Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1998, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998
★
iir
menning,
Englaraddir í tímaleysi
Aðrir tónleikar „Norðurljósa",
tónlistarhátíðar Musica Antiqua,
voru haldnir sl. laugardag i Hall-
grímskirkju. Þar fluttu miðaldatón-
listarhópurinn Alba og Vox Feminae
verk eftir Hildegard von Bingen en í
ár eru liðin 900 ár frá fæðingu henn-
ar.
Hildegard von Bingen var stór-
merkileg kona, hún var tónskáld,
ijóðskáld, guðfræðingur og þekkti
vel lækningamátt jurta svo eitthvað
sé nefnt. Á tímum þegar konur voru
vart virtar viðlits var hún ráðgjafi
Tónlist
Arndís Björk Ásgeirsdóttir
margra háttsettra manna innan
kirkjunnar. Átta ára var hún send í
klaustur í Disibodenberg og tók við
sem abbadís árið 1136. Frá unga
aldri þjáðist hún af mígreni og hafa
fræðimenn reynt að útskýra þær sýnir, sem
hún að jafnaði sá, með því. En árið 1141 sá
hún sýn sem breytti lífi hennar. „Þegar ég
var íjörutíu og tveggja ára og sjö mánaða
opnuðust himnarnir, skært ljós flæddi inn í
heila minn og tendraði hjarta mitt og bijóst
líkt og eldur ...“ Eftir það fannst henni hún
knúin til þess að koma þessum sýnum frá
Tónlistarhópurinn Alba
hann er að gera.
veit svo sannarlega hvað
sér, hvort sem var í rituðu máli, tónum eða
þá að hún lýsti þeim fyrir skrifurum sem
teiknuðu þær af ýtrustu nákvæmni.
Þó að Hildegard hefði verið algjörlega
ólærð í tónlist hafði hún einradda gregórí-
anskan söng til að styðjast við í verkum sín-
um. Eftir hana liggja fjölmargir trúarsöngv-
ar til heiðurs dýrlingum og Maríu mey sem
flestir eru gerðir við hennar eigin texta og
fengum við að heyra nokkra þeirra í
Hallgrimskirkju á laugardaginn.
Tónlistarhópinn Alba skipa þrír
meðlimir sem svo sannarlega vita
hvað þeir eru að gera: Agnehte
Christiansen söngkona, Helen Davies
sem leikur á miðaldahörpur og Poul
Hoxbro sem leikur á pípur, saltara og
trumbur. Tónlistina fyrir hljóðfærin
hafa þau Davies og Hoxbro útsett sjálf
og hljómaði hún einstaklega sannfær-
andi og i fullkomnu jafnvægi við
sönginn. Tónlistin er langt því frá
auðveld í flutningi með erfiðum tón-
bilum og alls kyns flúri en samt yfir-
lætislaus og fógur.
Christiansen söng einsönginn af
miklu öryggi en henni til aðstoðar voru fé-
lagar úr Vox Feminae, þjálfaðir af Mar-
gréti Pálmadóttur, sem tóku einraddað
undir með englaröddum sínum. í tæpan
klukkutíma flæddi þessi unaðslega tórdist
um kirkjuna og inn í manns eigin dýpstu
sálarkima. Hún virtist algjörlega tímalaus
og - mígreni eða ekki - þá býr þessi tón-
list yfir einhverjum krafti sem lætm-
mann ekki ósnortinn. Hún verður lausn frá
öllu veraldarvafstri og stressi nútímans. Því
er ekki að undra að tónlist Hindegard von
Bingen nýtur nú mikilla vinsælda eftir
aldalanga hvíld og kæmi mér ekki á óvart
þó að hún hefði eignast nýja áhangendur
eftir þessa tónleika, þó ekki væri nema
einn.
