Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1998, Qupperneq 6
LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998 JjV
stuttar fréttir
Serfoar gera árás
Franskir læknar segjast hafa
séð þorp í Kosovo í logum eftir
árás Serba í þessari viku.
Ný stjórn í Slóvakíu
Slóvakía fékk i gær nýja stjórn.
Mikulas Dzurinda, sem tekur við
forsætisráö-
herrastólnum af
Vladimir Meci-
ar, sór þá emb-
ættiseið. Dzur-
inda er hagffæð-
ingur og leiðtogi
Slóvakíska lýð-
ræðisbandalags-
ins sem sigraði í kosningunum í
september síðastliðnum.
Má ákæra Pinochet
Dómstóll í Madrid úrskurðaði í
gær að spænski dómarinn, sem
fyrirskipaði handtöku harðstjór-
ans Pinochets, mætti fara fram á
framsal hans.
Tugír myrtir
Skæruliðar og liðhlaupar í
norðurhluta Sierra Leone læstu
48 óbreytta borgara inni og
sprengdu síðan bygginguna.
Aukinn herafli
Fjölgað var í herliði Indónesa á
A-Tímor mánuði eftir að yfirvöld
í Jakarta tilkynntu að þau væru
farin að fækka hermönnum á
svæöinu.
Hægur hagvöxtur
Gordon Brown, fjármálaráð-
herra Bretlands, sagði að loknum
fundi helstu sjö iðnríkja heims að
hægur hagvöxtur væri aðalhætt-
an sem blasti við efnahag heims-
ins en ekki verðbólga.
Arafat þreyttur
Leiötogi Palestínu, Yasser Ara-
fat, mun draga sig í hlé á næsta ári
vegna heilsubrests og þreytu, að
því er blaö í Beirút skrifaði i gær.
Vín gott fyrir konur
Eitt vínglas á dag er gott fyrir
konur. Hættan á að deyja úr
hjartasjúkdómi er þrefalt minni
fyrir þær konur sem drekka eitt
glas á dag en fyrir þær sem
drekka alls ekki, samkvæmt mati
bandarísks prófessors.
De Klerk gagnrýnir
Fyrrverandi forseti S-Afríku,
F.W. de Klerk, sakaði í gær Sann-
leiks- og sátta-
nefndina um að
skipta þjóðinni í
tvær fylkingar.
Sagði de Klerk
að það hefði ver-
ið Þjóðarflokkur
sinn frekar en
frelsishreyfingin
sem lagt hefði niður kynþáttaaö-
skilnaðarstefnuna. Nefndin birti
á flmmtudag skýrslu þar sem all-
ir aðilar eru sakaðir um gróf
mannréttindabrot.
Raftæki í pósti
Danska verslunarkeðjan Extra, sem
verslar með heimilistæki, er að opna
póstverslun með smærri raftæki á
verðbilinu 1500-20 þúsund ísl. krónur.
Um er að ræða tæki eins og rafmagns-
rakvélar, hrærivélar, kafíikönnur,
ryksugur og örbylgjuofna en ekki
stærri tæki eins og kæliskápa,
frystikistur og þvottavélar. Pöntunar-
listum verður dreift um ailt landið
með dagblöðum og tímaritum auk
þess sem Netverslun veröur opnuð
um áramót. Hugmyndin með þessu er
sú að endurheimta markaðshlutdeild
sem tapast hefur til jámvöruverslana
og jámvörudeilda stórmarkaða. Jafn-
framt er byggt á niðurstöðum rann-
sókna á innkaupavenjum íbúa í borg-
um og bæjum á tækjum af þessu tagi.
Eingöngu verða í boði tæki af við-
urkenndum vörumerkjum og verður
hver hlutur seldur með 18 mánaða
ábyrgð og 30 daga skilarétti. Lögð
verður áhersla á þjónustuhliðina en
ekki er miðað við að vera endilega
með lágmarksverð hverju sinni, segir
forstjóri verslunarkeðjunnar í samtali
við Jyfíands Posten. -SÁ
Stórbruninn á diskótekinu í Gautaborg:
Þetta var
verra en stríö
- sagði sjónarvottur
Harmi þrungnir Gautaborgarbúar lögöu blóm og kveiktu á kertum fyrir utan
diskótekið þar sem 65 ungmenni létust í stórbruna í fyrrinótt.
