Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1999, Side 46
LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1999 JjV
lil hamingju
með afmælið
16. janúar
80 ára
Ragnar Bollason,
Bjargi, Eyjafjarðarsveit.
75 ára
Magnús K. Guömundsson,
Löngubrekku 2, Kópavogi.
Steinþór V. Þorvarðarson,
Tangagötu 2, Stykkishólmi.
70 ára
Rósalind Sigurpálsdóttir,
Sunnubraut 6, Dalvík.
Eiginmaður hennar er
Kristinn Jónsson sem varð
sjötugur 27.12. sl. Þau taka á
móti gestum í tilefni afmæl-
anna að Rimum í Svarfaðar-
dal laugard. 16.1. kl. 15-19.
Jóhanna Tryggvadóttir,
Þórunnarstræti 112, Akureyri.
60 ára
Haukur F.
Filippusson,
Hagamel 35,
Reykjavík.
Þuríður
Matthíasdóttir,
Laugarnesvegi
81, Reykjavík.
Borghildur
Guðjónsdóttir,
Alfhólsvegi 71, Kópavogi.
Steinn Þór Karlsson,
Túnbrekku 2, Kópavogi.
50 ára
Kjartan
Kjartansson,
Safamýri 59,
Reykjavík.
Amar
Sigurbjömsson,
Logafold 126, Reykjavík.
Ámi G. Sigurðsson,
Birkigrund 57, Kópavogi.
Halldór A. Halldórsson,
Múlavegi 6, Seyðisfirði.
Jóhannes Jóhannsson,
Silfrastöðum, Varmahlíð.
Martha E. Vest Joensen,
Vallargötu 10 A, Sandgerði.
40 ára
Anna Ágústa Karlsdóttir,
Reyrengi 6, Reykjavík.
Anna Margrét
Stefánsdóttir,
Hátúni 2, Varmahlíð.
Áslaug ívarsdóttir,
Rauðalæk 20, Reykjavík.
Bergrós Þorgrímsdóttir,
Bjargi II, Mosfellsbæ.
Björg Kristjánsdóttir,
Kársnesbraut 84, Kópavogi.
Guðjón Árni Konráðsson,
Fifumóa 5 D, Njarðvík.
Hólmfríður S.
Kristjánsdóttir,
Eyrarlandsvegi 20, Akureyri.
Ingveldur Einarsdóttir,
Lyngrima 8, Reykjavík.
Kári Ingólfssson,
Sunnubraut 47, Kópavogi.
Kristján Jónsson,
Sætúni 4, Hofsósi.
Óskar Snæberg
Gunnarsson,
Dæli, Dalvík.
Svala Hrönn Jónsdóttir,
Bæjargili 27, Garðabæ.
w
Þorkell Amason
Þorkell Ámason, fyrrv. starfs-
maður Reykjavíkurborgar, Bauga-
nesi 39, Reykjavík, verður sjötíu og
fimm ára á morgun.
Starfsferill
Þorkell fæddist á Vífilsstöðum,
þar sem móðir hans var þá starfs-
stúlka, og ólst upp í Hafnarfirði. Um
fermingaraldur flutti hann til
Reykjavíkur með móður sinni og
stjúpfoður en þau vom lengst af bú-
sett við Haðarstíginn.
Þorkell starfaði um skeið hjá
Eimskipafélaginu en síðustu þrjátíu
starfsárin starfaði hann hjá Reykja-
víkurborg.
Þorkell hefur verið til heimilis
hjá systur sinni, Ámu Steinunni.
Fjölskylda
Hálfsystkini Þorkels, sammæðra,
eru Guðbrandur, f. 1926, öryggis-
vörður í Reykjavík; Svanur, f. 1929,
fórst með Suðurlandinu 1986, sjó-
maður í Reykjavík; Árna Steinunn,
f. 1932, húsmóðir í Reykjavík; Már,
f. 1942, matreiðslumaður í Reykja-
vík.
Uppeldisbróðir Þorkels var Birgir
Harðarson, f. 1946, d.
1987, forstöðumaður
Eimskips í Norfolk í
Bandaríkjunum.
