Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1998, Síða 4
4
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1998 UV
fréttaljós
'k ir
Brotthvarf landbúnaöarráðherra sem þruma úr heiöskíru lofti:
Halldór er milli
steins og sleggju
- vinsældum fórnað fyrir frið og ólga í flestum kjördæmum
Brotthvarf Guðmundar Bjarna-
sonar af hinum pólitíska vettvangi
kom sem þruma úr heiðskíru lofti.
Sjálfur forsætisráðherra hefur sagt
að hann hafi ekki vitað um umsókn
Guðmundar um stöðu forstjóra
íbúðalánasjóðs. Að vísu höfðu verið
vangaveltur um það siðustu misser-
in að hann hygðist setjast i þann
helga stein sem gjöfult embætti gef-
ur. Opinberlega hefur ráðherrann
fráfarandi sagt að hann hafi fengið
hugmyndina um að sækja mn stöð-
una aðeins viku áður en fjölmiðlar
sögðu fréttina. Það kann að vera
rétt hjá honum en hitt er jafnvist að
hann hafði um hríð verið að líta i
kringum sig í því skyni að finna
embætti sem hentaði. Almennt er
talið aö hann hafi verið orðinn
þreyttur á pólitík og því ákveðið að
feta þann stíg sem svo margir
þungavigtarmenn í pólitík höfðu
áður gert.
Halldór Ásgrimsson, formaður
Framsóknarflokksins, var erlendis
þegar opinbert varö hvert varafor-
maður hans stefndi. Svo er að sjá
sem hann hafi ekki verið búinn að
taka ákvörðun ásamt öörum í for-
ystunni um það hvemig fylla skyldi
skarð Guðmundar umhverfis- og
landbúnaðarráðherra. Þannig hafi
sú staðreynd að ekki var nefndur til
sögunnar arftaki Guðmundar strax
orðið til þess að í langflestum kjör-
dæmum spmttu upp kandídatar. í
stað þess að tiinefna hinn útvalda
strax og taka slaginn hefur nú
myndast gifurleg spenna í flokknum
sem ekki sér fyrir endann á. Þannig
hafa kandídatar sprottið upp sem
gorkúlur jafnt í þéttbýli sem í dreif-
býli. Ekki em allir sáttir við þá hug-
mynd sem uppi er um að ekki verði
skipað í embætti Guðmundar. Sú
skoðun er útbreidd að með því
myndi verða slíkt ójafnvægi innan
ríkisstjómarinnar að Framsókn
myndi skaðast af. Þá er sú skoðun
útbreidd innan flokksins að nýr ráð-
herra af réttu ___________________
kyni og frá réttu
landsvæði
myndi styrkja
flokkinn í kosn-
ingum. Ekki sé
vanþörf á þar
sem skoðana-
kannanir sýni að
halli undan fæti
hjá Framsóknar-
flokknum og nota eigi það lag sem
nú er til að styrkja ímynd hans.
Ekki era allir sammála um það
hver eigi að hreppa hnossið en talið
er kosningavænt að setja konu í
stólinn sem skapa myndi flokknum
þá ímynd að hann væri jafiiréttis-
sinnaður með tvær konur á ráð-
herrastólum. Verði sú hugmynd
ofan á fækkar það kandídötum nið-
ur í tvo. Þannig stæðu aðeins eftir
Valgerður Sverrisdóttir í Norður-
landskjördæmi eystra og Siv Frið-
leifsdóttir í Reykjaneskjördæmi.
Annað sjónarmið er einnig uppi
sem er það að flokkurinn þurfi sár-
lega að styrkja sig í stóra kjördæm-
unum á suðvesturhominu. Þar
horfa menn á kjördæmi Sivjar þar
sem líklegt er talið að einn maður
nái inn í næstu kosningum í stað
þeirra tveggja sem nú sitja á Al-
þingi. Fallist forystan á þessar for-
múlur liggur fyrir að Siv fellur að
þeim báðum. Vandinn er bara sá að
þingmenn annarra kjördæma era
ekki á sama máli.
Sú ákvörðun Guðmundar Bjarnasonar að hætta f pólítík og setjast í feitt embætti sem forstjóri íbúðalánasjóðs hef-
ur sett flokkinn nánst á annan endann. Kandítatar hafa sprottið upp í flestum kjördæmum og forystan er sögð hafa
sýnt af sér ótrúlegan klaufaskap. Hér er Halldór Ásgrfmsson, formaður Framsóknarflokksins, á góðri stund með frá-
farandi varaformanni sínum.
Gunnlaugur
Sigmundsson.
