Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1999, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1999, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 19. JANUAR 1999 13 Samfylking til sigurs Fram undan eru tímamót í íslensk- um stjórnmálum. Sameiginlegt fram- boð vinstrimanna er orðið að veru- leika. Ný hreyfing vinstrimanna er í burðarliðnum, sem skapar ný sóknar- færi til að leiða hugsjónir jafnaðar- stefnunnar til önd- vegis í íslenskum stjórnmálum. Rétt- læti og jafnrétti eru kjörorð Sam- fylkingarinnar þar sem almannahags- munir eru hafðir að leiðarljósi, en ekki sérhagsmunir fárra. Ný hreyfing Hin nýja hreyfing er á margan hátt afsprengi þeirrar kynslóðar sem nú er að hefja þátttöku í stjórnmálum og nægir að benda á sigurgöngu Röskvu i Háskólanum því til stuðnings. Þar hafa vinstrimenn starf- að saman í einni hreyf- ingu í áratug með góð- mn árangri og því vart til annar möguleiki í hugum þeirra sem þar hafa starfað en að vinstriflokkarnir fylki liði og móti nýja hreyf- ingu utan um hugsjónir sínar og hugmyndir. Þau félagshyggjuöfl sem starfað hafa undanfama áratugi eru ekki að yfir- gefa sól sína og stjörnur fyrir eitthvað sem eng- inn veit hvað er, heldur er markmiðið skýrt; í mótun er fjöldahreyfing utan um hugsjónir rétt- lætis, jafnaðar og kven- frelsis. Virkjum hugvitið Landflótti ungs fólks er yfirvof- andi og er jafnvel hafinn fyrir nokkru, ef marka má könnun sem birtist í Læknablaðinu og leiddi í ljós að fjórir af hverjum tíu læknum koma ekki heim aftur, heldur setj- ast að erlendis þar sem þeir sjá hag sínum betur borgið. Önnur könnun sem gerð var fyrir Stúdentaráð Há- skóla íslands, sýndi fram á að yfir 70% háskólanema myndu flytja er- lendis ef þeir fengju vinnu á sinu starfssviði. Þessari þróun þarf að snúa við. Lausnin er nýsköpun í at- vinnulífi þar sem hugvitið er virkj- að og að auknu fé sé varið til rann- sókna og menntunar. Umhverfismálin eru eitt af stór- málum framtiðarinnar. Það þarf að endurskoða virkjana- og stór- iðjustefnu stjórnvalda og ná sátt við umhverfið. Hálendið býr yfir mörgum perlum sem eru ekki síðri auðlind en virkjanir og stór- iðja og þær ber að vernda. Sátt þarf að nást um málið þar sem viðkvæm náttúr- an nýtur vafans en fallvötnin eru nýtt og virkjuð með hugvitsam- legum hætti. Það ber að tryggja að auð- lindir hafs og jarðar séu í eign þjóðarinnar og að tekið verði upp hóflegt gjald fyrir nýtingu þeirra. Einnig þarf að setja ný hálendislög þar sem hálendið er gert að einu skipulagssvæði undir stjórn al- mannavalds og að rétti til nýting- ar fylgi ákveðnar skyldur. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Kjallarinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson háskólanemi og fram- bjóðandi í prófkjöri samfylkingar „Hin nýja hreyfíng er á margan hátt afsprengi þeirrar kynslóðar sem nú er að hefja þátttöku í stjórnmálum og nægir að benda á sigurgöngu Röskvu í Háskólanum því til stuðnings. Þar hafa vinstri- menn starfað saman í einni hreyfíngu í áratug með góðum ár- angri....u „Lausnin er nýsköpun í atvinnulífi þar sem hugvitið er virkjað og að auknu fé sé varið til rannsókna og menntunar," segir Vilhjálmur m.a. í grein