Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1998, Side 34

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1998, Side 34
34 LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1998 %igt fólk „Ef áttræð gamalmenni fíluðu bækurnar okkar þá værum við á villigötum. Það er kynslóðabil í smekk á bókmenntum og við reynum ekki að breyta því,“ segja Smári Freyr Jóhannsson og Tómas Gunnar Viðarsson í tilefni af því að nú er nýútkomin bók þeirra Berthold - kjötfarsi. Berthold er fjórða bók þeirra fé- laga, en þeir slógu fyrst í gegn með unglingabókinni Blautir kossar. En hvað rak strákana til skrifta í byrjun? „Ætli megi ekki segja að það hafi verið hinar unglingabækurn- ar,“ segja Smári og Tómas. „Okk- ur þótti sá heimur sem þær lýstu vera óraunverulegur og allur ann- ar en sá heimur sem við vorum að lifa sjálfir. Það fór í taugarnar á okkur hversu erfitt það var fyrir unglinga að staðsetja sig í þeim bókum þar sem sögupersónurnar voru hetjur, sí og æ að lenda í ein- hverri spennu og dramatík. Okkur þótti vanta höfunda sem segðu frá raunverulegu lifi unglinga; ekki sakamálum, hetjuskap og drauga- gangi. Það kom því aldrei annað til greina en að skrifa um það sem við þekktum sjálfir og höfðum ef til vill upplifað að einhverju leyti.“ Hver urðu svo viðbrögðin við fyrstu bókinni? „Viö fengum mjög jákvæð við- brögð frá unglingum sem voru á þeirri sömu skoðun og við að ís- lenskar unglingabókmenntir skorti tilfinnanlega raunsæi. Svo dæmi séu tekin um þann skort þá er aldrei fjallað neitt um kynlíf í hefðbundnum unglingabókum. Það er sagt „þau kysstust" og síð- an kemur næsti dagur." Og svo er einhver orðinn ólétt- ur? „Já. En við förum lengra en að mömmukossinum. Það þarf ekki annað en að skoða kápuna til þess að sjá það. Við skrifum um það sem unglingamir vilja'Iesa um og erum þekktir fyrir það að segja meira en gömlu karlarnir sem hafa verið á unglingabókamark- aðnum.“ Þið skutuð föstum skotum að Þorgrími Þráinssyni í fyrstu bók- inni. „Við vorum ekki að skjóta á hann sem persónu, heldur aðeins sem fulltrúa allra gamalla kalla og ryðgaðra íþróttakempa sem standa i því að skrifa unglingabækur. Viö höldum því fram að þeir þekki ekki reynsluhí/m unglinga og nægir þar að nefna málfariö á bók- um þeirra. Þegar við lásum ung- lingabækur sem skrifaðar voru af þeim gömlu kom fyrir að við þurft- um að fara í orðabók til þess að skilja orðin sem þeir notuðu. Slíkt vekur ekki áhuga unglinga. Bæk- urnar fjalla líka aðeins um líf ung- linga upp að vissu marki. Um leið og eitthvað kom sem gat hugsan- lega leiðst út í eitthvað „dónalegt" þá var bara stoppað og ekki sagt meira frá því. Unglingar stunda kynlíf og hugsa um ýmsa vafa- sama hluti og okkur þykir ástæðu- laust annað en að fjalla líka um þá. Við teljum okkur hafa farið alla leið.“ Takið þið á vandamálum ung- linga í bókunum? „Já, en aðeins á léttu nótunum. Við erum ekki að benda á neinar töfralausnir eða gefa okkur út fyr- ir að ætla að bjarga heiminum. í þessari bók fjöllum við þó um við- kvæma hluti en hún fjallar um fjórtán ára strák sem á lesbíska móður. Það er þó ekki aðalumfjöll- unarefni bókarinnar heldur það sem strákurinn er að bjástra. Bók- in er ekki unglingabók í eiginleg- um skilningi þess orðs og segja má að eftir því sem við eldumst þá verða þeir einnig eldri sem geta haft gaman af bókunum okkar.“ En hvað ætlið þið að verða þeg- ar þið verðið stórir? „Hvort við ætlum að verða rit- höfundar? Það er alveg óráðið þar sem við erum í námi enn þá og margt getur gerst á komandi árum. Okkur langar þó til þess að þjóna lesendum okkar og sú er ástæðan fyrir því að bækurnar eru orðnar fjórar, en því óraði okkur ekki fyrir þegar við vorum að byrja. Við erum að skrifa fyrir breiðari aldurshóp en fyrr og með- an vel gengur og eitthvað er aö segja þá er mjög líklegt aö við höldum því áfram. Við höfum mik- ið verið að gagnrýna gamla kalla sem gefa út unglingabækur og við getum lofað því að við verðum ekki með skalla og bumbu að skrifa fyrir unglinga. Þá værum við heldur betur í mótsögn við sjálfa okkur." -þhs ... í prófíl Kristinn í Botnleðju Fullt nafn: Kristinn Gunn- ar Blöndal. Fæðingardagur og ár: 9. maí 1976. Maki: Sigrún Eiríksdóttir. Börn: Engin. Starf: Leiðbeinandi hjá Dagvist barna (Sunnu- borg). Skemmtilegast: Að spila fyrir skemmtilegt fólk. Leiðinlegast: Að spila fyr- ir leiðinlegt fólk. Uppáhaldsmatur: Aspars- súpan hennar ömmu. Uppáhaldsdrykkur: Kók. Fallegasta manneskjan (fyrir utan maka): Mamma mín. Fallegasta röddin: Ella Fitzgerald. Uppáhaldslíkamshluti: Eyrun mín. Hlynntur eða andvígur ríkisstjórninni: Pass. Með hvaða teiknimynda- persónu myndir þú vilja eyða nótt: Leðurblöku- manninum. Uppáhaldsleikari: Jason Lee. Uppáhaldstónlistarmað- ur:Ómögulegt að svara. Sætasti stjórnmálamað- urinn: Ragnar Arnalds. Uppáhaldssjónvarpsþátt- ur: Yes minister og Simp- sons. Leiðinlegasta auglýsing- in: Hvert ertu að fara. Leiðinlegasta kvikmynd- in: Blossi 810551. Sætasti sjónvarpsmaður- inn: Valtýr Björn. Uppáhaldsskemmtistað- ur: Kafíibarinn. Besta „pikköpp“-línan: Nærbuxumar þínar kæmu vel út á svefnherbergisgólf- inu mínu. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Feitur og pattaralegur. Eitthvað að lokum? ...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.