Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1999, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1999, Blaðsíða 11
JÖ V ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999 enmng n Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir Önnur hlutverkaskipan Kóríólanus Annað kvöld kl. 20 verður leikrit Williams Shakespeare Kóríólanus lesið á Litla sviði Borg- arleikhússins í þýðingu Helga Hálfdanarsonar. Verkið er talið vera síöasti harmleikurinn sem hann skrif- aði og hefur ekki verið mikið leikið; þó hefur áhugi á því auk- ist á okkar tímum og nýlega var sett upp í London rómuð sýning á því. Sagan gengur út á her- mennsku, landvinninga og fóð- urlandssvik. Frægur rómversk- ur hershöfðingi snýr heim eftir mikla stríðssigra og er lyft til æðstu metorða. En hann nennir ekki að smjaðra fyrir almúganum og verður að lokum svo óvin- sæll að hann er flæmdur úr landi. Þá fer hann til óvinar síns sem hann áður hafði herjað á og stýrir her hans gegn Róm. Hann vill vera sínu nýja ríki trúr - en hver getur treyst manni með þessa fortið? Animónur til Ragnheiðar 9. hefti af Smáprenti Örlagsins er komið út og geymir að þessu sinni ástaróða Jóhanns Hjálm- arssonar skálds til Ragnheiðar konu sinnar. Ljóðin hafa áður birst í ýmsum ljóðabókum skáldsins en er hér safnað saman í lítið handhægt kver. Fyrsta ljóðið í kverinu heitir „Reykjavíkurlíf*: Yfir Landakotstúniö gengur þú lítil telpa stjörnur fylgja þér heim Þœr voru fulltrúar mlnir uns ég kom sjálfur og sprengdi himin þinn Jóhann hefúr áður komið út í Smáprenti Ör- lagsins. í fyrsta heftinu fyrir níu árum var frumbirtur ljóðabálkurinn Blá mjólk eftir hann og ári síðar ljóðabálkurinn Skuggi. Þróun þriggja málbreytinga Málvísindastofnun Háskóla íslands hefur gef- ið út 10. bindi í ritröðinni Málfræðirannsóknir, Setningafræðilegar breytingar á 19. öld. Þróun þriggja málbreytinga eftir Þorbjörgu Hróars- dóttur. Þar er fjallað um setningafræðilega þró- un í íslensku í lok 18. og upphafi 19. aldar en umfjöllunin takmörkuð að mestu viö þrjár mál- breytingar, hvarf OV-raða í sagnlið, hvarf eldri núllliða og tilkomu það-innskots. Á annarri sýningu íslenska dcmsflokksins á þremur dans- verkum Rui Horta og Hlífar Svavarsdóttur í Borgarleik- húsinu var önnur hlutverka- skipan en á frumsýningu. Þegar skipt er um dansara í hlutverkum á þennan hátt býður það upp á samanburð sem ef til völ er ekki sann- gjam, því það er alltaf ákveð- in spenna og eftirvænting í salnum og á sviðinu á frum- sýningu en önnur sýning líð- ur oft fyrir spennufallið eftir frumsýningu. Verkin þrjú eru mjög ólík þannig að allir áhorfendur fá eitthvað við sitt hæfi. Sjálf er ég hrifnust af fyrsta verkinu, Flat Space Moving eftir Horta, þar sem vandamál nú- tímans, samskiptaleysi og Júlía Gold ræður yfir klassískri mýkt og ögun. sinnuleysi um náungann eru tekin fyrir. Verkið krefst mikillar tækni dansaranna og fjölbreytni í dansstíl. Júlía Gold fór með hlutverkið sem Katrín Á. Johnson dansaði á frumsýningu. Júlía er mikill dansari og gerði hlutverkinu góð skil. Hún hefur yfir að ráða klassískri mýkt og ögun sem nýttist henni vel í þess- ari sýningu. Þær Katrín dansa hlutverkið með ólíkum hætti en gera það báðar vel. Cameron Corbett fór með hlutverk utan- garðsmannsins sem Chad Adam Bantner dansaði á frumsýningu. Cameron er sterkur og góður dansari sem hefur óvenjulega mýkt og