Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1999, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 11. MARS 1999
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Félagsmálaráöuneytið seldi Qölbýlishús á Flateyri fyrir „slikk“:
Rústar söluverði
íbúða á staðnum
- segir fyrrum sveitarstjóri sem vill skaðabætur frá ráðuneytinu
„Við höfum verið að reyna að
selja húsið okkar á Flateyri og feng-
ið nokkrar fyrirspumir þó ekki hafi
orðið af sölu. Nú hefur félagsmála-
ráðuneytið hins vegar gengið fram
fyrir skjöldu og verðfellt allt íbúðar-
húsnæði á staönum með því að selja
sex íbúöa blokk á um 10-12 milljón-
ir króna,“ sagði Kristján J. Jóhann-
esson, fyrrverandi íbúi á Flateyri, í
samtali við DV.
Kristján var um langt árabil
sveitarstjóri á Flateyri en varð að
flytja á brott, ásamt fjölskyldu
sinni, í kjölfar þess að hann missti
starf sitt við sameiningu sveitarfé-
laga á svæðinu. Fjölskyldan hefur
allar götur síðan reynt allt til þess
að selja húseign sína á staðnum.
“Við höfum verðlagt húsið á bil-
inu 30-40% af brunabótamati til að
laga okkur að markaðnum. Svo
kemur þetta gerræðisútspil frá fé-
lagsmálaráðuneytinu og nú á maður
enga möguleika lengur. Eins og ég
Hundaræktarfélagið:
Formaðurinn
hundfúll
„Við sitjum uppi með hana og
getum ekki annaö í bili,“ sagði
Þórhildur Bjartmarz, formaður
Hundaræktarfélagsins, eftir að
héraðsdómur hafði ógilt brott-
rekstur Mörtu Gylfadóttur úr fé-
laginu. Marta rekur hundarækt-
arbúið Silfurskugga í Meöallandi
og var rekin úr Hundaræktarfé-
laginu fyrir að para tíkur sínar of
oft.
„Ég er búin að missa af átta
hundasýningum vegna þessa
brottreksturs, og spyr bara hvers
vegna aðrir sem para tíkur sínar
of oft séu ekki líka reknir,“ sagði
Marta sem er að vonum ánægö að
vera komin aftur í Hundaræktar-
félagið.
í reglum Hundaræktarfélagsins
er kveðið á um að tíkur skuli fá
að jafna sig á milli gota og séu
ekki látnar gjóta í hverju lóðaríi.
Á þessu þótti misbrestur hjá
Mörtu í Siifurskuggum.
„Það verður bæði dýrt og tíma-
frekt að fara meö málið fyrir
Hæstarétt. Hér vinna menn í sjálf-
boðavinnu og erfitt að réttlæta að
allur sá tími fari í málarekstur.
Við viljum ekki hafa Mörtu í fé-
laginu," sagði Þórhildur Bjart-
marz, formaður félagsins. -EIR
segi hlýtur það að segja til sín þeg-
ar heilt íjölbýlishús er sett á útsölu.
Það má því segja að um hreina og
klára eignaupptöku sé að ræða af
hálfu hins opinbera," sagði Krist-
ján.
Mikill urgur er á meðal húseig-
enda á Flateyri vegna útsölunnar á
fjölbýlishúsinu og telja þeir húseig-
endur sem hyggja á sölu eigna sinna
að yfirvöld séu algerlega búin að
eyðOeggja þá litlu möguleika sem
fyrir hendi voru í sölu fasteigna á
staðnum. Búist er við að um frekari
útsölur geti orðið að ræða af hálfu
opinberra aðila á næstunni.
“Ég sé enga aðra leið en að sækja
með einum eða öðrum hætti á fé-
lagsmálaráðuneytið. Það voru
starfsmenn þess sem frömdu þenn-
an gjöming og nú situr fjölskyldan
uppi með verðlaust og óseljanlegt
hús á staðnum - það svo að við eig-
um í sjálfu sér ekkert eftir," segir
Kristján. -GS
Kristján J. Jóhannesson, fyrrum sveitarstjóri og íbúi á Flateyri. DV-mynd BG
Lögreglan leitaði í morgun tveggja pilta á unglingsaldri sem grunaðir eru um gripdeild í söluturninum Toppmyndum í
Hólagarði á níunda tímanum í gærkvöldi - þeim tíma sem þjófar og ræningjar hafa að undanförnu talið heppilegastan til
að láta greipar sópa í sjoppum. Piltarnir höfðu á brott með sér 30-40 þúsund krónur og létu afgreiðslustúlku opna
peningakassa. Síöan hurfu þeir á brott en lögreglan styðst við myndbandsupptöku við leitina að þeim. Á myndinni er
afgreiðsiustúlkan skömmu eftir gripdeildina og lögreglumenn ræða málin. DV-myndir Sveinn
OZ sprengir utan af sér húsnæði
- skríöur upp Snorrabrautina meö ljósleiðara
Tölvufyrirtækið OZ hefur
sprengt utan af sér húsnæði sitt
við Snorrabrautina sem lengst af
var kennt við Osta- og smjörsöl-
una. Vegna aukinna umsvifa og
fiölgunar í mannahaldi hefur fyrir-
tækið tekið á leigu hluta efri hæð-
ar í næsta húsi sem áður hýsti
áfengisútsöluna, Ríkið.
