Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1998, Qupperneq 51

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1998, Qupperneq 51
LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1998 Fleiri seinkanir Flugfélögum virðist ganga ; verr að standa við timaáætlan- ir sínar. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu bandarísku flug- málasamtakanna. Fjöldi flug- ferða þar sem seinkun nemur meira en 15 mínútum hefur farið úr 672 á fyrra helmingi síðasta árs í 960 á sama tíma á þessu ári. Opið á kvöldin Ef menn á annað borð leggja leið sína til Indlands þykir mikil nauðsyn að skoða graf- hýsið Taj Mahal við Agra í norðurhluta landsins. Grafhýs- ið er jafhmikilvægt Indverjum og Champs Elysées er í Frakk- landi. Nú bregður svo við að í fyrsta skipti í 15 ár gefst ferða- mönnum kostur á að skoða grafhýsið að kvöldlagi. Það hefur verið bannað allt frá því síkar hótuðu að sprengja graf- hýsið upp fyrir fimmtán árum. Öryggisgæsla hefur verið hert til muna með kvöldopnuninni og verða gestir að gera sér að góðu þótt leitað sé á þeim með málmleitartækjum. I I 1 Bannað að borða á brúnni Borgarstjóm Flórensborgar hefur ákveðið að bregðast hart við sífelldu nestisáti ferða- manna á gömlu brúnni Ponte Vecchio og síðustu mánuði hefur umferðarlögreglan notið liðsinnis sjálfboðaliða við að afstýra ósiðnum. Oftast hafa túristar komið sér fyrir á tröppum við brúna þaðan sem gott er að virða fyrir sér hið fræga torg Piazza della Sign- oria. Skiltum á mörgum tungu- málum hefur verið komið upp en á þeim stendur að fólk verði einfaldlega að nærast annars staðar. Talsmaður borgar- stjómar segir það hreinustu óvirðingu að háma í sig mat þegar listaverk á borð við Dav- íð eftir meistara Michelangelo séu á næsta leiti. Ferðamenn eigi að líta á svæðið sem safh undir bera lofti og hegða sér samkvæmt því. Hálfrar aldar afmæli Einhveijir héldu að inn- pökkunarlistamaðurinn Chri- sto væri kominn til Kína. Ástæðan var gríðarstór girð- ing sem þakin er bláu segli og lokar nánast fyrir Torg hins himneska friðar. Ekki mun þó um listaverk að ræða heldur standa Kinverjar nú í umtals- verðum endurbótum á torginu enda aðeins ár þangað til þeir fagna hálfrar aldar afmæli kín- verska lýðveldisins. Torgið verður því lokað almenningi fram í maí á næsta ári en söfh- in og minjagripaverslanir sem standa við austurhluta torgs- ins verða áfram opin. Þá mun fáni dreginn að hún með við- höfh á hverjum morgni eftir sem áður. Aðventuferð Landnámu til Edinborgar: Skosk menning og jólastemning Ferðaskrifstofan Landnáma efnir til aðventuferðar til Edinborgar dagana 10.-14. desember nk. í Edin- borg geta ferðamenn notið aldagam- alla menningarhefða sem varðveist hafa í gömlum byggingum, minnis- merkjum, kirkjum og köstulum. Saga Skotlands birtist gestum Edin- borgarkastala á Ijóslifandi hátt og hægt er um vik að feta í fótspor nafntogaðra aðalsmanna og kónga- fólks með því að ganga um gamla borgarhlutann. Edinborg skartar sínu fegursta á þessum árstíma og munu farþegar Landnámu meðal annars njóta jólastemningar á jólamarkaðnum í lystigarðinum við Prinsgötu og hlýða á jólatónlist í St. Giles dóm- kirkjunni. Jafnframt gefst fólki kostur á skoðunarferð í hina frægu drottningarfleytu Brittaniu sem ný- lega var opnuð ferðamönnum. Fararstjórar verða listahjónin Sverrir Guðjónsson og Elín Edda Ámadóttir og gefst farþegum kostur á að njóta menningardagskrár. Þann 10. desember verður sýning á Hans og Grétu í Skosku óperunni. Daginn eftir mun Konunglega skoska þjóðarhljómsveitin flytja þýska klassíska tónlist og þann 12. desember