Hálfsystkini Þor-
kels, samfeðra, era
Kristján, f. 1932, starfs-
maður við Húsdýra-
garðinn í Reykjavík;
Magga Alda, f. 1936,
húsfreyja í Núpakoti
undir Eyjafjöllum;
Hilmar, f. 1938, skip-
stjóri á Höfii í Horna-
firði; Snæbjöm, f. 1940,
útgerðarmaður á
Bíldudal; Rannveig, f. 1942, banka-
starfsmaður á Patreksfírði; Jóna
Vestfjörð, f. 1943, húsmóðir í Hafn-
arfirði; Auðbjörg, f. 1944, starfsmað-
ur við íslandsbanka í Reykjavík;
Hreiðar, f. 1944, fórst með Sæfara
frá Tálknafirði, skipstjóri, búsettur
á Bíldudal; Bjarnfríður, f. 1947,
bankastarfsmaður í Reykjavík;
Björg, f. 1948, bankastarfsmaður í
Garðabæ; Magnús, f. 1950, fram-
kvæmdastjóri í Reykjavík; Guðrún,
f. 1951, húsmóðir á Hvolsvelli; Sig-
rún, f. 1956, húsmóðir í Hafharfirði.
Foreldrar Þorkels vom Ámi
Kristjánsson, f. 7.11. 1901, d. 1965,
verkamaður í
Bræðraminni á Bíldu-
dal, og Steinunn Þor-
kelsdóttir, f. 14.6. 1895,
d. 6.8. 1950, húsmóðir í
Reykjavík. Stjúpfaðir
Þorkels var Rögnvaldur
Guðbrandsson, f. 27.9.
1900, d. 28.2. 1983, lengst
af verkstjóri hjá Slippfé-
laginu í Reykjavík.
Ætt
Ámi var sonur Krist-
jáns, sjómanns og bónda
í Bræðraminni á Bíldudal, Jónsson-
ar, b. á Barðaströnd, Guðmundsson-
ar. Móðir Kristjáns var Málfríður
Jónsdóttir. ^
Móðir Áma var Rannveig Áma-
dóttir, Ólafssonar.
Systir Steinunnar var Ingveldur,
amma Helenu Eyjólfsdóttur söng-
konu. Steinunn var dóttir Þorkels,
b. í Lambhaga, Ámasonar, bróður
Guðrúnar, langömmu Víglundar
Þorsteinssonar, forstjóra Vallár, og
Péturs Guðmundssonar flugvallar-
stjóra. Móðir Þorkels í Lambhaga
var Steinunn Þorkelsdóttir, b. í
Krýsuvík, Valdasonar, og Þórunnar
Álfsdóttur, b. í Tungu í Flóa, Ara-
sonar, hreppstjóra á Eystri-Lofts-
stöðum, Bergssonar, ættföður
Bergsættar, Sturlusonar.
Móðir Steinunnar yngri var Ing-
veldur, langamma Páls Jenssonar
prófessors. Systir Ingveldar var Sig-
ríður, langamma Harðar Sigurgests-
sonar, forstjóra Eimskipafélagsins.
Önnur systir Ingveldar var Sigur-
björg, amma Guðmundar Björns-
sonar læknaprófessors. Ingveldur
var dóttir Jóns, ættfóður Set-
bergsættar, og bróður Sigurðar, afa
Ottós N. Þorlákssonar, fyrsta for-
seta ASÍ. Jón var sonur Guðmund-
ar, b. í Miðdal í Mosfellssveit, bróð-
ur Einars, langafa Sigríðar, móður
Vigdísar Finnbogadóttur. Móðir
Ingveldar var Sigríður Þórðardóttir,
b. á Reykjum í Biskupstungum,
Jónssonar, b. á Rafnkelsstöðum,
bróður Sigurðar, afa Vilborgar,
langömmu Sigurborgar, móður Em-
ils Jónssonar forsætisráðherra. Sig-
urður var einnig afi Elínar,
langömmu Eyjólfs, foður Sveins,
forstjóra Frjálsrar fjölmiðlunar. Jón
var sonur Jóns, lrm. á Stóranúpi,
Magnússonar, b. í Bræðratungu
Sigurðssonar.
Þorkell Árnason.
