútgáfú er
ævisaga Steingríms
Hermannssonar, fyrr-
verandi forsætisráð-
herra og seðlabanka-
stjóra. Ævisöguna
skráir hinn ungi Dagur B.
Eggertsson af mikilli sam-
viskusemi en heimildir
þær sem Steingrímur lét
Degi í té voru rosalegar, að
sögn Péturs Más, útgáfu-
stjóra Vöku-Helgafells. Steingrímur hefur
haldið til haga dagbókum og einkabréfum
sem Dagur fékk að ganga óhindrað í og
varpa m.a. fram staðreyndum um samband
Steingríms og föður hans,
Hermanns Jónassonar.
Verðlaunahöfundarnir
Guðrún Helgadóttir og Elí-
as Snæland Jónsson senda
nú frá sér nýjar bækur fyr-
ir ungviðið, Elías unglinga-
bók en Guðrún lýkur
barnabókasyrpunni, sem
hófst fyrir nokkrum árum,
með bókinni Ekkert að
þakka.
Vaka-Helgafell er einnig
með nokkrar verðlauna-
bækur á sinum snærum. I
byrjun nóvember verður
tilkynnt hver hlýtur Bók-
menntaverðlaun Halldórs
Laxness og sú bók kemur út
hjá forlaginu sama dag.
Bókin sem hlýtur Islensku
barnabókarverðlaunin kemur einnig út hjá
Vöku-Helgafelli, en það verður í byrjun
næsta mánaðar.
Af athyglisverðum þýddum bókum má
nefna Hvali við ísland eftir Mark Carwardi-
ne en höfundurinn er heimsfrægur dýra-
fræðingur, rithöfundur og ljósmyndari sem
hefur manna mest rannsakað hvali við ís-
landsstrendúr. Þýðandi er Ari Trausti Guð-
mundsson.
Þórarinn Eldiárn er fluttur . .
Vöku-Helgafells og sendir frá sér emhverju sinni.
smásagnasafn sem aödáendur Af ljóðabókum má nefna
hans hafa lengi beöiö eftir. nýja bók eftir Sjón sem fer að
Ekki náðist í
forsvarsmenn
Iöunnar og
Fjölva og því
verður útgáfa
á þeirra vegum
að vera hulin
lýðnum eitt-
hvað lengur.
Áreiðanlegar
heimildir
herma þó að
Fjölvi gefi út
ævisögu Stein-
gríms St.Th.
Sigurðssonar
sem átti raun-
ar að koma út
fyrir síðustu
jól.
Endurmenntunarnámskeið
Myndlista- og handíðaskóla
íslands
I síðari hluta þessa mánaðar hefjast á ný end-
urmenntunarnámskeið á vegum Fræðsludeild-
ar Myndlista- og handíðaskóla íslands. Nám-
skeiðin eru haldin í húsnæði skólans í Skipholti
1 og í Laugamesi á kvöldin og um helgar.
Á haustönn 1998 er áætlað að halda námskeið
í eftirtöldum greinum: módelteikningu, stein-
höggi, flókagerð, grafik - framhaldsnámskeið,
hugmyndafræði og skissugerð, myndbandsgerð,
efnisfræði plastefna, umhverfislist, tölvunotkun
í myndlist, ljósmyndun og menningu, textíl-
þrykktækni, bókagerð, eldsmíði, freskugerð,
teiknimyndagerð, sögu kvenna í listum, mynd-
breytingum i tölvu, steinþrykki og offset-
litógraflu, samtímasögu og ljósmyndun.
Námskeið i módelteikningu fyrir byrjendur
og lengra komna hefst fimmtudaginn 18. ágúst,
kennari er Lísa Guðjónsdóttir myndlistarmað-
ur. Námskeið í steinhöggi hefst 24. ágúst í Laug-
arnesi, kennari er Einar Már Guðvarðarson
myndhöggvari. Á námskeiðinu verður fjallaö
um sögu steinhöggs og margþætt efnistök við að
höggva í stein. Kennd verður notkun rafmagns-
og handverkfæra, steintegundir skoðaðar og
pjakkað í efni.
Upplýsingarit um námskeiðin liggja frammi
hjá Fræðsludeild og á skrifstofú Myndlista- og
handíðaskóla íslands, Skipholti 1.
Nemendur Vinnuskólans tjá
sig um myndlist
I sumar hafa nemendur Vinnuskólans í
Reykjavík fengið fræðslu um myndlist á Kjar-
valsstööum og á Ásmundarsafni. Heimsóknir
unglinganna á söfnin voru liður í samstarfi
Listasafns Reykjavíkur og Vinnuskólans.
Nokkrir hópar nýttu einnig frjálsan dag til þess
að skoða sýningu safnsins á verkum Errós í
Hafnarhúsinu við Tryggvagötu.
Á Kjarvalsstöðum skoðuðu
nemendur sem lokið hafa 10.
bekk sýningu á íslenskri mynd-
list sem ber nafnið Stiklað í
straumnum og svöruðu síðan
skriflega nokkrum spurningum
um viðhorf sitt til verkanna.
Unnið hefur verið úr svörunum
og kom að sögn forráðamanna
safnsins ýmislegt forvitnilegt í
ljós. Þannig virtist skilningur
þeÚTa á samtímalist mun meiri
en oft hefur verið haldið fram og viðhorf þeirra
mun jákvæöara. Nemendur voru m.a. spurðir
að því hvaða verk þeim þætti best á sýningunni
og völdu langflestir verkið Móttaka eftir Finn-
boga Pétursson.
Alls hafa 2500 böm og unglingar komið í söfn-
in það sem af er sumri, þá eru taldir auk nem-
enda Vinnuskólans stórir hópar bama af leikja-
námskeiðum íþrótta- og tómstundaráðs.
Leikritasamkeppni Iðnó
Til stendur að koma á fót hádegisleikhúsi í
Iðnó. Þar verða sýndir stuttir og léttir leikþætt-
ir sem gestir njóta á sama tíma og hádegisrétt-
ur er snæddur. Settir verða upp nokkrir leik-
þættir, hver eina viku í senn. Hádegisleikhús
hefur verið vinsælt viða erlendis en hefur
aldrei verið starfrækt af al-
vöru hér á landi.
Því her að minna á loka-
skilafrest leikritasamkeppn-
innar sem var auglýst um
miðjan maí síðastliðinn þeg-
ar Iðnó var aftur opnað.
Lokaskilafrestur er 31.
ágúst.
Nokkrar reglur hafá Iðnó-
menn látið frá sér fara varð-
andi samkeppnina:
Samkeppnin er öllum
opin, yrkisefni eru frjáls og
hverjum er leyfilegt að skila
frá sér fleiri en einni hug-
mynd. Leikritið skal leikið
af 1-3 leikurum af báðum
kynjum (leikhópurinn verður skipaður tveimur
körlum og tveimur konum). Leikritin skulu
vera 15-30 mínútur að lengd og gert skal ráð
fyrir einfoldum sviðsbúnaöi.
Fyrstu verðlaun eru 100.000 kr„ helgarferð
fyrir tvo til Lóndon með gistingu og morgun-
verði, auk úrvals ritverka Halldórs Laxness.
Önnur og þriðju verðlaun eru svo 50.000 kr. og
úrval ritverka Halldórs Laxness.
Nánari upplýsingar gefur Magnús Geir Þórð-
arson í Iðnó.
rA*.
Umsjón
Arni Bergmann rithöfundur.
Bókaforlagiö Bjartur gefur út
þýöingu hans á smásagna-
safni Tsjekhovs, Konan meö
hundinn.
Þórunn Hrefna