„Við tengdum gamla Osta- og
smjörsöluhúsið við Ríkið með ljós-
leiðara vegna þess að húsnæði
okkar var sprungið. Það eru ýmsir
möguleikar á að bæta við sig hús-
næði hér í hverfinu þótt ekkert sé
afráðið í þeim efnum,“ sagði Eyþór
Amalds, einn af framkvæmdastjór-
um OZ.
Byggingarréttur fylgir lóð OZ
við Snorrabrautina en engar bygg-
ingarframkvæmdir em fyrirhug-
aðar:
„Það tekur of langan tíma að
byggja og svo er stækkim fyrirtæk-
isins skorður settar hér á landi
vegna skorts á tölvunarfræðing-
um. Það gengur heldur hægt að
unga þeim út í kerfinu," sagði Ey-
þór.
Sextíu manns starfa hjá OZ á
Snorrabrautinni en fyrirtækið er
jafnframt með aðsetur í Stokk-
hólmi og San Francisco. Þar eykst
starfsmannafjöldinn einnig.
Sem kunnugt er af fréttum hafa
Landsbréf og Fjárfestingarbanki
atvinnulífsins nýverið fjárfest i OZ
Ljósleiðari hefur verið lagður úr höfuðstöðvum OZ í nærliggjandi hús. fyrjr 273 milljónir króna. -EIR
Samræming
Guðbrandur Sig-
urðsson, fram-
kvæmdastjóri Út-
gerðarfélags Akur-
eyringa og stjóm-
armaður í SH, seg-
ir að eftir að nýr
stjórnarformaður
hafi tekið við hjá Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna hljóti að vera fram
undan hjá SH ýmislegt samræming-
arstarf milli aðalskrifstofú og dóttur-
fyrirtækjanna erlendis.
Kjötmjöl
Félag um kjötmjölsverksmiðju á
Suðurlandi hefur ákveðið að semja
við danskt fyrirtæki um að kaupa vél-
ar í verksmiðjuna fyrir rúmar 100
milljónir króna. Verksmiðjan verður
reist í Hveragerði og á að byija starf-
semi 1. nóvember. RÚV sagði frá.
Óöld á Dalvík
Umsjónarmaður skíðasvæðisins á
Dalvík segist hafa skaðast vegna
átaka sem orðið hafa milli unglinga
í bænum og aðkomukrakka. Hann
segir hópa hafa hætt við að koma til
Dalvíkur á skíði og rekur það til
illinda og slagsmála sem orðið hafa
á milli fámenns hóps unglinga í
bænum og aðkomufólks. Félags-
málayfirvöld hafa brugðist við með
samstilltu átaki. Dagur sagði frá.
íslensk
Páll Halldórs-
son, flugstjóri hjá
Landhelgisgæsl-
unni, og niu félag-
ar hans eru að
smíða þyrlu í bíl-
skúr í Kópavogi.
Búist er við að
jómfrúrflugið verði 17. júní. Páll tel-
ur í samtali við Morgunblaðið að
þyrlan verð góð viðbót í þyrluflota
landsmanna.
þyrla
Verðinu breytt
Forsvarsmenn Nýkaups segja að
verði hafi verið breytt í verslun Nóa-
túns meðan á verðkönnun Neyt-
endasamtakanna stóð og mikið mis-
ræmi hafi komið fram milli hillu-
verðs og kassaverðs í versluninni.
Farfuglaheimili rýmt
Farfúglaheimilið á Seyðisfirði var
rýmt i gærkvöldi vegna snjóflóða-
hættu. 13 pólskir farandverkamenn
og einn íslendingur búa á heimilinu.
Engar tillögur
Auðlindanefnd, sem kjörin var á
Alþingi hinn 2. júní á síðasta ári til
að fjalla um auðlindir í þjóðareign
og hugsanlegt auðlindagjald, telur í
áfangaskýrslu ekki tímabært að
skila tillögum í málinu.
Ólafur B. Ólafs-
son, einn stærsti
hluthafmn i HB
hf., segist í viðtali
við Morgunblaðið
hafa verið sjálfur
tilbúinn að kaupa
bréf HB í SH sem________
úrslitum réðu í stjómarkjörinu
SH. Stjómarformaður og forst
hefðu ákveðið að selja þau Róbi
Guðfmnssyni og félögum.
SH-bréf hækka
Hlutabréf í Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna hækkuðu um 10,6% í
tæplega átta milljóna króna við-
skiptum í gær. Þetta vom fyrstu við-
skipti með hlutabréf félagsins eftir
sögulegan aðalfund þar sem Róbert
Guðfmnsson var kjörinn stjómar-
formaður. Hlutabréf Haraldar Böðv-
arssonar hf. hækkuðu einnig í gær
en HB seldi 7% hlut í SH til Róberts
Guðfinnssonar og fleiri, skömmu
fyrir aðalfund, en sú sala réð úrslit-
um í harðvítugum slag um stjómar-
formannssætið.
Aðalverktakar á flugi
Gengi hlutabréfa í íslenskum aðal-
verktökum hf. (ÍAV) hefur hækkað
um 34% á tveimur vikum, að því er
kom fram á Viðskiptavef VB á Vísi.is.
Markaðsvirði félagsins er nú 3 millj-
arðar króna. Nýlega var gengið fiú
kaupum ÍAV á meirihluta hlutafjár í
Ármannsfelli og innkomu Óháða fjár-
festingasjóðsins hf. sem annars
stærsta hluthafa ÍAV, á eftir íslenska
ríkinu.
-SÁ