Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1998, Side 20
20
LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1998
fréttaljós
Otrúlegur velvilji ráðherra
Einkavæðing Stofnfisks
14. júlí.
Einkavæöing öafin.iFramkvæmdanefnd um einkavæöingu skilar tillögum
sínum til Guömundar Bjarnasonar tandbúnaöarráöherra.
14. ágúst.
Ríkisendurskoðun skilar ráðherra skýrslu um Stofnfisk. Bent á alvarlegar
misfellur og misræmi í bókhaldi og sagt nauðsynlegt aö endurmeta
fyrirtækiö af óháðum aðila. íslandsbanki fenginn til þess.
30. ágúst.
Háttsettir starfsmenn landbúnaðarráöuneytisins senda ráðherra minnisblað.
I því er ráðherra varaður við misfellum í bókhaldi fyrirtækisins og
hugsanlegum lögbrotum í þvi sambandi. Ráðherra ráölagt að fara sér hægt
í einkvæðingunni fyrr en öll kurl eru komin til grafar.
3. sept.
Framkvæmdastjóri Stofnfisks skilar skýrslu þar sem framkominni gagnrýni
er svarað og skýringar gefnar, m.a. á miklu misræmi birgða og útflutts
magns hrogna til Chile.
21. sept.
Sérfræðingur frá Háskóla Islands skilar skýrslu. í henni er m.a.
skýringum framkvæmdastjórans á misræmi I birgðabókhaldi og
útflutningi hrogna vísað á bug.
24. sept.
Landbúnaðarráðherra skrifar einkavæðingarnefnd og biður um að haldið
sé áfram að einkavæða Stofnfisk.
9. okt. - 13. nóv.
DV birtir alls sex fréttir um sérkennilega einkavæöingu Stofnfisks,
m.a. með ríkisstyrk upp á tæpar tvær milljónir á mánuði til ársloka
2007 og ósvöruðum spurningum um bókhald, fjármál og verömat
fyrirtækisins.
12. okt.
Ágúst Einarsson spyr ráöherra um máliö í óundirbúnum fýrirspurnatíma
á Alþingi. Einkavæðingarnefnd frestar málinu í kjölfar fréttaskrifa DV.
22. okt.
Ráðherra og Ríkisendurskoöun telja að búið sé að leiðrétta það sem
ábótavant var. Ráðherra telur ekkert standa í vegi fyrir því að halda
einkavæðingu fýrirtækisins áfram.
2. des.
Lúövík Bergvinsson alþingismaður hefur máls í utandagskrárumræðu á
Alþingi um einkavæðingu Stofnfisks. Hann segir grunsemdir um að lögbrot
hafi verið framin og krefst þess að öll gögn málsins verði opnuð. Gagnrýnir
þátt landbúnaðarráðherra í málinu harölega og þann leyndarhjúp
sem umvafið hefur það. ir———j
Fiskeldisfyrirtækið Stoftifiskur
virðist hafa notið ótrúlegs velvilja
Guðmundar Bjarnasonar landbún-
aðarráðherra og hann verið tilbú-
inn til að vaða eld og brennistein til
að gera veg þess sem mestan. Vafi
leikur á því að Guðmundur hafi í
þessari góðmennsku sinni haldið
sig réttum megin laga og réttar. Það
hefur alþingismaðurinn Lúðvík
Bergvinsson og þar áður Ágúst Ein-
arsson og fleiri þingmenn dregið
stórlega í efa í tvennum utandag-
skrárumræðum á þingi. Þá hefur
þingflokkur jafnaðarmanna óskað
eftir því viö forseta Alþingis að Rík-
isendurskoðun vinni skýrslu um
Stofnflsk. Fjölmargt athyglisvert
hefur verið dregið fram í dagsljósið
um fyrirtækið og afskipti ráð-
herrans af einkavæðingu
þess. Þá hefur tregða
ráðherra til að gefa upplýsing-
ar og svör við spurningum
sem vaknað hafa verið
undarleg.
Það var DV sem fyrst fjöl-
miðla vakti athygli á þeim
sérkennilegu háttum sem ein-
kenndu einkavæðingarferil
fyrirtækisins, en sá ferill er
rakinn í megindráttum á með-
fylgjandi grafi. Það var ekki fyrr en
DV hafði rakið mádið í fjölda frétta
sem aðrir fjölmiðlar tóku að minn-
ast á það en vissulega má segja að
betra sé seint en aldrei. Öll kurl eru
þó hvergi nærri komin tii grafar
enn.