Símamynd Reuter
„Þetta var verra en stríð,“ sagði
Sibel Canpinar í gær við sænska
fjölmiðla. Hún var ásamt föður
sínum fyrst á slysstaðinn í
Gautaborg í fyrrinótt þar sem 65
unglingar létust og 162 slösuðust
í stórbruna á diskóteki á
Hisingen.
„Það var algjört öngþveiti.
Menn hlupu um og veinuðu. Það
logaði í fötum þeirra. Við gátum
lagt þá niður á jörðina og klætt
þá úr fötunum," sagði Memduh
Canpinar, faðir Sibel. „Við björg-
uðum sjö en einn dó fyrir fram-
an mig. Hann var sótugur i and-
litinu og gat ekki andað lengur.
Það var hræðilegt að horfa upp á
þetta.“
Að sögn lögreglunnar í Gauta-
borg skipulögðu átta unglingar
hrekkjavökuna í húsnæði félags
Makedóniumanna á Hisingen.
Þrátt fyrir að húsnæðið væri
ekki fyrir fleiri en 150 manns
voru rúmlega 300 manns á staðn-
um þegar eldurinn kom upp.
Sjónarvottar greindu frá því í
gær að átök hefðu brotist út þeg-
ar lögreglan reyndi að koma í
veg fyrir að unglingar hættu lfíi
sínu með því að hlaupa aftur inn
í eldhafið til þess að bjarga vin-
um sínum.
„Það urðu slagsmál. Þeir fóru að
slást við lögregluna til þess að
reyna að komast inn. Allir höfðu
fengið taugaáfall. Lögreglan virt-
ist hafa fengið áfall og einnig
sjúkraflutningamennirnir," ,sagði
ljósmyndari sem kom á slysstað-
inn.
Nokkrum unglingum tókst að fara
aftur inn á diskótekið og bjarga 40
félögum sínum. Sá elsti þeirra sem
lést var 30 ára gamall en sá yngsti
14 ára. Erfitt var að bera kennsl á
líkin þar sem margir unglinganna
höfðu ekki persónuskilríki á sér.
í fyrrinótt útilokuðu slökkviliðs-
menn ekki að um íkveikju hefði ver-
ið að ræða vegna þess hversu hratt
eldurinn hefði breiðst út. ígærdag
voru menn meira efins.
Sorg rikti í Svíþjóð í gær. í Gauta-
borg voru bænastundir í mörgum
kirkjum og tók Göran Persson, for-
sætisráðherra Svíþjóðar, þátt í
einni.
„Það var óraunverulegt að koma á
slysstaðinn, að horfa á brunarústir
þar sem sjá mátti skó á víð og dreif,
skó eins og táningarnir manns
heima eiga. Maður getur skynjað
sorgina og missinn hjá þeim sem
hlut eiga aö máli,“ sagði sænski for-
sætisráðherrann, klökkur, við
fréttamenn í gær.
Þungur dagur
- segir íslenskur sjúkraflutningsmaöur
„Þetta hefur verið þungur dagur.
Aðstandendur hinna slösuðu hafa
verið í örvilnan á sjúkrahúsunum
en svo sem lítið annað er að gera en
að vísa þeim þangað sem hægt er að
biða og reyna svo að vinna sitt
verk,“ sagði Hermann Bjamason,
sjúkraflutningamaður í Gautaborg,
viö DV.
Hann var kallaður út í fyrrinótt
eftir að eldurinn braust út í
diskótekinu þar sem 65 ungmenni
fórust. Hermann vann síðan við það
í gær aö koma þeim mest slösuðu út
í þyrlur til flutnings í hendur
sérfræðingum á brunadeild
sjúkrahússins í Linköping. Þar er
bestur búnaður í Svíþjóð til að fást
við brunasár.
„Þetta var bæði fólk með
brunasár og reykeitrun. Við
sluppum þó við að nokkur létist í
höndunum á okkur en margir voru
illa farnir,“ sagði Hermann.
