Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1998, Qupperneq 4
4
MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1998
Fréttir
Harðar tekið á þeim sem kaupa þýfi:
Almenningur getur gert
þjófa atvinnulausa
- segir Ómar Smári Ármannsson aðstoðaryfirlögregluþjónn
Harðar virðist nú vera tekið á
þeim aðilum sem kaupa eða hafa
þýfi undir höndum. Að undanfórnu
hafa a.m.k. tveir aðilar verið úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald eftir að
munir, sem stolið var úr híbýlum
fólks í innbrotum, fundust i fórum
þeirra.
„Hlutum er stolið úr verslunum,
íbúðum og bílum. í fæstum tilfellum
eru þjófamir að safna til elliáranna
heldur reyna að koma þýfinu um-
svifalaust í verð, annaðhvort í
skiptum fyrir annað, t.d. fjármuni
eða nota þýfið sem gjaldmiðil í við-
skiptum. 1 allmörgum tilfellum eru
viðkomandi að fjármagna flkniefna-
neyslu sína. Til eru þeir sem hafa
það fyrir atvinnu að taka á móti
stolnum munum. Stundum eru
kaupendur einnig fyrirfram
ákveðnir. Segja má að sumir kaupi
þýfi vitandi vits en aðrir í einfeldni
sinni. Hollt er að hafa í huga að
kaupi fólk þýfi er veruleg hætta á
að góssið kunni að verða tekið bóta-
laust af því aftur ef upp kemst,“ seg-
ir Ómar Smári Ármannsson, aðstoð-
aryfirlögregluþjónn í Reykjavík, að-
spurður um málið.
í hegningarlögunum er gert ráð
fyrir að þeim sé refsað sem i gáleysi
kaupir eða tekur við hlutum sem
fengnir hafa verið með auðgunar-
glæp með sektum eða varðhaldi. Ef
brot er ítrekað má beita fangelsis-
vist allt að sex mánuðum. Ef um
ásetning er að ræða getur brotið
varðað fangelsi allt að fjórum árrnn.
„Flestir geta staðið frammi fyrir
Svæöisstjóri málefna fatlaðra í Reykjavik:
Fær 18 mánaða
biðlaun a
DV, Akureyri:
Bjöm Sigurbjömsson, fyrrver-
andi skólastjóri gagnfræðaskólans á
Sauðárkróki, fær greidd frá nýja
sveitarfélaginu í Skagafirði biðlaun
í 18 mánuði en Birni var hafnað
sem skólastjóra þegar gagnfræða-
skólinn og barnaskólinn á Sauðár-
króki voru sameinaðir. Bjöm undi
þeim gjömingi illa og hugðist leita
réttar síns, enda hafði hann mikla
reynslu í skólastarfi og lengstan
starfsaldur umsækjenda, auk góðr-
ar menntun til starfsins.
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra réð Björn Sigurbjörnsson ný-
lega í stöðu svæðisstjóra málefna
fatlaðra í Reykjavík. Ráðningin var
gagnrýnd af öðram umsækjendum,
félögum sem annast málefni fatl-
aðra auk þess sem fulltrúum
Kroknum
Reykjavíkur þótti miður að ekki var
leitað samráðs við ráðninguna.
Samkvæmt lögum átti Bjöm rétt
til 12 mánaða biðlauna en sveitar-
stjómin ákvað að bæta við 6 mánuð-
um og greiða biðlaunin í eitt og
hálft ár. „Við töldum að ekki hefðu
á nokkum hátt verið brotin lög á
Bimi en samt sem áður töldu menn
heppilegast að semja við hann. Við
voram ekki hræddir við hugsanleg
málaferli en þau hefðu orðið mjög
kostnaðarsöm, jafnvel þótt við hefð-
um unnið. Ég get nefnt sem dæmi
að málaferlin vegna framkvæmdar
sameiningarkosninganna hér í
Skagafirði kostuðu sveitarfélagið á
aðra milljón króna þótt við hefðum
haft fullan sigur í því máli,“ segir
Snorri Bjöm Sigurðsson, sveitar-
stjóri sameinaðs sveitarfélags í
Skagafirði. -gk
þeim valkosti áður en þeir kaupa
þýfi að gera það upp við sig hvort
„reyfarakaupin" séu virkilega þess
virði. Bæði er það í Ijósi áhættunn-
ar og þeirrar staðreyndar að þjófar
stela á meðan einhver vill kaupa.