Umboðslaus afsláttur
Þann 6. maí 1996 undirritaði Guð-
mundur Bjamason landbúnaðarráð-
herra fyrir hönd ráðuneytisins og
Vigfús Jóhannsson framkvæmda-
stjóri fyrir hönd Stofnfisks samning
um kynbætur fyrir laxeldi. Auk
þess aö ráðuneytið borgar sam-
kvæmt samningnum 18 miUjónir
króna á ári fyrir kynbætumar þá
léttir það undir með því á fleiri
vegu, m.a. með því að leyfa
Stofnfiski að selja tvö einbýlishús í
eigu Laxeldisstöðvar ríkisins að
Mógilsá í KoUafirði. Um þetta segir
í 6. greinþessa samnings: „Landbún-
aðarráðuneytið í samvinnu við
Stofnfisk hf. mun leita annarra
leiða tU að fjármagna þau verkefni
sem kveðið er á um í samningi þess-
um (t.d. nýta afrakstur endur-
heimtna sumarsins 1996 og 1997,
auk sölu íbúðarhúsa í KoUafirði í
eigu ríkissjóðs)." Þessi tvö einbýlis-
hús voru auglýst tU sölu á vegum
Ríkiskaupa og andvirðið mun hafa
farið í að greiða ýmsar
vanskUaskuldir Laxeldisstöðvar
ríkisins. Þau em því ekki sýnileg í
ársreikningi Stofnfisks.
í endurnýjuðum samningi um
laxakynbætumar sem þeir Guð-
mundur ráðherra og Vigfús fram-
kvæmdastjóri undirrituðu 17. aprU í
vor veitir ráöherrann fyrirtækinu
sérstakan afslátt eða ívilnun í sam-
bandi við afborganir af fjárfesting-
arlánum Framkvæmdasjóðs ís-
lands. í 5. grein þessa samnings seg-
ir orðrétt: „Stofnfiskur hf. skal í
samvinnu við landbúnaðarráðu-
neytið ganga frá greiðslu á afborg-
unum af tjárfestingarlánum vegna
mannvirkja í KoUafirði hjá Fram-
kvæmdasjóði íslands skv. fram-
lengdri greiðsluáætlun, þó aldrei
hærri upphæð en 1 m.kr. á ári.“
-Leturbr. blm.
Þetta fjárfestingarlán er skráð í
veðmálabækur sýslumannsembætt-
isins í Reykjavík með veði í húsum
og 31.149 fermetra landi Fiskeldis-
stöðvar ríkisins í KoUafirði. Veðið
er að upphæð tíu miUjónir króna og
skráð þann 10. júní 1987. Ekki náð-
ust í tæka tíð upplýsingar um stöðu
þessa láns nú en fastlega má gera
ráð fyrir því að árlegar samanlagð-
ar afborganir af áhvílandi lánum
séu hærri en ein miUjón á ári. TU
viðbótar þessu þá fær Stofnfiskur
samkvæmt samningnum land,
húsnæði og aðstöðu
Laxeldisstöðvarinnar til leigu
endurgjaldslaust.
Þekkt andlit
í stjóm Stofnfisks eiga sæti tveir
þekktir menn úr viðskiptaheimin-
um og stjómsýslunni, þeir Axel
Gíslason sem lengi hefur verið í
framlínu fyrirtækja hins gengna
Sambands ísl. samvinnufélaga sem
forstjóri, stjórnarformaður og
stjórnarmaður Sambands-
ins og samvinnufyrir-
tækja eins og Samvinnu-
trygginga, Vátryggingafé-
lags íslands, Samskipa
o.fl. Axel er stjórnarfor-
maður Stofnfisks. Með
honum í stjóm er annar
þekktur maður, Haukur
Ingibergsson, forstöðu-
maður Hagsýslu ríkisins.
Aðrir í stjóm eru Bene-
dikt Kristjánsson, Jónatan
Þórðarson og Július B. Kristinsson.
Þá er athyglisvert að Vigfús Jóns-
son framkvæmdastjóri, sem nú mun
staddur í Chile í viðskiptaerindum,
er stjórnarformaður hlutafélagsins
Patagonia á íslandi ehf. en eigin-
kona hans, Þórdís Helga Sveinsdótt-
ir, er framkvæmdastjóri. Þriðji eig-
andi fyrirtækisins og stjómarmaö-
ur er Chilebúinn Hans Kossmann.
Kossmann er forstjóri og eigandi
samnefnds fýrirtækis í Chile sem er
einn helsti viðskiptaaðili Stofnfisks
í Chile og kaupandi hrogna sem
þangað hafa verið seld.
Tilgangin- Patagonia á íslandi ehf.
er skráður hjá Hlutafélagaskrá sem
m.a. sá að stunda inn- og útflutning
með fisk og fiskafurðir og búnað
fyrir fiskveiðar og fiskeldi.
