Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1998, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1998
9
Utlönd
Ófögur sjón í gilskorningi í Kosovo:
Börn, konur og gam-
almenni skorin á háls
Lík albanskra þorpsbúa úr
Kosovohéraði í Serbíu lágu í gær á
víð og dreif um kjarrivaxinn gil-
skoming. Fólkið hafði ýmist verið
skorið á háls eöa skotið í höfuðiö.
Albanskir nágrannar þess sögðu að
serbneskar hersveitir hefðu myrt
fólkið á laugardag.
Fréttamaður Reuters sá sextán
lík í gilskomingnum nærri þorpinu
Gomji Obrinje í miðhluta Kosovo,
þar af vom að minnsta kosti tíu af
bömum, konum og gamalmennum.
Allt var fólkið í fotum óbreyttra
borgara og ekki var annað að sjá en
flest hefði verið drepið af stuttu færi
og af ásetningi.
Líkfundur þessi þykir órækur
vitnisburður um þær aðferðir sem
serbneskar hersveitir hafa beitt í
baráttu sinni gegn albanska meiri-
hlutan í Kosovo. Á sama tíma komu
vestrænir sendiherrar saman til
fundar i Kosovo til að sýna stjóm-
völdum í Belgrad að hótun NATO
um loftárásir er ekki bara tal út í
loftið.
Grátandi ættingjar og nágrannar
Serbneskir skriðdrekar og önnur farartæki voru á ferö um Kosovohérað í
Serbíu i gær. NATO hefur hótað loftárásum láti Serbar ekki af hernaði sínum
gegn albönskum aðskilnaðarsinnum í héraöinu.
hinna myrtu grófu þeim grafir í
gær. Þeir sögðu að fólkið hefði leit-
að skjóls í gilskomingnum eftir að
serbneskir lögregluþjónar og her-
menn höfðu umkringt þorpið
Gomje Obrinje. Níu hinna myrtu
tilheyrðu einni og sömu stórfjöl-
skyldunni.
„Ég heyrði öskur og skothríð,"
sagði Sadri Delija, miðaldra karl úr
fjölskyldunni. „Þegar hermennimir
fóra burt fundum við þau látin.“
Hann sagði að morðingjamir
hefðu verið í einkennisbúningum
bæði serbneskra hermanna og lög-
regluþjóna.
Utanríkisráðherra Júgóslavíu
neitaði alfarið í gær að bardagar
héldu áfram í Kosovo, eins og al-
banskir íbúar héraðsins höfðu skýrt
ffá. Hcmn sagði þó að öryggissveitir
væm í viðbragðsstöðu vegna hugs-
anlegra árása skæruliða.
Mikil lest serbneskra skriðdreka
og annarra farartækja kom til Prist-
ina í gær en stjómvöld sögðu að
ferðalagið væri liður í brottflutningi
hermanna ffá héraðinu.
Óslóarbúa
dreymir
um hita-
veitu
DV; Ósló:
Óslóarbúar hugsa sér gott til
glóðarinnar þegar hitaveita
verður komin um alla borg eftir
þrjú til fimm ár. Og draumur-
inn er að nýta jarðvarma með
því að bora fimm kílómetra
djúpar holur í borgarlandinu,
dæla niður köldu vatni og fá
það sjóðandi upp aftur.
Fyrsta tilraunahitaveitan
verður tekin í notkun á næsta
ári. Hún á að hita upp nýtt rik-
issjúkrahús. Sérfræðingamir
spá því svo að þegar borgarhita-
veitan verður komin í gagnið
muni orkuútgjöld borgarbúa
lækka mn helming.
Upphitun er mikið vandamál
í Ósló. Miöstöðvar em óþekktar
í stómm hluta borgarinnar og á
köldum vetrardögum brenna
borgarbúar ógrynni af timbri og
olíu í ofnum. Þetta veldur meng-
un sem fer oft yfír hættumörk á
vetrinum og auk þess vill
brenna við að eldra fólk gefist
upp á eldiviðar- og olíuburðin-
um og sitji bara í kuldanum.
-GK
Starfsmenn Zaporizhja kjarnorkuversins í Úkrafnu hrópuðu vígorö í mótmælaaögeröum úti fyrir úkraínska stjórnar-
ráöinu í Kænugaröi í gær. Um fimm hundruö fulltrúar starfsmanna kjarnorkuvera f landinu kröföust þess aö fá van-
goldin laun sín greidd. Kjarnorkuver sjá Úkraínumönnum fyrir 40 prósentum rafmagnsins sem þeir nota.
Ráðherrar fá
að sitja áfram
Göran Persson, forsætisráðherrar
Svíþjóðar, mun ekki hafa í hyggju að
tilkynna breytingar á stjórn sinni
þegar þing hefst 6. október næstkom-
andi. Hins vegar má vænta breyt-
inga seinna i haust, að því er forsæt-
isráðherrann greindi frá í gær.
Persson hefur þó staðfest að
Margot Wallström félagsmálaráð-
herra yflrgefi stjómina. Ástarsam-
band Eriks Ásbrinks fjármálaráð-
herra og Ylvu Johansson skólamála-
ráðherra veldur forsætisráðherran-
um einnig áhyggjum.
Efst á óskalista ýmissa
þungavigtarmanna í Jafnaðar-
mannaflokknum yfir nýja ráðherra
er Mona Sahlin, fyrrverandi aðstoð-
arforsætisráðherra. Óvíst er hvort
hún muni þiggja ráðherrastól. Fyrir
þremur árum sagði Sahlin af sér
embætti aðstoðarforsætisráðherra
eftir að fjölmiðlar greindu frá því að
hún hafði notað krítarkort ríkisins í
eigin þágu og dregið endurgreiðslur.
Carl Bildt, leiðtogi hægrimanna,
Göran Persson, forsætisráöherra
Svíþjóöar. Símamynd Reuter
er þeirrar skoðunar að Persson verði
að hætta stjómarsamstarfinu við
Vinstriflokkinn áður en næstu kosn-
ingar fara fram árið 2002.
www.upvalutsyn.is ^
■^■■■■■■■■■■■■■■■■■■B ÚRVAL ÚTSÝN
INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESÍT INDESIT INDESIT INDESIT
t
(A
UJ
Q
z
cn
cn
t/i
# indesif
: wttmgBþ .. ,. / /
Frustikistur
... - TonnnH I rfror /hr \
Tilboðsverð sem eru komin til að vera.
BRÆÐURNIR
Lágmúla 8 • Sími 533 2800
Tegund Lítrar (br.) Stærð Verð Stgr.
GFP4141 146 lítrar 85x60x60 31.263,- 29.700,-
GFP 4220 220 lítrar 88x89x65 37.579,- 35.700,-
GFP 4290 294 lítrar 88x109x65 41.789,- 39.700,-
GFP 4370 370 lítrar 88x132x65 47.053,- 44.700,-
GFP 4435 443 lítrar 88x164x65 52.316,- 49.700,-
stænöip fpystiskápa
GFP
Q
z
tn
U1
Q
.fc
; </>
i U1
\i
íS
m 15
4435 /S
z