Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1999, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1999, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 1999 15 Einræðuríkið ísland Það er algengur mis- skilningur að íslenskt samfélag sé svo gagn- sætt og opið, þvert á móti, sennilega er vandfundið í Evrópu samfélag sem býr við öllu meiri upplýsinga- teppu. Sennilega yrði að leita til einræðis- ríkja til að finna sam- svörun. ísland er ein- ræðuríki. Andlega búum við ugglaust enn að hinu mikla íslenska dreifbýli sem hefur ver- ið hlutskipti þjóðarinn- ar allt ffam á síðustu áratugi. Menn töluðu við sjálfa sig í teignum og við gegningar og hittu ekki náungann nema tilfallandi við messur og smalamennsku. „Þetta er misskilningur" íslenskir fjölmiðlar eru fullir af mönnum sem eru að tala við sjálfa sig, það heyrir til undantekninga ef íslendingar mætast með rökum, hlýða á málflutning andstæðings og standa fyrir sínu máli. Ef íslenskur ráðamaður heyrir andstæða skoðun er viðkvæðið jafnan: „Þetta er misskiln- ingur“, sem í raun þýðir: „Þetta. er ekki minn skilning- ur“, undanskilið: „það er ég sem ræð.“ Ein afleiðing ein- ræðufársins ís- lenska er svo hið hrikalega klúður sem dembist yfir okkur í hverju mál- inu á fætur öðru um þessar mundir. Og sér ekki fyrir endann á þeirri þróun eftir að innlendar stofnanir hættu að telja sér skylt að ganga í fótspor stjómvalda á hverjum tíma. - í fyrra var það Ríkisendur- skoðun, Hæstiréttur í ár. Og álengdar stendur Evrópa með mælikvarða og viðmiðanir sem stjómvöld geta ekki endalaust þeg- ið okkur undan. Andlegur skyrbjúgur Umræðu- og upplýsingaskortur- inn er hinn andlegi skyrbjúgur sem íslenska þjóðin á við að rjá í nútímanum. Hér þarf söl og C- vítamín, það er að segja upplýsta fréttamenn og öflugar fréttastofur sem vekja, ffamfylgja og stjórna umræðu. Ef ráðherra víkur sér undan að mæta í viðtal þá á að sjálfsögðu að greina frá því í fréttatímanum, það er stórfrétt. Vel mætti hugsa sér heilan Kast- ljósþátt þar sem enginn mætti til leiks nema stjórnandinn og væri svo upplýsandi um þögnina í ís- lensku samfélagi. Sumir hafa talið upplýsinga- og rökræðutregðu ís- lenskra ráðherra stafa af sjálfu starfsheitinu, að maður sem beri þennan ægilega titil „ráðherra" geti aldrei gagn- ast mannlegu fé- lagi. • Auðvitað myndu heiti á borð við ráðsmað- ur og ráðskona ríma betur við staðreyndir mála, nefnilega að þau eru ekki húsbændur á þjóðarheim- ilinu heldur þjónar. Forsætisráð- herra mætti vel kenna sig við bú- stjórn. Jóhanna Sigurðardóttir, bústýra - það hljómar ekki illa. Pétur Gunnarsson Kjallarinn Pétur Gunnarsson rithöfundur „Ef ráöherra víkur sér undan að mæta í viðtal þá á að sjálfsögðu að greina frá því í fréttatímanum, það er stórfrétt. Vel mætti hugsa sér heilan Kastljósþátt þar sem enginn mætti til leiks nema stjórnandinn og væri svo upp- lýsandi um þögnina í íslensku samfélagi.“ . ^*^***^ ^d3ski Pétur segir umræðu- og upplýsingaskortinn áberandi, hér skorti upplýsta fréttamenn og öflugar fréttastofur sem veki, framfylgi og stjórni umræðu. - Á fréttastofu Ríkissjónvarpsins. Réttindi mín í flestum grunnskólum landsins er nú orðið fáanlegur litill bæk- lingur sem ber heitið „Réttindi mín“ og á að vera upplýsingarit fyrir börn og unglinga. í kjölfarið hefur umboðsmaður bama heim- sótt skólana, sagt nemendunum frá réttindum þeirra og leiðb'eint þeim hvemig þeir geti haft sam- band við umboðsmanninnn, ef á rétt þeirra sé gengið. Réttindi eru afstæð Heimsóknir umboðsmanns bama hafa mælst misjafnlega vel fyrir. Aðalerindi hans hefur verið að skýra frá réttindum, en þeim fylgja vitaskuld einnig ábyrgð og skyldur. Því miður hefur fram- setningin verið þannig, að minna hefur farið fyrir hinu síðarnefnda. Þó geta réttindi mín aldrei verið svo mikil, að þau fari að skerða réttindi hinna. Þess vegna eru öll réttindi afstæð og er oft undir ein- staklingnum sjálfum komið hvort hann skilji þessa einfóldu stað- reynd. Um þessa togstreitu milli mismunandi sjónarmiða vitnar meðal annars uppgjöf kennarans í Austurbæjarskóla. Réttindi ailra fara ekki alltaf saman Samkvæmt yfirlýstu markmiði skólayfirvalda hér á landi eiga öll börn að fá kennslu við sitt hæfi. Þetta átti í raun að þýða að öll börn geti not- að hæfileika sína til fulls. Eins og ástandið er nú í grunnskólum er þetta í flestum tilfellum draum- sýn ein. Ein or- sökin er sú að sumum nemend- um - og kennurum - er leyft að traðka á rétti hinna. Þessi rétt- indabrot fara fram á margvíslegan hátt: Sum börn trufla kennsluna, önnur leggja