Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1998, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1998, Side 32
JFRETTASKOTIÐ BiSÍMINMSEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Breti handtekinn: Með yfir tvö þúsund E-töflur 26 ára Breti var handtekinn sl. þriðjudag á Keílavíkurflugvelli þegar hann reyndi að smygla rúmlega tvö þúsund E-töflum inn til landsins. Maðurinn hafði komið með flugi frá Spáni. Fíkniefnin fundust í fórum mannsins. Um er að ræða mesta magn af E-töflum sem fundist hefur í einni sendingu fram til þessa. Bretinn hefur aldrei komið við sögu lögreglu hér á landi. Fíkniefnadeild lögregl- unnar rannsakar málið. Maðurinn hefúr verið úrskurðaður í gæsluvarð- hald til 14. september. -RR Reyndu að stinga lögreglu af Lögregla handtók þrjá pilta eftir all- mikla eftirför um götur vesturbæjar í gærkvöld. *"* Lögregla stöðvaði bifreiðina í venjulegi umferðareftirliti í gær- kvöld. Þrír piltar voru í bifreiðinni. Ökumaður vildi ekki ræða við lög- reglu og stakk af. Ók hann m.a. gegn rauðum ljósum. LögreglubOar fylgdu honum eftir. Á Nesvegi stövðuðu pOt- amir bflinn og reyndu að fela sig í nær- liggiandi húsi en lögregla fann þá þar. Þeir voru fluttir á lögreglustöð. -RR Helgarblað DV: " Frakkarnir eru komnir í helgarblaði DV á morgun fjöll- um við ítarlega um heimsmeistara Frakka í knattspymu sem komnir eru til að mæta „strákunum okkar“. Við kynnum helstu stjömumar tfl sögunnar og ræðum við fróða menn um franska knattspymu. Rætt er við útlitshönnuð sem ger- ir það gott í Mílanó, fjöUum um komuKeikos til íslands út frá ný- stárlegu sjónarhorni og segjum frá ferðum Guðríðar. í fréttaljósum er fjaUað um ólguna á fréttastofu Sjón- ^ varps og hinn þunglynda Bondevik. -bjb/sm KEMUR FJALLI6) TIL MÚHAME96! •-x íslenska landsliðið í knattspyrnu býr sig undir slaginn við heimsmeistara Frakka sem fram fer á Laugardalsvellinum annað kvöld. Einn af föstu liðunum í undirbúningnum er að gefa ungum og áhugasömum fótboltaáhugamönnum eiginhandaráritanir og hér er það Ríkharður Daðason sem skrifar nafnið sitt eftir æfingu í gær. DV-mynd Hilmar Þór Hafnfiröingar æfir vegna kaupa á Keili: Leynimakk MikO óánægja hefur risið meðal Hafnfirðinga vegna leynimakks við kaup Reykjavíkurborgar á landi Þórustaða í Vatnsleysustrandar- hreppi. Landinu fylgja mikO jarð- hitaréttindi en aúk þess fer fyrir brjóstið á Hafnflrðingum að fjaOið Keilir skuli verða eign Reykjavíkur- borgar. „Þetta er óheppOegt hjá Reykvík- ingum. Það eru ekki nema þrjár vik- ur síðan ég ræddi þessi mál við Ingi- björgu Sólrúnu og þá minntist hún ekki orði á þessi kaup. Mér finnst að það sé verið að fara á bak við mig í þessu máli. Það kemur okkur spánskt fyrir sjónir að Hitaveitan geri þetta án nokkurs samráðs," segir Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri í Hafnar- firði, um kaup Hitaveitu Reykjavík- ur á landi Þórustaða i Vatnsleysu- strandarhreppi. Magnús segir eðlOegra að Jarð- gufufélagið eða annar slíkur aðOi í sameign sveitarfélaganna gengi til umræddra kaupa. Jafnframt yrði Hitaveita Suðurnesja tekin inn í fé- lagið. Þá mætti jafnvel hugsa sér að Jarðboranir ríkisins kæmi einnig inn í þetta. „Þetta er auðvitað utan lögsögu Hafnarfjarðar en þama er um að ræða hagsmuni svæðisins í heild. Ef ég væri sveitarstjómarmaður á Suðumesjum væri ég helvíti súr yfir að missa fjallið mitt til Reyk- víkinga," segir hann og segist vænta þess að Vatnsleysustrandar- hreppur neyti forkaupsréttar og stöðvi kaupin. Alfreð