Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1998, Side 30
34
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998
Afmæli
Gunnar Öm Guðmundsson
Gunnar Öm Guðmundsson, hér-
aösdýralæknir Borgarfjarðamm-
dæmis, búsettur á Hvanneyri, er
fimmtugur í dag.
Starfsferill
Gunnar Öm fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp í vesturbænum.
Hann var í Melaskóla og Hagaskóla,
lauk stúdentsprófi frá MR 1969,
stundaði nám í dýralækningum við
Dýralæknaháskólann í Vín í Aust-
urríki og lauk þaðan prófum 1977.
Þá stundaði hann framhaldsnám i
frjósemi stóðhesta við sama skóla
og lauk prófum 1978.
Gunnar Öm var dýraiæknir í
Bayem í Suður-Þýskalandi 1977-78,
tók við embætti héraðsdýralæknis í
Borgarfjarðarumdæmi haustið 1978
og hefúr gegnt því starfi síðan.
Fjölskylda
Gunnar Óm kvæntist 20.12. 1970
Elísabetu Haraldsdóttur, f. 18.6.
1949, leirlistakonu. Hún er dóttir
Haralds Ásgeirssonar, f. 4.5. 1918,
verkfræöings, fyrrv. forstjóra Rann-
sóknarstofnunar byggingariðnaðar-
ins, og Halldóru Einarsdóttur, f.
13.6.1924, hússtjómarkennara.
Böm Gunnars Amar og Elísabet-
ar em Bárður Öm Gunnarsson, f.
8.4. 1974, starfsmaður íslandsflugs,
búsethn- í Reykjavík; Halldór Öm
Gunnarsson, f. 17.7. 1979, nemi við
MR; Sólveig Ragnheiður,
f. 10.12. 1986, nemi.
Systkini Gunnars Am-
ar era Sólveig Guð-
mundsdóttir, f. 18.12.
1951, skrifstofúmaður hjá
Úthlutimamefnd at-
vinnuleysisbóta fyrir höf-
uðborgarsvæðið og á hún
tvær dætur; Guðmundur
Halldór Guðmundsson, f.
1.5.1953, deildarstjóri hjá
Starfsmannaskrifstofu
fjármálaráðuneytisins,
kvæntur Jónínu Jóns-
dóttur, skrifstofumanni
hjá Ríkistollstjóra, og eiga þau fjög-
ur böm; Elín Helena Guðmunds-
dóttir, f. 20.1. 1962, nemi við KHÍ,
gift Runólfi Þór Andréssyni prent-
ara og eiga tvö böm.
Foreldrar Gunnars Amar: Guð-
mundur J. Guðmundsson, f. 22.1.
1927, d. 12.6.1997, alþm. og formaður
Dagsbrúnar, og k.h., Elín Torfadótt-
ir, f. 22.9. 1927, fóstra og framhalds-
skólakennari.
Ætt
Guðmundur var sonur Guðmund-
ar Halldórs, sjómanns í Reykjavík,
Guðmundssonar, b. og sjómanns á
Hjallkárseyri við Amarfjörð, bróð-
ur Bjameyjar, ömmu Hrafns yfir-
læknis og Bjarna júdókappa Frið-
rikssona. Bróðir Guðmundar var
Jón, langafi Geirs Waage, pr. í
Reykholti. Guðmundur var sonur
Friðriks, b. í Hrafnseyr-
arhúsum, bróður Ás-
geirs, afa Matthíasar
Jónassonar sálfræðings,
fóður Bjöms hagfræð-
ings. Háiíbróðir Friðriks
var Auðun, langafi
Styrmis Gunnarssonar
ritstjóra og Halldórs
Blöndal ráðherra. Friðrik
var sonur Jóns, pr. á
Hrafnseyri, Ásgeirsson-
ar, prófasts í Holti, Jóns-
sonar, bróður Þórdísar,
móður Jóns forseta, og
Jens Sigurðssonar rekt-
ors. Móðir Jóns, pr. á Hrafnseyri,
var Rannveig Matthíasdóttir, stú-
dents á Eyri, Þórðarsonar, ættfoður
Vigurættarinnar, Ólafssonar, ætt-
foður Eyrarættarinnar, Jónssonar.
