Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1999, Blaðsíða 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR
íþróttir
Blcmd i polca
Hibernian jafnaöi 49 ára gamalt fé-
lagsmet á laugardag þegar liðið vann
sinn níunda sigur i röð í skosku B-
deildinni í knattspyrnu. Hibernian
vann þá Hamilton, 4-0, og er komið
með 14 stiga forskot. Ólafur Gott-
skálksson lék að vanda í marki Hibs
og varði nokkrum sinnum mjög vel.
Hibernian er með 56 stig og stefnir
beina leiö i A-deildina á ný. Falkirk
er með 42, Airdrie 41 og siðan koma
David Winnie og félagar i Ayr með
39 stig. Stranraer, með Leiftursmann-
inn Paul Kinnaird innanborðs, er
langneðst en vann þó Raith Rovers,
2-0, um helgina.
Kim Magnús Nielsen sigraði Sigurö
G. Sveinsson, 3-1, í úrslitaleik meist-
araflokks karla á flórða punktamóti
vetrarins í skvassi sem fram fór í Vegg-
sporti um helgina. Elin Blöndal sigr-
aði Helgu Aspelund, 3-0, i úrslitaleik
meistaraflokks kvenna og Arnar Arin-
bjarnar vann Daviö Davíösson, 2-1, í
úrslitum i A-flokki karla.
Ottó Karl Ottósson, sem hefur leikið
með Sflömunni undanfarin ár, er
genginn til liðs við úrvalsdeildarlið
Breiðabliks í knattspymu.
ítalska knattspymufélagið Juventus
keypti i gær Thierry Henry, sóknar-
manninn unga frá Mónakó. Henry,
sem skoraði þrjú mörk fyrir Frakka í
lokakeppni HM síðasta sumar, samdi
viö Juventus til ársins 2003.
Arnar Grétarsson og félagar hans í
AEK Aþenu er i öðru sæti í grísku A-
deildinni í knattspymu eftir leiki
helgarinnar. AEK gerði 2-2 jafntefli
gegn Iraklis á sunnudaginn og er með
33 stig en Olympiakos sem lagði Xant-
hi, 3-1, er í toppsætinu með 37 stig.
Skautafélag Akureyrar sigraöi
Skautafélag Reykjavíkur, 5-4, í
síðasta leik annarrar umferðar
íslandsmótsins i íshokkí í gærkvöldi.
Rúnar Rúnarsson skoraði 3 marka
SA og þeir Clark McCormick og
Sveinn Bjömsson gerðu sitt markið
hvor. Fyrir SR gerði Sigurbjörn
Þorgeirsson 2 mörk og þeir Kristján
Óskarsson og Siguröur Sigurösson
eitt hvor.
Aron Kristjánsson skoraöi 3 mörk
fyrir Skjern þegar liðið lagði FIF,
23- 27, í dönsku A-deildinni í hand-
knattleik um helgina. Með sigrinum
skustust nýliöamir í toppsæti deild-
arinnar þar sem meistarar GOG töp-
uðu á heimavelli fyrir Viborg, 18-22.
Skjem er með 21 stig eins og GOG en
er með betri markatölu. Helsinge
kemur svo í þriðja sætinu með 20
stig.
Einvigi Íslendingaliöanna á toppi
suðurhluta þýsku 2. deildarinnar í
handknattleik heldur áfram. Dor-
magen sigraði Solingen um helgina,
24- 26. Róbert Sighvatsson og Héö-
inn Gilsson skoruðu 2 mörk hvor og
Daöi Hafþórsson 1. Gústaf Bjarna-
son skoraði 1 mark fyrir Willstátt i
30-23 sigri á Gensungen. Dormagen
og Willstátt eru efst og jöfn með 38
stig en Leuterhausen er með 33 stig.
