Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1998, Síða 66
LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1998 3^'V
i |Ayndbönd
MYHDBANDA
GAGNRYNI
Digging to China
Sérstæð vinátta
★★i Harriet Frankovitz (Evan Rachel Wood) er um margt undarleg
stúlka og á því litla samleið með jafnöldrum sinum. Hún lætur sig
dreyma um aðra heima og geima og reynir á margvíslega vegu að strjúka
að heiman. Henni þykir vænt um móður sína (Cathy Moriarty), en sam-
band hennar við eldri systur sina, Gwen (Mary Stuart Masterson), er ansi
stirt. Líf Harriet tekur miklum breytingum þegar Ricky (Kevin Bacon)
stoppar ásamt móður sinni á móteli mæðgnanna. Hann er fullvaxta mað-
ur með þroska bams og verður honum og Harriet brátt vel til vina. Inni-
leg vinátta þeirra verður þó þymir í augum sumra, ekki síst Gwen sem
óttast mn hag systur sinnar í þessu sérstæða sambandi.
Þetta er leikstjómarfrumraun hins ágæta leikara Timothy Huttons og
tekst honum nokkuð vel upp. Hann hafði lika vit á því að velja sér litla
og hugljúfa frásögn, án nokkurs stærilætis. Hann verður því ekki „sakað-
ur“ um óþarfa hugrekki í frumraun sinni, en Kevin Bacon sýnir ekki lítið
hugrekki í að takast á við hlutverk Rickys. Og ekki verður annað sagt en
að hann standi sig með miklum ágætum og að einlægur samleikur hans
og Evan Rachel Wood gefi myndinni nokkum áhrifamátt.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Timothy Hutton. Aðalhlutverk: Kevin Bacon, Evan
Rachel Wood, Mary Stuart Masterson og Cathy Moriarty. Bandarísk, 1997.
Lengd: 98 mín. Öllum leyfð. -bæn
Body Count
Kaldur krimmi
★★ Síðan Quentin Tarantino sló í gegn hefúr ver-
ið stöðugur straumur svona mynda inn á markað-
inn, krimmar með svölum persónum, þar sem mik-
il áhersla er lögð á skýrt dregna persónusköpun og
spennan í myndinni er byggð upp á innbyrðis
spennu persónanna og síðan kryddað með svörtum
húmor og hráu ofbeldi. Body Count er byggð upp á
hér um bil nákvæmlega sama hátt og Reservoir Dogs, þ.e. hún fjallar um
eftirleik misheppnaðs ráns, þar sem persónumar tortryggja hverjar aðrar,
og púslar saman ráninu smám saman í gegnum myndina, flakkandi fram
og aftur í tíma. Munurinn á þessum tveimur myndum liggur fyrst og
fremst í gæðum handritsins, sem er frekar lasburða í Body Count.
Klisjurnar eru oft æpandi og samtölin eru oftar fáránleg en áhugaverð.
Þetta ágerist eftir því sem líður á myndina, og endirinn er ílausturslegur
og ósannfærandi. Myndin reddar sér upp í meðalmennskuna með einvala-
liði leikara. Sérstaklega er John Leguizamo góður í hlutverki villingjans,
en David Caruso og Donnie Wahlberg eiga einnig góða spretti. Ving
Rhames og Forest Whitaker eru í leiðinlegri hlutverkum en fylla engu að
síður vel upp í myndina. Linda Fiorentino er hins vegar afar ósannfær-
andi klækjakvendi og virðist leika það með hangandi hendi.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Robert Patton-Spruill. Aðalhlutverk: David
Caruso, Linda Fiorentino, John Leguizamo, Ving Rhames, Donnie Wahlberg og
Forest Whitaker. Bandarísk, 1997. Lengd: 81 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Dream with the Rshes
Lrf fyrir dauðann
★★★■)! Þetta er mynd um tvo einstaklinga sem leita
sér lífsfýllingar meðan þeir ramba á barmi dauðans.