félaga sína í einelti, önnur vinna spelivirki af ein- skæru hugsunarleysi, en önnur eru ef til vill veik á þann hátt að ekki geta farið saman kröfur á hendur þeim og öðrum í sömu stofu. Bæði skólinn og aðstandendur barn- anna verða að dansa línudans sem erfitt er að ná jafnvægi í og mat á aðstæðum oft á tíðum huglægt. Agaleysi stuðlar að ójöfnuði Nýlegar erlendar rannsóknir hafa leitt í ljós að um 60% náms grunnskólabama fer fram heima en 40% í skóla. Bendir þetta til þess að tími barnanna í skólanum sé mjög illa nýttur. En um leið þýðir þetta að böm vel menntaðra foreldra hafa margfalt sterkari stöðu en þau böm sem ekki eiga slíka foreldra. Námsefnið hefur nefnilega breyst svo mikið undanfarin ár að oft er ekki á færi venjulegra foreldra að hjálpa unglingum sem em komnir í 9.-10. bekk. Eins og ástandið er nú er hægt að fullyrða að grunn- skólinn vinnur á móti jöfnuninni þar sem allir hafa ekki möguleika á þessari 60% „auka- kennslu" sem fram fer heima fyrir. Vit- neskjan um þetta er enn átakanlegri, er við hugsum til þess að á sama tíma krefj- ast bæði foreldrar og skólayfirvöld þess að nemendur dvelji enn lengur í skólanum daglega. Tillitssemi og sjálfsagi Til að geta breytt þessu og jafnað stöð- una verðum við að skapa vinnufrið, svo að hægt sé að full- nýta skólatíma barn- anna og gefa kennurum tækifæri til að gegna fræðarahlutverki sínu. Bömin okkar eiga rétt á því. Öll börn - ekki bara sum - verða að læra tillitssemi og sjálfsaga, sjálfsaga, sem sprottinn er af þeirra eigin löngun til að gera rétt. Námsefnið lífsleikni, sem er á stefnuskrá nýja skólans, ræður vonandi einhverja bót á þessu en hlutverk foreldra og ábyrgð þeirra á félagslegiú stöðu bama sinna er þó langmikilvægast. Marjatta ísberg „Öll börn - ekki bara sum - verða að læra tillitssemi og sjálfsaga, sjáifsaga sem sprottinn er af þeirra eigin löngun til að gera rétt. Námsefnið lífsleikni, sem er á stefnuskrá nýja skólans, ræður vonandi einhverja bót á þessu...“ Kjallarinn Marjatta ísberg fil. mag. og kennari 1 Með og á móti Bankar annist húsnæðis- lán í stað íbúðalánasjóðs Óþarfa bákn „Það er fullkommn óþarfi fyr- ir ríkisvaldið að standa í lána- starfsemi eins og þeirri sem íbúðalánasjóður sér um í dag. Það er margt sem styður þetta. Það eru starfandi margir bankar og lífeyrissjóð- ir sem eru að hasla sér völl á þessum mark- aði og erlendir aðilar einnig. Og því ber Guðlaugur Þór Þórðarson borgar- fulltrúi. einmitt að fagna. íbúðalánasjóður er að þvælast fyrir í íbúðalánastarf- sem á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Öðm máli gegnir um lán til bygginga eða kaupa á hús- næði á ákveðnum svæðum úti á landsbyggðinni. Þar er hægt að taka slíkar lánveitingar fyr ir sér- staklega út frá byggðaforsendum og einhver minni háttar starf- semi getur verið um þann þátt íbúðalána. En bankakerfið er fyllilega í stakk búið að annast höfuðborgársvæðið og mörg þétt- býlissvæði úti á landi. Ef hið op- inbera vill aðstoða fólk við að kaupa íbúð getur það komið til skjalanna með ýmsum öðmm hætti. Vaxtabætur í núverandi formi er reyndar óskynsamleg leið þar sem hún hvetur til skuldasöfnunar. Nær væri að fara þá leið að veita skattaafslátt og beina styrki.“ Gunnar Bragi Sveinsson, aðstoó- armaður félags- málaráöherra. Allir fá sömu kjör „Því ber að fagna þegar bank- ar og aðrar fjármálastofnanir vilja auka þjónustuna viö lands- menn. Verkefni íbúðalánasjóðs er m.a. að tryggja lands- mönnum öllum sama rétt til lána og á sömu kjörum. Treysti aðrir sér til þess að bjóða sömu þjónustu er ekkert nema gott um það að segja. Hins vegar hefur ekki komið fram hvort þessir að- ilar muni bjóða öllum lands- mönnum að sitja við sama borð. Spyrja má hvort þeir ætli sér eingöngu aö horfa á höfuðborgar- svæðiö en ætli ekki að lána til íbúða á landsbyggðinni þar sem erfiðara hefur reynst aö selja íbúðir. Einnig vitum við ekki hvort kjðrin yrðu þau sömu. Þá má ekki gleyma því að íbúða- lánasjóður hefur félagslegu hlut- verki áð gegna og það gerir hann með því að veita svokölluð við- bótarlán þannig að heildarlán getur orðið allt að 90%. Ég end- urtek að fagna ber aukinni þjón- ustu en íbúðalánasjóður þarf að vera til í einhverri mynd meðan aðrir geta ekki tryggt öllum sama aðgang að íjármagni til íbúöakaupa." -hlh Kjallarahöfundar Athygli kjallarahöfunda er vakin á því að ekki er tekið við greinum í blaðið nema þær ber- ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu- diski eða á Netinu. Netfang ritstjómar er: dvritst@ff.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.