Innlent
fréttaljós
og Stefán Ásgrímsson
Vestfirðir
Gunnlaugur
Sigmundsson, al-
þingismaður Vest-
firðinga, er einn
þeirra þingmanna
sem taldir era
koma til greina
sem ráðherra
flokksins. Hann
vildi í samtali við
DV ekki tjá sig
efnislega um stöð-
una innan flokks-
ins: „En það er ekkert launungar-
mál að ég er ekki í pólitík til þess að
vera geymdur inni í einhverjum
____________ skáp. Ég er ekki
þingmaður fyrir
þá nafnbót eina,“
sagði Gunnlaugur
sem var á ferð fyr-
ir vestan til að
ræða stöðuna inn-
an flokksins.
Hann sagðist jafn-
framt ekki hafa nein
áform um annað en
að halda áfram í pólitík. Samkvæmt
heimildum DV er alveg skýrt að
stuðningsmenn Gunnlaugs í kjör-
dæminu gera skýlausa kröfu um
aukin áhrif hans.
Norðurland eystra
Á Norðurlandi eystra er Valgerð-
ur Sverrisdóttir alþingismaður
væntanlegur arftaki Guðmundar
Bjamasonar og þar
með oddviti í einu
sterkasta vigi
Framsóknar. Hún
hefur verið talin
einna líklegust til
þeirra áhrifa sem
til falla. Vandinn
er bara sá að ekki
er einhugur um
Valgerði og nokk-
ur fjöldi þingmanna telur sig betur
fallinn til ráðherradóms.
Allt þetta mál ber einkenni þess að
klaufaskapur ráði ferðinni. Þar
benda menn á ráðherraskiptin hjá
sjálfstæðismönnum þar sem tilkynnt
var á sömu stundu að Friðrik Soph-
usson hætti og Geir Haarde tæki við
Valgerður
Sverrisdóttir.
fjármálaráðuneytinu. Þannig hafi
hugsanleg óánægja ekki náð að gerj-
ast og engin vandamál hlotist af.
Það virðist sama hvaða leið forysta
Framsóknarflokksins velur. Öllum
þeim lausnum mun fylgja sársauka-
fúllt uppgjör. Fari svo að skarð Guð-
mundar verði ófyllt munu margir
líta svo á að auknum vinsældum
hafi verið fómað fýrir frið milli
kjördæma og einstakra þingmanna.
Suðurland
„Guðmundur Bjamason er mikill
sómamaður og eftirsjá að honum.
Hver verður ráðherra er ekki gott
að segja,“ segir ísólfur Gylfi Pálma-
son alþingismaður. Hann vildi ekki
gefa neitt upp um hvem hann vildi
sjá sem eftirmann Guðmundar í
ráðherrastóli.
Þegar rætt er
við framsóknar-
menn í Suður-
landskjördæmi er
ljóst að í hugmn
þeirra er enginn
vafi um hver skuli
taka við ráðherra-
dómi Guðmundar
- Guöni Ágústs-
son. Málið er þó
greinilega viðkvæmt og menn
veigra sér við þvf að ganga í ber-
högg við hugsanlegan vilja flokks-
forystunnar og formannsins eins og
marka má af orðum ísólfs Gylfa og
annarra þingmanna flokksins sem
era vægt sagt afar varfæmir í orö-
um sínum. Halldór Ásgrímsson
flokksformaður hefur lítið veriö
heimavið að undanfómu og ekki að
fullu ljóst hver vilji hans er. Sjálfur
hefur hann látið að því liggja að
ráðherrar flokksins, sem eftir era,
skipti með sér ráðuneytum Guð-
mundar. Vera kann að Halldór telji
það vera skynsamlegt til að forðast
átök og illdeilur en ekki er ólíklegt
að einmitt hið gagnstæða gerist í
því tilfelli enda er harla lítill áhugi
á þessari lausn í flokknum.
Framsóknarmenn sem rætt hefur
verið við telja að með því móti muni
halla mjög illa á Framsóknarflokk-
inn í stjórnarsamstarfinu með einn
mann undir í stjómarsamstarfinu
við Sjálfstæðisflokkinn. Þeir telja að
slík lausn væri slæmur pólitískur
afleikur í upphafi kosningabaráttu.
Áhugi á þess háttar biðleik er
langt neðan við frostmarkið á Suð-
urlandi, kjördæmi Guðna Ágústs-
sonar, og á Reykjanesi, kjördæmi
þeirra Sivjar Friðleifsdóttur og
Hjálmars Ámasonar.
Guðni Ágústs-
son nýtur mikils
trausts framsókn-
armanna almennt
og maður í fram-
varðasveit flokks-
ins í kjördæminu,
sem ekki vildi
koma fram undir
nafni, kvaðst vel
geta hvíslað því að
Guðni
Ágústsson.