Móðir Guðmundar var Sólveig
Jóhannsdóttir, b. í Heysholti í Borg-
arfirði, Jóhannessonar, b. á Narf-
eyri, Þórðarsonar. Móðir Sólveigar
var Friðsemd íkaboðsdóttir, b. á
Krossi í Haukadal í Dölum, Þor-
grimssonar.
Elín er dóttir Torfa, stjómarráðs-
fulltrúa í Reykavík, bróður Þjóð-
bjargar kennara, móður Hauks Jör-
undssonar skólastjóra. Torfi var
sonur Þórðar, smiðs í Reykjavík,
bróður Sigríðar, ljósmóður og kenn-
ara. Þórður var sonur Narfa, hrepp-
stjóra í Stíflisdal, bróður Birgittu,
langömmu Kristjáns Kristjánssonar
hljómsveitarstjóra og Kára Jónas-
sonar fréttastjóra. Narfi var sonur
Þorsteins, b. í Stíflisdal, Einarsson-
ar, b. þar, Jónssonar. Móðir Einars
var Ingveldur Jónsdóttir, systir
Guðna, ættfoður Reykjakættarinn-
ar, langafa Guðna, langafa Vigdísar
Finnbogadóttur. Móðir Þórðar var
Þjóðbjörg Þórðardóttir, b. á Úlfljóts-
vatni, Gíslasonar, og Sigríðar Gísla-
dóttur, hreppstjóra í Villingaholti,
Sigurðssonar, bróður Jóns, afa Jóns
Sigurðssonar forseta. Móðir Torfa
var Guðrún Jóhannsdóttir, b. á
Hrólfskála, Bjamasonar.
Móðir Elínar var Anna, dóttir
Bjöms, verkamanns í Reykjavík,
Hannessonar, b. á Jörva á Kjalar-
nesi, Jónssonar. Móðir Bjöms var
Úrsúla Ólafsdóttir, b. í Lækjarmóts-
koti í Víðidal, Magnússonar. Móðir
Úrsúlu var Helga Magnúsdóttir.
Móðir Önnu var Sesselja Þórðar-
dóttir, verkamanns í Bjarghúsum
við Klapparstíg í Reykjavík, Stef-
ánssonar, b. í Tjamarkoti, Ólafsson-
ar, b. á Hrauni í Flóa, Þórðarsonar.
Móðir Þórðar var Ingveldur Jóns-
dóttir, b. í Gerðum, Ámasonar, pr. í
Steinsholti, bróður Böðvars, afa
Þuríðar, langömmu Vigdísar Finn-
bogadóttur. Ámi var sonur Presta-
Högna, Sigurðssonar. Móðir Ing-
veldar var Helga Ólafsdóttir. Móðir
Helgu var Sesselja Aradóttir, b. í
Götu, Bergssonar, ættfoður Bergs-
ættarinnar, Sturlaugssonar.
Gunnar Öm og Elísabet taka á
móti gestum í Logalandi í Reyk-
holtsdal laugard. 21.11. kl. 21.00.
Ferð verður frá BSÍ kl. 19.30.
Gunnar Örn
Guðmundsson.
Jóhannes Helgi Jónsson
Jóhannes Helgi Jónsson, fyrrv.
sjómaður og verkstjóri hjá togaraaf-
greiðslunni í Reykjavik, Álftamýri
30, Reykjavík, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Jóhannes fæddist að Lækjar-
tungu á Þingeyri og ólst þar upp í
foreldrahúsum.
Jóhcmnes hóf sína sjómennsku á
trillum frá Þingeyri. Hann flutti til
Reykjavíkur 1934, var á sumrin hjá
systur sinni að Ölvaldsstöðum í
Borgarfirði og á vertíðarbátum frá
Reykjavík á vefrum.