Þorsteinsson, borgarfuO- trúi og formaður Veitustofnana, sagði við DV í morgun að hann hefði ekki heyrt af óánægju Hafn- firðinga. „KeOir skiptir engu máli i þessu sambandi; ekki fyrir okkur. Það sem skiptir okkur langmestu máli em löndin í Henglinum. Þetta er frekar svona aukabúgrein," segir hann. Alfreð segir Reykvíkinga horfa mjög tO þess að land Þómstaða gengi upp í Trölladyngju þar sem virkjunarmöguleikar séu. Hann staðfesti að ekki væri úti- lokað að Vatnsleysustrandarhrepp- ur neytti forkaupsréttar. „Auðvitað kemur þetta flatt upp á okkur Hafnfirðinga og mér finnst það í meira lagi undarlegt að yfir- völdum í Hafnarfirði skyldi ekki hafa verið boðið tO viðræðna vegna þessa máls. Undanfarin ár hafa Reykjavík og Hafnarfjörður haft mikla samvinnu í málum sem snerta háhita, verksmiðjurekstur í kringum Straumsvik og fleira. Þessu landakaupamáli er þó alls ekki lokið því heimamenn geta enn neytt forkaupsréttar síns,“ segir Lúðvík Geirsson, fulltrúi Fjarðarlistans í bæjarstjórn Hafn- arfiarðar, en hann tók málið upp á bæjarráðsfundi í Hafnarfirði í gær. -aþ/rt Veðrið á morgun: Hiti 8 til 13 stig Fremur hæg norðlæg átt um land aflt. Sums staðar léttskýjað sunnanlands en annars skýjað að mestu. Við norður- og austur- ströndina er gert ráð fyrir dálít- Oli súld öðru hverju. Hiti 8 tO 13 stig. Veðrið í dag er á bls. 37. Keikókoman æfð: Eimskip leysir prammaleysið „Þetta breytir ekki miklu um okkar áæfianir, við erum með varapró- gramm uppi í erminni ef aflt um þrýt- ur,“ sagði HaO- ur Haflsson, umboðsmaður Free WOly, i morgun þegar hann var spurð- ur um vanda- mál sem upp hafa komið vegna haf- færisskírteinis pramma sem nota átti við flutning hvalsins Keikós frá Vest- mannaeyjahöfn í kvina í Klettsvík. Haflur var snemma í morgun ásamt flutningaliði Keikós á æfingu. Þar voru öU handtök við komu Keikós æfö og yfirfarin undir stjóm manna frá United Parcel-flutningafýrirtæk- inu. Varðandi prammann, sem Sigl- ingamálastofhun hefur bannað notk- un á, sagði HaUur að Eimskip mundi koma tU sögunnar og leysa hnútinn fáist ekki leyfi tíl notkunar á pramm- anum við fluminginn frá Vestmanna- eyjahöfri í Klettsvik á fimmtudaginn kemur. -JBP Smyglrannsókn Rannsókn stendur nú yfir á smygh um 500 lítra af áfengi og 75 þúsund vindlinga um borð í Goðafossi. Skipið kom frá Nýfundnalandi í síðustu viku. Lögregla fékk ábend- ingu um þennan smyglvaming og leiddi rcinnsókn í ljós að hann heföi borist tfl landsins með Goðafossi. Sjö skipverjar og tveir fyrrverandi skip- verjar era viðriðnir málið. -RR Sex þjófar teknir Lögreglan í Keflavík handtók sex aðfla á Suðurnesjum i gærmorgun vegna gruns um aðild að innbrotum og þjófnuðum í Reykjavík um sið- ustu helgi. Við húsleit hjá einum þeirra fannst talsvert af þýfi. -RR íhugar að draga umsókn til baka „Þar sem stöðugt er ýjað að því að þetta mál hafi með pólitík að gera hef ég íhugað að draga umsókn mína til baka,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson, fyrr- um fréttamaður á Sjónvarpinu, við DV. Sigurður skOaði í sumar greinargerð um samskipti sín við Helga H. Jónsson fréttastjóra til framkvæmdastjóra Sjónvarps og út- varpsstjóra, að þeirra beiðni. Sagði hann upp í kjölfarið. Sigurður er nú í hópi umsækjenda um lausar stöð- ur fréttamanna á fréttastofu Sjón- varps. -hlh MERKILEGA MERKIVELIN brother PT-220 ny véi íslenskir stafir Taska fylgir 8 leturgeröir, 6 stæröir 6, 9,12, 18 mm borðar Prentar í 4 línur Aðeins kr. 10.925 u Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.