sinni. Stríðið gegn Málefni ungs fólks ber ekki oft á góma hjá fulltrúum yfirvalda. Þegar það gerist eru þau oftast rædd með neikvæðum formerkj- um og þá helst með forskeytinu eða viðhenginu „vandamál". Sér- staklega á þetta við um það þegar ungt fólk og vímuefni eru rædd í sömu andránni. Af þeirri umræðu að dæma mætti ætla að alger meirihluti ungs fólks á íslandi sé' á kafi í áfengisdrykkju og neyslu ólöglegra vímuefna. Ég leyfi mér hins vegar að full- yrða að obbinn af ungu fólki á Is- landi sé í mjög góðum málum. Stundi heilbrigt lífemi, hafi holl og góð áhugamál og sé almennt að fást við hluti sem eru jákvæðir og skapandi. Það er líka einkennilegt hvað umræðan um ungt fólk verður neikvæð á hverju hausti eða um svipað leyti og fjárlagafrum- varp er lagt fram. Allt á floti alls staðar Á hverju hausti upphefst mikill hræðsluáróður þar sem dregin er upp vægast sagt neikvæð mynd af ungu kynslóðinni. Þá er dælt yfir þjóðina ófógrum lýsingum af gif- urlegum fjölda ungmenna sem séu á kafi i dópi, innbrotum og öðram glæpum. Áður en Alþingi fer í jólahlé koma svo fréttir af aukn- um framlögum til lögreglu, flkni- efnalögreglu og meðferðarstofn- ana og allir geta sofið rólegir yfir jólin, eða hvað? Það er þekkt aðferð að hræða fólk upp úr skónum og sefa það svo með hókus-pókusaðgerðum. Öllum á að líða betur með stóra bróður vakandi yflr sér í miðbæn- um, þar sem hann gægist í gegn- um myndavélaraugað. Merkilegt hvað umræðan um þau mál var lítil og að hún snerist alls ekki um almennar meginreglur um frið- helgi. Nú má ekki skilja þessi orð mín þannig að ég telji allt vera í sóm- anum og að ekkert þurfi að gera vegna fólks, ungs og eldra, sem á við vímuefnavanda að stríða. Ég er hins vegar að vekja athygli á því að þessi mál verða ekki löguð „Ég leyfí mér hins vegar að full- yrða að obbinn af ungu fólki á ís- landi sé í mjög góðum málum. Stundi heilbrigt líferni, hafi holl og góð áhugamál og sé almennt að fást við hluti sem eru jákvæð- ir og skapandi.” unga fólkinu með stríðsyfirlýsing- um. Ég hef það stund- um á tilfínningunni að við séum farin að lifa okkur um of inn í bandarísku glæpa- myndina, stórborgar- líf Ameríku sem er ýkt upp í hasarverk- smiðju Hollywood og að við höfum fært þann veruleika yfir á íslenskt samfélag. Að við séum í raun farin að lifa í sýndarvera- leika. Á jaðrinum í hverri kynslóð er hópur sem fer illa út úr vímuefnaneyslu. Þótt þetta sé mikill minnihluti hverrar kynslóðar breytir það ekki því að vandinn er mikill þar sem hann stingur sér niður. Óhófleg vimu- efnaneysla leggur heilu fjölskyld- umar í rúst. En það er engum til hagsbóta að gefa til kynna að unga kynslóðin sé öll eitt meiri- háttar vandamál. Einfaldlega vegna þess að það er rangt. Þeir sem lenda á jaðrinum í þessum efnum ættu fyrst og fremst að vera úrlausnarefni á sviði heilbrigðis- og félagsmála en ekki efni í glæpareyfara í lög- regluskýrslum og fjölmiðlum. Það er ekki heillavænlegt að lýsa yfir stríði og stíga ofan á puttana á þeim sem hanga á samfélagsbrúninni. Það hefúr sýnt sig í Bandaríkjunum að harðari refsingar, lengri fangelsisdóm- ar og dauðarefsing- ar, hafa ekki leyst neinn vanda. Þvert á móti. Þegar ungt fólk