Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1999, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1999, Blaðsíða 33
ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1999 37 Málverkin eru á Landspítalanum til 8. febrúar. Lífæðar 1999 íslenska menningarsamsteypan Art.is gengst fyrir myndlistar- og ljóðasýningu á sjúkrahúsum víðs vegar um landið og er hún þessa dagana í Landspitalanum og verð- ur þar til 8. febrúar, þaðan fer hún á Sjúkrahús Akraness. Sýningin mun síðar fara á hvert sjúkrahús- ið af öðru og lýkur göngu sinni á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 12. des- ember næstkomandi. í fyrstu var áætlað að sýna á átta sjúkrastofn- unum en áhuginn reyndist svo mikill að beiðnir fóru að berast viða að um að fá sýninguna á stað- inn og nú eru sýningarstaðimir orðnir ellefu. Sýningar Tólf myndlistarmenn sýna sam- tals þrjátíu og fjögur myndverk og tólf ljóðskáld birta átján ljóð.Lista- mennirnir eru á ólíku aldursreki en allir leggja þeir út af lífmu og tilverunni. í raun endurspegla þátttakendur helstu strauma og stefnur i myndlist og ljóðagerð frá siðari heimsstyrjöldinni til dags- ins í dag. Sýningunni fylgir vegleg litprentuð sýningarskrá sem dreift verður ókeypis í boði styrkt- araðila sýningarinnar Glaxo Welcome. Þar er að finna ljóðin ásamt stuttri umfjöllun um hvern listamann. Hilmir Snær Guðnason og Jóhann Sigurðarson í hlutverkum Georgs og Lennys. Mýs og menn Flugfélagið Loftur hefur forsýn- ingu í kvöld á leikritinu Mýs og menn eftir John Steinbeck. Frum- sýning verður síðan á morgun. Sag- an kom fyrst út í Bandaríkjunum 1937 og leikgerð hennar var frum- sýnd í New York í nóvember sama ár. íslensk þýðing Ólafs Jóhanns Sigurðssonar á skáldverkinu leit dagsins ljós árið 1943 en leikritið kom út 1946. Mýs og menn þykir eitt merkasta rit- og leikverk 20. aldar- innar og færði höfundi sínum ómælda virðingu og vegsemd. Leikritið gerist i landbúnaðardal Leikhús í Suður-Kalifomíu á árunum 1936 til 1937 og segir frá félögunum Lenny og George sem eru farandverka- menn. Þeir félagar eru frekar lausir í rásinni og flækjast stað frá stað. Um leið er sagt frá sérstökum vin- skap milli þeirra, annar er tröllvax- inn heimskingi en hinn grannvax- inn og lítill sem leggur sig fram við að vemda og aðstoða risavaxinn vin sinn. Með hlutverk þeirra félaga fara Hilmir Snær Guðnason og Jóhann Sigm-ðarson. Aðrir leikarar em Inga María Valdimarsdóttir, Guð- mundur Ólafsson, Þröstur Guð- hjartsson, Helgi Bjömsson og fleiri. Leikstjóri er Guðjón Petersen. Tón- list, sem er sérstaklega samin við þessa sýningu, er eftir Egil Ólafs- son. Poulenc-tónleikar í Iðnó: Aðgengileg klassík Þóra Einarsdóttir syngur á Poulenc-tónleikum í kvöld. Poulenc-hátíðinni, sem hófst í Iðnó fyrir tveimur vikum, verður framhaldið í kvöld og em á dag- skránni mörg skemmtileg verk eftir þennan franska tónsnilling sem hafði einstaka hæfileika til að semja góð og skemmtileg stef. Francis Pouienc vann fyrir sér með því að leika á píanó á kaffihúsum Parísar- borgar og var lengi vel ekki tekinn alvarlega sem tónskáld - verkin þóttu of léttvæg og fyndin. Nú þykja verk hans hin merkustu og eru mik- ið flutt. Skemmtanir Sex verk eftir Poulenc verða flutt í kvöld: Sónata fyrir flautu og píanó. Fiancailles pour rire fyrir sópran og píanó, Sónata fyrir óbó og píanó, Villanelle fyrir pikkolóflautu og pí- anó, Sónata fyrir píanó, fjórhent og Sextett fyrir flautu, óbó, klarinett, fagott, horn og píanó. Flytjendur eru Þóra Einarsdóttir, sópran, Hall- fríður Ólafsdóttir, flauta, Eydís Franzdóttir, óbó, Ármann Helgason, klarinett, Kristín Mjöll Jakobsdótt- ir, fagott, Anna Sigurbjörnsdóttir, horn, Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanó, Brynhildur Ásgensdóttir, pí- anó, Miklos Dalmay, píanó, og Sól- veig Anna Jónsdóttir, píanó. Tón- leikamir hefjast kl. 20.30. . Um 400 km SSA af hvasst eystra. Frostlaust Homafirði er 962 mb lægð VeOHO I QðS suðaustan til i dag, en frost og þokast hún í norðaust- ____________________________ annars 1 til 6 stig og held- ur. Frá henni er lægðardrag vestur á Grænlandshaf. Yfir Grænlandi er 1015 mb