Isólfur Gylfi
Pálmason.
blaðamanni að hann styddi Guðna
eindregið til ráðherradóms. Guðni
hefði unnið vel fyrir flokkinn um
áratugi og kominn tími til að hann
yrði metinn að verðleikum. „Ef
hann sjálfur sækist eftir þessu styð
ég hann heils hugar. Það kemur
ekkert annað til greina af minni
hálfu. Hann og samherjar hans hér
vinna gott starf. Ég veit hins vegar
að það verða heilmikil átök um
þetta en forysta og formaður flokks-
ins ættu ekki að vanmeta Guðna og
fylgi hans bæði hér og í öðrum kjör-
dæmum," sagði þessi viðmælandi
blaðsins.
Reykjanes
„Þingflokkur Framsóknarflokksins
er svo vel skipaður að sérhver þing-
manna myndi sóma sér vel sem arf-
taki Guðmundar
Bjamasonar í ráð-
herrastóli," sagði
Hjálmar Ámason,
alþingismaður í
Reykjaneskjör-
dæmi, þegar DV
innti hann eftir því
hver yrði arftaki
Guðmundar.
Hjálmar vildi ekki
Hjálmar
Árnason.
fremur en aðrir þingmenn kveða upp
úr með hvem hann vildi sjá á ráð-
herrastóli. Hann kvaðst hins vegar
ekki telja það rétta leið að skipta
ráðuneytum Guðmundar milli hinna
framsóknarráðherranna. „Það er
samkomulag milli flokkanna um
skiptinguna. Það myndi riðla því
samkomulagi," sagði Hjálmar.
„Ég er tilbúin að taka að mér þau
verkefni sem flokkurinn felur mér,“
sagði Siv Friðleifs-
dóttir, alþingis-
maður í Reykjanes-
kjördæmi.
Það sem helst
bendir til að Hall-
dór Ásgrímsson
ætli sér að reyna
að sigla milli skers siv
og báru og skipta Friðleifsdóttir.
ráðuneytum Guð-
mundar á sjálfan sig, Pál Pétursson
og Finn Ingólfsson og Ingibjörgu
Pálmadóttur eru ummæli Guðmund-
ar Bjamasonar við DV og fleiri fjöl-
miðla: Guðmundur sagðist búast við
því að sitja sem ráðherra til áramóta
og taka þá við hinu nýja starfi sem
framkvæmdastjóri íbúðalánasjóðs.
Hvað tefur Guðmund?
Þegar staða framkvæmdastjóra
íbúöalánasjóðs var auglýst fyrr í
sumar var tekið fram að sá sem yrði
ráðinn skyldi hefja störf strax. Það er
vissulega alþekkt að í þessum efnum
gildir ekki það sama um Jón og séra
Jón. Ráðning Guðmundar er reyndar
eins glöggt dæmi um pólitíska ráðn-
ingu og verða má hvað sem líður yf-
irlýsingum manna í undirbúnings-
nefhd að stofnun íbúðalánasjóðs um
hið gagnstæða, t.d. aöstoðarmanns fé-
lagsmálaráðherra í útvarpsfréttum
um að sá hæfasti hefði veriö ráðinn.
En sú spuming vaknar óhjá-
kvæmilega: Hvað er það sem bindur
Guðmund í ráðherrastóli fram að
áramótum? Taki Guðmundur ekki
við stöðunni strax, eins og áskilið
var í auglýsingunni um hana, er
hann meö því að dæma sig frá því aö
móta stofnunina og búa hana undir
að hefja störf á nýju ári. Það verk
verður vafalaust falið aðstoðarfor-
stjóra, hver sem hann verður. Sá
maður verður því hinn raunveralegi
stjórnandi en Guðmundur eins kon-
ar silkihúfa á höfði þess manns.
Málið er einfaldlega það að jafnum-
fangsmikilli stofnun og hér er að
fæðast veitir ekkert af því að æðsti
yfirmaður hennar taki strax til
starfa þegar aðeins eru fjórir mán-
uðir til stefnu. Undirbúningsnefnd
hefur vissulega verið að störfum um
nokkurra mánaða skeið og hefur
notið fulltingis starfsmanna Hús-
næðisstofnunar. Kunnugir segja að
það sé vart hægt að segja að starfs-
mennimir séu allir af vilja gerðir að
undirbúa útför síns gamla vinnu-
staðar með starfi fyrir þessa undir-
búningsnefnd.
Guðmundi með sína löngu banka-
og stjórnunarreynslu er þetta áreið-
anlega ljóst. Eina skýringin á þrá-
setu hans í ráðherrastóli er sú að
Halldór Ásgrímsson hafi lagt að
honum aö sitja áfram til þess að
komast sjálfur í lengstu lög frá inn-
anílokksátökum um ráðherrastól-
ana í landbúnaðar- og umhverfis-
ráðuneytum. Hins vegar er alls óvíst
að Halldór komist hjá óþægindum
þótt Guðmundur sitji áfram fyrir
bænastað foringja síns. Flokks-
menn, ekki hvað sist í Suöurlands-
kjördæmi, Norðurlandskjördæmi
eystra og Reykjaneskjördæmi,
munu sjá til þess.