lendir í ógöngum og á glapstigum á að skyggnast undir yf- irborðið í lífi þess og reyna að greina þá félagslegu og sál- fræðilegu þætti sem örugglega ráöa mestu um hvemig komið er. Síðan á að styðja þetta fólk og aðstand- endur þess til að feta það við- kvæma einstigi sem lífsbaráttan er og verður alltaf. Við verðum að láta af þeirri áráttu að vilja steypa alla í sama mót. Látum fjölbreytileikann njóta sín og leyfum hverri kynslóð að rækta sín sérkenni. Við eigum sérstak- lega að ýta undir sköpunarkraft unga fólksins og gefa því svigrúm til að vera til og munum orð Ba- stíans bæjarfógeta: „Það er eng- inn svo slæmur að hann geti orð- ið slökkviliðsstjóri." Heimir Már Pétursson Kjallarinn Heimir Már Pétursson frambjóðandi í prófkjöri samfylkingarinnar Með og á móti Á að byggja stórmarkað yfir aðalíþróttavöllinn á Akureyri? Ragnar Sverrísson. Til bóta fyrir íþróttafélögin „Eins og Kaupmanna- samtökin á Ak- ureyri hafa ályktað þá finnst mér skynsamlegt að þetta mál verði rætt og þá á öðrum nótum en ein- ungis þeim til- finningalegu. Það liggur fyrir að miðbærinn á að byggjast í norð- ur á næstu árum og þama er stórt og mikið svæöi sem hægt er að nýta og er mjög áhugavert. Það er ekki spurning í mínum huga að það myndi lífga mikið upp á miðbæinn að fá þama stór- markað. Ég er ekki að segja að þarna eigi að hefjast byggingafram- kvæmdir á morgun, heldur þurfa menn að setjast niðm- i rólegheit- unum og fara yfir þessi mál. Ég veit að það verður ekki gert neitt fyrir þennan gamla völl í mið- bænum en ég sé mikil sóknar- færi fyrir íþróttafélögin að fá þess í stað peninga til uppbygg- ingar á sínum félagssvæðum. Hvers vegna þarf að vera ein- hver sérstakur aðalvöllur í mið- bænum hér frekar en annars staðar. Það er t.d. ekki svo í Hafnarfirði heldur hafa félögin þar fengið myndarlega aðstoð til að byggja upp sín félagssvæði. Ég er ekki í nokkrum vafa að það yrði til mikilla bóta fyrir félögin í bænum að í þetta yrði ráðist og þau fengju þess í stað aukið fjár- magn til uppbyggingar hjá sér.‘ Afleit hugmynd „Mér finnst hugmyndin af- leit. Reyndar taldi ég þegar ég heyrði af henni fyrst að menn væra að grínast, ég trúði ekki að mönnum gæti verið alvara með þessa hug- mynd eins og þó kom á daginn. Það er talað um að ef byggt yrði á Akureyrarvelli ætti að setja aukiö tjármagn til félaganna og byggja upp svæði þeirra. Hjá okkur KA-mönnum er það ein- faldlega ekki hægt því svæðið er svo lítið og ég sé ekki að við leik- um okkar heimaleiki í knatt- spyrnunni annars staðar en á að- alvellinum. Annars er þetta mál fyrir ofan alla félagapólitík að mínu mati. Það að ráðast að hjarta bæjarins og setja þar niður steinkumbalda finnst mér alveg út í hött. Það er búið að taka um 50 ár að byggja upp íþróttavöll Akureyringa og það yrði enn eitt slysið í miðbæj- arskipulagi okkar Akureyringa ef vellinum yrði fórnað fyrir steinkumbalda." -gk Kjallarahöfundar Athygli kjallarahöfunda er vakin á því að ekki er tekið við greinum í blaðið nema þær ber- ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu- diski eða á Netinu. Netfang ritstjórnar er: dvritst@ff.is Stefán Gunnlaugs* son.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.