Auðvitað ætti að vera nóg að skír-
skota til siðferðiskenndar fólks í
þessum efnum, en svo virðist sem
sú kennd hafi því miður almennt
farið heldur þverrandi á síðari
árum.
Auk þess sem stolið er frá versl-
unar-, fyrirtækiseigendum og opin-
berum aðilum er almenningur ekki
síður líklegur til að verða fómar-
lömb þjófa. Því fleiri sem kaupa
þýfi, því meiri líkur em á að þeir
hinir sömu geti orðið næsta fómar-
lamb innbrotsþjófa. Þá eykur það
jafnframt líkur á að þeir sem em að
byrja afbrotaferil sinn haldi honum
áfram. Þvl fleiri sem hafna boði um
kaup á þýfi, því minni ástæða fýrir
þjófa að stela. Almenningur hefur
hvað mestan hag á því að gera þjófa
atvinnulausa. Það getur fólk gert
með því að kaupa ekki vaming sem
það grunar að geti verið þýfi,“ segir
Ómar Smári. -RR
Frá innbroti í verslun í Reykjavík. Harðar er nú tekið á þeim sem kaupa eða
hafa þýfi undir höndum. Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn í Reykjavik, segir að almenningur geti gert þjófa atvinnulausa með því
að kaupa ekki þýfi. DV-mynd S.
Frelsiskvöldmáltíðin
Eiginlega greinir
mannkynssagan ekki
nema frá einni kvöld-
máltíð sem orð er á
gerandi. Það er síð-
asta kvöldmáltíð frels-
arans. Eftir það var
hann svikinn og
krossfestur.
Nú hafa menn etið í
annarri kvöldmáltíð,
sem sagan mun áreið-
anlega geyma og varð-
veita um ókomna tíð.
Það er frelsiskvöld-
verðurinn sem étinn
var síðastliðið laugar-
dagskvöld í Sunnusal
Hótel Sögu.
Það hefur farið
nokkuð hljótt um
þennan kvöldverð,
enda stóðu að honum
hógværir menn og lít-
illátir og heiðursgest-
urinn sjálfur, Davíð Oddsson, er hvorki hroka-
fullur né drýldinn, hvað sem Sighvatur Björg-
vinsson segir. Þess vegna hefur það ekki komist
nægilega til skila að heimsögulegur viðburður
átti sér stað á Sögu, þetta kvöld og undir þessum
kvöldverði. Davíð var sem sagt heiðraður af Evr-
ópusamtökum ungra hægri manna og er þar ekki
leiðum að líkjast því áður hafði Margrét
Thatcher verið heiðruð og Lech Walesa. Þess má
í leiðinni geta að Davíð er heiðursforseti þessara
samtaka, svo full ástæða var til að heiðra heið-
ursforsetann og Margrét Thatcher er verndari
samtakanna og er nú unnið að því að gera Lech
Walesa að heiðursritara, til að þau sem heiðruð
hafa verið, séu öll heiðursfélagar i þessum sam-
tökum sem hafa heiðrað þau. Það má ekki hallast
á heiðurinn.
Það er alltaf ánægjulegt þegar forystumenn úr
íslensku þjóðlífi em heiðraðir og störf þeirra
njóta viðurkenningar. Ekki síst ef þessir sömu
forystumenn em heiðursforsetar eða heiðursfé-
lagar þeirra samtaka sem heiðra þá sérstaklega,
vegna þess að það er trygging fyrir því að félags-
menn þekki heiðursforseta sinn og viti að hann
eigi það skilið að vera heiðraður.
Ekki dró heldur úr hátíðleikanum á Sögu að
Hannes Hólmsteinn Gissurarson var mættur til
að lýsa ferli frelsara Davíð og varpaði það ljóma,
bæði á Hannes sem Davíð og heiðurinn sem hon-
um var sýndur. Síðan þakkaði Davíð Hannesi og
fór vel á með þeim félögum og engin hætta er á
því að Hannes svíki ffelsara sinn eins og Júdas
gerði forðum. Þetta var frelsiskvöldverður þar
sem frelsið sat í fyrirrúmi og heiðurinn af því að
vera frjáls að því að heiðra þá sem skópu frelsið.
