Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1998, Side 6
Fréttir
t>RTn.TTTnAGTTTÍ 17. NÓVF.MRF.R
Andar köldu í garö íslendinga í nýrri ævisögu Gro Harlem Brundtland:
Vilja allt gefins og
láta ekkert á móti
- hagnaðurinn talinn um 80 milljónir af báðum bindum ævisögunnar
DV, Ósló:
„íslendingar hafa aldrei óskaö
eftir frjálsum viðskiptum með
sameiginlegum reglum um sam-
keppni og svo framvegis heldur
bara frjálsum aðgangi að mörkuð-
unum fyrir sjálfa sig,“ skrifar Gro
Harlem Brundtland, fyrrum for-
sætisráðherra Noregs, í síðara
bindi ævisögu sinnar. Þar andar
heldur köldu í garð íslendinga, og
þeir sakaðir um stirfni og að ota
bara sínum tota.
Gro líkaði miður framganga ís-
lendinga og Jóns Baldvins Hanni-
balssonar utanríkisráðherra við
samningaviðræðurnar um stofn-
un Evrópska efnahagssvæðisins,
EES. Hún segir að íslendingar
„hafi allaf notið meiri velvildar
hjá Evrópusambandinu en Norð-
menn“ enda óspart spilað á að
þeir væru smáþjóð langt úti í
hafsauga og algerlega háðir fisk-
veiðum.
Smugan virðist hins vegar
gleymd að öðru leyti en því að
Gro leggur áherslu á að Noregur
hafi um langt skeið orðið að verja
fiskistofna sína fyrir óréttmætri
ásókn annarra. Þannig hafi þar
alltaf komið í hlut Norðmanna að
opna fiskveiðilögsögu sina þegar
Evrópusambandið hefur komið
með kröfur á hendur EFTA-rikj-
unum.
Gro segir að Spánverjar hafi al-
laf gengið lengst í kröfum sínum
og Norðmenn alltaf orðið að gefa
eftir. íslendingar hafi hins vegar
aldrei látið einn einasta fisk af
hendi í þessum viðræðum.
Á síðasta ári gaf Gro út fyrra
bindi ævisögu sinnar. Bókin seld-
ist í um 110 þúsund eintökum og
varð metsölubók. Nú er reiknað
með að salan verði svipuð. í fyrra
fékk Gro um 40 milljónir ís-
lenskra króna í sinn hlut af bók-
sölunni og von er á sömu fjárhæð
nú.
GRO
Hafkm Brundtland
DttAMATiSKB ÁR A
Gro Harlem Grundtland gefur ís-
lendingum slaka einkunn f ævisögu
sinni.
Gro er mjög opinská í bókum
sínum. Hún skrifar heilan kafla
um sjálfsmorð Jörgens sonar slns
og sendir annars skeyti í allar átt-
ir. T.d. hefur vakið athygli að hún
vildi ekki fá Thorbjörn Jagland
sem arftaka sinn vegna þess að
hann á svo erfltt með að gera sig
skiljanlegan.
-GK
Egilsstaðir:
Flugferð-
um fækkað
DV, Egilsstöðum:
Frá og með 16. nóvember fækk-
aði ferðum Flugfélags íslands til
Egilsstaða um fjórar á viku. Felld-
ar eru niður miðdegisferðir á
þriðjudögum, miðvikudögum, og
föstudögum og kvöldferð á simnu-
dögum. Fækkun ferða er tilkomin
vegna kröfu frá Samkeppnisstofn-
un sem hefur gert FÍ að fella nið-
ur ferðir sem bætt var á áætlun í
fyrra.
Einar Halldórsson, umdæmisstjóri á
Egilsstöðum, og Páll Halldórsson,
framkvæmdastjóri FÍ, á fundi með
fréttamönnum.
DV-mynd Arndís
Við stofnun Flugfélags íslands,
sem varð til við samruna innan-
landsflugs Flugleiða og Flugfélags
Norðurlands, settu samkeppnisyf-
irvöld félaginu ýmis skilyrði, m.a
var þvi gert að láta Samkeppnis-
stofnun vita ef fjölgað yrði ferðum
til fjögurra staða innanlands, Eg-
ilsstaða, Akureyrar, ísafjarðar og
Vestmannaeyja og var það gert.
