Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1998, Side 4
4
MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1998
Fréttir
Stuttar fréttir ±>v
Landlæknir hrósar ráðherra:
Byggingagleðinni verði
beint að sjúkrahótelum
Landlæknir, Ólafur Ólafsson, seg-
ist vona að byggingagleði heilbrigð-
iskerfisins beinist nú á nýjar braut-
ir, byggingu sjúkrahótela. Of mikið
kapp hafi verið lagt á bráðadeildir
en ekki tekið mið af framtíðarþró-
uninni. Ólafur segir byggingagleð-
ina hafa verið litlum takmörkum
háða og stundum nálgast „helgiat-
hafnir", eins og landlæknir orðaði
það á dögunum á málþingi með
samtökum hjartasjúklinga.
Landlæknir bendir á aö sjúkra-
hótel í nánum tengslum við bráða-
deildir séu byggð
af kappi í hinu
íhaldssama
Englandi. í Noregi
séu sjúkrahótel í
nánum tengslum
við 40 til 50
sjúkrahús. Ólafur
sagði að brýna
nauðsyn bæri til
að búa hjúkrunar-
sjúklingum sem
vistast á bráðadeilum annað vistun-
arrými. Þá mundi fækka á biðlist-
um og sjúklingar á göngum hætta
að sjást en að mati hjúkrunarffæð-
inga þyrfti um fjórðungur bráða-
sjúklinga að hírast á göngum og í
skotum lungann af spítalavistinni.
Hann sagði að legudeildir væru dýr-
ar og tækju milli 55 og 60% af heild-
arkostnaðinum í heilbrigðisþjón-
ustu.
„Fyrir dugnað heilbrigðisráð-
herra hefur nú fengist nokkur úrbót
á Alþingi og vonandi tekst að nýta
þá fjármuni vel,“ sagði Ólafur Ólafs-
son í ræðu sinni. „Alþingi virðist
leggja að jöfnu endurbætur sendi-
ráðs- og stjómsýslubygginga við
sj úkrahúsarekstur, “ sagði land-
læknir um leið og hann benti emb-
ættismönnum í heilbrigðisgeiran-
um á að það væri lögbundin skylda
þeirra, óháð pólitískum áhrifum, aö
benda á og koma með tillögur til úr-
bóta. „Það má vera að slíkt athæfi
falli ekki öllum í geð. Þó að sann-
leikurinn sé dýrmætur er óþarfi að
fara sparlega með hann,“ sagði Ólaf-
ur í lokaorðum sínum.
-JBP
Ólafur Ólafsson
landlæknir.
„Við hættum öUum mokstri á
ijallinu upp úr klukkan 19 á laugar-
dagskvöld vegna mikUs slagveðurs
og um það leyti vom komin 9-10
vindstig," sagði Guðmundur Þor-
steinsson, vélamaður hjá Vegagerð-
inni Reyðarfirði, við DV.
Á laugardag féU snjóflóð úr Há-
túni sem lokaði veginum en það var
hreinsað strax. Á sunnudagsmorg-
un féU annað flóð yfir veginn úr
Oddsdal og stöðvaðist umferð vegna
þess um tíma. Engin slys urðu á
fólki eða eignatjón.
Á Eskifirði var komið hávaðarok
síðdegis á laugardag. Litlir lækir,
sem renna í gegnum bæinn urðu
aUt í einu að brúnum stórfljótum.
Þá slitnuðu landfestar rækjubátsins
Þóris SF 77. Einungis eitt tóg hélt
honum við bryggjuna. Tókst að
koma í veg fyrir tjón með aðstoð
björgunarsveitarinnar á Eskifirði.
Um nóttina losnuðu þakplötur af
leikskólanum sem er í byggingu.
Tókst að fergja þakið með saltsekkj-
um. í gærmorgun mátti sjá ýmislegt
smálegt sem hafði fokið um bæinn.
