Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1998, Síða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998
Fréttir
Hörkuátök innan hrossaræktarinnar:
Hélt eigin líkræðu
- segir nýr formaður Félags hrossabænda um Kristin Hugason
„Ég tel að Kristinn Hugason hafi
haldið sína eigin líkræðu sem
hrossaræktarráðunautur. Hann er
rúinn öllu trausti."
Þetta sagði Kristinn Guðnason,
nýkjörinn formaður Félags hrossa-
bænda, við DV. Upp er risinn mikiU
ágreiningur vegna tiUögu sem varð
til á fuUtrúafundi Hrossaræktar-
samtaka Suðurlands. í henni felst
hvort ekki sé tímabært að endur-
skoða starfsemi hrossaræktarráðu-
nautar, með það í huga að ráðunaut-
urinn taki ekki beinan þátt í dóm-
störfum. Þessi tiUaga var síðan bor-
in upp á aðalfundi Félags hrossa-
bænda nú fyrir helgina, á þeim
sama og Kristinn var kjörinn for-
maður, og samþykkt þar.
„Kristinn Hugason taldi að ég
hefði brugðist og svikið hann með
því að stoppa ekki þessa tiUögu
heima í héraði,“ sagði Kristinn
Guðnason. „Ég er sem betur fer for-
maður í lýðræðislegum samtökum
þar sem mér ber að láta slíka hluti
ganga sinn eðlUega gang. Ég taldi
sjálfsagt að þessi tiUaga yrði rædd
hjá okkur sem málið varðar.“
Kristinn sagði hugmyndina að
baki þessari tiUögu í grófum drátt-
um sprottna úr þeirri breytingu
sem orðið hefði í þjóðfélaginu á
undanfömum árum. „Áður þótti
sjálfsagt að einn maður réði öUu og
dæmdi svo um sínar gerðir sjálfur.
Þetta þykir ekki lengur sjáifsagt. Þá
hefur starf hrossaræktarráðunautar
stöðugt verið að aukast að umfangi.
Nú þykir sjálfsagt að hann breiði út
hestamennsku, samræmi dóma
miUi landa og fleira. Þetta er ekkert
smáræðisstarf.
En ég vU taka það fram að þetta
kom inn sem hugmyndir en virtist
kippa öUu undan hrossaræktar-
ráðunautinum okkar. Það sem hann
hefur látið út úr sér í opinberum
fjölmiðli um okkur hestamenn er
meira heldur en við getum kyngt og
við kyngjmn því ekki.
Það sem Kristinn áttar sig ekki á
þegar hiann gefúr út yfirlýsingar um
mig er að ég var kosinn formaður Fé-
lags hrossabænda eftir mikinn þrýst-
ing af stórum meirihluta fuUtrúa.
Síðustu skUyrði sem ég setti, ætti ég
að taka þetta embætti að mér, var að
Kristinn Guðnason, formaöur hver einasti formaður á landinu
Félags hrossabænda. styddi mig. Svo reyndist vera.“ -JSS
Brot úr útvarpsummælum:
Manískir
deliumenn
Kristinn Guðnason í Skarði,
formaður Félags hrossabænda,
segir að ummæU Kristins Huga-
sonar hrossaræktarráðunautar
í ríkisútvarpinu sl. laugardag
um hestamenn séu meira en
þeir geti kyngt. Meöal þess sem
hrossaræktarráðunauturinn
sagði þá um nýafstaðið kjör
Kristins tU formanns Félags
hrossabænda var eftirfarandi:
„... maður kemst tU valda sem
mér finnst hafa gert það á ákaf-
lega ómerkilegan hátt.“
Og síðar, einnig um Kristin
Guðnason: . þó það kæmu
þúsund manns og bæðu mig að
svíkja þá mundi ég ekki gera
það. En það gerðist í Skarði og
það segi ég ómerkingshátt."
Kristinn fjallar einnig um
hinn almenna hestamann í um-
mælum sínum í viðtalinu.
Hann segist vera orðinn „dauð-
þreyttur á samstarfi við hesta-
menn“.
„Þetta eru náttúrlega svona
deUumenn upp tU hópa og
margir þeirra alveg „manískir"
og þeir ganga fram fyrir skjöldu
jafnvel í vitleysu, án þess að
átta sig á eigin vandkvæðum..."
Læt ekki hrekja
mig úr starfi
- segir Kristinn Hugason hrossaræktarráðunautur
„Ég tel fráleitt að láta sér til hugar
koma að taka af starfssviði hrossa-
ræktarráðunautar meginþátt starfsins
varðandi framkvæmd stefnunnar sem
er forysta í dómstörfum. Ég mun
aldrei samþykkja slíkt og mun aldrei
vinna undir þessum formerkjum,"
sagði Kristinn Hugason hrossaræktar-
ráðunautur við DV, aðspurður um tU-
löguna sem samþykkt var á aðalfundi
Félags hrossabænda.
- En hvað ef þessi tiUaga verður
samþykkt?
