Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1999, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 1999
13
Fréttir
Eignarhaldsfélagið Nýherjabúðir:
Stuðlar að nýsköpun
og þróun atvinnulífs
Eftirlitsspeglar
Eftirlitsplastspeglar.
Þvermál: 30, 45 og 65 cm.
Flatir plastspeglar, allar stærðir.
Öryggisftlma á gler, 300% sterk.
Brunastigar ál/stál, kr. 4.800
Öryggistæki á kassa, hurðir
og glugga, kr. 2.800.
Dalbrekku 22, sími 544 5770 f
Síldarverkun lokið
DV, Seyðisfirði:
Seint í nóvember var frétt í blað-
inu frá Strandarsíld þar sem sagt var
frá því að nótaveiðarnar hefðu geng-
ið verr heldur en undanfarin haust.
Hér eystra fjaraði veiðin svo smám
saman út en glæddist nokkuð fyrir
vestan land og hefur væntanlega tek-
ist nokkum veginn að uppfylla fyrir-
framgerða sölusamninga.
DV talaði nýlega við Sigfínn Mika-
elsson, framkvæmdastjóra hjá
Strandarsíld, um gang mála á síldar-
vertíðinni. Hann segir að fyrirtæki
sitt og fóður síns, Mikaels Jónssonar,
hafi byrjað á síldarsöltun 1983 og oft-
ast verið í hópi hæstu söltunar-
stöðva. Sama hafi átt við um fryst-
ingu eftir að hún hófst að marki.
Þeir hafi síðar oft sótt um síldar-
kvóta fyrir stöðina til að tryggja sér
skip til að landa hjá sér. Þeir hafi
samt ávallt fengið neitun - og ennþá
- eftir fimmtán ára starf við góðan
orðstír. Sigfmnur bendir á að síldar-
verkunarstöðvar sem ekki ráði yfir
síldarkvóta standi ekki jafnfætis hin-
um í samkeppninni um hráefnið.
Þetta segir hann að sé vaxandi
vandamál því síldarkvótinn er
stöðugt að færast á færri hendur - og
er ennþá eitt dæmi um slæm áhrif
kvótakerfisins. Sigfmnur segir að hér
hafi fyrir fáeinum árum verið tveir
togarar og fjöldi smærri báta. Nú sé
aðeins einn togari og fáeinar trillur
eftir og rúmur helmingur veiðiheim-
ilda horfnar úr byggðarlaginu.
Strandarsíldarfeðgar réðu á haust-
dögum 15 Pólverja til starfa vetrar-
langt en þá ólu menn ennþá þá von í
brjósti að loðnufrysting yrði mark-
tæk fyrir sömu markaði og fyrr. Þær
vonir hafa dvínað og þurfti að huga
að öðrum verkefnum. Verkun á bol-
fiski var nærtækust.
Þegar talað var við Sigfínn hafði
bolfiskvinnslan staðið í rúman hálf-
an mánuð. Hann segir að Pólverjam-
ir séu úrvalsfólk sem leggi sig fram
við að ná tökum á vinnubrögðunum
og vinnslan gangi því ágætlega.
Frámunalega óstöðugt og risjótt veð-
urfar hefur torveldað sjósókn og
framboð á fiski hefur verið lítið en
Sigfinnur segir að vonandi standi
það til bóta. -JJ
Hluti Pólverjanna sem vinna hjá Strandarsíld.
DV-mynd JJ
DV, Höfn:
Eignarhaldsfélagið Nýherjabúðir
var formlega stofnað á Höfn 28. jan-
úar. Tilgangur félagsins er að stuðla
að nýsköpun og þróun atvinnulífs,
einkum fyrirtækja sem byggjast á
þekkingu, nýsköpun og auka fjöl-
breytni í atvinnulífinu. Tilgangur-
inn er einnig að eiga og reka fast-
eignir, kaup og sala hlutabréfa og
tengd starfsemi, svo sem lánastarf-
semi.
Fyrsta verkefni Nýherjabúða er
þátttaka í stofnun Hvata ehf., fyrir-
tækis sem er að undirbúa vinnslu
ensíms úr humarúrgangi.
Dóra Stefánsdóttir, framkvæmda-
stjóri Nýherjabúða, segir að búið sé
að sækja um lóð og byggingarfram-
kvæmdir hefjist á næstunni. Fyrsti
áfangi Nýherjabúða verður um 600
fm og byggður þannig að auðvelt
verði að stækka húsið eftir þörfum.