Á Fagradal féUu 20 aur- og krapa-
flóð. Að sögn vegagerðarmanna
voru þau aUt að 2 metra þykk og
150-200 metra breið. OUu þau tölu-
verðum skemmdum og var Fagri-
dalur ófær vegna þess um tíma. Er
mikið verk óunnið við hreinsun og
lagfæringar á veginum. Loks féUu
aurskriður niður undir byggð í Nes-
kaupstað. -ÞH
Björgunarsveitarmenn á Eskifirði
forðuðu rækjubátnum frá stór-
skemmdum. DV-mynd ÞH
Karlremburnar auglýsa
Vitlaust veður á AustQörðum á laugardag:
20 flóð yfir veginn á Fagradal
DV, Ealófirði
Sum reynsla
er okkur hulln
fsl*ndincar «ru h*»tí fttthta h»r1» og kv«nna.
m*ö Qð*t»«yn» rayntlu og vift»xx(.
Atftirtci l«l«ruimc» hmtur txtó hófuðvwrlurfní að vtantt* vftrft
um ftftoaftfft.
- rétt o« vaiforö bvan, l*ianttrnga,
I tórmtM IrnkM i *ftr jafrwétti
• fðfr> t«rtúfwrt ainatakitnsa at hftðum k>niu*n. maftai annar*
«« nftm*. •to'fo. UHjtm «c ftbyrtfW.
Konur aru tMfmincur tfMwVna
Ul*ndin(5» hafur h»r<»0 tii *kkí nftft «ft *ndur*p**i»
r<t«xfaii
Sjftnaimift tm&tía kynja fiafa *fcf») nftft )ýftri»A»«i«ftu j«fnv*c<
Þessa dagana er að hefjast
nýstárleg auglýsingaherferð.
Hún hefur þann tilgang að
þrýsta á aukinn hlut kvenna
í stjómmálum. í auglýsing-
unum koma fram helstu
stjómmálaforingjamir um
þessar mundir, formenn
flokkanna, og birtast okkur
með barn undir belti, á há-
hæluðum skóm eða með
hendumar lengst uppi í
sokkabuxunum. Sniðugar
auglýsingar og áreiðanlega
úthugsaðar í kvennabarátt-
unni.
Aldrei datt Kvennalistan-
um það í hug að nota karla í
auglýsingum til að auka hlut
kvenna í pólitík, enda er
Kvennalistinn búinn að vera.
Skoðanakannanir hafa
margsinnis staðfest að þjóð-
inni finnst það eðlilegt og
sjálfsagt að konur starfi í
stjórnmálum til jafns við
karlmenn. Það stendur sem sagt ekki á þjóðinni
og það stendur heldur ekki á kvenfólkinu. Það
sem skortir á um aukinn hlut kvenna er einfald-
lega vilji og framkvæmd innan flokkanna sjálfra.
Forysta flokkanna hefur ekki veitt konunum
brautargengi.
Þetta hafa formenn flokkanna séð. Þeir eru sér
meðvitandi um þennan galla í fari sínu. Þess
vegna samþykktu þeir þingsályktunartillögu frá
nokkram konum á Alþingi sem eru formönnun-
um nægjanlega þóknanlegar til að fá að vera á
þingi. Þingsályktunin fól í sér að skipa nefnd,
sem nú þegar er komin á laggirnar, og ríkis-
stjómin ákvað jafnframt að veita fimm milljónir
króna á ári næstu fimm árin til að nefndin geti
vakið athygli á málstaðnum um hlut kvenna.
Nefndin hefur síðan ratað þá réttu leið að fá
formenn stjómmálaflokkanna til að skora á sjálfa
sig til að auka hlut kvenna í stjómmálum. Ekki
það að formennimir geti mikið gert í því sjálfir
að eigin mati en með því að sjá sig í auglýsingum
og að aðrir sjái þá í auglýsingum er því þó alltént
komið á framfæri að þeir séu hlynntir því að þeir
sjálfir beiti sér fyrir auknum hlut kvenna, hvað
svo sem þeir gera þegar að því kemur að konur
vilji komast á þing.
Hér sem sagt um það ræða að stjómmálaflokk-
amir á Alþingi efha til átaks um aukinn hlut
kvenna með því að verja fé til auglýsinga þar sem
karlrembumar í formannsstólunum koma ffam
til að segja hvað þeim þyki vænt um konur og
hvað þeir vilji mikið að konur verði fleiri og
skora á þjóðina að auka hlut kvenna og skora á
flokkana sína að sjá til þess að konur verði fleiri
og heita á sjálfa sig að styrkja stöðu kvenna.