Viðskipti Stofnfisks við Chile
hafa greinilega sætt nokkurri undr-
un Ríkisenduskoðunar sem gerði al-
varlegar athugasemdir við þau
vegna vantalinna tekna upp á 14
milljónir króna og verulegs mis-
ræmis milli bókfærðs magns
hrogna og magns í útflutnings-
skýrslum. Endurskoðandi segir við
DV að væri hann
ríkisendurskoðandi myndi hann
byrja á því að athuga hvort einhver
tengsl væm á milli þessa misræmis
og hlutafélagsins Patagonia á
íslandi ehf.
Lúðvík Bergvinsson gerði þessi
atriði að umtalsefni í utandag-
Innlent
fréttaljós
Stefán Ásgrímsson
skrárumræðunni á Alþingi í
vikunni og vitnaði í minnisblað
tveggja ráðuneytisstarfsmanna,
þeirra Jóns Höskuldssonar, for-
stöðumanns lagadeildar ráðuneytis-
ins, og Guðmundar Sigþórssonar
skrifstofustjóra til ráðherra. í minn-
isblaðinu bentu tvímenningamir
ráðherra á það að bókhald fyrirtæk-
isins í þessum og fleiri efnum gæti
varðað við bæði bókhalds- og hegn-
ingarlög. í ljósi þessara alvarlegu
ásakana hlýtur sú spurning að
vakna hvers vegna Ríkisendurskoð-
un vísaði málinu ekki til frekari
rannsóknar og hvers vegna ráð-
herra gerði ekki hið sama í stað
þess að halda einkavæðingarferlinu
til streitu. Gmnsemdir eru um að
ætlunin hafi verið að fara með fyr-
irtækið inn í einkavæðingarferli og
almenna hlutabréfasölu í þannig
ástandi að verðmæti þess virtist
vera mun lægra en það í rauninni
var. Einhverjir hafi einfaldlega ætl-
að að eignast mikið fyrir lítið eins
og eitt sinn var slagorð stórmarkað-
arins og samvinnufyrirtækisins
Miklagarðs sem fór á hausinn fyrir
margt löngu.
Krafist úttektar
Af þessu tilefni samþykkti þing-
flokkur jafnaðarmanna í gærmorg-
un að beina því til forsætisnefndar
Alþingis að fram fari heildar stjórn-
sýslu- og fjárhagsúttekt á landbún-
aðarráðuneytinu sjálfu. Jafnframt
er að sögn Lúðviks Bergvinssonar
alþingismanns óskað sérstaklega
eftir skýrslu um málefni Stofnfisks
og að Samkeppnisstofnun taki
samning fyrirtækisins og landbún-
aðarráðuneytisins um laxakynbæt-
ur út og meti hvort hann feli í sér
sérréttindi við sölu, eða sé eðlilegur
viðskiptasamningur.
Óskað er eftir því að öll gögn
málsins, það er að segja skýrsla Rík-
isendurskoðunar um Stofnfisk og
álit Samkeppnisstofnunar, liggi fyr-
ir áður en Alþingi tekur afstöðu til
þess hvort veita eigi ríkisstjóminni
heimild til að selja Stofnfisk. Enn
fremur mótmælir þingflokkur jafh-
aðarmanna harðlega þeirri laga-
túlkun að ráðherra skuli hafa sjálf-
dæmi um það hvaða upplýsingar
eru veittar Alþingi. Eigi ráðherra
að hafa slíkt sjálfdæmi skuli það
byggt á sjálfri stjórnarskránni.
Einkavæðing Stoftifisks, sem gera
má ráð fyrir að hafi verið eitt þeirra
mikilvægu mála sem Guðmundur
Bjamason þurfti að ljúka í landbún-
aðarráðuneytinu áður en hann tek-
ur við stöðu forstjóra hins nýja
íbúðalánasjóðs, er í greinilegu upp-
námi þessa dagana og óvíst um
framhaldið.
Hvað er TURBO þurrkun?
í þurrkkerfinu blæs vélin út heitri
gufunni sem hituð er upp af hitaelementinu.
Hin fullkomna þurrkun.
stóliðyeglega
rerð undir borðplötu H-82-87, B-60, D-57.
Ryðfrítt innra byrði. Ytrahús sinkhúðað
(ryðgar ekki). Hægt að lækka efri grind með
einu handtaki fjórfalt vatnsöryggiskerfi.
Mjög hljóðlát aðeins 47db (re 1 pW).
TURBO-þurrkun, þurrkar með heitum blæstri
Hægt að stilla start-tíma allt að 12 klst. fram
í tímann. Sjálfvirk hurðarbremsa.
12 manna stell. 5 kerfi.
Lógmúla 8 • Sími 533 2800