Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1998, Qupperneq 31
LAUGÁRDAGUR 31. OKTÓBER 1998
31
Ný bók eftir Guðberg Bergsson:
Sæmundur Valdimarsson
og stytturnar hans
í dag, laugardaginn 31.
október, veröur opnuö listsýn-
ing í Geröarsafni í Kópavogi
til heiöurs Sœmundi Valdi-
marssyni áttrœöum. Þetta er
yfirlitssýning á verkum lista-
mannsins. Afþví tilefni gefur
bókaútgáfan Forlagiö út bók
um Sœmund og list hans eft-
ir Guöberg Bergsson.
Kynni þeirra Guöbergs og
Sæmundar hófust þegar sá
fyrrnefndi efndi til sýningar í
Gallerí SÚM áriö 1974 og
kallaöi Alþýöulist. Þar var
Sœmundur einn þeirra sem
sýndu verk sín í fyrsta sinn
og síöan hefur hróöur hans
borist víöa.
Hann hefur eignast örugg-
an sess meöal myndverka-
manna með hinum sérstœöu
og persónulegu styttum sín-
um sem telja má einstæöar í
íslenskri listasögu.
Hér birtast kaflar úr bók
Guöbergs um Sæmund sem
nefnist Sœmundur Valdi-
marsson og stytturnar
hans. Bókin er prýdd nœr
sextíu litmyndum af lista-
verkum Sœmundar.
„Það er ekki á hvers manns færi
að finna haldbæra skýringu á hver
ástæðan kunni að vera fyrir því að
ólærður maður tekur skyndilega
upp á að gera listaverk nema hann
hafi fengið það verkefni af opinber-
um aðila, til dæmis að reisa minnis-
merki um drukknaða sjómenn.
Önnur verk ólærðs manns eru sjald-
an tekin gild sem listaverk. Þó eru
undanskilin þau sem flokkuð hafa
verið undir sakleysislega list, það
er að segja naive, því hún er gjarna
höfð í sérflokki. Vegna þess að hún
er talin vera mitt á milli þess að
vera alþýðulist og æðri list. Þeir
sem kalla sig listfræðinga fjalla yf-
irleitt ekki um hana af alvöru
nema í örfáum tilvikum, því hún
á helst að vera gerð mönnum til
gamans, þó hún sé ekki beinlínis
skoplist eða grín. Háð er varla til í
myndlist, annað en skopteikning-
in; eftir því að dæma hlýtur eðli
hennar að vera það að vera alvar-
legri en aðrar listgreinar. Oft er
líka þannig innan hennar að verk
sem er unnið í listrænum tilgangi,
jafnvel í listaskóla, er sjaldan talið
vera gjaldgengt. Einhverra hluta
vegna virðist sú skoðun vera ríkj-
andi að einu gildi hversu nem-
andinn sé frábær, þá geti hann
ekki skapað fullgilt listaverk á
meðan hann stundar námið,
jafnvel ekki einu sinni undir leið-
sögn færustu kennara. Þegar hann
er námsmaður verður hann aðeins
misjafnlega gott efni í listamann,
viðhorf sem hefur ríkt frá þvi
verðandi málarar voru til aðstoð-
ar viðurkenndra á verkstæðum
þeirra. Nemandi getur ekki orðið
annað og meira fyrr en hann er
útskrifaður og nokkurra ára
reynsla komin á hann utan
veggja skólans, þegar hann
losnar við kennara og listfræð-
inga. Þetta er ein af mótsögn-
unum í þeirri athöfh sem kall-
ast listsköpun.
Miklu erfiðara er að ákveða
hvaö kunni að vera listaverk þegar
um svonefnda listiðju er að ræða.
Það er jafn erfið þraut og það að
vita hvers vegna sjálfsprottin list
verður til hjá ólistfróðum og ólærð-
um manni eða hvort hægt verði að
telja hana yfirleitt til listar.