verður flutningur á Mess- íasi eftir Handel í Maríudómkirkj- unni. Tvennir jólatónleikar verða þann 13. desember; annars vegar verða tónleikar í Lauriston kastala og hins vegar verða jólasálmar og jólasöngvar í St. Giles dómkirkj- unni. Margar hótelkeðjur keppast nú við að bæta tölvukost fyrir gesti sína. Stóru hótelkeðjumar Hilton, Sher- aton og Hyatt hafa sett upp skrifstof- ur þar sem gestir hafa aðgang að tölv- um, prenturum og faxi. Helsta nýj- ungin felst í notkun Netsins því í framtíðinni geta hótelgestir sótt tölvupóst sinn og sinnt erindum sin- um á tölvukosti hótelanna. Kjöltu- tölvuna má því skilja eftir heima. 3 GOÐIR FYRIR VETURINN! Nýja Zeppelin-loftskipið mun væntanlega hefja flugferðir á næsta ári. Símamynd Reuter BMW 525 IX (4x4), ek. 98.000, Beinskiptur. árg.'95. m. leðri o.fl. Verð 2.680.000. Sex daga ferðir Sumir segja að nýju loftskipin muni skorta glæsileika farþegarýmis- ins í gamla Hindenburg-skipinu en Umhverfisvænar flugferðir í lok aldar: Loftskip hefja sig til flugs á næsta ári Mercedez Benz 300 E 4matic. átg. '91, ek. 105.000, sjálfskiptur, topplúga , Rafdr. í sætum o.fl. Verð, 2.090.000. Toyota LandCruiser VX, árg.'90, ek. 142.000, beinskiptur. 2 eigendur frá upphafi. Bíll sem fékk fyrstu einkunn í söluskoðun (26/11 98). Verð, 1.690.000. Upplýsingar veittar í síma «t. 898 5202. Sextíu árum eftir að loftskipið Hindenburg fórst og markaði endalok loftskipaflugs i bili er útlit fyrir að slíkar ferðir séu að verða að veruleika á ný. Loftskipið sem Ferdinand von Zeppelin hannaði á fjórða áratugnum mun væntanlega hefja ferðir strax á næsta ári. Tvö fýrirtæki, annað í Þýskalandi og hitt í Sviss, vinna nú baki brotnu að smíði loftskipa. Fyrir nokkru hófu flugmenn þýska fyrir- tækisins Zeppelin NT tilraunaflug á loftskipi sem byggist á gömlum teikn- ingum Zeppelins. Sú breyting hefur verið gerð að loftskipið verður knúið helíum í stað vetnis áður og tölvu- stýrð skrúfan gefúr því svipaða flug- hæfni og ef um þyrlu væri að ræða. Öryggið, að sögn þýska fyrirtækisins, verður jafnt því að sigla með skemmtiferðaskipi að því ógleymdu að hávaðamengun er nánast engin um borð í loftskipum. Skrokkur loft- skipsins er úr sérhannaðri álblöndu sem er bundin kole&iisþráðum. Svissneska fyrirtækið, Skyship Cruises, sem er ferðaskrifstofa í dýr- ari kantinum, ætlar að he§a dagsferð- ir með loftskipi á næsta ári. Fyrst um sinn verður flogið til og frá Zúrich. Á árinu 2000 hyggst fyrirtækið hefja ferðir á milli höfuðborga Evrópu. ferðir í Zeppelin NT verða í háum gæðaflokki. Kampavín og lax verður meginuppistaða matseðilsins - borið fram í átta þúsund feta hæð yfir Ölp- unum. Loftskip eru einnig í smíðum í Suð- ur-Afríku og er fyrsta skipið tilbúið. Loftskipið var gefið nafiiið Nelson í höfuðið á forseta landsins, Nelson Mandela. Það er byggt á sömu hug- mynd og Zeppelin NT. Farþegarýmið er stórt en það rúmar 120 farþega í styttri ferðum. Spennandi ferðir eru eirrnig á dagskránni en til stendur að bjóða sex daga ferðir frá Jóhannesar- borg til London. Millilending yrði hugsanlega í Egyptalandi þar sem far- þegum gæfist kostur á að virða fyrir sér píramídana fyrst úr lofti og síðan á jörðu niðri. Tími Ioftskipanna er ekki liðinn undir lok eins og margir kimna að halda. Nýju loftskipin munu hafa mikla flughæfni og það besta er að þau eru afar umhverfisvæn enda fara þau vel með eldsneytið. Hvemig þeim kemur til með að reiða af í samkeppni við hefðbundnari samgöngutæki eins og flugvélar og lestir á eftir að koma í ljós. -Condé Nast Traveler
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.