Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1999, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 19. JANUAR 1999
9
Líst ekkert á
hugmyndir um
herskylduna
Anfinn Kallsberg, lögmaður
Færeyja, er lítið hrifmn af hug-
myndum eins stjórnarflokkanna í
Danmörku um
að ungir Færey-
ingar og Græn-
lendingar verði
að gegna her-
þjónustu til
jafns við unga
Dani, verði
haldið áfram að
hafa herskyldu í landinu.
„Dönsk yfirvöld geta ekki
þvingað herskylduna inn á okk-
ur,“ segir Anfinn Kallsberg í við-
tali við færeyska blaðið Dimma-
lætting í dag.
Högni Hoydal, ráðherra sjálf-
stjómarmála, segir í viðtali við
Sosialurin í morgun að það sé
ekki hluti af menningu Færey-
inga að gegna herþjónustu.
Hillary hlustar á
Bill með öðrum
Hillary Rodham Clinton, for-
setafrú í Bandaríkjunum, sest
niður með tíu fulltrúum „hins
besta í Bandaríkjunurn" í kvöld
til að hluta á stefnuræðu eigin-
manns síns, Bills Clintons.
Tíumenningamir munu sitja í
stúku forsetafrúarinnar í fulltrúa-
deild Bandaríkjaþings. Forsetinn
flytur stefnuræðu sína í samein-
uðu Bandaríkjaþingi. í henni
mun hann meðal annars fjalla um
menntamál og leiðir til að tryggja
öryggi kjamorkuvopna Rússlands
og fyrrum Sovétrikjanna.
Lögmenn Clintons hefja vam-
arræðu sína fyrir ríkisréttinum í
öldungadeildinni í dag. Hvíta hús-
ið reyndi í gær að koma í veg fyr-
ir að vitni yrðu kölluð fyrir.
Hann Guttormur okkar í Húsdýragarðinum þætti sjálfsagt ekki neitt tiltakanlega stór boli stæði hann við hliðina á
þessum drjóla. Stóri Rauður heitir kauði og er til sýnis í Owlcatraz-dýragarðinum á Nýja-Sjálandi. Stóri Rauður veg-
ur hvorki meira né minna en 2060 kíló. Það er sjálfsagt tvisvar sinnum meira en Guttormur vegur, ef hann hefur þyngt
sig jafnmikið og reiknað er með. Stóri Rauður er einhver þyngsti tuddi í heiminum, og skyldi engan undra, 180 sentí-
metrar á hæð upp á bóginn. Heimsmetið á annar tuddi og vó sá rúm 2,2 tonn.
Jeltsín liggur enn
Læknar Borísar Jeltsíns Rúss-
landsforseta ákveða ekki fyrr en á
morgun hvort þeir ætla að skera
hann upp við magasárinu, sem hrjá-
ir forsetann þessa dagana, eða hvort
haldið verður áfram að gefa honum
lyf. Jeltsín var lagður inn á sjúkra-
hús um helgina.
Læknarnir sögðu í gær að hætt
væri að blæða úr magasári Jeltsíns
og því benti allt til að komist yrði
hjá því að skera hann upp.
Israelar ætluðu
að myrða Saddam
ísraelsk sérsveit, Sayeret Matkal,
var í september síðastliðnum tilbúin
með áætlun um að ráða Saddam
Hussein íraksforseta af dögum. Þetta
fullyrðir Uzi Mahanaimi, ísraelskur
fréttaritari breska blaðsins Sunday
Times. Mahanaimi er fyrrverandi
starfsmaður ísraelsku leyniþjónust-
unnar.
Iraksforseti er haldinn ofsóknar-
brjálæði og lætur laga málsverð
handa sér á hverju kvöldi á 20 mis-
munandi stöðum. Hann ákveður síðan
á síðustu stundu hvar hann ætlar að
snæða.
Njósnir í írak leyddu hins vegar í
ljós að Saddam heimsækir með jöfhu
miilibili ástkonu í ákveðnu þorpi.
Heimsóknirnar eru ekki eftir ákveð-
inni áætlun en þegar Saddam birtist
er mynstrið ætið hið sama. Hann gist-
ir og heldur síðan snemma morguns
til herstöðvar. fsraelar fengu síma-
myndir af íraksforseta á leið frá húsi
ástkonunnar. Benjamin Netanyahu,
forsætisráðherra ísraels, á að hafa
veitt samþykki sitt fyrir árás á
Saddam.
Senda átti fjörutíu ísraelska sér-
sveitarmenn með flugvél til íraks. Tíu
þeirra áttu að lenda nokkur hundruð
metra frá þorpi ástkonu íraksforseta
og þaðan átti að skjóta Saddam með
myndbandsstýrðum flugskeytum á
sama augnabliki og hann yfirgæfi hús
ástkonunnar.
Samkvæmt frásögninni í Sunday
Times var hætt við aðgerðina af
tveimur ástæðum. í fyrsta lagi vegna
loftárása Bandaríkjamanna og Breta á
írak. En ekki síst vegna þess að bæði
vamarmálaráðherra ísraels, Yitzhak
Mordechai, og utanríkisráðherrann,
Saddam Hussein íraksforseti.
Símamynd Reuter
Ariel Sharon, voru mjög andvígir
áætluninni. Þeir trúðu því ekki að
upplýsingamar frá írak væru sannar.
Það virðist hins vegar ekkert leynd-
armál lengur að sérsveitin Sayeret
Matkal æfði árás á Saddam í leynileg-
um bækistöðvum fyrir tveimur árum.
Þegar kynna átti aðferðina fyrir ísra-
elsku herstjóminni urðu mistök. Ekta
flugskeyti var óvart skotiö í mark og
fimm ísraelskir hermenn létu lífið.
Greint var frá atvikinu í erlendum
fjölmiðlum en israelsk yfirvöld hafa
aldrei staðfest það.
Sayeret Matkal er best þjálfaða sér-
sveit ísraelshers. Netanyahu hefur
verið einn af liðsmönnum sveitarinn-
ar. Ehud Barak, sem vill verða næsti
forsætisráðherra ísraels, var einnig í
sérsveitinni og tók þá þátt í morði á
Palestínuleiðtoga í Beirút.
Btlasalan
Skeifnnni 5
Nýr bíll, ek. aðeins 1.400 km.
Einn með öllu (nema sóllúgu), ABS,
ssk., geislaspilarí, leður.
Verð 3.890.000 stgr. Engin skipti.
5
ara
m
564 6000
Bílaleiga
Erumfluttir á Smiðjuveg 1 Kópavogi
Visa
Euro
&
Toyota Corolla - Plymouth Grand Voyager 4x4, 7 manna - Dodge Stratus
Dodge Dakota pickup, m/camper- Dodge Caravan, 7 manna - Suzuki Sidekick