Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1998, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1998, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1998 Fréttir Flöskuskeyti var 20 mánuöi á leiðinni: Frá St. Johns að ósum Skaftár GLERAUGNAHÚS ÓSKARS LAUGAVEGI 8 101 REYKJAVÍK ©55» 44 55 Pálmi Kristjánsson með flöskuskeytiö. DV-mynd Njöröur Telekost. í skeytinu er heimilis- fang sem finnandi er beðinn um að senda upplýsingar til - um staðinn þar sem skeytið fannst og hvenær skeytið fannst. Pálmi sagðist nú ekkert hafa ver- ið að leita sérstaklega að flösku- skeyti en óneitanlega hefði verið gaman að fmna eitt slíkt. NH DV.Vík: „Ég var á ferð í fjörunni ásamt flölda fólks og var að leita að skelj- um þegar ég fann flöskuskeytið," sagði Pálmi Kristjánsson, 14 ára strákur til heimilis í Vík í Mýrdal, en hann fann flöskuskeytið rétt hjá ósum Skaftár, Landbrotsmegin. Flöskuskeytið var sent frá rann- sóknarskipi - kastað í sjóinn 55 sjómílur austur af St. Johns á Ný- fundnalandi 2. desember 1996 þannig að það er búið að vera hálft annað ár á leiðinni hingað til ís- lands. Þetta rannsóknarskip virðist helst hafa verið í opinberum rann- sóknarleiðangri undir nafninu Skildu tölvuna eftir heima! í sumar getur þú skilið tölvuna eftir heima þegar þú ferð í frí. Á fimm Edduhótelum í alfaraleið hefur verið komið fyrir tölvum tengdum internetsambandi Skímu þar sem þú getur lesið og sent póst og fylgst með fréttum líðandi stundar á visir.is. Það skiptir ekki máli hjá hvaða netþjónustu þú ert, - þjónustan er öllum opin. Frínetið er ókeypis þjónusta fyrir ferðamenn í boði Skímu, visir.is og Aco. FríNetið er staðsett á eftirtöldum stöðum: • Hótel Kirkjubæjarklaustur • Hótel Höfn, Hornafirði • Hótel Edda, Menntaskólanum Egilsstöðum • Hótel Edda, Akureyri Hrafnagilsstræti • Hótel Edda, Í.K.Í Laugarvatni Frínetið keyrir á LEO tölvum frá Aco sem eru nettengdar við Skímu með hraðvirkri ISDN tengingu í boði Landssímans. VlfVlíW. Gunnar Vagn Aðalsteins á þríhjólafákinum. DV-mynd Teitur Þriggja hjóla hugarfóstur Margir vegfarendur Reykjavíkur- svæðisins hafa rekið upp stór augu við að sjá þríhjóla farartæki Gunn- ars Vagns Aðalsteinssonar sem ný- komið er á göturnar. Að framan er það eins og venjulegt mótorhjól en að aftan minnir það á Volkswagen bjöllu. Þríhjólið er ætlað ökumanni og farþega. Gunnar Vagn vinnur við að gera við frystigáma en hann smíðaði mót- orhjólið í frítímanum. „Ég smíðaði allt sjálfur nema skelina sem er ofan á. Ég þurfti að borga 66.000 krónur í vörugjald, bara til að geta sett hjólið á götuna. Það finnst mér grátlegt." Gunnar Vagn segir að mikið sé um svipuð hjól á Mallorca. „Ég fékk hugmyndina við lestur erlends timarits en hjólið er Qöldaframleitt m.a. í Bandaríkjunum og Þýska- landi. Það eru til alls konar útgáfur af því.“ Hann segir að hann hafi lagt áherslu á að hjólið myndi ganga í augun á fólki. Hjólið fékk skoðun í síðustu viku og síðan þá hefur Gunnar Vagn viðrað það á götunum. „Það er sama hvert ég fer. Fólk ætlar að snúa sér úr hálsliðnum." -SJ Hyggst koma Þor- lákshöfn á kortið - segir nýráöinn sveitarstjóri Sesselja Jónsdóttir er 31 árs lög- fræðingur sem nýlega var ráðin í starf sveitarstjóra í Þorlákshöfn. Hún er ung fjölskyldumanneskja og mun flytja þangað til að sinna starf- anum. „Ég mun gera allt sem hægt er til að lokka ferðamenn og fyrirtæki til Þorlákshafnar og koma þorpinu á kortið í því sambandi. Starf sveitar- stjóra liggur að miklu leyti í að koma sér og sínum á framfæri," seg- ir Sesselja. „Ég var ráðin úr hópi 22 umsækj- enda og tek við 1. september. Ég hef lögmannsréttindi og hef starfað sem lögmaður. Þá er ég varabæjarfull- trúi í Kópavogi og sit í félagsmála- ráði. Því þekki ég til sveitarstjórn- arstarfa. Mig hefur alltaf langað að sinna sveitarstjórnarmálum. Ég nýtti tækifærið og finnst það frá- bært.“ Sesselja á tvær litlar stúlkur, 6 mánaða og tveggja ára, og mann sem starfar í Þorlákshöfn. Þvi ligg- ur beint við að flytjast þangað. „Þorlákshöfn er frábær staður til að vera með börn á. Félagsleg þjón- usta er góð og búið að byggja allt upp. Þar er hlúð vel að fjölskyldum. Við bjuggum í Kópavogi en erum nú að pakka saman og flytja. í raun er Þorlákshöfn aðeins steinsnar frá bænum, 20 mínútur frá Seláshverfi, og manni finnst vegalengdin alltaf vera að minnka. Þorlákshafnarbúar eru spenntir fyrir því að fá uppbyggðan Suður- strandarveg frá Grindavík. Þá myndi aðkoman í þorpið breytast til muna. Vegurinn myndi hjálpa mik- ið með fiskflutninga. Þá yrði allt að- gengi betra ef tenging væri við höf- uðborgarsvæðið þarna megin,“ seg- ir Sesselja. -sf Sesselja Jónsdóttir er nýráðinn sveitarstjóri Þorlákshafnar. Hún hyggst gera sitt besta til aö lokka fólk og fyrirtæki á staöinn. DV-mynd BG.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.