Jóhannes réð sig á togarann Gull-
topp 1940 sem síðar nefndist Jón for-
seti, og var á þeim togara og sigldi
með honum til Englands öll stríðs-
árin. Þá réð hann sig á nýsköpunar-
togarann Ingólf Amarson við komu
hans en var síðan á togaranum
Fylki og Agli Skallagrímssyni hjá
Auðunni Auðunssyni aflaskip-
stjóra.
Jóhannes kom síðan í
land og var verkstjóri hjá
Togaraafgreiðslunni í
tuttugu og fimm ár er
hún hætti starfsemi
sinni. Þá starfaði hann
hjá Pósti og síma síðustu
starfsárin.
Fjölskylda
Jóhannes kvæntist
1946 Elísabetu Pétursdótt-
ur, f. 20.7. 1922, húsmóð-
ur. Hún er dóttir Péturs
Níelssonar, sjómanns í
Hnífsdal, og k.h., Þorvarðínu Kol-
beinsdóttur húsmóður.
Böm Jóhannesar og Elísabetar
em Gylfi Níels, f. 1.2. 1945, rafvirki
í Reykjavík, kvæntur Hrefnu Ein-
arsdóttur og eiga þau tvö böm; Guð-
rún Jóna, f. 21.8. 1947, húsmóðir í
Reykjavík, gift Guðjóni J. Jenssyni
pipulagningarmanni og eiga þau
þrjú böm; Anna Þuriður, f. 18.1.
1950, húsmóðir i Reykjavík, gift Ara
Hjörvar, starfsmanni á Keflavikur-
flugvelli og eiga þau tvö böm; Pétur
Þorvarður, f. 7.4. 1951, starfsmaður
hjá Sjóvá-Almennum, kvæntur Kol-
brúnu Bessadóttur og eiga þau tvö
böm; Sigríður Jóhanna, f. 2.6. 1956,
skrifstofústjóri í Osló, en sambýlis-
maður hennar er Hans Waack sál-
fræöingur og á hún tvö böm.
Systkini Jóhannesar: Sigrún, f.
29.9.1905, fyrrv. húsfreyja á Ölvalds-
stöðum, nú búsett í Borgamesi; Jó-
hanna Þorbjörg, f. 8.10.1907, d. 22.12.
1926; Jóhannes Helgi, f. 19.12. 1908,
d. 9.3. 1909; Bjöm, f. 18.8. 1910, nú
látinn, skipstjóri á Þingeyri; Gísli, f.
21.9. 1911, nú látinn, skipstjóri og
síðar verkstjóri í Sölumiðstöö Hrað-
frystihúsanna; Sigríður,
f. 8.12. 1913, húsmóðir í
Reykjavík; Guðmundur,
f. 28.2. 1915, nú látinn,
bóndi á Kirkjubóli í
Dýrafiröi; Elísabet Stein-
unn, f. 21.12. 1917, hús-
móðir; Ósk, f. 26.2. 1920,
húsmóðir í Kópavogi;
Ásta, f. 21.4. 1922, hús-
móðir, nú búsett á Hrafh-
istu í Hafnarfirði; Krist-
ján Sveinn Helgi, f. 22.2.
1924, d. 25.6. sama ár.
Hálfsystir Jóhannesar
var Guðmunda Jónsdótt-
ir, húsmóðir á Akranesi, nú látin.
Foreldrar Jóhannesar vom Jón
G. Jóhannsson, f. á Saurum 13.6.
1883, d. 28.4. 1954, og k.h., Guðrún
Gísladóttir, f. 18.10.1883, d. 3.1.1946.
Ætt
Jón var sonur Jóhanns, b. á Saur-
um í Dýrafirði, Samsonarsonar,
hreppstjóra á Brekku, Samsonar-
sonar, skálds í Hólahólum, Samson-
arsonar, skálds í Húnaþingi, Sig-
urðssonar, í Klömbrum, Jónssonar,
í Ósum á Vatnsnesi, Sigurðssonar, í
Gröf á Vatnsnesi, Jónssonar.