Einsemd mannsins
Á sunnudagskvöldið
minntu þrír leikarar á
framlag Samuels
Becketts til heimsbók-
menntanna í Iðnó. Róbert
Arnfinnsson hlustaði á
sjálfan sig flytja Eintal af
segulbandi, Ásta Amar-
dóttir las Ohio
Impromptu með sér-
kennilegum afskiptum
andlitsmyndar sinnar af
sjónvarpsskjá og María
Ellingsen hlýddi á sjálfa
sig flytja Vögguvisu af
segulbandi, sitjandi í
ruggustól.
Notkun tæknibúnaðar
í stað mótleikara í öllum María Ellingsen.
leikþáttunum undirstrik-
ar einsemd mannsins og
firringu sem Beckett var
svo hugleikin. Þó er
spuming hvort hann ætl-
aðist til að manneskjan
væri jafh viljalaus and-
Leiklist
Silja Aðalsteinsdóttir
spænis tækninni og/eða
firringrmni og leikararn-
ir vora í þessari upp-
færslu. Er það ekki
merki um lífslöngun þeg-
ar konan í Vögguvísu
kallar á „meira“ þegar
hún heldur að bandið sé
komið á enda? Hana var
varla að merkja hjá Mar-
íu. Ástu vantaði fyrir sitt
leyti „hlustandann“ sem
heimtar að hún endur-
taki með því að lemja í
borðið. Skjámyndin
hvarf bara en birtist aft-
ur við endurtekinn
textabút. Ef til vill voru
það skilaboð um að mátt-
ur orðsins væri slíkur aö
það gæti gert við bilað
sjónvarp.
Áhrifamestur var
flutningur Róberts Am-
finnssonar undir leik-
stjórn Áma Ibsen sem
fenginn var að láni frá Útvarpsleikhús-
inu. Róbert sat sjálfur á stól á sviðinu,
hlustaði og lifði sig inn í textann en brást
ekki við honum nema með svipbrigð-
um. Lýsingin var í þessu atriði sem öðr-
um áhrifamikil, og flekinn fyrir aftan
leikarana tók undraverðum breytingum
með ljósum. í miðatriðinu þóttist ég sjá
mynd skáldsins birtast á honum.
„Beckett getur sagt okkur margt," seg-
ir leikstjórinn, Þorsteinn J., í leikskrá,
„um margbreytileika lífsins, og að vona
að við sjáum meira af verkum hans, er í
sjálfú sér afskaplega Beckettískt, að vona
að það breytist." Það er að minnsta kosti
ómaksins virði að bíða eftir Godot.
Annað svið, Iðnó og Útvarpsleikhúsið
kynna:
Beöið eftir Beckett. Þrjá einþáttunga eft-
ir Samuel Beckett
Árni Ibsen þýddi Eintal og Ohio
Impromptu. Þorsteinn J. þýddi Vöggu-
vísu
Leikmynd og ijós: Snorri Freyr Hilmars-
son
Tónlist: Pétur Grétarsson
Leikstjórn og hljóð: Þorsteinn J.
Að elskast og kveðjast
Guðrún Eva Mínervudóttir kveður sér
hljóðs með smásagnasafni sem heitir því
fiillega nafhi Á meðan hann horfir á þig
ertu María mey. Bókin dregur heiti sitt af
einni af tuttugu smásögum bókarinnar og
þessi orð eru lögð í munn manns sem
hittir unga stúlku á kaffihúsi. Maðurinn
þykist vita allt um þessa stúlku, meðal
annars að hún eigi sér eldri elskhuga sem
pínir hana og elskar til skiptis. Hann seg-
ist sjá hana fyrir sér þar sem hún hellir
allsnakin upp á kaffi fyrir elskhugann, og
„Á meðcm hann horfir á þig ertu María
mey.“ Stúlkan rýkur upp og inn á klósett
en sögunni lýkur þar sem hún situr við
hlið mannsins á nýjan leik. Hvort það er
vitneskja mannsins sem skelfir stúlkuna
eða seiðandi návist hans fær lesandinn
aldrei að vita. Ekki heldur hvort orð hans
eru uppspuni eða sannleikur. Enda er
það ekki aöalatriði sögunnar heldur þrá-
in, ástin og kannski sakleysið í syndinni.