-VS/GH
BLAK
1. deild karla
ÍS-Þróttur N (4-15, 15-6, 15-1, 15-7) 3-1
ÍS-Þróttur N. . (15-4, 15-11,15-8) 3-0
Þróttur R. 9 8 1 26-7 26
ÍS 10 6 4 24-14 24
Stjaman 9 4 5 16-23 16
Þróttur N. 10 4 6 16-23 16
KA 8 1 7 8-23 8
1. deild kvenna
ÍS-Þróttur N..................3-2
(9-15, 15-6, 8-15, 15-13, 15-8)
IS-Þróttur N..................3-0
(15-12,15-5, 15-6)
Víkingur-Þróttur R..........3-0
(15-7, 15-5, 15-13)
Víkingur 11 10 1 32-7 32
Þróttur N. 10 5 5 20-20 20
KA 10 5 5 19-19 19
is 10 5 5 17-18 17
Þróttur R. 9 0 9 3-27 3
Bikarkeppni karla
Þróttur R.-Stjarnan........2-3
(23-25, 25-27, 25-21, 31-29, 12-25)
Orgryte vill fá
Val og Brynjar
- hef mikinn áhuga á Örgryte, segir Valur Fannar
Valur Fannar Gíslason.
Brynjar Björn Gunnars-
son.
Sænska knattspymufé-
lagið Örgryte hefur mikinn
áhuga á aö fá til sín Val
Fannar Gislason og Brynjar
Bjöm Gunnarsson, sem
leika með norsku félögun-
um Strömsgodset og Váler-
enga.
Valur Fannar dvaldi alla
síöustu viku hjá Örgryte og
Erik Hamrén, þjálfari liðs-
ins, sagði við DV að honum
litist vel á piltinn.
„Það býr greinilega mik-
ið í þessum leikmanni og
ég geri ráð fyrir því að
hann myndi nýtast okkur. Við eig-
um hins vegar eftir að ræða við
Strömsgodset og vitum ekki hvort
Norðmennirnir vilja fá mikla pen-
inga fyrir hann,“ sagði Hamrén í
samtali við DV.
Valur Fannar, sem er 21 árs og á
að baki 58 leiki með yngri landslið-
um íslands, hefur verið eitt ár hjá
Strömsgodset en hann fór þangað
frá Arsenal um síðustu árcunót.
Hann lék aðeins þijá leiki með
Strömsgodset í norsku A-deildinni
á síðasta ári og framtíð hans þar er
því óljós.
„Ég hef mikinn áhuga á að fara
til Örgryte. Mér gekk ágætlega á
æfingum með liðinu og líst vel á fé-
lagið og allar aðstæður í
Gautaborg. Ég bíð spenntur
eftir framhaldinu," sagði
Valur Fannar við DV.
Brynjar í Englandi
Hamrén hefur líka mikinn
áhuga á að líta á Brynjar
Björn Gunnarsson en bíður
eftir niðurstöðu úr ferð
hans til Englands. Þar hefur
Brynjar æft með ShefReld
United og Southampton að
undanfórnu. Brynjar, sem
er 23 ára og hefur spilað 12
A-landsleiki, náði ekki að
festa sig í sessi hjá Válerenga á síð-
asta tímabili og var leigður þaðan
til Moss seinni hluta ársins. Staðan
gagnvart Brynjari er sú sama og
gagnvart Val, því Örgryte á alveg
eftir að ræða við Válerenga um
hugsanleg kaup.
-EH/VS
ENGLAND
Enginn íslendingur tók þátt I leikj-
um helgarinnar í ensku knattspyrn-
unni. Arnar Gunnlaugsson var eini
landinn í leikmannahópi Bolton en
kom ekki inn á gegn Sheffield United.
Jóhann B. Guðmundsson var ekki í
hópi Watford, leikjum Stoke, Walsall
og Brentford var frestað og Þorvald-
ur Örlygsson missti af sigurleik Old-
ham gegn Blackpool, 3-0, vegna
meiðsla.
Blackburn keypti í gær Matt Jan-
sen frá Crystal Palace fyrir 460 millj-
ónir króna. Jansen er tvítugur og
þykir einn efnilegasti sóknarmaður
Englands, og spilar með 21-árs iands-
liðinu.
