Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1998, Qupperneq 7
MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1998
7
Fréttir
Eiríkur í ham
Þau áform stjómar Kaupfélags
Eyfirðinga að færa rekstur félags-
ins inn í nokkur hlutafélög er mjög
athyglisverð hjá þessu aldna sam-
vinnufélagi sem var
stofnað á síðustu
öld. Arkitektinn að
þessu er þó kaupfé-
lagsstjórinn, Ei-
ríkur Jóhanns-
son, sem hefur
heldur betur lát-
ið að sér kveða
síðan hann tók
við stjórastólnum af Magn-
úsi Gauta Gautasyni. Eirikur er
sagður „bisnessmaður af nýja skól-
anum“, fijór og fljótur til fram-
kvæmda, og það vakti mikla at-
hygli þegar hann svo til nýskriðinn
úr námi varð yfirmaður Lands-
bankans á Akureyri þar sem hann
starfaði þar til hann réðst til KEA.
Hitt er svo „önnur Ella“ að senni-
lega eru margir framsóknarmenn
af eldri kynslóðinni hugsi yfir þvi
hvert nú sé verið að fara með félag-
ið þeirra og samvinnuhugsjónimar
Leit stendur yfir
Eftir að alþýðubandalagsmenn á
Norðurlandi eystra lýstu því yfir
aö þeir „ættu“ 1. sæti á lista A-
flokkanna og Kvennalista fyrir
kosningarnar í vor
hefur staðið yfir
mikil leit að „ein-
hverjum" til að
leiða listann. Þótt
margir fyrir norð-
an séu þeirrar
skoðunar að
framboðið geti
ekki teflt fram
neinum sterkari í 1. sætið en
Svanfríði Jónasdóttur, þjóðvaka-
konu og þingmanni, ætla aílaballar
sér sætið. Erfiðlega gengur þó að fá
mann til að setjast í það. Ásgeir
Magnússon, formaður bæjarráðs
Akureyrar, mun hafa sagt nei, Að-
alsteinn Baldursson, verkalýðs-
forkólfur á Húsavík, sem hefur gef-
ið í skyn að honum hafi verið boð-
ið sætið, mun ekki setjast í það,
enda talinn hallur undir flokk
Steingríms J. Sigfússonar. Ef
Sigríður Stefánsdóttir, fyrrum
bæjarfúlltrúi gæfi kost á sér, er
talið víst að hún hreppti sætið en
hún hefur þegar sagt nei. Leitin
heldur áfram...
Slá í gegn
Blaðið Lifandi vísindi hefúr
slegið i gegn að undanfómu undir
ritstjórn Guðbjarts Finnbjörns-
sonar og selst í nokkur þúsund
eintökmn mánaðar-
lega. Blaðið er snið-
ið að erlendri fyrir-
mynd, svo sem Séö
og heyrt, en sá
munur er á að Lif-
andi vísindi greið-
ir dönsku fyrir-
tæki fyrir réttinn
að útgáfunni.
Blaðið byggir bæði á
þýðingum erlendra greina sem og
sérunnu efni. íslenska efnið annast
að miklu leyti, meö sóma, Bjöm
Hafberg, fyrrum skólastjóri á Flat-
eyri...
Snýr aftur
Samkeppnisstofiiun hefur endur-
heimt foringja sinn. Georg Ólafs-
son er snúinn til starfa. Hann hef-
ur verið fjarri vettvangi samkeppn-
ismála síðustu tólf
mánuðina. Hann
og eiginkona hans
hafa dvalið í Dan-
mörku, hún við
nám, og hann
reyndar líka, tók
kúrsa í alþjóða-
rétti. Vinir hans
segja hann vel fram
genginn eftir Danmerkurveruna,
eilítið pattaralegri en fyrr, en vel
hvíldan fyrir komandi átök á
Fróni...
Umsjón: Reynir Traustason
Netfang: sandkom @ff. is
Vestmannaeyjabær hættur aö kaupa rafmagn:
Kyntur með svartolíu
- mikil óánægja með hátt verð á afgangsorku
Vestmannaeyjabær er hættur að
kaupa rafmagn og er byrjaður að
kynda með orku framleiddri úr
svartolíu.
Friðrik Friðriksson, veitustjóri í
Eyjum, segir í samtali við DV að
mikil óánægja sé með hve hátt verð
sé á rafmagni fyrir Eyjamenn og
ekki sé aðstoð að fá til jöfnunar
orkuverðs.
„Landsvirkjun hefur selt okkur
afgangsorku á rafsskautaketil okk-
ar hér í Eyjum, sem framleiðir heitt
vatn fyrir hitaveitu bæjarbúa.
Landsvirkjun er nú búin að hækka
verð á afgangorku í hæsta verð-
þrep.
Þessi orka er því ekki lengur
samkeppnishæf við orku fram-
leidda úr svartolíu.
Þetta gerir það að verkum að við
brennum hér á hverjum sólarhring
20 til 25 tonnum af svartolíu og hit-
um þannig bæinn upp með tilheyr-
andi kostnaðarauka fyrir bæjar-
búa.
Við erum ekki ánægðir með að ef
við fáum ekki aðstoð til að njóta
jöfnunar orkuverðs þá verðum við
að leita annarra ráða.
Við horfum fram á það að ef þetta
verður viðvarandi þá verðum við
að hækka verð á hitaveitunni hér í
Eyjum,“ segir Friðrik.
-RR
Vönduð
atöl og jólal
í miklu úrvali.
Sérmerkt fyrir jbig
Nýjar víddir
í hönnun og útgáf
orrabraul 54 ©561 4300 [
GRIPTU TÆKIFÆRIÐ I KULDAKASTI B&L OG TRYGGÐU ÞER HYUNDAI ACCENT MEÐ
HLÝLEGUM OG GLÆSILEGUM VETRARKAUPAUKA.
VETRARDEKK Á ÁLFELGUM
OG BENSÍN í VETUR ÞÉR AÐ
KOSTN AÐARLAUSU !'
■mhhé V 1