Ingimar Einarsson
Ingimar Einarsson skrifstofu-
stjóri, Miðbraut 21, Seltjamamesi,
er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Ingimar fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lauk stúdents-
prófi frá ML 1969, BA-prófi í stjórn-
málafræði frá HÍ1974, MS.Sc.-prófi i
félagsvísindum frá Háskólanum í
Uppsölum 1980, doktorsprófi í fé-
lagsvísindum frá Háskólanum i
Uppsölum 1987, stundaði nám í
stjómun og áætlanagerð við Heil-
brigðisfræðaskólann í Gautaborg
1978 og hefur auk þess sótt fjölda
námskeiða og ráðstefna víðs vegar.
Ingimar var fulltrúi viö Land-
læknisembættið 1974-78, stundaði
nám og rannsóknir við Uppsalahá-
skóla 1979-82 og að hluta 1982-84,
sinnti verkefnum fyrir landlæknis-
embættið 1982-84, var ráðgjafi i heil-
brigðis- og félagsmálum við Nor-
rænu ráðherranefndina 1985-92,
fyrst í Osló 1985-86 og síðan í Kaup-
mannahöfn 1986-92, framkvæmda-
stjóri heilbrigðis-, félagsmála- og
vinnumálasviðs Norðurlandaráðs
1992-95 með aðsetur í Stokkhólmi,
sinnti verkefni fyrir landlæknis-
embættið og Heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytið 1995-96 og er
skrifstofustjóri áætlana- og þróun-
arskrifstofu Heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytisins frá ársbyrj-
un 1997.
Ingimar situr í Norrænu hag-
skýrslunefndinni, NOSOSKO frá
1995, í Norrænu embættismanna-
nefndinni á sviði heilbrigðis- og fé-
lagsmála frá 1996 og er nú formaður
vinnuhóps um málefni Eystrasalts-
ríkjanna og nærsvæðanna á sviði
heilbrigðis- og félagsmála.
Ingimar hefúr ritað fjölda rita og
greina um stjómmál og þjóðfélags-
breytingar, heilbrigðismál, félags-
mál, vinnumarkaðsmál og norræn
málefiii. Má þar nefna
kannanir á læknisþjón-
ustu á landsbyggðinni,
1974 og 1980; Aldraðir og
heilbrigðisþj ónusta,
1982; Pattem of Social
Development in
Iceland, útg. af
Almquist & Wiksell í
Stokkhólmi 1987; Mótun
framtíðarstefnu á sviði
forvama og heilsuefl-
ingar, 1995, og For-
gangsröðun í heilbrigð-
ismálum, 1998.
Fjölskylda
Ingimar kvæntist 22.3. 1974 Stef-
aníu R. Snævarr, f. 28.5. 1948, kenn-
ara. Hún er dóttir Stefáns V. Snæv-
arr, f. 22.3. 1914, d. 26.12. 1992, pró-
fasts Eyfirðinga, og k.h., Jónu
Magneu Snævarr, f. 9.2. 1925, hús-
móður.
Böm Ingimars og
Stefaníu em Stefán Þór
Ingimarsson, f. 20.11.
1973, laganemi en
unnusta hans er Anna
Guðrún Birgisdóttir, f.
12.4. 1977; Inga Jóna
Ingimarsdóttir, f. 13.10.
1977, læknanemi.
Systkini Ingimars
em Eiríkur Þór Einars-
son, f. 9.10. 1947, d. 29.8.
1979; Kristján Einars-
son, f. 21.6. 1956, for-
stjóri Rekstrarvara í
Reykjavík, kvæntur Sigríði Her-
mannsdóttur.
Foreldrar Ingimars: Einar Magn-
ússon, f. 25.6. 1915, fyrrv. bifreiða-
stjóri í Reykjavík, og Guðný Þóra
Kristjánsdóttir, f. 21.4. 1918, d. 25.2.
1965, húsmóðir.
Ingimar verður staddur á skosku
hásléttunni á afmælisdaginn.
Ingimar Elnarsson.
Friðrik Kristjánsson
Friðrik Kristjánsson,
bílstjóri og bóndi að
Stóra-Saurbæ í Ölfusi, er
fertugur í dag.
Starfsferill
Friðrik fæddist á
Hjarðarbóli í Ölfusi og
ólst þar upp og að Stóra-
Saurbæ. Hann ; lauk
námi frá Grunnskóla
Hveragerðis 1975.
Friðrik vann á vertíð í
Þorlákshöfn og hjá Slát-
mfélagi Suðurlands á ár-
unum 1975-77, starfaði í Ullarþvotta-
stöðinni í Hveragerði 1978-87 jafn-
framt því sem hann vann við akstur
á vegum Kristjáns Jónssonar.