Brian Kidd, framkvæmdastjóri
Blackburn, ætlar að styrkja lið sitt
enn frekar. Hann hefur augastað á
Jason McAteer hjá Liverpool og Seth
Johnson, 19 ára markaskorara hjá
Crewe.
Alan Shearer, framherji Newcastle,
á yfir höfði sér fyrsta leikbannið á
ferlinum. Hann nældi sér í gult spjald
í leiknum gegn Charlton i fyrradag
sem var hans fimmta á timabilinu og
það þýðir eins leiks bann. Shearer
verður því úarri góðu gamni þegar
Newcastle mætir Leeds þann 6.
febrúar.
Jason McAteer er á forum frá
Liverpool og búist er við að hann
yfirgefi Anfield í þessari viku. West
Ham og Blackburn vilja fá þennan 27
ára gamla irska landsliðsmann I
sínar raðir en hann er metinn á 450
milljónir króna.
-VS/GH
Fram sýnir
Kristni áhuga
- enn ósamið milli ÍBV og Vals
Framarar hafa sýnt áhuga á að fá til sín Kristin Lár-
usson, sem lék með Eyjamönnum í knattspymunni
síðasta sumar. Kristinn er genginn til liðs við Vals-
menn, eins og fram hefur komið, en ekki hefur náðst
samkomulag enn milli Vals og ÍBV um greiðslu fýrir
félagaskiptin. Kristinn átti ár eftir af samningi sínum
við ÍBV. Samkvæmt heimildum DV hafa Framarar
þegar komið því á framfæri að þeir séu tilbúnir að
ganga inn í málið og kaupa Kristin af Eyjamönnum.
-VS
Júlíus og Gunnar
með 3 mörk hvor
Júlíus Jónasson skoraði 3 mörk fyrir St. Otmar þegar liðið lagði
Kadetten, 20-22, í úrslitakeppninni um svissneska meistaratitilinn í
handknattleik um helgina.
Gunnar Andrésson skoraði sömuleiðis 3 mörk fyrir Amicitia Zúrich
sem tapaði fyrir Pfadi Winterthur á heimavelli, 16-22. Átta efstu liðin
leika til úrslita um titilinn og þegar tveimur umferðum er lokið er
Winterthur með 7 stig, St. Otmar 5, Endingen 3, Wacken Thurn 2, Kadett-
en 2, Suhr 2, Amicitia Zúrich 1 og Grasshoppers 0. -GH
ítali með ÍR-stúlkur
ítalinn Ricardo Marchiani hefur tekið við þjálfun 1. deildarliðs ÍR í
körfuknattleik og stýrði hann liðinu í fyrsta skipti gegn Grindavík á
sunnudaginn.
Marchiani, sem hefur þjálfað yngri flokka hjá ÍR í vetur, tekur við af
Kari Jónssyni, sem var sagt upp störfum um helgina. I fréttatilkynningu
frá ÍR segir aö þar sem ein aðalfjáröflun körfuknattleiksdeildarinnar hafi
brugðist geti hún ekki staðið við samning sinn við Karl, sem auk þess að
þjálfa meistaraflokk kvenna var yfirþjáifari yngri flokka félagsins.
-ÓÓJ/VS
Körfubolti:
Helgi meiddur
Helgi Jónas Guðfinnsson, leikmaður með RZG Donar
Groningen í Hollandi, meiddist í leik fyrir stuttu. í fyrstu
var talið að hásin hefði trosnað, en við myndatökur i gær
kom í Ijós að vöðvafesting var rifín og Helgi á að taka sér
fri frá æfmgum í vikutíma. RZG Donar er nú í 5.-6. sæti deildarinnar
með 12 sigra og 9 tapleiki að baki. Helgi Jónas hefur leikið mjög vel sem
leikstjómandi liðsins, skoraði til dæmis 14 og síðan 22 stig í fyrstu um-
ferðum eftir jólahlé og er nú í 10. sæti yfir bestu erlendu leikmennina í
hollenska körfuboltanum. -bb
Richardson ekki til Þórs
Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Louis Richcirdson kemur ekki til
úrvalsdeildarliðs Þórs. Fyrirhugað var að Richardson kæmi til landsins í
dag en nú hefur komið á daginn að kappinn hefur orðið uppvís að neyslu
kannabisefna og er mál hans komið upp á borð fmnska íþróttasambandsins
en hann hefur verið að spila með liði HoPo í Finnlandi.