Ekki síst þegar þeir geta heiðrað sjálfan sig. Svo-
leiðis menn svíkja ekki, enda getur Hannes átt
von á því að vera heiðraður næst, vegna þess að
það er Hannes sem kenndi Davíð frelsið og við
eigum eftir að upplifa marga frelsiskvöldverða,
þar sem Margrét Thatcher heiðrar Davíð og Dav-
íð Hannes og Hannes Davíð og Davíð Möggu.
Menn eru aldrei nógsamlega heiðraðir fyrir frels-
ið, enda má segja að frelsi sé til lítils nema menn
geti heiðrað sjálfan sig fyrir það.
Dagfari
Stuttar fréttir dv
Silfur hafsins
Öm KE kom til Seyðisfjarðar i
gær með fullfermi af sfid úr
norsk-íslenska síldarstofninum.
Guðrún Þorkelsdóttir kom með
fullfermi til Eskifjarðar en skipið
var á veiðum við Norður-Noreg.
Átta íslensk skip fengu þar 9.000
tonna kvóta sem jafngildir full-
fermi á eitt skip.
Bylgjan greindi frá.
Neitaöi sakargiftum
í gærmorgun
var tekið fyrir
mál ríkislög-
reglustjóra gegn
Pétri Þór Gunn-
arssyni, eiganda
Gallerí Borgar.
Honum er gefið
að sök að hafa
blekkt við-
skiptavini með því að afmá höf-
undarmerkingu dansks listmál-
ara og selja þeim málverk sem
sögð vom eftir íslenskan málara.
Pétur Þór var einnig sakaður um
brot á bókhaldslögum og lögum
um sölu notaðra lausafjármuna.
Hann neitaði öllum sakargiftum
við þingfestingu málsins.
Bylgjan greindi frá.
í gæsluvaröhald
í gær úrskurðaði Héraðsdómur
Reykjavíkur ungan mann í gæslu-
varðhald til 19. október vegna
grófrar líkamsárásar á ungan
mann í Austurstræti aðfaranótt
sunnudags. Fómarlambið hlaut
alvarlega höfuðáverka. Árásar-
mennimir vom tveir og hefur
hinn líka verið handtekinn.
Bylgjan greindi frá.
Margir vilja til Rómar
Langur
biðlisti er kom-
inn í svonefnda
forsetaferö til
Rómar sem
hefst 3. nóvem-
ber. Forseti ís-
lands, hr. Ólaf-
ur Ragnar
Grímsson, fer þá í opinbera heim-
sókn til Ítalíu í boði Ítalíuforseta.
Hann fer í At-lantavél og var
ákveðið að selja almenningssæti í
vélinni.
Bylgjan greindi frá.
Ætlar kannski
upp á dekk
Flugmaðurinn sem skipverjar á
togaranum Haraldi Böðvarssyni
björguðu um borð vestur af land-
inu á mánudagsmorgun er enn
um borð og búinn að jafna sig á
volkinu. Flugmaðurinn segist
vera til í að klára túrinn með
skipverjum.
Bylgjan greindi frá.
Enn meövitundarlaus
7 ára drengur, sem slasaðist al-
varlega í umferðarslysi í Kópa-
vogi fyrir hálfum mánuði, liggur
enn meðvitundarlaus á gjörgæslu-
deild Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Bylgjan greindi frá.
Lagakennsla í 90 ár
Á morgun, 1.
október, eru 90
ár liöin síðan
lagakennsla
hófst á íslandi. í
tilefni þess efnir
lagadeild til há-
tíöarsamkomu á
morgun í hátíðarsal Háskólans
(aðalbyggingu) og hefst hún kl. 14.
Forseti lagadeildar og háskóla-
rektor flytja þar ávörp.
Skyndiaðgerðanet
Amnesty Internationai
Rúmlega 80 íslendingar taka
þátt í Skyndiaðgerðanetinu hjá
Amnesty International. Þeir fá
sendar til sín upplýsingar og
beiðni um skjót viðbrögð til að
leggja fórnarlömbum mannrétt-
indabrota lið.