Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1998, Side 43
n'XT LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1998
Robert Altman er einn þeirra leikstjóra sem vinnur nánast eingöngu fyrir
óháða framleiðendur. Á myndinni er Tim Robbins í The Player.
myndir sem Miramax dreifði á
Bandaríkjamarkaði óskarsverðlaun
árin 1988-91 fyrir bestu erlendu
mynd (Pelle sigurvegari, Cinema
Paradiso, Journey of Hope og
Mediterraneo). Vinsælasta mynd
Miramax á þessu skeiði var þó kvik-
myndin Sex, Lies and Videotapes
(1989) en hún setti tekjumet á mark-
aði „listrænna" mynda. Hún var
markaðssett á ögrandi máta og átti
Miramax eftir að beita syipuðum
markaðsherferðum næstu árin.
Lenti fyrirtækið alloft upp á kant
við bandaríska kvikmyndaeftirlitið
við markaðssetningu mynda á borð
við The Cook, The Thief, His Wife
and Her Lover og Tie Me Up! Tie Me
Down! sem hlutu hinn illræmda X-
stimpil (er klámiðnaðurinn hafði
einokað að mestu). Þrátt fyrir harð-
orð mótmæli um óréttmæti stimp-
ilsins notaði það hann óspart til
kynningar á myndum sínum. Á
þessum áratug hefur
fyrirtækið blómstrað og er jafnvel
að ala upp nýja kynslóð, Miramax-
kynslóðina, með myndum á borð
við The Crow, Clerks, Good Will
Hunting, Kids, Pulp Fiction, Smoke
og Scream 2.
Ný skipan
Bæði fyrirtækin hafa þó gengið í
gegnum breytingar sem breytt hafa
grundvallarskipan þeirra. Árið 1993
keypti Ted Turner New Line
Cinema og Disney-samsteypan’;
Miramax. Það er því með öllu óljósf
hvort enn beri að telja þau til
óháðra fyrirtækja þótt sjálfstæði
þeirra sé ennþá töluvert. Verður án
efa forvitnilegt að fylgjast með þró-
un þessara merku fyrirtækja næstu
árin. -bæn
Óháðar kvikmyndir
Miramax:
Beautiful Girls
★★★ Þessi mynd er um margt
einkennandi fyrir þær myndir fyr-
irtækisins sem ætlað er að höföa
til ungs fólks. Samskipti kynjanna
eru í brennidepli og ýmis vanda-
mál, er hvíla á herðum markaðs-
hópsins tekin fyrir. Engu að síður
hvílir jafnan yfir myndunum já-
kvæð stemning og flestir yfirgefa
kvikmyndahúsin með bros á vör.
Beautiful Girls er afbragðsgóð
mynd, með fínum leikurum á borð
við Timothy Hutton, Matt Dillon
og Umu Thurman. Best allra er þó
hin magnaða Natalie Portman og
verður spennandi að fylgjast með
henni í framtíðinni.
nokkrum ónýttum tökudögum. Af-
rakstur þeirrar vinnu er ein
skemmtUegasta og sérstæðasta
kvikmynd síðustu ára, Blue in the
Face.
New Line/Fine Line:
Crash
★★i Æði einkennileg mynd hins
umdeilda leikstjóra Davids
Cronenbergs Fjallar hún um
nokkra einstaklinga er fá kynferð-
islega útrás í gegnum bílaá-
rekstra. Ted Tumer þótti myndin
miður geðsleg og seinkaði forsýn-
ingu hennar í Bandaríkjunum um
marga mánuði. Er það dæmigert
fyrir þau vandamál er fylgt hafa
„óháðum" framleiðendum eftir
eignaskiptin.
Cinema Paradiso
★★★★ Þessi frábæra mynd
Guiseppe Tornatore er ástaróður
til kvikmyndarinnar. Aðalpersóna
myndarinnar hverfur aftur til
æskuslóðanna og rifjar þar upp
fyrstu kynni sín af „bíóinu".
Myndin vann til flölmargra verð-
launa og verður að teljast meðal
merkari kvikmynda er gerðar
hafa verið í Suður-Evrópu seinni
ár.
Smoke
★★★i Mögnuð samvinna rithöf-
undarins Pauls Austers og leik-
sflórans Wayne Wang skilaöi þess-
ari afbragðsmynd. Stórgott drama
þar sem Harvey Keitel og William
Hurt fara fyrir fríðum hópi leik-
ara. Aðstandendur myndarinnar
skemmtu sér svo vel við gerð
hennar að þeir ákváðu að gera
hálfgerða framhaldsmynd á
Teenage Mutant
Ninja Turtles
★★ Einn óvæntasti og furðuleg-
asti smellur kvikmyndasögunnar.
Fjórar skjaldbökur umbreytast í
nýja tegund skjaldbaka sem er á
stærð við menn og elskar flatbök-
ur. Rotta nokkur stökkbreytist
einnig.og kennir þeim Ninja-bar-
dagatækni sem þær beita óspart í
baráttu gegn glæpamönnum New
York borgar.
ShortCuts
★★★★ Ein albesta mynd hins
víðfræga leikstjóra Roberts Alt-
mans. Ævi flölmargra íbúa Los
Angeles er tengd saman á óvænt-
an en jafnframt raunsæjan máta.
Ótrúlegur leikarahópm’ fer á kost-
um undir styrkri stjóm meistar-
ans gamla. -bæn
myndbönd
4. -3. ágúst
SÆTI J J ' j FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL ÚTGEF. ; TEG.
