Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1999, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 1999
Fréttir
## Grímuklæddur og vopnaöur maður rændi söluturn í Breiöholti:
Oskraði peningana strax
- segir Guörún Valsdóttir afgreiðslustúlka sem var ein í versluninni King Kong
„Hann ruddist inn grímuklæddur
og öskraði: „Peningana strax.“ Hann
var með eggvopn í hendi og mér brá
auðvitað gífurlega en sagði honum að
slaka á,“ segir Guðrún Valsdóttir, af-
greiðsustúlka í söluturninum og víd-
eóleiguna King Kong í við Eddufell í
Breiðholti, sem varð fyrir þeirri iífs-
reynslu í gærkvöld að grimuklæddur
og vopnaður ræningi ruddist inn í
verslunina þar sem hún var ein við af-
greiðslu. Maðurinn var í grárri hettu-
peysu og með svarta grímu.
Guðrún segir manninn hafa látið
þannig að hann hafi verið til alls vís.
„Hann öskraði geðveikislega og ég
gerði mér strax grein fyrir því að ég
yrði að láta í öllu að vilja hans og af-
nokkrum árum þar sem ráðist var á
unga stúlku í verslun við Hraunberg.
Hún segist hafa starfað í versluninni í
eitt ár og hún hafi fyrir löngu verið
ákveðin í því að streitast ekki á móti
ef hún lenti í þeirri stöðu að reynt
yrði að ræna verslunina.
„Ég ákvað þvi að láta hann hafa
peningana umsvifalaust. Ég hef aldrei
lent í öðru eins og er skjálfandi á
beinum og enn þá með hnút í magan-
um,“ sagði Guðrún við DV skömmu
eftir ránið. Á myndbandsupptöku frá
ráninu kemur fram að ræninginn
stoppaði 30 sekúndur áður en hann
hafði sig á brott með ránsfenginn.
Lögreglan leitaði mannsins í gær-
kvöld en hann hafði ekki fundist þeg-
Hér er lögreglan að rannsaka vettvang ránsins í söluturninum King Kong við
Eddufell eftir að grímuklæddur maður hafði ógnað afgreiðslustúlku með
eggvopni og rænt verslunina. Guðrún Valsdóttir er hér ásamt eiganda versl-
unarinnar og lögregluþjóni. DV-myndir HH
henda peningana," segir hún.
„Hann barði með skaftinu og henti
í mig hvítum plastpoka og skipaði
mér að láta peningana í hann. Þetta
var gífurlegt áfall og mér brá alveg
rosalega. Ég þorði ekki annað en láta
hann hafa peningana frekar en taka
áhættuna af því að hann myndi skaða
mig,“ segir hún.
Guðrún segir að sér hafi verið í
fersku minni frásögn í DV fyrir
ar DV fór í prentun. Þetta er þriðja
ránið í söluturnum á skömmum tíma.
Áður voru rændar verslanir við
Grundarstíg og í Stórholti. Eigandi
verslunarinnar harðneitaði í gær-
kvöld að gefa DV upplýsingar um hve
háa íjárhæð ræninginn hafði á brott
með sér. Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu nemur ránsfengurinn 30
þúsundum króna.
-rt
Guðrún Valsdóttir afgreiðslustúlka horfir á ræningjann á sjónvarpsskjá og
lögreglumaður skráir hjá sér framburð hennar.
Trilla strandaði
DV, Vestmannaeyjum:
Á sjöunda tímanum í gærmorgun
var lögreglunni í Vestmannaeyjum
tilkynnt að trillan Þórdís Guðmunds-
dóttir hefði strandað á Nýjahrauninu
á móts við Klettsnef. Tveir menn voru
um borð og tókst þeim að komast í
land af sjálfsdáðum. Ekki vilja skip-
verjar tjá sig um hvað gerðist en að-
stæður á strandstað eru erfiðar.
Þórdís Guðmundsdóttir var á leið í
róður þegar hún strandaði. Veður var
gott en nokkur kvika, skyggni gott en
náttmyrkur. Lögreglan segir að triíl-
unni hafi verið siglt á klettsnef sem
stendur út í sjóinn en austan við það
kemur lítil vik með stórgrýtisfjöru.
Trilian barst inn í víkina að stórum
steini. Segir lögreglan að skipverjar
hafi náð að kalla í Loftskeytastöðina
og segja hvernig komið var en höfðu
ekki tíma til að bíða eftir svari.
Stukku þeir upp á steininn þaðan sem
þeir komust í land. Þá tók við erfið
ganga yfir úfið hraunið þangað til
þeir komust að útsýnispalli á móts við
Klettsvík. Þar náðu þeir bíl sem ók
þeim í bæinn.
Að sögn lögreglu voru skipverjarn-
ir blautir upp að mitti og eitthvað
lemstraðir. Voru þeir færðir á sjúkra-
hús til rannsóknar en fengu að fara
heim að skoðun lokinni. Hvorugur
mannanna vildi tjá sig um atburðinn
við DV og erfitt er að gera sér grein
fyrir hvort þeir hafl verið í lifshættu.
Aðstæður á þessum stað eru erflðar
en lán var að brim var ekki meira en
raun ber vitni.
Björgunarbáturinn Þór var strax
kallaður á vettvang en þegar hann
kom á staðinn voru mennirnir farnir
landleiðina. Menn úr Björgunarfélagi
Vestmannaeyja unnu að björgun trill-
unnar og átti að draga hana út í gær.
