Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1998, Síða 20
LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1998 JjV
20 {réttaljós
Tveir vinir og
annar kom inn úr fríi
- sverðin í lögregluskildinum eru tvö en skjöldurinn aðeins einn
Full ástæða er til að óttast um lög-
gæslu í höfuðborginni ef þar eiga að
sitja tveir skipstjórar í brúnni. Skipu-
ritið sem smíðað var utan um Lög-
regluna í Reykjavík átti að úthýsa
Böðvari Bragasyni úr starfi, sem virð-
ist ætla að misheppnast. Lymskuleg
pólitík hljóp í lögguna. Borgarar
Reykjavíkur sem óttast vaxandi
glæpatíðni óska þess eindregið að þeir
Böðvar lögreglustjóri og Georg vara-
lögreglustjóri stiili saman krafta sína
og veiti fólki nauðsynlega vemd. Á
lögreglustöðvum Reykjavíkur loga
eldar. Lögregluliðið er ósátt við Þor-
stein Pálsson dómsmálaráðherra og
heimtar að hann fargi nýja skipurit-
inu. Þorsteinn Pálsson segir lögregl-
una fara með gapuryrði. En vissulega
setur almenningur spurningarmerki
við þessi verk ráðherrans. Og nánast
100% eining mun vera um Böðvar
innan lögregluliðsins sem æðsta
mann. Og það er hann lögum sam-
kvæmt.
Mjúkar og harðar
persónur
Persónumar bak við lögreglustjóra
og aðstoðarlögreglustjóra í Reykjavík
hafa verið mjög undir smásjá undan-
fama mánuði. Böðvar Bragason, sex-
tugur síðan í byrjun október, og Ge-
org Kr. Lárusson, fertugur í góulok á
næsta ári, em gjörólíkar persónur.
Við vitum það eitt fyrir satt að þeir
vom álíka námsmenn í menntaskóla,
Böðvar fyrir norðan, Georg inni við
Sund, báðir með 2. einkunn á stúd-
entsprófi. í lögfræði kvaddi Böðvar
Háskólann með fyrstu einkunn en Ge-
org annarri. Báðir gegndu störfum
sýslumanna og þekkja því vel til lög-
gæslu. Báðum er lýst sem atgervis-
mönnum. Samanburði lýkur og leiðir
okkur ekkert. Nema hvað menn
flokka Böðvar
sem mjúkan
mann en Georg
harðan.
Mörgum hef-
ur þótt nóg um
málatilbúnað-
inn í kringum
lögreglustjórann
og telja að verið
sé að sverta
Böðvar Bragason að ósekju. Leiðari
DV í fymadag tók af öll tvímæli en
þar var Þorsteinn Pálsson gagnrýnd-
ur fyrir að stunda áralangt undirferli
gagnvart linum lögreglustjóra.
Athyglisvert er að lögregluliðið
sjálft hefúr risið yfírmanni sínum til
vamar og slegið um hann skjaldborg,
einkum eldri og reyndari mennimir.
Hinir yngri hafa síður tekið afstöðu í
málinu og sumir heillast þeir af
spretthörðum varalögreglustjóra
Reykvikinga.
Pólitískt ráðinn, pólitískt
ofsóttur
Vandamál Böðvars Bragasonar
hófust morguninn sem hann mætti til
starfa í Lögreglustöðinni í Reykjavík
fyrsta sinni, þann 1. desember 1985.
Hann var þangað kominn sem póli-
tiskt ráðinn lögreglustjóri yfir Reyk-
víkingum af Jóni Helgasyni dóms-
málaráðherra frá Seglbúðum. Fram-
sóknarflokkurinn annaðist um ráðn-
ingu hans í feitt og gott embætti.
Á þeim tíma töluðu sjálfstæðis-
menn í lögregluliðinu sér til hita um
pólitíska spillingu. En Böðvar vann á
við kynningu. í dag rísa jafnvel sömu
menn upp Böðvari til vamar. Eins og
títt er um mjúka menn eignast þeir
fremur vini en óvini. Og í skjóli mjúk-
ra stjómendanna er kannski þægilegt
að lifa.