Þórsarar eru þegar famir að leita að öðrum leikmanni en sem kunnugt
er þá er Lorenzo Orr hættur að leika með liðinu. -DVÓ/JJ/GH
Breytinga er þörf
Leikiö var í efstu deildum ís-
landsmótsins í innanhússknatt-
spymu um helgina. Eina mótið á
vegum KSÍ frá septemberlokum
fram í miðjan mars var að vanda
keyrt í gegn á einni helgi og flest
liðanna léku sem fyrr aðeins 3-4
leiki á nokkrum klukkutímum.
Búið.
Er ekki orðið tímabært að breyta
til og gera meira úr innanhúss-
knattspymunni? Hvergi er meiri
þörf fyrir slíkt en einmitt hér á
landi þar sem undirbúningstíminn
fyrir næsta utanhússtímabil er 6-7
mánuðir.
Það þarf að brjóta upp keppnis-
fyrirkomulagið og spila svæðis
bundna undankeppni frá
nóvember og fram í
miðjan janúar og láta
þá t.d. 16 lið í karla-
flokki og 8 lið í
kvennaflokki leika
til úrslita um
meistaratitlana.
Þetta er vel fram-
kvæmanlegt, að-
eins spuming um
metnað. Ársþing
KSÍ er í næsta mánuði
og ég trúi ekki öðru en
loksins verði hreyft við
þessu máli þar.
Þaö þarf líka að breyta leiknum
sjálfum með því að setja
batta“ á hliðar- og enda-
línumar, eins og gert
var í „gamla daga“.
Jafnvel þó slíkt
væri aðeins gert í
úrslitakeppninni.
Innanhússknatt-
spyma með bött-
um er allt önnur
og skemmtilegri
íþrótt en sú sem leik-
in er í dag. Hún er
hraðari og byggir meira
á tækni, í stað þess að eftir
núverandi fyrirkomiilagi ræður
varaarleikur alfarið ríkjum og
sóknarleikur byggist aðallega á því
að gefa markmanninum tækifæri
til að þruma á markið frá eigin
vallarhelmingi. Falleg mörk þegar
það gengur upp en skilar mönnum
ákaflega litlu til framfara í íþrótt-
inni.
Þá þarf KSÍ að taka sér tak varð-
andi innanhússmót yngri flokk-
anna. Það gengur ekki lengur að
einungis sé boðið upp á keppni A-
liöa á íslandsmótunum þar og
stærstur hluti þeirra bama og ung-
linga sem æfa með félögunum fái
ekki tækifæri.
ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1999
23
Iþróttir
Úrvalsdeildai-lið Hauka í körfuknattleik tek-
ur nokkrum breytingum nú á næstunni.
Þrir leikmenn, sem hafa leikið með liðinu í
undanförnum leikjum, em hættir og í stað
þeirra koma þrír nýir leikmenn.
Haukarnir hafa losað sig við Bandaríkja-
manninn Antonie Brockingham sem kom til
liðsins fyrir skömmu og þeir Sigfús Gizurarson
og Baldvin Johnsen geta ekki leikið meira með
vegna anna í námi.
Þeir sem fylla munu skörð þeirra eru tveir
erlendir leikmenn og einn gamall
Haukamaður.
Þegar hefur verið gengið frá samningi við
Bandaríkjamanninn Roy Hairstone. Þetta er 25
ára gamall miðherji, 2,03 metrar að hæð. Hann
hefur leikið í bandarisku IBA-deildinni og kem-
ur frá mjög sterkum háskóla. Hann kemur til
landsins á morgun og leikur sinn fyrsta leik
gegn Val á fimmtudagskvöldið. Þá em Haukar
að vinna í að fá Bandaríkjamann með ítalskt
ríkisfang til liðs við sig og ef allt gengur að ósk-
um kemur hann einnig til landsins á morgun.