Trillan er mikið brotin og sennilega
ónýt. -ÓG
Vinstri hreyfingin - grænt framboð:
Jöfnuður og samábyrgð
- segja nýkjörnir forystumenn
„Þetta hefur verið kraftmikiil fund-
ur og gott upphaf á okkar baráttu,"
sagði Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri hreyfingarinnar -
græns framboðs, í samtali við DV á
stofnfundi samtakanna sl. laugardag.
Tillögur uppstillingarnefndar um
stjórnarmenn voru samþykktar með
lófaklappi á fundinum. Stjórnina
skipa þau Steingrímur J. Sigfússon al-
þingismaður, sem er formaður, vara-
formaður er Svanhildur Kaaber, gjald-
keri er Tryggvi Brynjólfsson og ritari
Jóhanna Harðardóttir.
Svanhildur Kaaber varaformaður
og Steingrímur formaður sögðust vera
þess fuOviss að samtökin ættu sér
framtíð. Þau væru lifandi stjómmála-
hreyfmg með stuðning úti í þjóðfélag-
inu sem ætlaði sér framtið og þar á
meðal að vera inni á Alþingi með sína
rödd. „Við viljum vera málsvarar
jöfnuðar og samábyrgðar í þjóðfélag-
inu. Fólk þolir ekki lengur það sem
það hefur búið við að undanförnu í
þeim efnum. Varðandi þingstyrk þá
snýst þetta ekki eingöngu um magn
heldur fyrst og fremst um gæði og að
þau málefni sem við berjumst fyrir
eigi sér verðugan málsvara á Al-
þingi,“ sagði Svanhildur Kaaber,
varaformaður Vinstri hreyfingarinn-
ar - græns framboðs.
-SÁ
Varaformaður og formaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, Svan-
hildur Kaaber og Steingrímur J. Sigfússon. DV-mynd ÞÖK
Stuttar fréttir i>v
Banaslys
Banaslys varð í Önundarfirði á
föstudaginn þegar tveir bílar
skullu saman á einbreiðri brú.
Kona á fertugsaldri lést við árekst-
urinn. Hún var barnshafandi en
ekki tókst að bjarga lífi barnsins.
Hussein viðfelldinn
Davið Oddsson segist oft hafa
hitt Hussein Jórdaníukonung sem
féll frá um helg-
ina. Hann segir
Hussein hafa
verið afskap-
lega viðfeldinn
og lausan við
rembing. Sjón-
varpið sagði frá
þessu.
Hussein hjálpaði Gísla
Hussein Jórdaníukonungur átti
stóran þátt í að Gísli Sigurðsson
var látinn laus úr gíslingu í
Bagdad fyrir níu árum. Vigdís
Finnbogadóttir, þáverandi forseti
íslands, bað hann um aðstoð og
svo virðist sem tengsl Jórdaníu-
konungs við Saddam Hussein hafi
haft úrslitaáhrif við lausn máls-
ins. RÚV sagði frá.
Konur með Samfylkingu
í könnun Frjálsrar verslunar á
fylgi stjórnmálaflokkanna kemur
fram að meirihluti kvenna í
Reykjavík myndi kjósa Samfylk-
inguna ef kosið væri nú. Fylgi
Samfylkingar á landsvísu sam-
kvæmt sömu könnun er 31%. Stöð
2 sagði frá þessu.
Barnaspítala frestað
Embættismenn Reykjavíkur-
borgar viðurkenna að mistök hafi
orðið þess valdandi að byggingar-
leyfl nýs barnaspítala Hringsins
hafi verið fellt úr gildi. Bygging-
arframkvæmdir munu frestast i
nokkra mánuði vegna þessa. Stöð
2 greindi frá þessu.
Laxness á farandsýningu
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra opnar á morgun farand-
sýningu um
ævi og störf
Halldórs Lax-
ness í Varsjá.
Þetta er i fyrsta
sinn sem sýn-
ingin er sett
upp en fram-
vegis verður
hún notuð til að kynna skáldið og
verk hans víða um heim.
Óeining Samfylkingar
Óeining ríkfr innan Samfylking-
ar á Vesturlandi með fyrirkomu-
lag um val á framboðslista. Al-
þýðuflokksmenn höfnuðu tillög-
um sem samráðsnefnd flokkanna
þriggja hafði samþykkt. Innan Al-
þýðuflokks er talsverð ólga vegna
þessa. Stöð 2 sagði frá.
Djáknar vígðir
Djáknavígsla fór fram í Dómkirkj-
unni í gær. Karl Sigurbjörnsson,
biskup íslands, vígði þar Qórar kon-
ur til líknar- og fræðslustarfa í
kirkjum og utan þeirra. Þar af mun
ein starfa á vegum Félags aðstand-
enda alzheimersjúklinga.
Lausaganga leyfð
Ekki er í áfangaskýrslu um að-
gerðir til að halda búfé frá þjóðveg-
um landsins gert ráð fyrir að
lausaganga búíjár verði alfarið
bönnuð. Telja höfundar skýrslunn-
ar algert bann óraunhæft og muni
einungis verða til að drepa málinu
á dreif. Sjónvarpið sagði frá.
Ingibjörg í Færeyjum
Opinber heimsókn Ingibjargar
Pálmadóttur heilbrigðisráöherra
til Færeyja hefst
í dag. Hún mun
þar m.a. ræða
möguleika á
læknisþjónustu
fyrir færeyska
sjúklinga á ís-
landi. Ingibjörg
mun jafnframt
heimsækja Ríkisspítalann í Kaup-
mannahöfn í vikunni.
-KJA