Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1998, Síða 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998
Átta feður, sem starfa hjá Reykjavíkurborg,
fóru í þríggja mánaða feðraorlof Það var
jafnréttisnefnd Reykjavíkurborgar sem stóð
fyrír verkefninu og samhliða var gerð rann-
sókn á viðhorfum karla til fæðingarorlofs.
Tilveran heimsótti tvo feður og eiginkonur
þeirra og forvitnaðist hvernig orlofið hefði
gengið fyrir sig. Auk þess var tekið hús á
Þorgerði Einarsdóttur félagsfræðingi sem
stýrði rannsókn á verkefninu.
Haukur Már Haraldsson og Bryndís Skúladóttir ásamt syninum Þorra, 8 ára, og dótturinni Hildi, 1 árs. Margrét Hera,
4 ára, var á leikskólanum þegar myndin var tekin. DV-mynd Teitur
Karlar og fæðingarorlof
Haukur Már Haraldsson og Bryndís Skúladóttir:
Lengra orlof og sveigjanlegur vinnutími
Haukur Már segist ógjarna hafa viljað missa af þessu tækifæri og segir
standa upp úr að í orlofinu gafst honum rúm til að eiga notalegan tfma í
faðmi fjölskyldu sinnar.
Eg skal viðurkenna að hjartað
sló örar þegar ég ákvað að
sækja um fæðingarorlofið fyrir
rúmu ári. Ég var nýbyrjaður að
vinna hjá Heilbrigðiseftirlitinu og
það var erfitt að vekja máls á fæð-
ingarorlofi enda vissu menn al-
mennt ekki að þetta stæði til,“ seg-
ir Haukur Már Haraldsson sem
naut þess ásamt konu sinni, Bryn-
dísi Skúladóttur, að vera heima
með nýfæddri dóttur þeirra, Hildi,
fyrir ári. Auk þess eiga þau Hauk-
ur og Bryndís tvö eldri böm, fiög-
urra og átta ára.
Haukur segir vinnuveitendur
hafa tekið vel í bón sína og það
varð úr að hann skipti orlofi sínu 1
tvennt, var heima fyrsta mánuðinn
og splæsti síðan tveimur mánuðum
aftan við orlof Bryndísar, en hún
starfar hjá Hollustuvernd.
„Ég kunni því vel að vera heima
og hefði alveg getað tekið nokkra
mánuði í viðbót ef því hefði verið
að skipta. Þetta var ekki alveg nýtt
fyrir mér því ég var heima um
skeið með tvö eldri bömin okkar
þegar við voram í námi í Dan-
mörku. Þar þykir sjálfsagt að for-
eldrar fari í orlof til að vera með
börnum sínum og það hafði sjálf-
sagt áhrif á að við sóttum um,“ seg-
ir Haukur.
Hærri óhreinindastaðall
„Orlof Hauks gerði okkur líka
kleift að hafa bamið lengur heima.
Það er ansi snemmt að setja sex
mánaða bam í pössun, kannski all-
an daginn. Það gegnir öðm máli
þegar bamið er orðið tíu eða ellefu
mánaða. Jafnvel þótt dagmæðum-
ar séu ágætar,“ segir Bryndís og
bætir við að fyrsti mánuðurinn eft-
ir að bamið kemur heim sé þó
einna mikilvægastur. „Það er gott
að báðir foreldramir geti sinnt
baminu þennan tíma því maður
tekur ekki mánaðargamalt bam og
leikur við það. Það tekur tíma að
mynda tengsl og kynnast baminu."
Haukur var síðan einn með dótt-
urina, Hildi, í tvo mánuði eftir að
Bryndís fór aftur að vinna. „Ég
vann venjubundin húsverk en gat
líka nýtt timann og dyttað að ýmsu
i húsinu. Við vorum nýflutt í þetta
hús og margt sem þurfti að gera,“
segir Haukur.
„Hann stóð sig bara vel og ég
reyndi að koma til móts við hann.
Þegar ég var sjálf heima þá var ég
oftast á kafi í húsverkum en Hauk-
ur átti það til að eyða dögunum í
önnur verkefni innan heimilisins.
Ég segi stundum að óhreininda-
staðallinn sé hærri hjá körlum en
allt gekk þetta samt vel,“ segir
Bryndís.
Notalegur tími
Þau Haukur og Bryndís eru sam-
mála um að fæðingarorlofið ætti að
vera að minnsta kosti niu mánuðir
og ár væri ákjósanlegast. Þá ætti
að líta á það sem eðlilegan hlut að
karlinn eigi rétt á hluta orlofsins.
En það sé líka hægt að koma til
móts við foreldra með sveigjanleg-
um vinnutima. „Það er ekki síður
mikilvægt að eiga kost á sveigjan-
legum vinnutíma meðan bömin
eru lítil. Við höfum verið heppin
með okkar vinnuveitendur og höf-
um þetta þannig að Bryndís vinnur
frá 7 til 15 á meðan minn vinnu-
tími er frá 9 til 17. Þannig gátum
við stytt gæslutíma Hildar niður í
sex stundir auk þess sem við höf-
um meiri tíma fyrir eldri bömin.
Ég held að fólk velti þessum mögu-
leika ekki nægilega fyrir sér því
þetta getur einfaldað skipulagið á
heimilinu til muna,“ segir Haukur.
Margir hafa spurt þau hvar karl-
ar geti sótt um fæðingarorlof og
þau era sannfærð um að meirihluti
feðra myndi nýta sér slíkan rétt.
„Ég vildi ekki hafa misst af þessu
tækifæri. Ég hafði svolitlar áhyggj-
ur af að vera svona lengi frá vinnu
en þegar upp var staðið þá skiptu
þessir tveir mánuðir litlu sem
engu. Það sem stóð upp úr var að
eiga notalegan tíma með fiölskyld-
unni,“ segir Haukur Már Haralds-
son.
-aþ
Rannsókn á viðhorfum feðranna átta til fæðingarorlofs:
Karlar líta heimilishaldið
öðrum augum
- segir Þorgerður Einarsdóttir félagsfræðingur
Fæðingarorlof feðra er af hinu
góða því þannig kynnast karlar
heimi konunnar og auk þess kynn-
ast þeir börnunum sínum, sem er
ekki síður mikilvægt. Það er nauð-
synlegt fyrir karla að kynnast lif-
inu innan veggja heimilisins og or-
lof sem þetta hlýtur að verða sér-
stakt réttindamál karla þegar fram
í sækir,“ segir Þorgerður Einars-
dóttir félagsfræðingur en hún
gerði rannsókn á viðhorfum karl-
anna átta til fæðingarorlofs. Rann-
sóknin byggir á Itarlegum viðtöl-
um við feðuma, eiginkonumar og
vinnuveitendur. Þorgerður mun
kynna niðurstöður rannsóknar-
innar næstkomandi föstudag á
ráðstefnu um fæðingarorlof karla.
„Það er erfitt að draga fram
ákveðin atriði í æsifréttastíl úr
þessari rannsókn enda eru niður-
stöðurnar í raun margvislegar.
Karlar og konur eru margbreyti-
legir hópar og vafasamt að draga
Þorgerður Einarsdóttir félagsfræðing-
ur telur feðraorlof verða sérstakt rétt-
indamál karla í framtíðinni.
DV-mynd Teitur