1 j 1 3 J I J Dvil‘s Advocate 1 Wamer Myndir 1 Spenna
2 ! 5 2 j Jackie Brown j Skífan i Spenna
3 í 2 4 i Good Will Hunting j Skrfan Drama
4 í 3 3 i KissTheGirls j- i CIC Myndbönd Spenna
5 j Ný i J 1 i WagTheDog j Myndform j Gaman
j 6 Ný i ; Gone Fishin' 1 taf;;; Sam Myndbönd J Gaman J |
7 | Ný í ; The Assignment i Skrfan J 1 Soonna
8 ,j 4 5 í Boogie Nights Myndform Drama
9 1 7 8 J ....... . J Jackal ; CIC Myndbönd 1 Spenna
10 ! 6 HH J G j j Picture Perfect i Skrfan J i Gaman J
11 8 5 l Seven Years InTibet Sam Myndbönd Drama
12 i 9 7 J Father's Day Wamer Myndir ! Gaman J
13 i 17 2 í Borrowers j i Háskólabíó j Gaman
14 j Jp ' I 10 8 ; Copland Skrfan 1 Spenna
15 J 20 2 i - i _ Always Outnumbered J i Bergvík J ' i Drama
16 j 16 . J 3 Pentagon Wars Bergvik i j Gaman
17; 15 13 i TheGame Háskólabíó j Spenna
18 i 13 6 i Shadow Of Doubt J Myndfoim i j Spenna J
19 I 11 6 f Starship Troopers j SamMyndbönd j Spenna
20 12 5 i Amerícan Warewolf In París Skrfan J Spenna
Myndband vikunnar | TheBoxer______|p ***
Vinstri krókurinn
írski leikstjórinn Jim Sheridan á
stuttan en glæsilegan feril að baki.
Hann vakti gríðarlega athygli fyrir
fyrstu mynd sína, My Left Foot, um
lamaða rithöfundinn og listmálar-
ann Christy Brown. Næsta mynd
hans, The Field, fékk góða dóma og
eina óskarsverðlaunatilnefningu, en
litla athygli umfram það. In the
Name of the Father sló hins vegar
rækilega í gegn og var tilnefnd til
sjö óskarsverðlauna.
í The Boxer rær Sheridan á
sömu mið og segir persónubundna
sögu með ástandið í N-írlandi mjög
áberandi i bakgrunni. Daniel Day-
Lewis leikur hnefaleikakappann
Danny Flynn, sem snýr aftur á kaþ-
ólskar heimaslóðir sínar í Belfast
eftir 14 ára fangelsisvist. Aldrei
kemur fram nákvæmlega fyrir
hvað, en eitthvað tengist það IRA,
írska lýðveldishernum. Hann hefur
hins vegar snúið baki við þeim, sem
aflar honum lítilla vinsælda meðal
harðlínumanna í hverfinu.
Ekki minnkar andúð þeirra á
honum þegar hann stofnar hnefa-
leikafélag, þar sem kaþólskir dreng-
ir, jafnt sem mótmælendur, læra að
berja hver á öðrum undir heilbrigð-
ari kringumstæðum en þeir eiga að
venjast. Til að bæta gráu ofan á
svart fer hann að blása í glæðumar
á sambandi sinu við æskuástina, en
hún er gift IRA-manni, sem situr í
fangelsi, og samfélagið lítur svo á að
allt annað en algjört trygglyndi
gagnvart fangelsuðum eiginmanni
séu svik. Danny Flynn neitar að
láta ofbeldið og ófriðinn stjóma lífi
sínu, en með því reitir hann harð-
línumennina til reiði, og ofbeldið
sækir hann heim.
í uppskriftinni að þessari mynd
er að finna flést það sem gerði In
the Name of the Father jafn vel
heppnaða og raun ber vitni, og hafa
framleiðendumir sjálfsagt haldið að
þetta væri borðleggjandi stórmynd.
Gallinn er að myndin nær sér aldrei
á almennilegt flug. Hún er of hlut-
laus i afstöðu sinni til deilumála
lýðveldissinna og sambandssinna til
að teljast eitthvað verulega athyglis-
verð sem pólitisk umflöllun eða
samtímasöguskoðun, og það vantar
einhvem neista í persónusköpunina
til að dramatikin í myndinni nái aö
verða nógu áhrifarík. Sagan er að
nokkru leiti athyglisverð og sum at-
riðin ná að hreyfa við manni, en
myndin nær ekki með tæmar þar
sem fyrri myndir Sheridan hafa
hælana.
Þetta er í þriðja
skiptið af flóram
sem Daniel Day-
Lewis leikur aðal-
hlutverkið fyrir
Sheridan og var
betri i bæði fyrri
skiptin. Hann er
þó frábær leikari,
eins og Emily
Watson í hlut-
verki æskuástar-
innar, en hvoragt
þeirra sýnir þó
þvílík tilþrif að
eftirminnilegt sé.;v.
Hins vegar er
mikill fengur í ýmsum aukaleikur-
um og þá sérstaklega Gerard
McSorley, sem einnig lék lítið hlut-
verk undir stjórn Sheridan í In the
Name of the Father. Hann leikur
forsprakka harðlínumannanni í
hverfinu og nær að búa til fremur
ógeðfellda og hrottalega persónu,
sem þó er mjög mannleg og getur
vakið samúð áhorfendans. Það era
helst leikararnir sem gera þessa
mynd vel afþreyingarhæfa, en
myndin líöur eiginlega fyrir það
hvað margar myndir hafa flallað:-
um ófriðinn í N-írlandi undanfarið.
Sjálfsagt hefði mér þótt hún betri
fyrir svona 10 árum eða svo.
Útgefandi: CIC myndbönd. Leik-
stjóri: Jim Sheridan. Aðalhlutverk:
Daniel Day-Lewis og Emily Watson.
Bandarísk/írsk, 1997. Lengd: 109 mín.
Bönnuð innan 12 ára.
Pétur Jónasson