háa rist. Dans hans var mjög góður en talsverður munur var á útfærslu þeirra Chads því Chad afklæddist í einu atriði verksins sem Cameron gerði ekki. Nekt manneskju er ekki ljót í sjálfri sér þótt að- Dans Lilja Hallgrímsdóttir stæður, orð, hugsun eða látbragð geti gert hana grófa. Þjóni það listrænum tilgangi er ekkert athugavert við það að listamenn af- klæðist, og eins og Chad Adam túlkaði þetta atriði var það fullkomlega merkingarbært. Hann leikur einfaldan sakleysingja sem er að reyna að ná athygli náungans, hefur reynt ýmsar leiðir til þess, talað og talað, reynt að vera eins og hinir og fleira og fleira en ekkert gengur. Þá tekur hann það til Hvatasirkus íslensk tónskáld á alþjóðlegri tónlistarhátíð bragðs að bera sig til að fá við- brögð. Cameron túlkaði þetta atriði með því að gefa í skyn og beita látbragði fatafellu án þess að afklæðast, og af ein- hverjum orsökum þótti mér atriðið verða grófara hjá hon- um en á frumsýningunni. Hlutverk utangarðsmanns- ins málglaða í Diving eftir Horta sem Guðmundur Helga- son fór svo eftirminnilega með á frumsýningu kom í hlut Chad Adams á annarri sýn- ingu. Verkið er skemmtilegt og hressilegt en balarnir og vatnið sem eru hluti af sviðs- myndinni há dönsurunum tcdsvert. Textinn sem utan- garðsmaðurinn fer með er inn- antómt bull og breytti það því litlu þó að Chad færi með hann á ensku. Chad hefur líka lært leiklist og fór á kostum í hlutverkinu ekki síður en Guðmundur. Þeir fóru með hlutverkiö hvor á sinn hátt en báðir vel. Einnig var skipt um í minni hlut- verkum milli sýninga. Þótt jákvætt sé að hafa breiðan hóp dansara í ís- lenska dansflokknum, fólk á ólíkum aldri með ólíkan bakgrunn í dans- menntun og öðru, þá er ekki þörf á að allir dansi í hverri uppsetningu ef hlutverkin hæfa þeim ekki. Önnur sýning íslenska dansflokksins á Stóra sviði Borgarleikhússins 11.2. 1999: Flat Space Moving og Diving eftir Rui Horta og Brot-Kaera Lóló eftir Hlíf Svavarsdóttur. Listdansstjóri íslenska dansflokksins: Katrín Hall. Leikfélag Mennta- skólans við Hamrahlíð réð til sín rithöfimdinn Andra Snæ Magnason á haustmánuðum og frumsýndi á laugardag- inn spunaverkið Nátt- úruóperuna sem félagar þess sömdu ásamt hon- um. Höfundurinn er ný- lega sloppinn úr menntaskóla sjálfur, þó að hann sé þriggja bóka maður, og verkið bar þess merki. Þetta er ung sýning. Náttúruóperan hefst á litfríðri náttúrumynd með syngjandi stjömum og jöklasóleyjum. Dýpt og kraft fær hún þegar sjálfur Dettifoss birtist á sviðinu, túlkaður á ein- staklega skemmtilegan hátt af manneskjum sem láta sig falla fram af bjarghrún í iðuköstin fyrir neðan og byltast svo fram eins og þungur árstraumur. En allt í einu stöðvast fossinn. Landsvirkjun hefúr lok- að leið hans! Aha, hugsar áhorf- andi, ádeiluverk á eyði- leggingu hálendisins. En þá stöðvast þessi náttúruópera og önnur tekur við. Því hvaða náttúra kemur okkur mest við? Okkar eigin, að sjálfsögðu, og lungi. verksins er rannsókn á sálar- og hvatalífi menntaskólanemans Baldurs. Við erum orðin vön því að klofnir per- sónuleikar séu sýndir á sviði með tveimur leik- urrnn. Þessa venju fara MH-ingar með langt út í öfgar því alls telst mér til að kenndir Baldurs og hugsanir séu túlkaðar af sextán manns! Aumingja Baldur er algerlega á valdi þessara freku aðila, lífshvatai', árásar- hvatar, kynhvatar og svo framvegis, og há- marki nær verkið þegar