Henning Henningsson er þriðji
leikmaðurinn sem Haukar eru að fá en hann er
ekki ókunnugur Haukaliðinu. Henning lék með
Haukunum í mörg ár og síðast árið 1992. Eins
og DV greindi frá á dögunum fékk Henning sig
lausan frá Skallagrími og þegar í stað settu
Haukarnir sig í samband við hann. Henning er
búinn að skrifa undir félagaskipti við Hauka og
verður löglegur 14. næsta mánaðar.
Urðum að breyta jafnvæginu
„Við urðum að breyta jafnvæginu í liðinu
eftir að það kom á daginn að Sigfús og Baldvin
gætu ekki leikið meira með okkur. Án þessara
manna emm við veikir inní og þvi var ekki
önnur leið en að skipta um Kana,“ sagði Jón
Arnar Ingvarsson, þjálfari og leikmaður
Hauka, í samtali við DV í gærkvöldi.
„Það er metnaður í félaginu. Menn eru ekki
ánægðir með árangurinn fram að þessu og vilja
snúa við blaðinu. Það hefur allt gengið á aftur-
fótunum hjá okkur. Við höfum lent í meiðslum
og verið óheppnir með útlendingana en nú höf-
um við tekið stefnuna á að tryggja okkur gott
sæti í úrslitakeppninni og við ætlum að selja
okkur dýrt í undanúrslitaleiknum í bikarnum
gegn Njarðvíkingum á mánudaginn," sagði Jón
Arnar.
-GH
——— — — *
Komnir til Börsunga
Glæsimark
hjá Þórði
Þórður Guðjónsson skoraði
eitt marka Genk sem sigraði
Ostend, 3-0, í belgísku A-deild-
inni I knattspymu í gærkvöldi.
Genk leiddi 1-0 í hálfleik með
marki Origi og Þórður bætti
svo öðm markinu við á 83.
mínútu með glæsilegu skoti í
vinkilinn áður en N’Sumbu
innsiglaði sigurinn á 90. mín-
útu.
Genk er með 41 stig í öðm
sæti deildarinnar, Club Brúgge
er á toppnum með 43 stig og
Lokeren, Mouscron og Gent
koma á eftir Genk með 34 stig.
-GH
Villa upp að
hlið Chelsea
Aston Villa komst í gær upp
að hlið Chelsea á toppi ensku
A-deildarinnar þegar liðið bar
sigurorð af Everton, 3-0, á
heimavelli sínum, Villa Park.
Hinn smái en knái Julian
Joachim skoraði tvö fyrstu
mörk Aston Villa á 40. og 51.
mínútu með glæsilegum hætti
og varamaðurinn Paul Merson
skoraði svo þriðja markið á 78.
mínútu. Everton varð fyrir
mikilli blóðtöku strax á 11.
mínútu en þá fauk Alec Cle-
land út af vegna tveggja gulra
spjalda. -GH
Hollensku tvíburabræðurnir Frank og Ronald de Boer halda hér á
keppnistreyjum Barcelona eftir að hafa skrifað undir þriggja ára
samning við spænska stórliðið í gær. Með þeim á myndinni eru
Louis van Gaal, þjálfari Börsunga, og hinn litríki forseti félagsins,
Jose Luis Nunes. Tvíburabræðurnir þökkuðu forráðamönnum
Börsunga fyrir stuðninginn við að fá þá til félagsins en það tók
langan tíma fyrir van Gaal og Nunes að fá forráðamenn Ajax til að
samþykkja kaupin. Símamynd Reuter
Lilleström sagöi
nei við Rúnar
Norska liðið Lilleström neitaði Rúnari Kristinssyni um að fara
til æfinga hjá skoska félaginu Aberdeen. Skoska liðið vildi fá að
sjá Rúnar í leik og ef allt hefði gengið eftir hefði hann tekið þátt
í ágóðaleik gegn Manchester United sem fram fór í gærkvöldi.