hæð. í dag verður norðaustan stinningskaldi eða aiihvasst og sums staðar hvasst á Austurlandi og Vestfiörðum. Éljagangur og skafrenningur um mestallt norðan- og austanvert landið, en úrkomuhtið á Suð- ur- og Vesturlandi. Norðlægari vindur og nokkuð hægari seinna í dag, en áfram ur harðnandi í nótt. Á höfuðborgarsvæðinu verður norð- austankaldi og síðar norðan stinnings- kaldi og skýjað, en úrkomulaust að mestu. Frost 2 til 4 stig, en 5 til 7 í nótt. Sólarlag í Reykjavlk: 16.32 Sólarupprás á morgun: 10.43 Síðdegisflóð 1 Reykjavík: 19.48 Árdegisflóð á morgun: 08.06 Stórstreymi (4,1 m) Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri snjókoma -2 Bergsstaöir alskýjað -3 Bolungarvík snjóél -2 Egilsstaöir -2 Kirkjubœjarkl. alskýjaö 1 Keflavíkurflv. skýjaó -2 Raufarhöfn alskýjaö -1 Reykjavík alskýjaö -5 Stórhöföi úrkoma í grennd 0 Bergen alskýjaö 6 Helsinki skýjaö 2 Kaupmhöfn léttskýjaö 3 Ósló slydda 1 Stokkhólmur 2 Þórshöfn léttskýjaö 4 Þrándheimur alskýjaö 6 Algarve heiöskírt 6 Amsterdam rigning og súld 6 Barcelona léttskýjaö 8 Berlín heiöskírt 2 Chicago heiöskírt -6 Dublin léttskýjað 10 Halifax alskýjaö 5 Frankfurt skýjaó 5 Glasgow alskýjaö 10 Hamborg skýjaö 5 Jan Mayen snjókoma -4 London rigning 11 Lúxemborg skýjaö 2 Mallorca hálfskýjaö 11 Montreal þokuruöningur 2 Narssarssuaq léttskýjaö -10 New York hálfskýjaö 6 Orlando alskýjaö 16 París 5 Róm þokumóöa 2 Vín þokumóöa -1 Washington hálfskýjað 3 Winnipeg heiöskírt -24 Hálka og skaf- renningur Góð vetrarfærð er á Suðurlandi, Vesturlandi og Norðurlandi en hálka hefur skapast sums staðar, skafrenningur var á Holtavörðuheiði í morgun. Færð á vegum Skafrenningur hefur verið á heiðum á Vestfjörðum og hafa vegir verið mokaðir reglulega. Það sama má segja um heiöar á Austurlandi, þar er færð fljótt að spillast sé ekki mokað. Ástand vega 4*-Skafrenningur 0 Steinkast \5\ Hálka B Vegavinna-aögát 0 Öxulþungatakmarkanir Q) ófært □ Þungfært (g> Fært fjallabílum Frumburður Margrétar og Ágústs Þessi gullfallega stúlka fæddist á fæðingardeild Landspítalans 17. janúar. Bam dagsins Við fæðingu var hún 14 merkur og 50 sm. Stúlkan er fl-umhurður Margrétar Drífu Guðmundsdóttur og Ágústs Guðjónssonar. Edward Norton leikur einn pókerspilarinn í The Rounders. Fjárhættuspil- arar The Rounders, sem Regnboginn sýnir, gerist í New York og segir frá lögfræðinemanum Mike McDermott sem hefur allt sitt líf verið snjall í spilum. Honum gengur vel í skólan- um og á fallega kærustu en vinnur fyrir skólgjöldum sinum meö því að spila póker. Eitt kvöldið tapar hann öllu og hættir spilamennskunni. En þegar fyrrum félagi hans, sem geng- ur undir nafninu Worm, er sleppt úr fangelsi fer hann að spila aftur. Upp frá þessu snýst líf þein'a félaga um póker og er spilað á ýmsum vafasömum stöðum og áður en Mike veit af hefur hann ánetjast spilaflkninni á þann veg sem hann hafði aldrei ætlað sér. ///////// Kvikmyndir ||M Tveir af vinsælustu ungu leikur- unum í Hollywood, Matt Damon og Edward Norton, leika pókerfélag- ana. í öðrum hlutverkum eru Gretchen Mol, John Malkovich, John Turturro, Martin Landau og Famke Janssen. Nýjar myndir í kvikmyndahúsum: Bíóhöllin: Practical Magic Bíóborgin: Enemy of the State Háskólabíó: The Prince of Egypt Háskólabíó: Meet Joe Black Kringlubió: The Waterboy Laugarásbió: Rush Hour Regnboginn: Rounders Stjörnubió: Blóðsugur 4 m K Gengið Almennt gengi LÍ nr. Eininn Kaup Sala Tollqengi Dollar 69,270 69,630 69,750 Pund 114,460 115,040 116,740 Kan. dollar 45,330 45,610 45,010 Dönsk kr. 10,8020 10,8620 10,9100 Norsk kr 9,3090 9,3600 9,1260 Sænsk kr. 8,8390 8,8870 8,6450 Fi. mark 13,5140 13,5950 13,6540 Fra. franki 12,2490 12,3230 12,3810 Belg. franki 1,9918 2,0038 2,0129 Sviss. franki 50,2400 50,5200 50,7800 Holl. gyllini 36,4600 36,6800 36,8500 Þýskt mark 41,0800 41,3300 41,5000 [t. líra 0,041500 0,041750 0,041930 Aust. sch. 5,8390 5,8740 5,9020 Port escudo 0,4008 0,4032 0,4051 Spá. peseti 0,4829 0,4858 0,4880 Jap. yen 0,608300 0,612000 0,600100 írskt pund 102,020 102,630 102,990 SDR 97,140000 97,720000 97,780000 ECU 80,3500 80,8300 81,5700 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.