Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1998, Page 53
T>V LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1998
61 >
Steingrímur Sigurðsson á Lífs og
iistar-tímabiiinu.
- Steingrímur, mér datt í hug að
færa þér þetta sem verðlaun fyrir Líf
og list!
Ég gat ekkert sagt, mér vafðist
tunga um tönn.
Þama stóð meistarinn fyrir framan
mig og hélt á gríðarstórri mynd, svo
breiðri, að hann varð að teygja út-
breiddan faðminn utan um hana á
móti mér. Sterk olíu- og terpentínu-
lykt fyllti forstofuna, lykt, sem mér
þykir undurgóð - nú blasti mótívið
við mér. Það var hraunmynd í upp-
hleyptri þrívídd með þessu kjarvalska
Utaspjaldi - sem einkenndi meistar-
ann á tímabilinu 1945-55. Hún var
glæný - ekki orðin þurr. Síðar sagði
hann mér, að þetta væri Grábrókar-
hraun.
Dýrgripurinn tekinn upp í skatta
Ég gerði mér strax grein fyrir því,
að þetta væri mesti dýrgripur og auð-
ur, sem ég hefði nokkum tímann
eignazt, og málverkið fylgdi mér sið-
an eftir hvert sem leið mín lá næstu
árin, norður á Akureyri, þar sem
myndin hékk uppi á heimili okkar
Guðrúnar. Svo kom að því, að ég
hraktist burt frá skólanum - flótta-
maður - þá tók ég hana strax suður
með mér í bílnum, og hún fékk aftur
hæh hjá móður minni í Barmahlíð.
En þá gerðust hin miklu undur,
sem ég skildi ekkert í - hvað gífurleg-
ir skattar höfðu verið lagðir á mig á
Akureyri. Ég hafði ekkert vit á skatta-
málum og varði mig ekki, sem ég
dauðsé eftir nú. Þessir skattar voru
svo yfírþyrmandi, en ég atvinnu- og
tekjulaus fyrir sunnan og að því kom-
ið, að skattayfirvöldin á Akureyri og
fullnustuaðilar dómskerfisins gengju
að mér og gerðu mig gjaldþrota.
Þá voru góð ráð dýr - en ég átti
Kjarvalsmyndina, sem var mér svo
kær, eins og hjartað í brjósti mér.
Hún var sú eina arðbæra eign, sem ég
átti, og mér varð það þá á að hringja
í Listasafn ríkisins tU Selmu Jónsdótt-
m- og bauð henni verkið til sölu. Þeg-
ar hún hafði skoðað myndina, leizt
henni vel á og keypti hana á skaplegu
verði, sem nægði til að bjarga mér úr
ógöngunum.
Eins og ég áðan sagði, botnaði ég
ekkert í því, hvað skattarnir mínir
voru háir, fyrr en mörgum árum síð-
ar. Þá hitti ég á öldurhúsi í Reykjavík
mann, alnafna minn, stórtekjumann á
Akureyri. Hann þakkaði mér fyrir að
hafa borgað skattana sina. Ég varð
nokkuð hugsi.
NN-3496
krónur
15.900
Tölvustýrður,
17 lítra, 800w.
örbylgjuofn
sem þjónar
kröfum
nútímafólks.
Panasonic
I • 0^ I l - & í 1
i © * ▼
í # s <> ! i
Fullkominn
tölvustýrður,
22 lítra, 900w.
Tölvustýrður
með grilli,
I 7 lítra
r ^ V
", I 9
|
j
22 lítra, 900w.
■ ■
BRAUTARHOLTI • SIMI 5 8 0 0 8 0 0
KRAFMESTA OG HRAÐVI
LEIKJATÖLVA í HEIMI
UMBODSMEIMIM
Reykjavik: Hagkaup, Elko, Hljómco, BT-tölvur, Bræðumir Ormsson, Heimskringlan, Heimislistæki, SAM-tónlist, Japis, Vesturland: Málningarþjónustan, Akranesi. Hljómsýn, Akranesi. Kf. Borgfirðinga Borganesi. Vestfirðir:
Geirseyjarbúðin, Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, Isafirði. Norðuriand: Kf. Húnvetninga, Blönduósi. verslunin Hegri, Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri. Bókval, Akureyri. Hagkaup Akureyri. Öryggi, Húsavík. Suðurland:
Árvirkinn, Selfossi. Kf. Árnesinga, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Reykjanes: Hagkaup, Keflavík. Ljósboginn, Keflavík. Samkaup, Keflavík.
!$! NINTGfHQO.64
• Einföld í notkun (Barnavæn)
• Aflmikil - 64 bita
• Rauntíma þrívídd
• Engin biðtími.
(Allt að 15 min i ððrum leikjatölvum)
• Allt að 4 spilarar í einu
■ \-\ r f *J
• Besta leikjatölvan ‘98
• Golden eye 007 hæst dæmdi
leikurinn 1998(98%)
• Margföld ending leikja
• Um 80 leikjatitlar