Bókmenntir
Sigríður Alhertsdóttir
Sterk þrá eftir nærveru gegnsýrir
margar sögur bókarinnar. Einnig and-
stæðan, fjarveran. Mcmneskjur mætast af
tilviljun, elskast og skemmta sér en þurfa
siðan að kveðjast af ástæðum sem sjaldn-
ast era tíundaðar. Eftir situr sársauki
sem í mörgum sögunum er hljóður og
hlýr, blandaður ljúfum minningum sem
aldrei verða frá manneskjunni teknar þó
ástin sé horfin. Slíkar tilfinningar era
allsráðandi 1 fyrstu og að mínu
mati einni fallegustu
sögu bókarinnar:
„Nú ætla ég að
baða þig af því að
þú ert vinkona v
mín.“ Þar rifjar ung- \
ur maður upp þegar
hann baðaði elskuna
sína. Rifjar upp sköpu-
lag hennar, augun, hárið
og lyktina og hvemig hon-
um leið þegar hann snerti
hana. „Svona get ég verið
væminn," segir hann í lok
sögunnar, „en nú hef ég ekki
heyrt í þér svo lengi.“ (9) Frá-
sögn hans er tregablandin en
þetta er ljúfur tregi ómengaður
af ósætti og ijótum hugsunum.
Þannig getur fjarveran verið sæt og að
sama skapi getur nærveran verið súr
eins og glöggt kemur fram í sögunum
„Brúðarvöndurinn var grálúsugur" og
„Að friðhelgi heimilisins bæri að virða
ofar öllu“. í þeirri fyrri er sagt af fólki
sem virðist vera að gifta sig af hag-
kvæmnisástæðum. Sú síöari segir af pari
sem lifir afar prúðu en innihaldslausu
lífi. í næstu íbúð er hins vegar par sem
rífst og slæst en elskast kröftuglega þess
á milli. Prúða konan hneykslast yfir og
fordæmir ofsafengnar ástríðurnar en í
fordæmingunni speglast einmanaleiki
hennar og ástleysi.
Guðrún Eva hefur ekki mörg orð
um tilfinningar persóna sinna en þær
skila sér oftast vel í einfoldu lát-
bragði þeirra eða einni eða tveimur
stuttum setningum. Einnig hefur
hún lag á að leika sér með tungu-
málið svo útkoman verður oft
skringilega skemmtileg og
kitlandi erótisk á köflum.
Stemningin í hverri sögu fyr-
ir sig kemst ágætlega til
skila en þó er eins og höf-
undur nái ekki alltaf að
vinna fyllilega úr efnivið
sínum þannig að oftar en ekki fær
lesandinn á tilfinninguna að það eigi eft-
ir að reka smiðshöggið á sögurnar. Þetta
er vissulega truflandi staðreynd en hrek-
ur þó ekki hina að Guðrún Eva Mínervu-
dóttir á hér spennandi frumraun sem er
vonandi fyrirboði um annað og meira.
Guðrún Eva Mínervudóttir:
Á meðan hann horfir á þig
ertu María mey
Bjartur 1998
Hárfínar athugasemdir
Halldóra Thoroddsen hefur gefið út aðra ijóðabók
sína, Hárfinar athugasemdir, en Stofuljóð hennar komu
út 1990. Bókin ber nafn með rentu; þar era hárfínar og
hnyttnar athugasemdir við eitt og annað í
tilverunni, til dæmis þetta „eilífa veðra-
víti“ í tebollanum, „eitt grátt hár“ upp úr
dökkum makkanum og heimilisköttinn
sem kannski njósnar fyrir Þingeyingana á
móti. Önnur ljóð era myrkari, til dæmis
„Svart hol“:
Stöku hrœöur hrökklast stundum af
handahófi um þessa götu og sogast inn í
húsiö á móti. Enginn virðist koma út aftur.
Alltaf veriö aó bera eitthvaó inn íþetta hús.