Innan lögreglunnar í Reykjavík era
margir afar mætir menn og löggæslan
um margt til fyrirmyndar. En að
Hverfisgötu 113-115 voru ýmsar
brotalamir. Sum hneykslismálin sem
upp hafa komið vora þess eðlis að
dómsmálaráðherrar annara landa
hefðu sagt af sér enda ber dómsmála-
ráðuneytinu að hafa eftirlit með lög-
gæslu i landinu.
En ekki hér.
Dómsmálaráð-
herra fór í skot-
grafahemað sem
veldur því að lög-
gæslumálin era í
hnút. Einfaldast
fyrir ráðherra var
að segja undir-
manni sínum upp.
Þess í stað var hann sendur í sjúkra-
leyfi með alvarlega áminningu á bak-
inu. Á meðan var smíðað forláta
skipurit sem þjóðin hlær að í dag.
Hin ósýnilega lögga
Ávirðingamar á lögreglustjórann í
Reykjavík era margar og ekki allar til
að auka veg embættisins. Ljóst er að
Böðvar Bragason er ekki þeirrar nátt-
úra að hrópa á blóð og hefndir, hann
er hvorki hasarkall né súperman,
heldur friðarins maður. Hann vill að
löggæslan sé ekki óþægilega sýnileg,
heldur ævinlega reiðubúin til aðstoð-
ar, sama hvert erindið er. Þetta er
sjónarmið sem löggæsla margra landa
hefur haft að markmiði, en ekki
heppnast. Á ólympíuleikunum í
Múnchen 1972 átti lögregluliðið ekki
að sjást, þaö vora ffiðarleikar. Glæpa-
menn notfærðu sér þetta og myrtu
ísraelska íþróttamenn að næturþeli.
Linka í lögreglumennsku kann því
miður ekki góðri lukku að stýra.
En ávirðingamar á Böðvar Braga-
son eiga rót að rekja til undirmanna
sem ekki stóðu sína pligt, til manna
sem lögreglustjóri leyfði sér að
treysta. Traust hans á undirmönnum
bitnaði á honum þegar upp var staðið.
Böðvar er maðurinn sem kennt er
um að hafa glutrað niður 3.500
grömmum af ýmsum fikniefnum.
Böðvar er sagður hafa látið líðast að
alræmdur eiturlyQabarón var farinn
að hafa sína hentisemi í eiturlyfja-
deildinni. Böðvar er maðurinn sem
lét rmdir höfuð leggjast að rukka
nokkur þúsund
syndaseli sem áttu
að borga embættinu
sektargreiðslur.
Böðvari er kennt um
að láta það líðast að
bullur og fylliraftar
öngraðu fólk og
meiddu á umferðar-
götum höfúðborgar-
innar. Böðvari era
eignuð hagsmuna-
tengsl við veitinga-
staðinn Vegas sem
sagt var að fengi
starfsleyfi eingöngu
fyrir velvilja lögregl-
unnar, en sonur
Böðvars rekur stað-
inn.
„Böðvar er ekki
linur maður, hann
er mjúkur maður og
mildur, sem kemur
öllu sínu ffam með
brosi á vör og er
hæfileikaríkur
stjórnandi," sagði
einn innanhúss-
manna i aðallög-
reglustöðinni í
Reykjavík. Hann sagði aö Böðvari
svipaði um margt til fyrirrennara
síns, Siguijóns Sigurðssonar. Böðvar
er sagður hafa leyst mörg vandamál
innan liðsins af mikilli lipurð og
snilli. Lögreglumenn hafa horfið af
hans fúndi berandi höfúðið hátt.
DV hefur reyndar fyrir satt að
Böðvar hefur aldrei hyglað syni sín-
um eða haft nein afskipti af hans
rekstri á nokkum hátt. En málið leit
skuggalega út og glóðum var safnað
að höfði lögreglustjóra, sem er maður
sátta og umburðarlyndis. Böðvari er
ekki sýnt um aö tala við fjölmiðla.
Vitað er að hann hafnaði því æ ofan i
æ að skýra sín sjónarmið. Böðvar
Bragason greip ekki til vopna, en lét
dómsmálaráðherra senda sig í veik-
indaffí í hálft ár.