Faðir Guðrúnar var Gísli Bjöms-
son, á Felli í Dýrafirði, Ásbjöms-
sonar, á Hrauni í Kelduhverfi, Páls-
sonar. Móðir Guðrúnar var Elísabet
Pálsdóttir, b. í Þemuvík, Andrés-
sonar, á Hjöllum, Jónssonar. Móðir
Elísabetar var Jóhanna Sturludótt-
ir, b. í Meirihlíð í Bolungavík og á
Kleifum í Skötufirði, sonar Sturlu
Sturlusonar og Ingibjargar Bárðar-
dóttur Illugasonar, ættfóður Amar-
dalsættarirmar.
Ef sama smáauglýsingin
er birt undir 2 dálkum sama
dag er 50% afsláttur
af annarri auglýsingunni.
Jóhannes Helgi
Jónsson.
Tll hamingju
með afmælið
17. nóvember
80 ára
Sigríður J.
Guðmundsdóttir,
Vogatungu 25 A, Kópavogi.
Ingvaldur Benedifctsson,
Álfaskeiði 64, Hafnarfirði.
75 ára
Þorbjörg Jónsdóttir,
Kleppsvegi 48, Reykjavík.
Jóhanna Halldórsdóttir,
Brúum, Húsavík.
Guðrún Pétursdóttir,
Miðbraut 5, Vopnafirði.
70 ára
Sigríður Ingólfsdóttir,
Gullsmára 9, Kópavogi.
Karl Karlsson,
Mávanesi 24, Garðabæ.
60 ára
Óskar Friðriksson,
Árstíg 15, Seyðisfirði.
50 ára
Lilja Dóra
Eyþórsdóttir,
Hrísholti,
Laugarvatni.
Eiginmaðm-
hennar er Sigurð-
ur Sigurðsson. Þau taka á
móti gestum í sal Barnaskól-
ans á Laugarvatni föstudag-
inn 20.11. eftir kl. 20.00.
Kristín Jóhannesdóttir,
Mávahlíð 38, Reykjavík.
Kristín Jónsdóttir,
Bleikjukvísl 9, Reykjavfk.
Ráðhildur Stefánsdóttir,
Holtabrún 5, Bolungarvík.
Anna Sæmundsdóttir,
Hverfisgötu 5 B, Siglufirði.
Guðrún Karlsdóttir,
Strandgötu 3, Eskifirði.
40 ára
Dagbjört Helgadóttir,
Njálsgötu 44, Reykjavík.
Snorri Halldórsson,
Snekkjuvogi 17, Reykjavík.
Ingvi Nga Van Le,
Skeljagranda 2, Reykjavík.
Hulda Ámadóttir,
Fellsmúla 19, Reykjavík.
Sigríður Jóna Eggertsdóttir,
Garðhúsum 29, Reykjavík.
Bryndís Halldórsdóttir,
Rauðhömrum 5, Reykjavík.
Valéria Kretovicová,
Löngubrekku 35, Kópavogi.
Stefán Marvin Pálsson,
Hæðarbyggð 13, Garðabæ.
Jeremias Joacuim Servo,
Hraunhvammi 2, Hafnarfirði.
Oktavía Jóna
Guðmundsdóttir,
Vesturtúni 11, Bessastaðahr.
Valur Fannar Fannarsson,
Aðalgötu 38, Suðureyri.
Jón ísaksson Guðmann,
Skúlabraut 9, Blönduósi.
Randver Karl Karlsson,
Háhlíð 8, Akureyri.
Gunnlaugur H.
Höskuldsson,
Móasíðu 4 A, Akureyri.
Hulda Kristjánsdóttir,
Ægisgötu 2, Dalvík.
Rannveig Árnadóttir,
Útgarði 6, Egilsstöðum.
Jón Brynjar Eiríksson,
Hólmatungu, Egilsstöðum.
Sofffa Sigríður
Sigbjömsdóttii-,
Nesbakka 11, Neskaupstað.