Terry er þunglyndur gluggagægir í sjáifsmorðshug-
leiðingum, en Nick kemur að honum í miðri sjálfs-
morðstilraun og fer að skipta sér af. Með þeim takast
kjmni og í ljós kemur að Nick er haldinn ólæknandi
sjúkdómi og á ekki nema nokkrar vikur ólifaðar. Hann vill láta nokkra af
draumum sínum rætast og þeir semja um að Terry fjármagni verkefnið gegn
því að Nick láti liftryggingu sína renna til hans eða drepi hann, ef hann vill
enn þá deyja. Þeir rata í nokkur ævintýri saman, en enda svo í heimabæ
Nicks, þar sem hann reynir að sættast við fjölskylduna og fortíð. Það er þó
ekki síst Terry sem dregur lærdóm af andlegu ferðalagi þeirra og nær að
gera upp sakir við sjálfan sig. Hér er verið að fjalla um viðkvæm málefni -
nærveru dauðans, hvernig bregðast eigi við honum, og tilgang lífsins, hvorki
meira né minna. Leikstjórinn hefði auðveldlega getað misst sig út í væmni,
sjálfsupphafhingu eða groddaskap, en nær að sigla fram hjá öllum skerjum
og gera mynd sem er frumleg án þess að vera fáránleg og skemmtileg án
þess að draga úr boðskapnum, sem vissulega er til staðar. David Arquette og
Brad Hunt sýna frábæran leik í aðalhlutverkunum.
Útgefandl: Háskólabíó. Leikstjóri: Hnn Taylor. Aðalhlutverk: David Arquette og
Brad Hunt. Bandarisk, 1997. Lengd: 97 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ
Soul Food
Kvikmynda- eða matarlist
★★ Sögumaður myndarinnar er ungur drengur að
nafhi Ahmad. Hann er uppáhald ömmu sinnar sem
hefur um langt skeið gegnt hlutverki sáttasemjara
innan fjölskyldunnar. Hún á þrjár dætur sem eiga
annað slagið i innbyrðis deilum, auk þess sem sam-
bönd þeirra við eiginmenn sína eru æði köflótt. Hlut-
verk ömmu gömlu er því ekki lítið, en lykillinn að
velgengni hennar eru sunnudagsmatarboðin þar sem fjölskyldumeðlimir
leysa úr ágreiningi sínum imdir áhrifum hins ljúffenga matar. Og svona
hafa hlutimir gengið í fjörutíu ár, en þegar amma gamla þarf að leggjast
inn á spítala myndast upplausnarástand innan fjölskyldunnar. Og Ahmad
horfír örvæntingarfullur á fjölskylduna leysast upp.
Þessi mynd ber þess glöggt merki að réttindabarátta blökkumanna er að
skila sér til Hollywood. Þótt hér sé ekki um að ræða pólitíska mynd í anda
Spike Lee er hún mikilvæg sem sýn á og umfjöllun (sem slík) um líf
blökkumanna í Bandaríkjunum. Að vísu er sú sýn (afjlituð hefðbundnu
millistétta-drama þeirra hvítu. Þá staðfestir framleiðsla myndar á borð við
Soul Food aukna neyslugetu (fjárráð) blökkiunanna, þvi hlutverk
Hollywood-maskínunnar er jú fyrst og fremst að anna eftirspum.
Útgefandi: Skifan. Leikstjóri: George Tillman Jr. Aöalhlutverk: Vanessa L. Williams,
Vivica A. Fox, Nia Long og Michael Beach. Bandarísk, 1997. Lengd: 110 mín. Öllum
leyfð. -bæn
Alan Parker:
Sjálfmenntaður
meistari í dramatík
Alan Parker er leikstjóri sem
reiðir sig ekki eingöngu á handrit
og leikara til að koma dramatíkinni
til skila, heldur býr til mikið sjónar-
spil með kvikmyndatöku og krydd-
ar með tónlist. Hann býr þannig til
hádramatískar myndir þar sem
sjónræni þátturinn er í hávegum
hafður, vinnubrögð sem eiga rætur
að rekja til auglýsingaferils hans
áður en hann byrjaði í kvikmynd-
um.
Alan Parker er Lundúnabúi og
fæddist þar 14. febrúar árið 1944.
Hann gekk ekki menntaveginn held-
ur fékk sér vinnu hjá auglýsingafyr-
irtæki eftir skyldunámið. I nokkur
ár flakkaði hann á milli auglýsinga-
stofa og varð á endanum auglýs-
ingatextahöfundur. í auglýsinga-
bransanum kynntist hann David
Puttnam, sem síðar gerðist fram-
leiðandi, og Puttnam réði hann árið
1966 í fyrsta kvikmyndaverkefnið,
að skrifa handritið að myndinni
Melody, sem þó var ekki kvikmynd-
uð fyrr en 1971. í millitíðinni fór
hann að leikstýra sjónvarpsauglýs-
ingum og stofnaði auglýsingafram-
leiðslufyrirtæki árið 1970 í félagi
með Alan Marhsall, sem átti eftir að
framleiða sjö fyrstu myndir hans.