Friðrik hóf síðan störf hjá Dal-
verki 1987 og hefur starfað þar síð-
an. Hann tók jafnframt við bú-
rekstri að Stóra-Saurbæ 1996, af
Jóni Guðmundssyni, bróður fóstur-
foður síns, og hefur stundað þar
sauðfjárbúskap og nautabúskap.
Fjölskylda
Eiginkona Friðriks
er Ólína Þórann Sig-
urðardóttir, f. 11.6.1961
húsfreyja að Stóra-
Saurbæ. Þau hófu sam-
an búskap 1978 en giftu
sig 30.5. 1981. Hún er
dóttir Sigurðar Þórðar-
sonar, f. 7.3. 1933, d.
20.8. 1998, og Kristínar
Þorvaldsdóttur, f. 5.8.
1935.
Böm Friðriks og
Ólínu Þórunnar eru Jó-
hanna Ósk Friðriksdóttir, f. 14.7.
1979, í sambúð með Guðlaugi Björg-
vinssyni, f. 24.1. 1977 og á hún eina
dóttur; Kristín Sigríður Friðriks-
dóttir, f. 25.2. 1981, nemi við Fjöl-
brautaskóla Suðurlands; Kristjana
Ólöf Friðriksdóttir, f. 30.12. 1987,
nemi við Grunnskóla Hveragerðis;
Friðrik Freyrr Friðriksson, f. 5.4.
1993.
Systkini Friðriks em Bjöm Krist-
jánsson, f. 18.10. 1939, veitingahúsa-
eigandi að Básum í Ölfusi; Kristín
Kristjánsdóttir, f. 5.8. 1941, fræðslu-
stjóri í Kópavogi; Ásgeir Kristjáns-
son, f. 17.12. 1943, leigubílstjóri í
Reykjavík; Loftveig Kristjánsdóttir,
f. 27.6.1947, starfskona við leikskóla;
Grétar Kristjánsson, f. 15.5.1952, vél-
stjóri í Reykjavík.
Foreldrar Friðriks: Kristján Ey-
steinsson, f. 29.7. 1910, d. 16.2. 1967,
bóndi að Hjarðarbóli í Ölfusi, og
Halldóra Þórðardóttir, f. 10.6. 1918,
húsfreyja að Hjarðarbóli og síðar að
Stóra-Saurbæ.
Fósturfaðir Friðriks frá 1970 var
Ólcifur Guðmundsson, f. 24.3.1916, d.
10.6. 1983.
Ætt
Kristján var sonur Eysteins, b. í
Litla-Langadal á Skógarströnd og
síðast á Breiðabólstað Finnssonar,
b. á Skallhóli Einarssonar, b. í
Neðri-Hundadal, bróður Finns á
Háafelli, Sveins, foður Ásmundar
myndhöggvara. Einar í Neðri-
Hundadal var sonur Sveins, b. í
Neðri-Hundadal, Finnssonar. Móðir
Finns á Skallhóli var Sesselja Jóns-
dóttir. Móðir Eysteins var Guðbjörg,
systir Sesselju, móður séra Jón-
mundar í Gmnnavík. Guðbjörg var
dóttir Gísla, b. á Bæ og Leysingja-
stöðum, Jóhannessonar, í Víkum á
Skaga, Jónssonar. Móðir Gísla var
Guðríður Bjamadóttir. Móðir Guð-
bjargar var Guðfinna Sigurðardóttir
frá Álftatröðum, Magnússonar. Móð-
ir Guðfinnu var Þóra Sveinsdóttir,
b. í Snóksdal, Hannessonar, pr. á
Kvennabrekku, Bjömssonar.
Móðir Kristjáns var Jóhanna,
dóttir Odds á Giljalandi, Sólmunds-
sonar, b. á Mjóabóli, Jónssonar.
Móðir Odds var Svanborg Jónsdótt-
ir. Móðir Jóhönnu var Dagbjört Jó-
hannesdóttir, b. í Blönduhlíð,
Grimssonar.
Halldóra er dóttir Þórðar, b. í
Eskiholti í Borgarhreppi í Mýra-
sýslu, Oddssonar og Loftveigar
Þórðardóttiu-.
Friðrik Kristjánsson.