Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1999, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999
5
Fréttir
Hákon Rúnar Jónsson, 22 ára, sem sífellt ógnar fólki meö vopnum og rænir verslanir:
Fimmfaldur ræningi talinn
vera stofnanamatur
- talsmaöur fangelsismálastofnunar segir 11-11 ránið ekki koma á óvart
Ungi maðurinn sem var
handtekinn eftir að hafa rænt
verslun 11-11 við Norðurhrún
síðastliðið fóstudagskvöld, Há-
kon Rúnar Jónsson, 22 ára, hef-
ur áður verið dæmdur fyrir
Qögur vopnuð rán. Aðeins rétt
vika var liðin frá því að Hákon
slapp út úr Hegningarhúsinu
þangað til hann framdi Norður-
brúnarránið. Hann var þá kom-
in á reynslulausn, búinn að
ljúka 2/3 hlutum afþlánunar á
3ja ára og 6 mánaða fangelsis-
dómi sem var kveðinn upp í
nóvember 1996.
Erlendur Baldursson, af-
brotafræðingur hjá Fangelsis-
málastofiiun, segir að vonir
manna standi til þess að Há-
kon verði nú dæmdur til af-
plánunar á heilbrigðisstofh-
un, helst á Sogni - það hafi í
sjálfu sér ekki komið á óvart
að maðurinn hafi farið strax
aftur út í að fremja afbrot sé
hliðsjón höfð af ungum aldri
en löngmn síbrotaferli hans.
Hann hefur mjög þurft á geð-
læknis- og sálfræðiaðstoð að
halda síðastliðin misseri.
17 ára í síbrot
Þann 25. október 1993 var Há-
kon 17 ára. Hann var þá dæmd-
ur í 2ja mánaða fangelsi skil-
orðsbundið fyrir þjófnaö og
ljársvik. Tæpum tveimur árum
síðar, 28. apríl 1995, var hann
búinn að fremja tvö vopnuð
rán, skjalafals og fleiri auðgun-
arbrot. Ránin, sem áttu sér stað
I Effeltuminum við Leirubakka
og Áskjöri við Ásgarð, þóttu al-
varlegust. Hákon hóf í raun af-
plánun strax eftir að hann var
handtekinn, í febrúar 1995 en
var sleppt út á reynslulausn
(2/3) í júní 1996.
Ekki leið á löngu þangað til
Hákon fór að brjóta af sér á ný.
Hann framdi ofbeldisbrot í
þeim tilgangi að afla sér fjár -
vopnuð rán. Rétt um mánuði
eftir að Hákon varð laus ógnaði
hann afgreiðslustúlku í Bónu-
svideói í Þönglabakka 1 með
hnífl og neyddi hana til að af-
henda sér 45 þúsund krónur úr
peningakassa verslunarinnar.
Áður en hann hvarf af vett-
vangi skar hann símasnúru í
sundur.
Málið var óupplýst þangaö til
Hákon framdi annað rán rúm-
um tveimur mánuðum síðar, í
versluninni Straumnesi við
Vesturberg. Þar ógnaði hann
tveimur afgreiðslustúlkum,
með hnífl eins og í öllum öðr-
um ránum, og neyddi þær til að
afhenda sér 140 þúsund krónur.
Sverrir Einarsson, héraðs-
dómari í Reykjavík, dæmdi Há-
kon Rúnar í 3ja ára og 6 mán-
aða fangelsi fyrir þessi brot í
nóvember 1996. Þá hafði sak-
bomingurinn setið inni í 31
dags gæsluvarðhaldi. Árin 1997
og 1998 liðu þannig að Hákon
var mest megnis vistaður að
Litla-Hrauni. Síðustu mánuð-
ina áður en honum var gefinn
kostur á reynslulausn var hann
vistaður í Hegningarhúsinu
vegna tíðra heimsókna hans til
ýmissa geðheilbrigðisaðila á
höfuðborgarsvæðinu. Eins og
fýrr segir leið síðan aðeins um
vika þangað til búið var að
handtaka hann á ný eftir vopn-
að rán við Norðurbrún.