Óragur lögregluforingi
Nú er Böðvar kominn til starfa og
virðist kominn í homið hjá varalög-
reglustjóra, hinum unga og vaska Ge-
org Kr. Lárassyni ffá Holti í Önund-
arfirði. Georg tók viö stjóminni síð-
asta sumar. Hann byijaði á því að fá
félaga sína í löggunni til að flytja
búslóð sína. Það gerðu þeir nokkrir í
búningunum, á vaktinni, og vora
staðnir að verki af ljósmyndara DV.
Toppamir kunnu DV engar þakkir
þótt myndimar væra góðar.
Georg er allt það sem Böðvar er
ekki. Hann er til dæmis óragur við að
koma ffam í fjölmiðlum og á samkom-
um. Hann vill greinilega að það sé
stæll á löggunni. Hann vill afar sýni-
lega löggæslu og hann vill taka hart á
þeim sem brjóta af sér. íslensk lög-
gæsla fjallar að stórum hluta um af-
leiðingar áfengisdrykkju og er því
nokkuð sérstæð í samanburði við er-
lenda löggæslu. Georg hefúr vissrdega
komið með ferskan blæ inn í lögregl-
una, en því er ekki að neita að raddir
innan lögreglunnar segja að löggæsla
síðasta sumars hafi ekki verið betri
eða verri en áður. Breytingamar hafi
aðallega verið í blaðafféttunum.
Orðið lögregluríki
var farið að heyrast
siðsumars þegar
menn höfðu varla fló-
arffið fyrir hvers
kyns lögregluaðgerð-
um. Lögreglumenn
með adrenalín for-
ingjans fóra sem logi
um akur. Georg er
maður fiölmiðlanna,
reffilegur á ljósmynd-
um, galvaskur lög-
regluforingi sem
gustar að. En undir-
menn hans sem að-
hyllast frekar stjóm
Böðvars segja að af-
rek Georgs sé aðal-
lega að finna i fiöl-
miðlunum.
Fram undan er
merkilegur tími í lög-
reglunni.
Á næstu vikum
kemur í ljós hver
verður raunveraleg-
ur húsbóndi á Hverf-
isgötunni, - Böðvar
eða Georg. Það er
Þorsteins Pálssonar
að leysa hnútana og það tekst honum
jafnskjótt og hann gleymir stjóm-
málaskoðunum Böðvars ffamsóknar-
manns og Georgs sjálfstæðismanns.
Mikils er um vert fýrir Reykyíkinga
og aðra sem njóta þjónustu Reykjavík-
urlögreglunnar að þeir geti setið sátt-
ir að störfum sínum og bætt hvor ann-
an upp. Ólíkir menn geta oft starfað
vel saman. Eigum við að segja að nú
sé tími til kominn að slíðra sverðin
tvö sem mynda merki lögreglunnar í
Reykjavík. Þar er aðeins einn skjöld-
ur og hann á að verja borgarana gegn
heimsósómanum. Óleyst verkefni
biða Lögreglunnar í Reykjavík.
-JBP
Innlent
% Æ
* ■ ■ ■■ *
i' n' * n'
Jón Birqi
son
Löggulíf
L des. 1985: Böðvar Bragason nýr lögreglustjóri í Reykjavík.
X júií 1997: Ný lögreglulög eiga að auka skilvirkni.
27. nóv. 1997: Sérstakur lögreglustjóri, Karl Gauti Hjaltason, skipaður vegna kæru fatafellu á hendur syni lögreglustjóra, eiganda Vegasar.
23. des. 1997: Sérstakur rannsóknarlögreglustjóri, Atli Gíslason, rannsakar störf fíkniefnadeildar Iðgreglunnar.
27.feb.199S: Lögreglustjóri vanhæfur vegna rekstrarleyfis Vegasar. Karl
Gauti úrskurðar Vegas i hag.
26. mars 1998: Sérstakur lögreglustjóri, Ragnar Hall, skipaður vegna hvarfs fikniefna úr fórurti iögreglunar.
20. maí 1998: Þrir skoðunarmenn kanna slælega innhelmtu sektargreiðslna og sakarkostnaðar.
9. maí 1998: Böðvar fer i veikindafrt í hálft ár að ráði dómsmálaráðherra sem áminnti lögreglustjóra.
9. rnaí 1998: Georg sern varalögreglusUórl 1. mai til 15. nóvember 1998. Lögreglustjarna Guðjóns Samúelssonar, fyrrum húsameistara ríkisins.
Lögreglan á aö vera sverB fólksins og skjöldur.