Sjálfsprottna list kýs ég að kalla list
sem sprettur af munni eða fingrum
fram án auðsærrar ástæðu, lærdóms
eða þjálfunar. Maður sem iðkar hana
vinnur ekki einu sinni markvisst eða
af sýnilegum listvilja. Þörf hans hefur
bara vaknað, ef þörf skal kalla en ekki
áráttu, og hún verður undarlegri við
nánari athugun þegar i ljós kemur að
ekkert virðist hafa gerst í lífi hans
annað en það sem knýr hann áfram í
lífsbaráttunni, sú nauðsyn að vinna
dagleg störf til að hafa af þeim lifi-
brauð. Hann hefur ekki orðið fyrir
áfalli, listin hefur ekki vaknað vegna
augljósrar röskunar á tilfmningalíf-
inu eða skapgerðin breyst sökum
sjúkdóms, eins og oft hendir ef um
mikla list er að ræða, en þá aðeins
með því skilyrði að sá hinn sami, um-
skiptingurinn, hafi áður stundað list-
sköpun af lærdómi og skyldu, verið til
dæmis atvinnulistamaður á borð við
andlitsmálara. En í lífi sjálfsprottna
listamannsins hefur kannski ekki
einu sinni ástarsorg raskað rónni í lífi
hans og ekkert gerst sem halda mætti
að yrði ástæða fyrir sjálfstjáningu,
hvorki reiði, sorg né gleði. Auk þess
lítur hann oft ekki á verk sín sem
listaverk og skilgreinir þau ekki sem
slík. Það að þurfa að skilgreina þetta,
eitthvað sem hann bjó ekki einu sinni
til í kvöldtímum í safnaðarheimilinu
hjá kennslukonu með próf í handa-
vinnu, gerir hann órólegan og voteyg-
an. Hann tondrar ekki einu sinni sér
til sáluhjálpar undir leiðsögn. Ástæð-
an fyrir verkum hans er óskiljanlegri
en það að skynsemin geti með góðu
móti fundið skýringu á henni.
Þetta er því dularfyllra hvað Sæ-
mund Valdimarsson varðar. Vegna
þess að hann virðist hafa komið
fullskapaður úr hinni dularfullu,
óskiljanlegu ástæðu og þurfti fyrir
bragðið aldrei að þreifa sig áfram.
Verk hans ráfuðu ekki einu sinni á
milli stíltegunda langt fram eftir
þroskabrautinni, sem er algengt hjá
lærðum listamönnum og hann likti
ekki á áberandi hátt eftir neinum.
Yfirleitt er þó þannig með lista-
menn að þeir þurfa að leita langt
fram eftir aldri að jafnvægi í verk-
um sínum eða að æskilegum sam-
runa sem ég held að leynist ein-
hvers staðar og sé að finna í mis-
þykkum lögum á milli tilfinning-
anna, vitsmunanna og stílkenndar-
innar. í lokin gefast þeir annað
hvort upp eða finna persónulegan
tjáningarmáta, venjulega með þeim
hætti að fylgja sígildum reglum í
formteikningu og skóla eða þjálfa
sig í því að líkja um árabil og vand-
lega eftir verkum annarra og sér
meiri listamanna. Þannig læra þeir
af verksmáta fyrirrennara sinna og
verða kannski frumlegir, ekki í
byrjun eða í lokin heldur á ævi-
skeiðinu miðju þegar sjálfsvitundin
er sterkust. Þá afneita þeir með of-
forsi fyrrum meistara sínum og
verklagi hans líkt og einhverju
einskisverðu. Listamaður sem telur
sig hafa fundið sig verður, að
minnsta kosti einhvern tímann á
ævinni, fjandmaður fyrirrennara
síns og meistara.
Verk Sæmundar hafa aftur á móti
aldrei hikað í höndum hans, ef frá er
talinn sá reynslutími sem hann kallar
eintómt fikt. í þeim er ekki hik að
finna, hvorki hvað gerð né innihald
varðar. Listaverkin nærast í mesta
lagi hvert á öðru, líkt og listin gerir
hjá meðvitaða einstaklingnum, venju-
lega þegar hann er kominn á hæsta
stig á ferli sínum, og þá verður það
honum og list hans til blessunar, ef
marka má orð franska ljóðskáldsins
Paul Valéry sem trúði því og bar fram
hugmyndir um lokaðan heim list-
anna. í honum hefur eitt listaverk
giftusamleg áhrif á annað, og skáldið
kallaði þetta ekki blindgötu sem end-
ar á stöðnun heldur taldi að áhrif eins
verks á annað opni ótakmarkaðar
leiðir til áframhalds. Sæmundur virð-
ist hafa komist ósjáifrátt og án lær-
dóms að einhverju áþekku, því hann
kveðst oft rölta innan um fyrri verk
sín á meðan hann vinnur að ein-
hverju nýju.
Kannski er þetta skýringin á hin-
um lokaða heimi listar hans eða þeim
svipaða blæ sem hvílir yfir verkunum
og myndar auðþekkt og persónulegt
samhengi; handbragðið felur í sér
innihaldið, það er með litlum frávik-
um, ekki öfugt, það að innihaldið ráði
því hvaða handbragð er notað eða
stíll.
En hvað lífshlaupið varðar stökk
Sæmundur yfir stóran hluta ævinnar
ósnortinn af listþörf. Listin hvarflaði
ekki einu sinni að honum. Það var
vegna kröfu þarfarinnar fyrir að hafa
til hnífs og skeiðar og sjá öðrum, sér
og sínum, farborða. Síðan, líkt og fyr-
irvaralaust, urðu verkin til, sjálf-
sprottin í orðsins fyllstu merkingu.