„Aberdeen hafði samband við mig í síðustu viku og vildi fá mig til æfinga. Þeg-
ar til kom vildi Lilleström ekki sleppa mér. Félagið er núna búið að selja tvo leik-
menn og leigja þann þriðja til Þýskalands þannig að fjárhagsstaða liðsins er allt
önnur og betri en hún var áöur. Lilleström vill enn fremur fá meira fyrir mig en
áður. Umboðsmaður minn er að skoða málin og ef Lilleström gefur mér leyfi gæti
farið svo að ég fari til Aberdeen í vikunni. Ég er þó ekki bjartsýnn á þáð en því er
ekki að leyna að mig langaði til að fara til skoska liðsins," sagði Rúnar Kristins-
son i samtali við DV í gærkvöld.
Rúnar sagði að Lilleström færi í tveggja vikna æfingaferð til S-Afríku um næstu
helgi.
„Ef ekkert gerist í mínum málum fyrir þann tíma fer ég með liðinu í æfingaferð-
ina. Ég á tvö ár eftir af samningnum við Lilleström og miðað við stöðuna í dag verö
ég hér áfram,“ sagði Rúnar.
-JKS
Kristján Andrésson einn sá efnilegasti í Svíþjóö:
„Mesta efni sem
ég hef þjálfað“
„Hann er mesta efni sem ég hef
nokkm sinni þjálfað," segir sænski
handboltaþjáifarinn Hasse Leon-
ardsson. Sá sem hann talar um er 17
ára íslendingur, Kristján Andrés-
son, sem býr í Eskilstuna í Svíþjóð
og þykir eiga framtíöina fyrir sér.
Ekki bara í handbolta, jafnvel í
knattspyrnu líka.
Fjallað var um Kristján í sænska
blaðinu Folket um helgina og sagt
að hann væri efnilegasti handbolta-
maðurinn í Eskilstuna. Þar leikur
hann sem leikstjórnandi með meist-
araflokki Eskil, sem spilar í D-deild,
og jafnffamt með unglingaliði fé-
lagsins, sem hefur komist í fjögurra
liða úrslit í sænsku meistarakeppn-
inni. í knattspymunni leikur hann
á miðjunni hjá unglingaliði IFK
Eskilstuna.
Áhugann og hæfileikana á Krist-
ján ekki langt að sækja því faðir
hans er Andrés Kristjánsson, sem
lék lengi með GUIF frá Eskilstuna
og islenska landsliðinu.
Valinn af Svíum en vill leika
fyrir ísland
Kristján var nýlega valinn í svo-
kallaðan 2000-hóp sænska hand-
knattleikssambandsins en þar em
efnilegustu handboltamenn Svíþjóö-
ar á aldrinum 16-21 árs. Það lítur
því út fyrir að Svíar séu að ná til sín
efnilegum íslenskum handbolta-
manni.
Kristján segist þó vilja leika fyrir
íslands hönd og feta í fótspor fóður
síns.
Kristján segir við Folket að sér
liggi ekkert á að fara í efstu deildina
í Svíþjóð og hann spili að minnsta
kosti þetta tímabil með Eskil og
með Eskilstuna í fótboltanum út
árið.
„Það hafa nokkur lið spurst fyrir
um mig og ég vil spila í efstu deild.
Hvort það verður meö GUIF eða
öðru liöi kemur í ljós en ef ég mætti
velja vildi ég helst fara til Red-
bergslid," segir Kristján.
Andrés faðir hans segir við blað-
ið að strákurinn ráði ferðinni og
ekkert liggi á að hann velji á milli
handboltans og fótboltans. Hann
missi kannski áhugann á báðum
greinum ef þjálfarar pressi á hann
um að velja á milli. Andrés er held-
ur ekkert ákafur um að Kristján
gerist leikmaður með GUIF. Þar fái
ungir leikmenn fá tækifæri, og lið á
borð við Ystad, Savehof og Red-
bergslid séu vel rekin og sinni þeim
yngri vel.
-VS