Fyrirtækið þeirra dafnaði vel og
varð eitt virtasta slíkra fyrirtækja í
Bretlandi. Alan Parker ákvað að
færa út kvíarnar og leikstýrði
tveimur stuttmyndum, Footsteps og
Our Cissy, og tveimur sjónvarps-
myndum, No Hard Feelings og The
Evacuees, áður en hann færði sig
endanlega yfir í kvikmyndirnar.
Ferillinn
Það var árið 1976 sem Alan Park-
er leikstýrði sinni fyrstu kvikmynd,
Madonna sem Eva Peron f Evita.
Klassísk myndbönd Midnight Express ****
Tyrkir eru vondir (segir Oliver Stone) ^
Tekinn fyrir eiturlyfjasmygl. Brad Davis fyrir miðri mynd.
Midnight Express er lauslega
byggð á bók Williams Hayes um
raunir sínar í tyrknesku fangelsi á
fyrri hluta áttunda áratugarins.
Myndin hefst árið 1970 þar sem
Hayes reynir að smygla tveimur
kílóum af hassi úr landinu. Hann er
staðinn að verki og fær óblíðar við-
tökur í tyrkneska dómskerfinu.
Næstu árunum eyðir hann í tyrk-
nesku fangelsi og fær strax að kynn-
ast harðneskjunni þar þegar hann
er barinn til óbóta fyrir að stela
teppi. Aðstæður eru ömurlegar í
fangelsinu og grimmd yfirfanga-
varðarins ólýsanleg. Þarna eru líka
fleiri útlendingar í svipuðum spor-
um og hann vingast við nokkra
þeirra. Þegar dómur hans er þyngd-
ur verulega gerir hann sér ljóst að
ef hann ætlar ekki að rotna þama
verður hann að brjótast út, eða taka
miðnæturhraðlestina „á fangamáli,
en eins og einn vina hans segir, þá
stoppar hún ekki hér“. Eftir að hafa
mátt þola meiri mannraunir og sví-
virðingar en hann hefði í upphafi
vistarinnar getað ímyndað sér nær
hann loksins að sleppa út, meira
fyrir heppni en nokkuð annað.
Myndin er mjög einstrengingsleg
og virkar nokkuð ýkt. Hayes er
túlkaður sem sakleysislegt gæða-
blóð, þótt hann sé sekur um að hafa
ætlað að smygla tveimur kílóum af
hassi, og myndin málar Tyrki, tyrk-
neskt þjóðfélag og þá sérstaklega
tyrkneskt réttarkerfi eins svart og
hægt er (viðhorf sem mörgum ís-
lendingum fellur væntanlega í geð
miðað við Halim A1 og allt það mál).
Ekki var kannski við öðru að búast,
þar sem handritið er skrifað af Oli-
ver Stone, sem spáir yfirleitt meira
í áróðursgildi en staðreyndir. Hver
einasti Tyrki í myndinni er spilltur,
heimskur, vondur eða geðveikur, og
það kemur ekki á óvart að fæstir
þeirra eru leiknir af tyrkneskum
leikurum. Helstu Tyrkjahlutverkin
eru í höndum hins bandaríska Paul
Smith, Bretans Peter Jeffrey og
ítölsku leikaranna Franco Diogene
og Paolo Bonacelli (sem sumir
muna kannski eftir í hlutverki
prestsins sem
neyðist til að
hlusta á játning-
ar leigubílstjór-
ans i Night on
Earth).
Þrátt fyrir
þröngsýni í
handriti er
Midnight Ex-
press feikiöflugt
og áhrifaríkt
fangelsisdrama,
þar sem leik-
stjórn, kvik-
myndataka og
tónlist Giorgio
Moroder eru
fyrsta flokks. Þá
er leikhópurinn frábær með Brad
Davis fremstan í flokki, en þrátt fyr-
ir frammistöðuna þarna komst ferill
hans aldrei á skrið. Reyndar eru
John Hurt og Randy Quaid þeir
einu úr leikhópnum sem hafa látið
að sér kveða að einhverju ráði sið-
an, en margir aðrir standa sig
einnig mjög vel, svo sem Norbert
Weisser, Mike Kellin, ítalamir tveir
og Paul Smith, sem er sérstaklega
eftirminnilegur sem kvalasjúki yfir-
fangavörðurinn.
Fæst í Aöalvideóleigunni. Leik-
stjóri: Alan Parker. Aðalhlutverk:
Brad Davis. Bresk/bandarísk, 1978.
Lengd: 117 mín.
Pétur Jónasson