Hvað er hiö sjálfsprottna?
Eitthvað sem vex án þess að til þess
hafi verið sáð, svo vitað sé, eða lagt
hafi verið rækt við það í ákveðnum
tilgangi, þeim að komið beri sérstak-
an og æskilegan ávöxt.
Getur eitthvað vaxið án jarðvegs og
tilfinninga og komið þannig fullskap-
að úr tóminu?
Nei.
VI. SAMRÆÐUR VIÐ SÆMUND
Varirnar
Sumu fólki fannst það vera und-
arlegt að ég skyldi láta varirnar
vera rauðar á karlmönnum. En
þær eru yfirleitt rauðar, bæði á
körlum og konum? Maður á ekki
að venjast slíku að þær séu málað-
ar, segir það. Eiga þær að vera hel-
bláar af kulda á karlmönnum en
blóðrauðar á konum sökum ástrik-
is?
Nema þær eigi að vera litlausar
á íslenskum karlmönnum.
Væri það ekki eins og annað í
þeirra dúr?
Líklega.
Hefur þú allar varir rauðar?
Já, en mismunandi rauðar.
Kannski stafa harkaleg viðbrögð
fólks af því að þú notar varalit og
hann mega aðeins konur nota.
Þetta er olíulitur úr túpu.
Hann hefur þá hvorki kvenlegt
né karlmannlegt gildi. Að minnsta
kosti ekki á málverkum. En stytt-
ur eru reyndar kyssilegri en mál-
verk.
Ýar ekki einhver maður í
fornöld ástfanginn af styttu og ætl-
aði að giftast henni?
Jú, en það er kannski liðin tíð.
Menn eða konur geta orðið hrif-
in af styttum en kannski ekki
beinlínis ástfangin.
Þótt það sé að komast í tísku að
elska allt að enskum sið.
Engin stytta hefur nokkurn tím-
ann orðið ástfangin að öðrum, en
aðrir hafa orðið hrifnir af mörg-
um.
Kannski ekki einu sinni ástfang-
in af höggvara sínum?
Líklega fer engum sögum af
þannig ástum.
Núna hafa menn svo margt ann-
að til að giftast en líkneskjum.
Eitt af því dularfyllsta i verkum
Sæmundar er brosið. Þetta á næst-
um jafnt við um karla og konur.
Oftast leikur um varir allra það
sem er næstum hulið. Þetta er inn-
hverfa brosið. I því virðist felast
það sem hægt væri að kalla enda-
leysi tímans. Persónurnar hvorki
gapa né hlæja. Vegna þess að list-
rænt séð er hlátur merki um and-
artak, hann varir einhvern veginn
skemur en bros, mælt í tíma og til-
ftnningum. Að þessu leyti er hlát-
ur eins og ljósmyndin, sé hún bor-
in saman við málverk eða högg-
mynd. Franski myndhöggvarinn
Rodin sagði eitthvað á þessa leið í
bók sem hann kallaði Listin;
Ljósmyndin skrökvar, vegna
þess að tíminn stöðvast í henni,
hún nær andartakinu, en málverk
og höggmynd færa persónurnar úr
einni stellingu í aðra á þann hátt
að þær sýna með formum sínum
að ein hreyfing líkamans leiðir til
annarrar i eins konar endaleysi. í
verkum myndhöggvara og málara
er hægt að sjá bæði það sem var og
verða mun, á ljósmynd sést aðeins
andartakið.“
Síðustu sætin
Helgapferð
London
12. nóv.
fpá
m
Við höfum nú tryggt okkur viðbótargistingu á
sértilboði þann 29. október. Flora-hótelið sem er
rétt hjá hinni þekktu ráðstefnumiðstöð Earls Court,
rétt við lestarstöðina sem gengur inn í hjarta London.
Öll herbergi með sjónvarpi, síma og baði. Móttaka
opin allan sólarhringinn.
Bókaðu meðan enn er laust.
Islenskir fararstjórar Heimsferða tryggja þér ömgga
þjónustu í heimsborginni.
2 fyrir 1 til London
Verð kr. 14.550
Flugsœti til London með
flugvallarsköttum.
Ferð frá mánudegi til fimmtudags 9.
og 16. nóv.
Flugsœti kr. 21.900
Skattur kr. 3.600 x 3 = 7.200
Samtals kr. 29.100. Á mann kr. 14.550
Flug og hótel í 4 nætur,
helgarferð 12. nóv.
Kr. 29.990
Sértilboð 12. nóvember, Flora-hótelið, 4
nœtur í 2ja manna herbergi.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð, sími 562 4600
www.heimsferðir.is