innri sálfræðingur Baldurs stjómar sálgreiningu á honum. Hvatirnar sækja að Baldri. Verkið er samsafn af því sem þessi stóri hópur hefur verið að tileinka sér undanfar- in ár og vísunum í allar áttir - bókmenntir, bíó, poppheiminn, heimspeki, náttúrufræði o.s.frv. Inn á milli em gullfalleg ljóðræn at- riði sem bera svip af skáldinu Andra Snæ; til dæmis er ekki hægt annað en nefna sér- staklega einræðu Ingibjargar, unnustu Baldurs, um sólsetrið í Snæfellsjökli sem bæði var yndislegur texti og frábær- lega fluttur af Magneu Björku Valdimarsdóttur. Ef sagt væri að þessi sýning iðaði af lífi væri það háskalegur úrdráttur. í henni leysist úr læðingi einhver frumorka sem er alveg dásamlegt að upplifa. Leiklist Silja Aðalsteinsdóttir Þó að óreiðan virðist rikja í mannmergðinni kom í ljós til dæmis þegar allur skarinn fór með texta sam- an að hópurinn var þraut- þjálfaður, og á Harpa Arn- ardóttir leikstjóri hrós skilið ekki síst fyrir góðan aga á framburði - sem helst brást þó þar sem síst skyldi eða hjá aðalleikar- anum Jóni Gunnari Þórð- arsyni sem annars var ágæt týpa í hlutverk Bald- urs og skemmtilega hall- ærislegur á MH vísu. Margir fleiri gerðu vel, m.a. Salka Guðmundsdótt- ir sem sveif um á rúllu- skautum og talaði tungum í hlutverki leiðsögumanns um hugarheim Baldurs, Vala Ómarsdóttir Hjarta- vörður, Aðalbjörg Þóra Ámadóttir heiladraugur og Eyvindur Karlsson kyn- hvöt. Afrek kvöldsins átti þó Jón Gunnar Ólafsson sem lék innri sálfræðing- DV-mynd Teitur jnn af feikimikilli leikni. Leikfélag MH sýnir í Hátíðarsal: Náttúruóperan eftir Andra Snæ Magnason (í samvinnu við leikhópinn) Danshöfundur: Ólöf Ingólfsdóttir Ljósahönnuður: Egill Ingibergsson Tónlist: Gunnar Örn Tynes og Örvar Þór- eyjarson Smárason Leikstjóri: Harpa Arnardóttir Tónlistarhátíðin ISCM verður haldin í Rúm- eníu í október nú í ár. Þetta er stærsta tónlist- arhátíð fyrir nútímatónlist sem haldin er í heiminum, og að þessu sinni hafa tvö íslensk verk verið valin til flutnings á hátíðinni, eftir tónskáldin Karólinu Eriksdóttur og Kjartan Ólafsson. Eftir Karólinu verður flutt einleiksverkið „Skýin“ fyrir einleiksselló og eftir Kjartan verður flutt kammerverkið „Nónetta“. Verk Karólínu var skrifað fyrir Gunnar Kvaran sem frumflutti það á Sumartónleikum í Skálholti 1997. Síð- an hefur Gunnar flutt verkið víða, meðal annars í tónleikaferð sinni um Dan- mörku og Þýskaland í fyrra. Gunnar hljóðritaði verkið fyrir Ríkisútvarpið og er það væntanlegt á geisladiski með verkum eftir Karólínu innan skamms. „Nónetta" eftir Kjartan Ólafsson var samið árið 1996 og frumflutt sama ár af kammerhópnum Camerarctica á Norrænum músíkdögum í Reykjavík. Verkið var gefið út á geisladiskinum Músík með CAL- MUS 1998. Tónlistarhátíðin ISCM (International Society for Contemporary Music) var stofn- uð árið 1923. Þar eru flutt verk af flestum gerðum og stærðum víðs vegar að úr heiminum. Að þessu sinni eru tónskáld af yngri kyn- slóðinni meira áberandi á hátíðinni en vana- lega. í gegnum tíðina hafa mörg fremstu tón- skáld íslands átt verk á hátíðinni, meðal þeirra Atli Heimir Sveinsson, ÞorkeU Sigurbjömsson, ÁskeU Másson, Hjálmar H. Ragnarsson og Þor- steinn Hauksson. Hátíðin var haldin á íslandi árið 1973 undir stjóm tónskáldanna og fomfé- laganna Atla Heimis Sveinssonar og Þorkels Sigurbjörnssonar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.