„Hún er fráleit og ég tel engar líkur
á að hún verði samþykkt. Þetta er
ekki á valdsviði Félags hrossabænda
og tiEagan varð á endanum alger moð-
suða. Hún er óframkvæmanieg í nú-
verandi mynd og landbúnaðarkerfið
mun aldrei gangast inn á þetta.“
- Upphafsmenn tillögunnar segjast
álíta að starf hrossaræktarráðunautar
sé orðið svo umfangsmikið að ein-
hvers staðar þurfi að skera af og það
sé þá helst þessi þáttur:
„Sú hugsun gengur ekki upp.“
- Hver er þá tUgangurinn?
Kristinn Hugason hrossaræktar-
ráðunautur.
„Ég veit það ekki.“
- Áttu þá við að þeir vUji losna við
þig?
„Vitaskuld vUja einhverjir losna
við mig en aðrir síður. Ég nefni engin
nöfn en skoði hver sig og sitt hjarta.
En ferUl minn hefur verið lýtalaus og
ég er búinn að ná því fram sem ég ætl-
aði mér. Ég er þess vegna óþreyjufuU-
ur að takast á við nýtt starf en tíma-
setning er óráðin. En ég læt ekki
hrekja mig úr starfi á þennan hátt. Ég
læt ekki brenna húsið ofan af mér án
þess að reyna að bjarga innbúinu að
minnsta kosti.“
Kristinn viðhafði þung orð um ný-
kjörinn formann hrossabænda, Krist-
in Guðnason í Skarði, í útvarpsviðtali
um helgina.
„Þau orð eru sögð í hita leiksins.
Frammistaða Kristins Guðnasonar í
þessu máli hefur verið með þeim
hætti að mUli okkar skapaðist trúnað-
arbrestur."
- Nú er hann nýkjörinn formaður
Félags hrossabænda. Getið þið tveir
starfað saman?
„Formannsvalið er þeirra vanda-
mál en þetta með samstarfið kemur í
ljós. Ég hef mínar embættisskyldur.
Ég hef áður starfað með mönnum sem
ég hef ekki getað treyst. Þar undan-
skU ég þó ýmsa, þar á meðal Berg
Pálsson. Þar sakna ég vinar í stað og
heiðarlegs manns." -JSS
Kópavogur og „kvennamómentið“
Um helgina kom í ljós
að sjálfstæðismenn í
Reykjaneskjördæmi eru
alveg óhemjumargir.
Flokksforystan gerði sér
enga grein fyrir þessum
mikla stuðningi enda fór
það svo að tölvukerfið
hrundi við talninguna í
prófkjörinu. Tölvumar
voru forritaðar fyrir þátt-
töku venjulegra íhalds-
manna en fóru flikk flakk
og heljarstökk þegar í þær
hrúgaðist fjöldi komma og
krata. Þessir fomu féndur
Sjálfstæðisflokksins voru
skyndUega orðnir burða-
rás flokksstarfsins á
Reykjanesi. Það leikur
jafnvel grunur á að
kvennalistakonur hafi
kosið og lýst um leið
ævarandi hollustu við
Sjálfstæðisflokkinn í kjör-
dæminu.
í þessum stóra slag fór
það auðvitað svo að sumir unnu og aðrir töpuöu.
Samt var það þannig að þeir sem töpuðu sögðust
samt hafa sigrað. Það felst í þvi að vinna svokaU-
aða vamarsigra. Þingmenn sem fyrir sátu á fleti
ætluðu sér aUir að halda sinu eða fara ofar. Það
gekk ekki eftir hjá öUum. Kristján Pálsson ætlaði
sér í 2. sætið en þar settist fyrirferðarmikiU ný-
liði, Gunnar I. Birgisson Kópavogsjarl. Gunnar er
þungavigtarmaður, hvemig sem á hann er litið,
og ljóst að honum verður trauðla haggaö. Þá
skaust annar nýliði, Þorgerður Gunnarsdóttir,
upp fyrir Kristján og raunar Áma R. lika.
Þegar þetta tvennt fer saman varð ekki við ráð-
ið, enda lýsti Kristján því í viðtali í gær að hann
réði hvorki við Kópavog né „kvennamómentið"
sem þingmaðurinn kaUaði svo. „Kvennamóment-
ið“ felst að sögn í þeirri áráttu flokka að fá kjós-
endur tU þess að kjósa konur fremur en karla.
Það gefur augaieið að konur em fylgjandi þessari
stefnu en karlar siður, þar á meðal Kristján.
Hann leggst heldur gegn „mómentinu“.
Þegar „kvennamómentið" fer svo saman við
kratisma þá er fjandinn laus. Þannig var það tU
dæmis í tUfeUi Þorgerðar sem settist sæti ofar en
Kristján Suðumesjamaður. Þótt Þorgerður sé
íhald þá er hún komin af landsþekktum krata,
sjálfum Gunnari Eyjólfssyni leikara og fyrmrn
skátahöfðingja. Gunnar mat dóttur sina að sjálf-
sögðu meira en krataflokkinn og barðist ötuUega
fyrir hana í prófkjörsbaráttunni. Gamlir kratar
vissu því ekki hvaðan á þá stóð veðrið þegar þeir
sáu hinn kratíska leikara í baráttuhug fyrir
íhaldið í stórmarkaði í Kópavogi.
Kópavogskratamir mgluðust svo í ríminu að
þeir fóm þegar á kjörstað íhaldsins og kusu þar.
Það varð svo aftur tU þess, eins og fyrr greinir,
að íhaldstölvumar brunnu yfir.
Kosningabarátta íhaldsms á Reykjanesi mun
því byggjast á því að ná saman þeim sem kusu í
prófkjörinu og fá þá tU þess að kjósa rétt þegar út
í alvöruna er komið, í þingkosningunum í vor.
Vænlegast tU árangurs, einfaldast og Qjótlegast
er að fá hreinlega sendar flokksskrár komma,
krata og jafnvel Kvennalistans í kjördæminu.
Dagfari
Stuttar fréttir :dv
Meira en 20 milíjónir
Ríkisútvarpið greindi frá því
að talið væri aö frambjóðendur í
prófkjöri sjálfstæðismanna á
Reykjanesi og stuðningsmenn
þeirra hefðu varið samtals yfir 20
milijónum króna tU kynningar
fyrir prófkjörið.
Vill kræklingaeldi
Ríkisútvarpið greindi frá því
að Ólafúr Hannibalsson, þing-
maður Sjálfstæð-
isflokksins, vUdi
að ríkisstjómin
liðkaði fyrir
kræklingaeldi
sem nýrri bú-
grein hér á landi.
Kræklingaeldi
ku hafa gefist vel í Kanada og
veitt þar fjölda fólks atvinnu.
Skyn vinnur með Netverki
Skyn ehf. hefúr gert samstarfs-
samning við Netverk hf. um ný-
stárlegt verkefni. Skyn er að
markaðssetja fjarlækningabúnað
fyrir skip og báta en Netverk
framleiðir samskiptahugbúnað
fyrir gervihnattasambönd. Fjar-
lækningabúnaðinum er komið
fyrir í handhægri tösku sem í em
mælitæki tU að fylgjast með lífs-
mörkum. Hugmyndin er að með
þessum tækjabúnaði geti áhöfn
skips á fjarlægum miðum notað
gervihnetti tíl að setja sig í sam-
band við lækni sem myndi með
aðstoð umrædds tækjabúnaðar
leiðbeina áhöfninni, m.a. við
minni háttar aðgerðir.
Aflaverðmæti 64 milljónir
Björgvin EA 311 kom inn til
löndunar á Dalvík á föstudaginn
eftir tæplega mánaðar útivem.
Upp úr skipinu komu um 187
tonn af afuröum sem þýðir að afli
upp úr sjó var um 356 tonn, aö
verðmæti um 64 mUljónir króna.
Að sögn Valdimars Bragasonar
útgerðarstjóra er þetta mesta afla-
verðmæti sem Björgvin hefur
komið með að landi úr einni
veiðiferð frá upphafi. Uppistaðan
i aflanum var þorskur og grálúða
og miðað við tölur upp úr sjó var
skipting aflans þannig: 214 tonn
af þorski, 73 tonn af grálúðu, 47
tonn af ýsu, 10 tonn af ufsa, 6
tonn af karfa og lítilræði af öðr-
um tegundum.
Enn í viðbragðsstöðu
Töluvert hefur dregið úr
skjálftavirkni í Ölfusi. Ríkisút-
varpið skýrði
frá þvi að Ragn-
ar Stefánsson
jarðskjálftafræð- Kv g*at
ingur hefði sagt |f ■Sí
að skjálftar É-
hefðu ekki verið &
eins öflugir og IHkÉ,____
áður og að virka svæðið hefði
minnkað. Ríkisútvarpið greindi
jafnframt frá því aö matsmenn
Viðlagatryggingar hefðu byrjað í
gærmorgun að meta tjón af jarð-
skjálftum um helgina. Þótt dregið
hefði úr skjálftavirkni væru Al-
mannavarnir enn í viðbragðs-
stöðu.
Hætti aö gjósa
Stjórnendur Hitaveitu Þorláks-
hafnar ræddu síðdegis í gær til
hvaða ráða skyldi grípa til að
nýta áfram aðra borholu veitunn-
ar á Bakka í Ölfusi. Holan hætti
að gjósa í jarðhræringunum um
helgina. Starfsmenn Orkustofn-
unar skoðuðu holuna í fyrrakvöld
og staðfestu að hún væri ekki
hrunin saman. Ríkisútvai-pið
greindi frá.
Fær góða dóma
Ríkisútvarpið greindi frá því
að íslenska kvikmyndin Benja-
mín dúfa hefði
fengið afar góða
dóma á menn-
ingarsíöu
norska dagblaðs-
ins Norðurljóss.
Myndin er nú
sýnd í fyrsta
sinn á evrópskum kvikmynda-
dögum í Tromsö í Noregi. Gagn-
rýnandi blaðsins segir synd og
skömm að myndin skuli ekki
hafa verið sýnd fyrr i Noregi.
-SJ/hiá