Miðað verður í fyrsta áfanga við
Frá stofnfundi Nýherjabúða. Dóra Stefánsdóttir, Eyjólfur Guðmundsson og
Halldór Árnason kynna lög og reglur félagsins. DV-mynd Jl
að þar verði fimm fyrirtæki í ný- hafa Borgey og Skinney, sem nú eru
sköpún á tækni- og vísindasviði og sameinuð, sýnt mikinn áhuga á að
vera þarna með eins konar þróunar-
deild. Einnig er talað um rannsókn-
arstofu fyrir gerla- og efnafræði.
„Gert er ráð fyrir fimm fyrirtækj-
um sem yrðu í almennum rekstri
sem beindist að einhverju leyti að
Nýherjabúðum," segir Dóra, „t.d.
öflugt tölvufyrirtæki og svo útibú
frá opinberum stofnunum og þá
fyrst og fremst frá Háskóla íslands
sem við erum að reyna að fá í sam-
starf með okkur og svo Hafrann-
sóknastofnun íslands og Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins. Síðan
yrðu fyrirtæki sem Nýherjabúöirn-
ar rækju sjálfar og útibú frá At-
vinnuþróunarfélagi Austurlands.
í athugun hefur verið hvort til
greina komi að tengja á einhvern
hátt byggingar yfir Framhaldsskóla
Austur-Skaftafellssýslu og Nýherja-
búðir og er það til athugunar í
menntamálaráðuneytinu. Nokkuð
ljóst er þó að ekki verður byrjað á
skólanum fyrr en á næsta ári.“
Dóra segist mjög bjartsýn á að
Nýherjabúðir eigi eftir að skila góð-
um árangri í atvinnulífi bæjarins.
Stjórn Nýherjabúða ehf. skipa
Eyjólfur Guðmundsson skólameist-
ari og jafnfram formaður, Sturlaug-
ur Þorsteinsson, fyrrverandi bæjar-
stjóri, Gunnar Vignisson, Atvinnu-
þróunarfélagi Austurlands, Rögn-
valdur Ólafsson, Háskóla íslands,
Tryggvi Þórhallsson lögfræðingur
og framkvæmdastjóri er Dóra Stef-
ánsdóttir. -JI
ALLIR SUZUKI BlLAR ERU MEÐ:
• vökvastýri • 2 loftpúða •
• aflmiklar vélar • samlæsingar •
rafmagn i rúðum og speglum •
• styrktarbita í hurðum •
• samlitaða stuðara •
Metsölubíll í Japan
Ódýrasti 4x4 bíllinn á íslandi
* Skemmtilegur bíll sem hægt er aö breyta
1 Öruggur Suzuki fjölskyldu- og fjölnotabíll með
ABS hemlalæsivörn (4x4), loftpúðum o.m.fl.
IDRIFI
*
SUZUKI
SUZUKIBILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is
WAG0N R+
TEGUND: VERÐ:
GL 1.099.000 KR.
GL 4x4 1.299.000 KR.
Aukin samvinna hjá
Hugin og Hetti
DV, Seyðisfirði:
Síðustu ár hafa
skíðadeildir Hugins á
Seyðisfirði og Hattar á
Egilsstöðmn haft tölu-
verða samvinnu um
rekstur skíðasvæða
sinna sem eru sitt
hvorum megin Fjarð-
arheiðar. Sú sam-
vinna hefur reynst
ávinningur beggja. Nú
hefur verið ákveðið að
starfa mikið saman í
knattspyrnumálum í
sumar.
DV talaði um þessi
mál við Hjört Unnars-
son, formann knatt-
spyrnudeildar Hug-
ins. Hann segir að félögin verði með
sameiginleg keppnislið í meistara-
flokkum karla og kvenna og öðrum
flokki karla. Formlega sé búið að
stofna keppnislið Hugins-Hattar. Að
sjálfsögðu að undangengnu sam-
Hjörtur Unnarsson, formaöur
knattspyrnudeildar Hugins.
DV-mynd JJ
þykki KSÍ og búið er
að skrá Hugin-Hött á
íslandsmótið á kom-
andi sumri.
Fullkomins jafn-
réttis verður gætt til
hlítar og ráðnir eru
tveir þjálfarar, ann-
ar fyrir karlaliðin og
hinn fyrir kvennalið-
in. Æft verður
tvisvar í viku á hvor-
um staðnum og
heimaleikjum síðan
skipt jafnt á milli
staðanna.
Þessi samvinna
kom fyrst til um-
ræðu fyrir tveimur
árum en þá var ekki
nægur áhugi og
fannst sitthvað mæla á
monnum
móti henni. Nú hefur þetta breyst
og þessi samvinna er veruleiki og
eru menn nú vongóðir um að þetta
efli félagsandann og styrki og bæti
knattspymuna. -JJ