Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1998, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1998, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 Þeir redda málum, tengja tæki og tól og gera allt klártfyrir tón- leika. Sumirfá að koma fram á tónleikum þar sem þeir spila, syngja og spúa jafnvel eldi. Hljómsveitimar reiða sig á rótarana. Eitt stórt partý Líf Kidda, Kristins T. Haraldsson- ar, snerist um töffaraskap þegar hann var rótari á árunum 1973-1987. Hann „rótaði" þá m.a. með Júdasi, Geimsteini og Brunaliðinu. Sjálfur segist hann hafa verið brautryðjandi í rótarastarfi á íslandi. „Ég kláraði gagnfræðaskólann 1973 og síðan fór ég í villingaskapinn sem fólst í að þvælast um landið með hljómsveitum og að vera töffari. Þetta snerist meira um að vera töffari en nokkuð annað.“ 1 dag er Kiddi fjölskyldumaður og starfar á tölvudeild Ríkisspítalanna. „Þetta var sérstakur heimur sem enginn skilur nema þeir sem eru í hljómsveitarbransanum. Mér fannst ég vera að skapa eitthvað. Það má líka segja að maður hafi verið að gera uppreisn og reyna að brjótast út úr hefðum sem höfðu tíðkast." Kiddi segir að rótarar séu menn sem vilji ná athygli fólks. „Þetta er ákveðin tegund af útrás og athyglissýki. Ég var t.d. haldinn mikilli athyglissýki á þessum tima. Ég veit samt ekki hvers vegna." Kiddi reddaði málum, tengdi tæki og tól og gerði allt klárt fyrir tón- leika. Hann stóð hins vegar aldrei í skugganum af félögum sínum. „Það var ég sem skipulagði allt og stjóm- aði og sagði þeim fyrir verkum. Ég fékk þess vegna að láta mina stjömu skína.“ Hann kom meira að segja stundum fram með Júdasi og spilaði þá á ásláttarhljóðfæri. „Við vorum með margar nýjungar. Við máluðum okkur t.d. í framan áður en hljóm- sveitin KISS byrjaði á því. Það gerð- um við fyrir tónleika á Hvoli." y 2JJJ Djammið og stelpurnar mest s Það er enginn skítamórall í gangi hjá meðlimum hljóm- sveitarinnar Skítamórals. Þetta er ein vinsælasta hljómsveit landsins sem heldur uppi fjörinu á hverjum dansleiknum á fætur öðrum. Viktor Hólm Jónmundsson er rótari hljómsveitarinnar. Hann er 21 árs og á eftir eitt og hálft ár í stúdentspróf af íþróttabraut í FB. Hann tók sér hlé frá námi vegna rótarastarfsins. „Ég byrjaði á þvi að fara mikið á böll með hljómsveitinni en ég kynntist tveimur af strákunum í Fjölbrautaskóla Suð- urlands. Ég fór að hjálpa strákunum og svo byrjaði ég að „róta“ hjá þeim um verslunarmannahelgina 1997.“ Hann segir að rótarar séu strákar sem hafi alltaf haft áhuga á tækjum, grúski og hljómsveitarbraski. „Ég kunni reyndar varla að setja magnara í samband þegar ég byrjaði. En það var fljótt að koma.“ Starf Viktors hjá Skítamóral felst í að koma öllum græj- unum upp og taka þær saman eftir tónleika. „Ég sé líka um að strákunum liði vel á meðan þeir eru á sviðinu og að þeir fái allt sem þeir þurfi s.s. vatn og öskubakka. Ég fylgist með að áheyrendur fari ekki upp á svið og svo má lengi telja. Það er oft sagt að maður sé mamma popparanna." Viktor er ekki í skugga strákanna i bandinu; hann fær að syngja lag- ið „Þegcir ykkur langar“ á tónleikum. „Svo hef ég spúið eldi. Þeir plata mig til að gera allan andskotann." Viktor er spurður hvað sé mest spennandi við að „róta“ hjá Skítamóral. „Ætli það sé ekki djammið í kringum það og stelpurnar. Þær sækja eitthvað í okkur.“ Hvað djammið varðar segir Viktor að því fylgi engin óregla. „Ég drekk ekki. Með djammi á ég hins vegar við partí, stemningu í rútunni eftir tónleika og góðan félags- skap.“ Meðlimir Skítamórals - og Viktor - eru nátt- hrafiiar þegar tónleikar og böll eru á dagskránni. Á virkum dögum vaknar hann um klukkan hálfellefú til tólf. „Þá byrja ég á því að fara út með hundinn og svo eru það skautamir,“ segir Viktor sem rennir sér reglulega á svellinu í Laugardal. „Ég byrja að „róta“ um klukkan fjögur ef strákamir spila um kvöldið. Það tekur um þrjá tíma að stilla hljóðkerfinu og öllu dótinu upp. Svo fer maður heim og slappar af og er mættur aftur um hálfell- efú.“ Eftir það tekur tónlistin og nóttin völdin. -SJ Viktor fyrir framan rútu Skítamórals. „Ég fylgist með að áheyrendur fari ekki upp á svið og svo má lengi telja. Það er oft sagt að maður sé mamma popp- aranna." DV-mynd Teitur Fjórtán ár sem rótari gefa til kynna að Kidda hafi þótt starfið skemmtilegt. „Það má segja að mað- ur hafi verið í einu stóm partýi all- an tímann. En svo allt í einu er það búið og maður fer að hugsa um í hvað maður hafi eytt öllum árun- um. í rauninni skildi starfið ekkert eftir sig. Ég græddi jú mikla pen- inga en gallinn var að ég eyddi þeim jafnóðum. Ef ég væri í sömu spomm í dag myndi ég geyma pen- ingana. En því meiri peningar því meiri eyðsla." Kiddi eyddi aumnum i sukk og mgl. Hann segist hlæja af töffara- skapnum þegar hann lítur til baka. „Ef maður hefði verið með eitthvert vit heföi maður aldrei farið út í þetta og eytt tímanum frekar i skyn- samlegri hluti. Á þessum tima var svo mikið nýtt í gangi og maður var að leita að viðurkenningu." Kiddi segist ráðleggja þeim mönnum, sem eru að leggja út á rót- arabrautina og eru ómenntaðir að fara frekar í skóla. „Þetta er bara ævintýri sem stendur yfir í afmark- aöan tíma. ísland er svo lítið land að það býður ekki upp á framtíö í þessu starfi. Þótt maður hafi kunn- áttu og reynslu þá er alltaf spurt um menntun þegar á hólminn er kom- ið.“ -SJ Tölvur eru tækin sem Kiddi reddar í dag, nú Varmaskiptar fyrir heimili og iðnað Einstök varmanýting Hagstæft verd Tæknileg ráðgjöf um val Borgartúni 28, sími 562 2901 og 562 2900.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.