Hann sagði að borgarbúar vissu
vart hvernig þeir ættu að taka
þessum tíðindum. Grunurinn um að
kveikt hefði verið í lægi þó eins og
mara á fólki.
GK
Kauphallir og vöruverð erlendis
| Bensín 95 okt.
190 mmmmmmmmmm1
180
160
150
140
130 UOj
MM 138
$/t j A s o
Bensín 98 okt.i
200 190
MMW ] WBBKKKM i
180 170 160 150 140,
156 KÍ ;
$/t J Á S 0
Forseti Finn-
lands vill halda
feröakostnaði
leyndum
Ríkisendurskoðun Finnlands
s ætlar að skoða ferðareikninga
Martti Ahtisaari Finnlandsfor-
seta. Forsetinn hefur verið á ferð
og flugi í nær
fjögur hundruð
daga síðastlið-
in fjögur ár en
ekki er til neitt
heildaryfirlit
: yfir ferða-
kostnaðinn.
Forsætisráðu-
| neytið segir að
það yrðu mörg ársverk að reikna
út kostnaðinn. Kostnaðurinn er
greiddur af ýmsum ráðuneytum
eftir því hvers eðlis ferðirnar
eru. Þess vegna hefur ekki verið
; reynt að reikna út hvað ferðirnar
hafa kostað í raun.
| Ahtisaari hefur sjálfur ákveð-
j ið að kostnaðurinn eigi að vera
: leynilegur. Það getur hann sam-
j kvæmt lögum frá 1995. En ríkis-
! endurskoðun hefur aðgang að
r: öllum gögnunum.
Aukin mengun
á heimskauta-
svæðunum
Nýjar umhverfisrannsóknir
j sýna að bæði mengun og hlýindi
| á heimskautasvæðunum norður
j af Kanada hafa aukist miklu
hraðar en svartsýnustu spár
I gerðu ráð fyrir fyrir áratug.
Skaðinn sem verður á heim-
í skautasvæðunum eitrar ekki að-
3 eins fyrir þá sem þar búa heldur
| stafar loftslagi og íbúum ann-
| arra heimshluta einnig ógn afí
að sögn vísindamanna.
LifTræðingurinn Harold Welch
j segir að hækkandi hitastig á
j heimskautasvæðunum á þessari
öld virðist ekki vera hluti af
jj reglubundnum sveiflum jarðar-
| innar þar sem hún hlýnar og
i: kólnar til skiptis. Hann segir
J aukin hlýindi haldast í hendur
! viö fjölgun mannkyns og aukna
s iðnvæðingu.
Faldi sig í
frumskóginum
í 19 ár
| Víetnaminn Dinh Van En
faldi sig í frumskóginum eftir að
{ hafa flúið frá endurmenntunar-
| búðum kommúnista. Skógar-
| höggsmenn í Quang Ngai-héraði
*: fundu hann af tilviljun úti í
| skógi þar sem hann hafði hafst
| við í 19 ár. Dinh hafði verið í
jj suöur-víetnamska hernum og
| var sendur í endurmenntunar-
| búðir 1975. Honum tókst að flýja
fjórum árum seinna.
Dinh, sem er sextugur, var
j nær nakinn þegar hann fannst
j og gat ekki lengur tjáð sig á ví-
etnömsku. Hann gat með erfiðis-
munum gert sig skiljanlegan á
i sinni eigin mállýsku.
Vinsældir
Netanyahus
aukast
Vinsældir ísraelska forsætis-
: ráðherrans, Benjamins Netanya-
j hus, hafa aukist eftir undirritun
í friðarsamkomulagsins við
5 Palestínumenn á dögunum. Net-
1 anyahu er nú vinsælli en Ehud
i j Baraks stjórnarandstöðuleiðtogi.
jj Þetta eru niðurstöður skoðana-
könnunar sem birtar voru í gær.
46 prósent aðspurðra kváðust
myndu kjósa Netanyahu vær^
í kosið nú en 35 prósent vilduj
1 Barak sem er formaöur Verka-
j mannaflokksins.
Samkvæmt könnuninni óttast
| 60 prósent að Netanyahu verði
j sýnt tilræði vegna samkomu-
S lagsins við Palestínumenn.
MMNHMMMNMMMNMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMI'