Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1999, Qupperneq 8
Utlönd
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999
Stuttar fréttir
Deilendur í Kosovo hafa frest til hádegis á laugardag:
Serbar sýna engin
merki um tilslakanir
Ekkert bendir til annars en að
niðurstöðu friðarviðrasðnanna um
Kosovo sé ekki að vænta fyrr en um
helgina. Fresturinn sem tengslahóp-
ur sex stórvelda gaf Serbum og
Kosovo-Albönum til að komast að
samkomulagi um framtíð héraðsins
rennur út á hádegi á laugardag.
Serbar sýna þess engin merki að
þeir ætli að láta af harðlínustefnu
sinni og þeir skella skollaeyrum við
hótunum um loftárásir af hálfu Atl-
antshafsbandalagsins (NATO). Full-
trúar albanska meirihlutans í
Kosovo ku hins vegar vera reiðu-
búnir að fallast á tillögur stórveld-
anna um lausn deilunnar.
Milan Milutinovic Serbíuforseti
hafnaði lykilatriði í tillögum
tengslahópsins eina ferðina enn í
gær þar sem gert er ráð fyrir þrjátíu
þúsund manna friðargæsluliði til að
fylgjast með að væntanlegir friðar-
samningEir verði virtir.
Barnasál-
fræðingur
meðal norskra
barnaníðinga
Norska lögreglan hefur hand-
tekið fimm menn á aldrinum 50
til 70 ára vegna gruns um kyn-
ferðislega misnotkun á fil-
ippseyskum drengjum. Meðal
hinna handteknu er barnasál-
fræðingur, tveir kennarar og
tannlæknir sem sagður er vera
höfuðpaurinn. Bamaniðingamir
flmm em grunaðir um að hafa
misnotað filippseyska drengi í
um 20 ár, bæði í Noregi og i
Manila á Filippseyjum.
írskur prestur, Shay Cullen,
sem starfar á Filippseyjum, átti
þátt í að upp komst um bama-
níöingana. Hanii kvaðst hafa vit-
að um málið í 10 ár. í fyrra hefði
verið haft samband við norsku
lögregluna þegar vitað var með
vissu hverjir mennimir væm.
Presturinn, sem segir að kyn-
lífsferðir útlendinga til Filipps-
eyja séu gríðarlegt vandamál,
kveðst þess fullviss aö fleiri
verði handteknir vegna málsins.
Hinir handteknu höfðu farið í
margar feröir til Filippseyja á
hveiju ári til þess að hafa mök
viö lítil böm.
Bregðast hart
^ við geri
irakar árás
á flugstöð
Öryggisráðgjafl Bills Clintons
Bandaríkjaforseta, Sandy
Berger, sagði í gær að Bandarík-
in myndu bregðast skjótt og
ákveðið við gerðu írakar alvöm
úr hótun sinni um árás á flug-
stöðina í Tyrklandi þaðan sem
bandarískar vélar fara í eftirlits-
flug yfir írak.
Madeleine Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, lýsti
því einnig yfir að Bandaríkin
myndu gera gagnárás yrði ráðist
á bandaríska hermenn eða ná-
grannalönd íraks.
írakar gáfu í skyn á sunnu-
daginn að þeir gætu gert árás á
stöðvar Bandaríkjamanna og
Breta við Persaflóa, í Kúveit og
Sádi-Arabíu. Jafnframt hótaði í
gær varaforseti íraks, Taha
Yassin Ramadan, árás á flugstöð-
ina í Incirlik í Tyrklandi.
Yfirvöld í írak tilgreindu ekki
nánar hvemig yrði staöiö að
árásum yrðu þær gerðar.
Milan Milutinovic Serbíuforseti hélt því fram á fundi meö fréttamönnum í
París aö loftárásir á Serba í Kosovo jafngiltu glæpi gegn mannkyninu.
„Ef samkomulagið er svo gott og
ef meirihluti íbúa Kosovo fellst á
það, hví skyldum við þá þurfa á er-
lendum hermönnum að halda til
annars en að elta uppi hryðjuverka-
menn? Og við þurfum þá ekki til
þess arna,“ sagði Milutinovic á
fundi með fréttamönnum í París.
Viðræðumar hafa staðið yfir í
níu dag í Rambouillet-höll skammt
frá París og lítið miðað áfram.
Serbíuforseti varaði einnig við
því að loftárásirnar sem hótað hefur
verið væru glæpur gegn mannkyn-
inu og þær myndu engan vanda
leysa.
Ekkert varð af beinum viðræðum
fulltrúa Serba og albanska meiri-
hlutans í gær eins og þó hafði verið
spáð. Madeleine Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, tókst með
persónutöfrum sínum að fá fulltrú-
ana til að hittast um helgina en
sjarminn virðist ekki virka lengur.
Tíbetskir munkar leika á heföbundin horn við bænagjörö fyrir utan klaustur í Dharamshla í Indlandi. Andlegur og
stjórnmálalegur leiötogi Tíbetbúa, sjálfur Dalaí Lama, býr í bæ þessum í Himalajafjöllunum. Þaöan hefur hann stjórn-
aö útlagastjórn Tíbets frá árinu 1959.
Bill Clinton hæstánægður með eiginkonuna:
Hillary yrði frábær öld-
ungadeildarþingmaður
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
lýsti því yfir í gær að Hillary eigin-
kona hans yrði aldeilis frábær öld-
ungadeildarþingmaður og að hann
myndi styðja hana byði hún sig
fram. Hann lagði þó áherslu á að sú
stund væri þó ekki runnin upp enn.
„Ég held að hún yrði frábær í öld-
ungadeildinni. En það er hennar að
taka ákvörðunina. Ég mun heils
hugar styðja hvaða ákvörðun sem
hún tekur,“ sagði Clinton við frétta-
menn þegar hlé varð á viðræðum
hans við Emesto Zedillo Mexíkófor-
seta á sautjándu aldar búgarði
skammt frá borginni Merida.
Clinton hefur ekki áður tjáð sig
um háværan orðróm þess efnis að
Hillary muni bjóða sig fram til öld-
Hillary Clinton íhugar enn aö bjóöa
sig fram til þingmennsku.
ungadeildarinnar fyrir New York
ríki í kosningunum á næsta ári.
Hillary fór með bónda sínum til
Mexikós og brá út af venju þegar
hún lét sjá sig í blaðamannafarrými
forsetaþotunnar. Þar lagði hún Bill
lið við að dreifa Valentínusar-
konfekti til fréttamanna.
Clinton sagði að Hillary hefði
ekki átt hugmyndina að hugsanlegu
framboði. „Það er mikilvægt að all-
ir átti sig á því að fólk í New York
tók að hringja í hana. Ég held ekki
að þetta hafi nokkru sinni hvarflað
að henni fyrr en allt þetta fólk
hringdi og bað hana um að bjóða sig
fram,“ sagði forsetinn.
Hillary nýtur mikils fylgis sam-
kvæmt óformlegum könnunum.
Barist á landamærum
Bardagar hafa blossað upp á
ný á landamærum Eritreu og
Eþíópíu.
Sameinast gegn smygli
Yfirvöld í Bandaríkjunum og
Mexíkó hafa tilkynnt samkomu-
lag um aðgerðir í baráttunni
gegn fikniefnasmygli.
Búast við framsali
Stuðningsmenn Augustos Pin-
ochets, fyrrverandi einræðis-
herra Chile, búast við að breska
lávarðadeildin
samþykki að
herforinginn
verði framseld-
ur til Spánar.
Haft er eftir
mági Pin-
ochets, Gonzalo
Townsend, í
dagblaðinu La Tercera að honum
og samtökum hans sé kunnugt
um að úrskurðurinn í London
verði Pinochet í óhag.
Sprengt í Úsbekistan
Yfirvöld í Úsbekistan sögðu
sprengingamar í höfúðborginni
Tashkent í morgun vera hryðju-
verk. Ekki var ljóst í morgun
hversu margir hefðu særst.
í vandræðum með lík
Stjóm ríkissjúkrahússins í
Trinidad veit ekki hvað gera á
við um 70 lík sem enginn ber
kennsl á. Líkin þykja taka of
mikið rými í eina líkhúsi sjúkra-
hússins.
Feitir mótmæla
Um 25 of feitir Bandaríkja-
menn mótmæltu í gær auglýs-
ingu líkamsræktarstöðvar í San
Francisco þar sem sagði að þegar
geimvemmar kæmu myndu þær
borða feita fólkið fyrst.
Styður dauðarefsingu
Fidel Castro Kúbuforseti er
hlynntur því að dauðarefsingu
verði beitt í fleiri tilvikum en nú
til varnar bylt-
ingunni. ínýju
lagaframvarpi
er lagt til að
stjórnarand-
stæðingar, sem
starfi með
Bandarikjun-
um, verði
dæmdir í allt
að 30 ára fangelsi. Hægt verður
að dæma menn í lífstíöarfangelsi
eða til dauða fyrir glæpi eins og
fikniefnasmygl. Segir Kúbufor-
seti að glæpir eins og smygl á
fikniefnum skaði ímynd lands-
ins.
300 þúsund á flótta
Mannréttindasamtök í Kól-
umbíu segja yfir 300 þúsund Kól-
umbíumenn hafa neyðst til að yf-
irgefa heimili sín í fyrra vegna
ofbeldisaðgerða skæraliða og
hersins.
Skotið á færi
Þingið í Indónesíu styður þá
stefnu hersins að skjóta óeirða-
seggi á færi.
Fórst í snjóflóði
19 ára piltur á snjóbretti fórst í
snjóflóöi við Mount Baker í Was-
hingtonríki í Bandai'íkjunum á
sunnudaginn. Eins er saknað eft-
ir snjóflóðið.
Hætta á óstöðugleika
Emma Bonino, sem fer með
mannréttindamál í framkvæmda-
stjóm Evrópusambandsins, sagði
í gær að óstöð-
ugleikinn í Sí-
erra Leóne og
Gínea-Bissá
gæti breiðst um
Vesto'-Afríku
fyndust ekki
pólitískar
lausnir skjótt.
Bonino er
væntanleg til Sierra Leone í dag.
Forsetinn þar, Ahmad Tejan Kab-
bah, hefur boðið uppreisnar-
mönnum til viðræðna.