Lögreglan hefur m.a. rann-
sakað hvort verið geti að Há-
kon hafi átt þátt í ráninu í
verslunina King Kong fyrir
rúmri viku. Samkvæmt upplýs-
ingum lögreglu liggur þó ekk-
ert fyrir um að hann hafi verið
þar að verki.
-Ótt
Ræningjaferill
15. febrúar 1995
Réðst hettuklæddur og vopnaður hnífi með félaga sínum
inn \ Effelturninn í Leirubakka og hótaði pari.
Rændi 45 þúsund krónum.
19. febrúar 1995
Ruddist hettuklæddur, vopnaður
eldhúshnifi, inn í Áskjör við Ásgarð,
réðst að afgreiðslustúlku með
ofbeldi og neyddi hana til að
afhenda sér 21 þúsund krónur.
Sat inni frá febrúar 1995 til júní 1996.
DV|
25. júlí 1996
Ógnaði afgreiðslustúlku í Bónusvídeói við
Þönglabakka 1 með hnífi. Neyddi hana til
að afhenda sér 45 þúsund krónur.
Skar símasnúru í sundur.
6. október 1996
Ógnaöi tveimur afgreiöslustúlkum Straumness
við Vesturberg með hnífi og neyddi þær til að
afhenda sér 140 þúsund krónur.
Sat inni frá því í október 1996.
Losnaði úr fangelsi 5. febrúar 1999.
12. febrúar 1999
Handtekinn eftir að hafa ráðist vopnaður sveöju inn í
verslun 11-11 við Norðurbrún og rændi þaðan um
100 þúsund krónum.
m 8
Grand Cherokee Laredo Limited ‘93
m/öllu. Ásett verð: 2.200.000.
Tilboðsverð: 1.950.000.
Grand Cherokee Limited '94, ek. 52
þús. km. Ásett verð: 2.720.000.
Tilboðsverð: 2.490.000.
Peugeot 306 4 d., '98, ek. 22 þús. km.
Ásett verð: 1.250.000.
Tilboðsverð: 1.120.000.
Nissan Sunny SLX '92, ek. 103 þús.
km. Ásett verð: 650.000.
Tilboðsverð: 490.000.
Toyota Corolla '92, ek. 98 þús. km, ssk.
Ásett verð: 690.000.
Tilboðsverð: 600.000.
Peugeot 405 dísil '95, ek. 88 þús. km.
Ásett verð: 1.100.000.
Tilboðsverð: 990.000.
Mazda 626 GLX '92, ek. 88 þús. km.
Ásett verð: 1.190.000.
Tilboðsverð: 890.000.
Volvo 740 GL '91, ek. 123 þús. km.
Ásettverð: 1.050.000.
Tilboðsverð: 890.000.
Renault Nevada st. 4x4 '91, ek. 140
þús. km. Ásett verð: 650.000.
Tilboðsverð: 450.000.
Renault 19 RT
km. Ásett verð:
Tilboðsverð: 690.000.
þús.
Nissan Primera '92, ek. 125 þús. km
Ásett verð: 870.000.
Tilboðsverð: 690.000.
Peugeot 405 '91, ek. 157 þús. km.
Ásett verð: 590.000.
Tilboðsverð: 490.000.
Peugeot 405 st. '95, ek. 104 þús. km.
Ásett verð: 980.000.
Tilboðsverð: 850.000.
Ford Fiesta Ghia '96, ek. 34 þús.
km. Ásett verð: 1.090.000.
Tilboðsverð: 890.000.
Chrysler Neon '95, ek. 73 þús. km.
Ásett verð: 1.190.000.
Tilboðsverð: 900.000.
VW Golf '91, ek. 140 þús. km.
Ásett verð: 590.000.
Tilboðsverð: 400.000.
NYBYLAVEGUR 2 • SIMI 554 2600 • OPIÐ VIRKA DAGA 9-18