Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1998, Síða 7
Fréttir
7
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998
Spenna í jörð í Hveragerði:
Rétt viðbrögð barna
DV, Hveragerði:
Nær sífelldar drunur, flestar þó án
titrings, má nú heyra og fmna hér í
Hveragerði. Spennan er í lofti jafnt
sem jörðu. Nýaðfluttum Hvergerðing-
um stendur sumum hverjum ekki á
sama en fæstir hafa orðið fyrir tjóni á
munum.
í Grunnskóla Hveragerðis brá
mörgum bömunum við fyrsta stóra
skjálftann. í samtali við DV sagði Þor-
steinn Hjartarson aðstoðarskólastjóri
að þá hefði komið i ljós kostur þeirra
kynninga sem verið hafa í skólanum
og viðar um rétt viðbrögð við jarð-
skjálfta. Fyrstu viðbrögð margra
skólabamanna hefðu verið þau aö
skríða undir borð. Einstaka foreldri
hefði komið til þess að sækja böm sín
en Þorsteinn sagðist telja þá nýflutta
hingað og óvana skjáiftum.
í sumar vora settar öryggisfílmur
innan á allar rúður í skólanum,
þannig að engin hætta væri á að rúð-
ur spryngi, kæmi til kröftugra
skjálfta. Sama hafði áður verið gert á
Heilsusto&iun NLFl. Að sögn Önnu
Pálsdóttur, upplýsingafulltrúa Heilsu-
stofhunar, virtust flestir dvalargestir
lítið kippa sér upp við jarðhræring-
amar.
Nokkrar sögur fara af smávægileg-
um skemmdum í húsum hér en í flest-
um tilvikum er um að ræða hið vin-
sæla „hrun úr hillum". Finnst flestum
innfæddum Hvergerðingum lítið til
skjálftanna koma. -eh
Góð aflabrögð í Húnaflóa:
Grásleppunetin
fyllast af þorski
Magnús Gústafsson að landa góðum afla.
DV-mynd Guðfinnur
DV Hólmavík:
Óhætt er að segja að
mjög góð aflabrögð hafi
verið á þessu svæði hjá
minni bátum allt þetta ár
þegar grásleppuveiðin sl.
vor er ffátalin en hún
brást alveg. Reyndar hafa
sumir sjómenn á orði að
ekki sé lengur hægt að
leggja hrognkelsnet. Þau
fyllist umsvifalaust af
þorski og nokkrir hugleiða
að hætta þeim veiðum
eins og nú horfir. Gæftir minni báta
þetta haustið vom heldur stopular en
alltaf góður afli þegar róið var og sjó-
menn hafa verið ánægðir með fisk-
verðið eins og það gerist á mörkuð-
um.
Magnús Gústafsson skipstjóri var
að landa fallegum línufiski úr bát sín-
um á Hólmavík nýverið þegar frétta-
ritari átti þar leið um. Magnús sagði
aflann heldur vera með minna móti
að þessu sinni, aðeins um 100 kg á
bala. Einstaka sjómenn hafa hin allra
síðustu ár náð því að fá um 300 kg á
bala og jafnvel þar yfir í einstaka
róðri, sem er mikil og góð breyting til
hins betra frá því sem áður var. Segir
þetta heilmikið um hagstæð skilyrði í
hafinu og einnig nefna sumir áhrif
sóknartakmarkana sem verið hafi í
gildi. Áhrif þeirra séu að skila sér í
mun betri aflabrögðum. -GF
Árskógssandur:
Sólrún kaupir nýtt skip
DV, Dalvík:
Útgerðarfyrirtækiö Sólrún hf. á Ár-
skógssandi hefur fest kaup á nýju
skipi, Sjöfn ÞH 142 frá Grenivík. Að
sögn Péturs Sigurðssonar, fram-
kvæmdastjóra Sólrúnar hf., er skipið
keypt án veiðiheimilda, en yfir á það
færast veiðiheimildir Sólrúnar EA
351, sem nú verður seld án veiðiheim-
ilda. Sjöfti er 199 tonna skip smíðuð
árið 1966.
Að sögn Péturs er Sjöfn nýrra,
stærra og öflugra skip en Sólrúnin og
hentar fyrirtækinu betur þar sem allt
útlit er fyrir samdrátt í rækjuveiðum
á næstu árum . Verði því að huga í
auknum mæh að netaveiðum og segja
má að netaveiðar verði uppistaðan í
veiðum fyrirtækisins á næst-
unni.Vinnslurými á nýja skipinu er
um helmingi stærra en á því sem fyrir
er og auðveldar það alla meðferð hrá-
eftiis. Þá sé einnig hagræðing fólgin í
því að vera með stærra skip ef sækja
þurfi afla lengra til því mun hag-
kvæmara sé að láta skipið sjálft koma
aflanum heim, heldur en að landa ann-
ars staðar og flytja aflann á bílum.
Sjöfn verður afhent um næstu
mánaðamót og mun fá nafnið Sólrún
EA. -hiá
Hvort viltu
tíukrónur
eðatuttugu?
Er nema von að spurt sé.
Þegar skoðað er hvað fæst fyrir fisk - annars
vegar á fiskmörkuðum og hins vegar í beinni
sölu kemur ýmislegt í ljós. Til upplýsinga má
geta þess að útgerðarmenn hafa til þessa hafnað
alfarið þeirri sjálfsögðu kröfii sjómanna að
allur fiskur verði seldur á mörkuðum.
Þorskur I Ýsa I Karffi
Allar tölur etu frú Fiskifélogi fslands. Miðað við vetð í júní 1998.
VISIR
félag smrjómmmNA
ÁSUÐURNESjUM
Getur verið að útgerðar-
menn hafi annarra hags-
muna að gæta en að fá sem
hæst verð fyrir fískinn?
Spyr sá sem ekki veit.
Allavega hafha þeir hærri
verðunum sem sýnd eru í
dæmunum hér að ofan.
Fræðsluátak á ári hafsins.
Áskrifendur fá
aukaafslátt af
smáauglýsingum DV
pf't milli himjr,'
V.
X
Smáauglýsingar
550 5000
1
Sú meðfærilegasta, minnsta, léttasta og geftasta frt
•is iWIKe
Nýja OKO-VAM
ryksuaan komur í
meS rjölbreytt no
- - - .• ■
■B
AEG
hreint undur
Lágmula 8 • Simi 533 2800 )
Umboösmenn um allt land ií