Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1998, Page 36
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1998
Helgarblað DV:
Á uppleið
í helgarblaði DV á morgun er viðtal
við okkar skærustu sundstjömu í dag,
Hafnfirðinginn Öm Amarson, sem um
síðustu helgi setti sex íslandsmet. Ætt-
ir kappans era einnig raktar en hann
er kominn af fræknu sundfólki.
Rætt er við Jóhönnu Guðlaugsdóttur
u sjúkraþjálfara sem flakkað hefur víða
um heim, fjaliað er um Finnann fljúg-
andi, hann Mika Hakkinen, og í inn-
lendu fréttaljósi era nýir fletir á gagna-
grannsmálinu. í erlendu fréttaljósi er
fjallað um heimsins frægasta
saksóknara, Kenneth Starr. -bjb/sm
Gunlaugur Sigmundsson:
Miður að missa
Landsbankann
„Mér þætti miður að sjá yfirráð
yfir Landsbankanum, sem við höfum
átt og rekið í meir en 100 ár á miserf-
iðum tímum, færð í hendur útlend-
inga á mesta góðærisskeiði lands-
ins,“ segir Gunnlaugur Sigmundsson
’-i* alþingismaður um mögulega sölu á
hlut í Landsbankanum til SE-banken
í Svíþjóð. -SÁ
Ný innrás í Barentshafið veldur norskum sjómönnum vonbrigðum:
Herskip i Smuguna
- er krafa Norges Fiskarlag til norskra stjórnvalda í dag
DV, Ósló:
„Það minnsta sem við getum
krafist er að strandgæslan sendi
herskip strax í Smuguna til að
fylgjast með veiðunum og skrá hve
mikið togararnir eru að fá. Þetta er
allt fiskur sem verður tekinn af
okkar kvótum á næsta ári. Við
erum að horfa á íslendingana taka
aflann sem okkur var ætlaður á
næsta ári,” sagði Jan Birger Jörg-
ensen, deildarstjóri hjá Norges
Fiskarlag, við DV í morgun.
Jörgensen sagði að tíðindin af
Smuguveiðunum nú yllu sárum
vonbrigðum því svo virtist sem ís-
lendingar hefðu engan áhuga á að
leysa Smugudeiluna og það þótt
vitað væri að hrun blasti við í
þorskveiðum í Barentshafi. Rætt
er um að skera kvóta næsta árs
niður um 200 þúsund tonn.
„Við vorum að vona að við
slyppum við þessa innrás i sumar
enda er nú skammt í að nýtt fisk-
veiðiár hefjist á íslandi. Nú verð-
um við að krefjast þess á ný að
norsk stjórnvöld beiti sér í mál-
inu,” sagði Jörgensen.
„Þetta verðum við að láta athuga
strax. Síðast þegar ég vissi var
ekkert um að vera í Smugunni en
þetta bendir til að verðum að fara
á stúfana,” sagði Dag L. Isaksen
hjá norsku strandgæslunni þegar
DV bar honum fréttirnar af innrás
íslenskra togara í Smuguna og
góðri veiði þar.
„Eftir að hafa kynnt okkur mál-
ið í dag
munum
við taka
ákvörð-
un um
hvort
varðskip
verður
sent á
vettvang
til að
fylgjast
með en
við getum sem fyrr ekki gripið til
neinna annarra aðgerða,” sagði
Isaksen.
Sömuleiðis voru það ný tíðindi í
norska sjávarútvegsráðuneytinu
að Smuguveiðar ársins væru hafn-
ar fyrir alvöru. Peter Angelsen
ráðherra liggur veikur heima í Ló-
fóten og vildi ekki tjá sig um mál-
ið við DV í morgun en Bjame
Myrstad, talsmaður hans, sagði að
málið yrði skoðað í ráðuneytinu í
dag. -GK
ísfirðingur ákærður fyrir að stofna lífi manns í hættu í Æðey:
Skaut aö félaganum
úr öflugum Colt-riffli
ísfirðingur á fimmtugsaldri hefur
verið ákærður fyrir að hafa stofnað
lífi félaga síns i stórhættu í íbúðar-
húsi í Æðey í febrúar sl. Honum er
gefið að sök að hafa skotið tveimur til
þremur skotum af öflugum Colt-riffli
í glerflösku sem stóð á borði rétt fyr-
ir framan félagann sem þar sat í sófa.
Við skotin brotnaði flaskan en skotin
lentu í vegg hússins.
Lögreglan fór á báti út í Æðey og
handtók báða mennina þegar grunrn-
lék á að verið væri að nota skotvopn
með ólögmætum hætti í eynni.
Ákærða í málinu er gefið að sök að
hafa verið undir áhrifum áfengis þeg-
ar hann framdi verknaðinn. Hann er
einnig ákærður fyrir að hafa ráðist á
félaga sinn og slegið hann tvö hnefa-
högg í andlitið með þeim afleiðingum
að hann hlaut eymsli á kjálkabeini og
kinn. Maðurinn er auk þess ákærður
fyrir að hafa skotið af rifílinum án
þess að hafa skotvopnaleyfi.
Sýslumaðurinn á ísafirði krafðist
þess fyrir Héraðsdómi Vestfjarða í
gær að ákærði yrði dæmdur til refs-
ingar og að sæta upptöku á umrædd-
um Colt-riffli. Ákærði mótmælti því
ekki við réttarhöld í gær að krafa
sýslumanns um afhendingu á Colt-
rifíilinum yrði tekin til meðferðar
þegar aðalréttarhöld í málinu hefjast
í næstu viku. Þegar Jónas Jóhanns-
son héraðsdómari spurði manninn
um afstöðu hans til ákæruatriðanna
kvaðst hann ekki reiðubúinn til að tjá
sig um sakarefnin fyrr en hann hefði
ráðfært sig við verjanda. -Ótt
Veðrið á morgun:
Bjart fyrir
noröan og
austan
Á morgun verður hæg, suðlæg
eða breytileg átt á landinu, bjart
veður norðan- og austanlands en
smáskúrir sunnan- og suðvestan-
lands. Hiti verður á bilinu 10 til
18 stig, hlýjast í innsveitum á
Norðausturlandi.
Veðrið í dag er á bls. 37.