Á fréttamannafundi á Hótel
Héraði á Egilsstöðum sagði Páll
Halldórsson, framkvæmdastjóri
Flugfélags íslands, að hann teldi
ekkert réttlæta þessa kröfu Sam-
keppnisstofnunar, þar sem flug-
leiðin til Egilsstaða hefði algjöra
sérstöðu. Þar hefði samkeppnisað-
ilinn íslandsflug verið í ferðum
frá árinu 1992, byggi við jafnan
aðgang að mannvirkjum og hefði
byggt upp sölukerfi sem hefði í
för með sér að fjölgun ferða FÍ
væri 1 raun ekkert annað en eðli-
leg samkeppni og bætt þjónusta
við Austfirðinga.
Félagið er með þrjá Fokkera í
innanlandsflugi og þýðir þessi
samdráttur í Egilsstaðafluginu að
vélamar og áhafnir þeirra mun
skorta verkefni og hafa 1 för með
sér fjárhagslegt tjón. Páll sagði
ljóst að félagið mundi ekki sætta
sig við handstýringu af þessu tagi
og í athugun væri að áfrýja mál-
inu til samkeppnisráðs eða fara
jafnvel dómstólaleiðina. Um það
bil 65 % nýting er á flugi FÍ til Eg-
ilsstaða og hefur farþegum fjölgað
undanfarin ár þrátt fyrir aukna
samkeppni, auk þess að flutning-
ar hafa aukist.
-AÞv.
Amma og mamma
eru enn að
nota sínar
AEG!
Ég treysti þeim
f Lavamat W 80
Tekur 5 kg
Vindingarhraöi: 800/400 snúningar
Ryðfrír belgur og tromla
Sjálfvirkt magnskynjunarkerfi nýjasta tækni \
"Fuzzy-Logic" enginn 1/2 takki
"ÖK0" kerfi (spararsápu)
Öll þvottakerfi
Ullarvagga
Þvottahæfni “B" Þeytivinduafköst "C'
Lavamat W 1010
> Tekur 5 kg
> Vindingarhraði: 1000/600 snúningar
• Ryöfrír belgur og tromla
• Sjálfvirkt magnskynjunarkerfi - nýjasta tækni. "Fuzzy-Logic"
enginn 1/2 takki
>"ÖK0" kerfi (spararsápu)
• Öll pvottakerfi ásamt sérstöku blettakerfi
• Ullarvagga
> Þvottahæfni "B" Þeytivinduafköst "C"
Verö 69.900,- stgr.
f Lavamat 74600
• Rafeindastýrður forskriftarvalsrofi (vélin sem
hugsar)
> Sýnir í Ijósaborði gang forskriftar
• Hægt að seinka gangsetningu forskriftar allt að
19tímum
> Sýnir í Ijósaborði of mikla sápunotkun
• Sérstakur takki fyrir kælingu og aukaskolun
• Tekur 5 kg
> Vindingarhraði: 1400,1000,800,600 og 400
snúningar
• Ryðfrír belgur og tromla
• Sjálfvirkt magnskynjunarkerfi - nýjasta tækni
"Fuzzy-Logic" enginn 1 /2 takki
> "ÖK0" kerfi (sparar sápu)
> "UKS" kerfi, jafnar tau í tromlu fyrir vindingu
• Froðuskynjunarkerfi (bætir við aukaskolun)
• Öll þvottakerfi ásamt sérstöku blettakerfi
> Ullarvagga
> Þvottahæfni "A“ Þeytivinduafköst “B"
>>»
Z
Verð 89.900,- stgr. J
:;#Á
BRÆÐURNIR
533 2800
Lágmúla
Örugg þjónusta í 75 ár
IH'JUIJITTT Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni Hallgrfmsson, Grundarfirði. Heimahornið Stykkishólmi. Ásubúð,
Búoardal. Vestfirólr: Geirseyrarbúðin, Patreksfirói. Rafverk, Bolungarvík, Straumur, ísafiröi Noróurland: Kl. Steingrímsfjarðar. Hólmavfk. Kl. V-Hún„ Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skaglirðingabúð, Sauðárkróki. KEA
byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri. KEA, Dalvlk. KEA Ólafsfiröi. KEA, Siglufirði. Kl. Þingeyinga, Húsavík. Urö Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Hjalti Sigurösson, Eskifirði. Kf. Vopnfirðinga, Vopnafiröi. Verslunin
Vfk, Neskaupstað. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúösfirði. KASK, Höfn. KASK, Djúpavogi. Suóurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Rafmagnsverkstæði KR, Hvolsvelli. Jón Þorbergs. Kirkjubæjarklaustri. Klakkur, Vík.
Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanee: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavfk._________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________
Bandalagið brást
Úrslit í prófkjöri sjálfstæðismanna í
Reykjanesi lögðust misjafnlega í þá
sem börðust með milljónir og dreng-
skap að vopni. Ýmis samsæri voru í
gangi til að forða
Reyknesingum frá því
að sitja uppi með and-
stæðingana sem þing-
menn. Þannig eru
kenningar um að
Gunnar I. Birgis-
son hafi lagt að sín-
um stuðningsmönn-
um að sleppa alveg
að kjósa Sigríði
Önnu Þórðardóttur og Árna
Mathiesen. Þá gengur einnig fjöllum
hærra að bandalag þeirra Kristjáns
Pálssonar og Áma Mathiesen hafi
ekki haldið nema frá hendi Kristjáns.
Herstjórar Árna hafi hvatt sitt fólk til
að færa konurnar upp og Kristjáni hafi
verið fórnað. Það þykir styðja kenning-
una að atkvæðatölur Áma Matt og
Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur,
frænku hans, liggja saman ...
Ný hárgreiðsla
Það kom ekki á óvart að Jakob
Björnsson, fyrrum bæjarstjóri á Ak-
ureyri, skyldi hafa sigur gegn Val-
gerði Sverrisdóttur varðandi fyrsta
sætið á lista Framsókn-
arflokksins á Norður-
landi eystra þegar
skoðanakönnun um
það var gerð á Akur-
eyri á dögunum. Það
kom frekar á óvart
að í heimabæ sínum
hafði Kobbi ekki
nema um 10%
meira fylgi en Val-
gerður þingflokksformaður og geta
þessar tölur reyndar gefið til kynna að
erfitt verði fyrir Kobba að velta Val-
gerði úr toppsætinu. Hann er þó til
alls líklegur, búinn að skipta um hár-
greiðslu og tilbúinn í slaginn sem
hefst af krafti strax eftir áramótin ...
Allt upp í loft
Frá Brussel hefur Ingimar Ingi-
marsson fréttamaður flutt lands-
mönnum fregnir um árabil um Sjón-
varp og útvarp. Nú er komið babb í
bátinn og Ingimar þjón-
ar ekki lengur Sjón-
varpinu. Taliö er að
það sé vegna pirrings
milli hans og Helga
H. Jónssonar frétta-
stjóra síðan Ingimar
var aðstoðarmaður
framkvæmdastjóra.
í sl. viku hrukku sjón-
varpsmenn upp við að enginn var til
að dekka fund Davíðs Oddssonar og
Geralds Schröders í Bonn. Var því
gripið tU þess, að sögn heimUdar-
manna, að senda Gfsla Martein Bald-
ursson ásamt tökumanni á Saga Class
tU Lúxemborg. Þar beið þeirra bUl
sendiráðsins í Bonn ásamt bílstjóra
sem ók þeim á 200 kílómetra hraða til
Bonn og viðtalinu tókst að bjarga þótt
dýrt væri. Ingimar, sem var á staðn-
um, sendi síðan Ríkisútvarpinu sinn
pistU um fundinn ...
100 milljóna gróði
Margir undrast kaup KEA á eignum
Jóns Ásbjörnssonar saltfiskkaup-
manns við Reykjavíkurhöfn, 200 mUlj-
ónir fyrir húsnæði sem kostar mikið
að gera að stórmark-
aði. Jón er sagður
græða um 100 mUljón-
ir á öUu saman! Bent
er á að erfltt er að
komast að hafnar-
svæði Reykjavíkur,
enda þótt talsvert sé
af bflastæðum.
Þetta riljar upp að
ýmis hús koma tU greina sem
stórmarkaðir, ekki bara Barónsfjósið
sem nú er orðin 10-11 búð. Samvinnu-
hreyfingin fékk fyrir tíu árum sænska
sérfræðinga, toppmenn, tU að skoða
æskUegt húsnæði. Þeim leist best á
Umferðarmiðstöðina og ráðlögðu að
kaupa hana, en auk þess Húsgagna-
höUina á BUdshöfða...
Umsjón: Reynir Traustason
Netfang: sandkorn @£f. is