Með þessum auglýsingum er hlutverki
Kvennalistans lokið og það þarf í sjálfu sér ekki
kvenfólk heldur til að auka hlut kvenna. Segja
má að jafnréttisbaráttan og kvenréttindabaráttan
sé vel á vegi stödd þegar formenn flokkanna hafa
ákveðið að styrkja sjálfa sig til að auglýsa sjálfa
sig til að skora á sjálfa sig að auka hlut kvenna
þegar tækifæri gefst. Ekki kannski núna, alveg
strax. En þegar tækifæri gefst. Dagfari
Leyniskjöl Steingríms
í ævisögu Steingríms Her,-
mannssonar sem Dagur B. Egg-
ertsson skrifar
verða birtir út-
drættir úr
leyniskjölum frá
bandaríska þjóð-
skjalasafninu.
Þar kemur í Ijós
að Bandaríkja-
menn fylgdust
mjög vel með athafhamönnum á
íslandi á dögum kalda stríðsins.
Mbl. sagði frá.
Kvenfólk á hormónum
Um 55% fimmtugra íslenskra
kvenna nota hormónalyf. Mikil
aukning hefur verið á notkun
slíkra lyfja meðal kvenna á þess-
um aldri undanfarin 10 ár. Dagur
skýrði frá.
Lögleg efni hættulegri
Helgi Gunnlaugsson, dósent í
félagsfræði, segir að áfengi og tó-
bak taki margfalt fleiri mannslíf á
hverju ári heldur en hin ólöglegu.
Jafnframt telur hann að stjóm-
málamenn noti umfjöllun um
fikniefnavandann sér til fram-
dráttar, án þess að gera mikið til
að leysa hann. Dagur sagði frá
þessu.
Kjalnesingar kjósa
Kjalnesingar munu kjósa í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi á laugardag-
inn. Þó svo Kjalames hafi samein-
ast Reykjavik eiga íbúar hins
fyrrverandi hrepps kosningarétt í
Reykjaneskjördæmi samkvæmt
núgildandi kosningalögum. Þetta
mun hins vegar breytast þegar
nýtt ffumvarp til kosningalaga
tekur gildi. Mbl. greindi frá.
Kostnaður við sýningu
Heimssýning verður í
Hannover í Þýskalandi árið 2000.
Halldór Ás-
grímsson utan-
ríkisráöherra
vonast til aö
kostnaður ís-
lendinga vegna
þátttöku í henni
verði ekki meiri
en 200 til 250
milljónir króna.
skýrði ffá.
Hestakerra út af
Litlu mátti muna að illa færi
þegar bíll með hestakerru í eftir-
dragi fauk út af vegi í Eyjafjarðar-
sveit á laugardag. ökumanni
tókst að halda bílnum á veginum
en kerran fauk út af með tvö
hross innanborðs. Lögregla kom
skömmu siðar á staðinn og vora
hestamir fluttir burt. Þeim virtist
ekki hafa orðið meint af veltunni
en kerran er talsvert skemmd.
Lög endurskoðuð
Lög um mat á umhverfisáhrif-
um verða væntanlega lögð endur-
skoðuö fyrir Alþingi fyrir jól, segir
Ingimar Sigurðsson, formaður
nefndarinnar sem að endurskoðun-
inni vinnur. Mbl. segir frá þessu.
Sex á sjúkrahús
Sex voru fluttir á sjúkrahús að-
faranótt sunnudagsins eftir harð-
an árekstur tveggja bíla við Hafn-
argötuna í Keflavík. Fólkið var
allt flutt á Sjúkrahús Suðumesja.
Flytja þurfti einn á sjúkrahús i
Reykjavík en hinir voru útskrif-
aðir eftir skoöun. Meiðsl þeirra
vora minni háttar.
Góð kortasala
Sala SÁÁ á svokölluðum SÁÁ-
kortum til styrktar meðferöar-
heimili fyrir
ungt fólk lauk í
gær. Að sögn
Theódórs Skúla
Halldórssonar,
framkvæmda-
stjóra SÁÁ,
hafa viðbrögð
almennings
víða um land verið góð og fór sala
kortanna vaxandi eftir því sem
leið á vikuna. Nákvæmar sölutöl-
ur liggur hins vegar ekki fyrir.
-KJA