Dýnur, sófasett og eldavélar. Aldrei séö
neitt boriö þaöan út. Og þegar dyrnar
standa opnar sé ég bara svart hol.
Alltaf slökkt fyrir innan.
Halldóra er barnabarn Theodóra Thoroddsen skáld-
konu og í tveimur fallegum ljóðum hyllir hún ömmu
sína. „Dýrðarljóminn var staðreynd,“ segir hún í „Lif-
andi goðsögn" og prósaljóðið „Gamalt lof-
orð“ bregður upp sterkri mynd af,
bernskuminningu:
Boröstofan full af fólki, upphöfnu hvis-
landi. Á mióju gólfi lá Amma Theó alein
í kistunni. Þaö þótti hálf óviökunnanlegt
þegar ég skreió uppí til hennar. Var
dregin þaöan grátandi, og lét ekki
huggast fyrr en mamma sáluga haföi'
lofaö aö koma meó mér í kistuna þegar ég dœC
Um tíma hélt ég aö hún heföi lofaö upp í ermina, en veit
núna aö svo var ekki.
Höfundur gefúr sjálf út.
Sumarvorið
Einar Sigurður sendir frá sér ljóðabókina Sumarvor-
ið, uppfulla af „hjartakvæðum", eins og hann kallar
þau. Ástarljóð einkenna bókina, og sem dæmi birtum
við það sem heitir einfaldlega „Þú“:
Fór aö sofa, hugsaöi um ástina.
Vaknaöi hugsaöi,
um ástina.
Dagurinn leiö áfram,
ogjeg hugsaói um ástina.
Nóttin kom
jeg hugsaöi um ástina.
Hún mun vera
í mínum draumum,
t mínum óskum.
Ástin mun finna mig.
Lengi er ástin alsæla en svo syrtir í álinn, stúlkan
hverfur burt og beiskja og ergelsi setjast að elskhugan-
um um skeið. En ekki lengi. í bókarlok deilir önnur
stúlka hjarta hans með minningunni um þá fyrri.
Höfundur gefur sjálfur út.
Skagfirsk skemmtiljóð
Sumir segja að Skagfirðingar kunni öðrum betur að
setja saman vísur. Nú hyggst Bjami Stefán Konráðsson
frá Frostastöðum sanna þessa fúllyrðingu endanlega
með öðru bindi af Skagfmskum
skemmtiljóðum. Fyrra bindið kom út fyrir
síðustu jól og seldist upp.
Nýja bindið geymir kveöskap eftir 58
höfunda, lífs og liðna, frá rúmlega hund-
rað áram, og fylgir iðulega tilefnið með
i stuttu máli. Meðal höfunda er Bólu-
Hjálmar sem á eina vísu í bókinni.
Konur svöraðu nú betrn- beiðnum um
vísur en áður og eiga stærri hlut T
þessu bindi en hinu fyrra. Þar er til dæmis þessi
lúmska vísa eftir Guðríði B. Helgadóttur:
Eftir fundinn átti víf
of mörg pund aö framan.
Er svo bundin allt sitt líf
út á stundargaman.
Bókaútgáfan Hólar á Akureyri gefur út.
Upplestur á Súfistanum
I kvöld verður lesið úr fimm nýjum bókum af ýmsu
tagi á Súfistanum, Laugavegi 18. Bjöm Th. Bjömsson
les úr Brotasögu sinni, Ástráður Eysteinsson og Ey-
steinn Þorvaldsson lesa úr þýðingu sinni á Ameríku eft-
ir Franz Kafka, Þorsteinn Gylfason les úr greinasafni
sínu, Réttlæti og ranglæti, Sveinbjörn I. Baldvinsson les
úr ljóðabókinni Stofa kraftaverkanna og lesið verður úr
ljóðabók Sigurlaugs Elíassonar, Skjólsteini.
Upplesturinn hefst stundvíslega kl. 20:30.
Umsjón
Silja Aðalsteinsdóttir