Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1999, Side 36
tölur miðvikudaginn 10.03. ’99
Fjöldi
vinninga
Vinningar
VinningAupphœð JE
2.460
HeUdarvinningsupphœð
39.944.070
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö j DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FIMMTUDAGUR 11. MARS 1999
Ólafur Ftagnar Grímsson, forseti íslands, er í opinberri heimsókn í Póllandi. Hér er hann ásamt dóttur sinni Döllu og Marek Siwiec, ráðherra alþjóðamála for-
sætisráðuneytis Póllands, við komuna til Varsjár í gærkvöld. Siwiec kemur næstur forsetanum að völdum. í dag hittir Ólafur Ragnar forseta Póllands, hann
setur fund íslenskra og pólskra viðskiptaaðila, auk þess sem hann hittir forsætisráðherra Póllands. í kvöld verður hátíðarkvöldverður forsetahjóna Póllands
til heiðurs forseta íslands. DV-mynd Guðlaugur Tryggvi
Kvótalitlar útgerðir vígbúast eftir að Alþingi vísaði frá frumvarpi um aukinn kvóta:
Ætla að loka
Reykjavíkurhöfn
- á sunnudaginn klukkan 13. Föllum með reisn, segir útgerðarmaður
Varaformannskjörið:
Sigríður Anna
segir ekkert
Sigríður Anna Þórðardóttir al-
þingismaður, sem orðuð hefur verið
við þátttöku í varaformannsslag
' '^tálfstæðisflokksins, vildi í morgun
ekkert segja um það við DV hvort
hún ætlaði að gefa kost á sér eða
ekki. Hún kvaðst hafa ákveðið það
með sjálfri sér en ákveðið að gefa
engar sérstakar yfirlýsingar.
Sigríður Anna svaraði spumingu
DV um það hvort hún yrði í fram-
boði þannig að það væru allir lands-
fundarfulltrúar í framboði, kosning-
in væri óbundin. -SÁ
Pharmaco
klípur af Rolf
Pharmaco hefur yfirtekið snyrti-
vömumboðið L’oreal af Rolf Johan-
og Co. Pharmaco er þar með
orðinn einn stærsti snyrtivöruinn-
flytjandi landsins. Aðrir hlutar fyr-
irtækis Rolf Johansen eru ekki til
sölu. -EER
,og Herbalife
í Fókusi sem fylgir DV á morgun
lætur Margrét Vilhjálmsdóttir leik-
kona ráðamenn heyra það og í raun
leikhúsfólk einnig. Greint er frá því
hverjir hreppa íslensku tónlistarverð-
launin en þau verða afhent i kvöld.
Fókus lítur inn á sjálfstyrkingarfund
hjá heitum unnendum Herbalife og
hlýðir á þá vitna um hversu vont lífíð
var, en hversu gott það er orðið eftir
að þeir fóru að innbyrða duftið. Birt-
ur er minnislisti fyrir fólk í framboði
þessa dagana. Fjallað er um nýja plötu
íslandsvinanna í Blur, rætt við fyndn-
ustu konu íslands og sagt frá bíó-
myndinni Patch Adams. Lífið eftir
vinnu fylgir Fókusi, leiðarvísir um
.^emmtana- og menningarlífið.
>
Fjölda skipa og báta er stefnt til
Reykjavíkur á sunnudaginn klukkan
13 þar sem ætlunin er að loka höfn-
inni til að mótmæla þeirri erfiðu
stöðu sem strandveiðiflotinn er í. Um
er að ræða þær útgerðir sem aðild
eiga að LÚKS eða Landsambandi út-
gerða kvótalítilla skipa. í gær og
morgun voru útgerðarmenn allt í
kringum landið að hringja sín í milli
til að skipuleggja aðgerðir en mikil
reiöi er meðal þeirra eftir að dag-
skrárfrmnvarp Sighvatar Björgvins-
sonar og fleiri var fellt á Alþingi í
gær. Frumvarpið hljóðaði upp á að
auka skyldi þorskkvótann um 15 þús-
und tonn strax og yrði aukningin
bundin strandveiðiflotanum. Þannig
yrði útgerðarmönnum báta gert kleift
að leigja kvótann af ríkinu gegn hóf-
legu gjaldi. Félagsmenn LÚKS bundu
vonir við að frumvarpið kæmi á dag-
skrá og þannig yrði vandi þeirra
Hafnarmynnið í Reykjavík.
leystur. Nú reikna þeir félagsmanna
sem DV ræddi við í gær með að tugir
skipa streymi til höfuðborgarinnar
mn helgina til að krefjast bættra
kjara. Þar ber vanda þeirra vegna
Kvótaþings hæst en fæstar útgerðim-
ar treysta sér til að leigja þorskkvóta
á 105 krónur kílóið á sama tíma og
veiddur þorskur á land kominn legg-
ur sig á svipað verð eða jafnvel
minna.
Erlingur Haraldsson, skipstjóri og
Samsett mynd Teitur
útgerðarmaður á Patreksfirði, sagði í
samtali við DV að hann reiknaði með
tugum báta til Reykjavíkur um helg-
ina. Hann sagðist sjálfur mæta á sinu
skipi, ef veður hamlaði ekki fór, og
barist yrði til síðasta blóðdropa.
„Það er engu að tapa lengur og
betra að falla með reisn en bíða þess
sem verður með tæmar upp í loft. Ég
hefði viljað að allir tækju sig saman
um að róa strax en niðurstaðan er sú
að fara suður og ég verð auðvitað þar.
Ég á von á því að menn standi í þeim
aðgerðum þar til ráðamenn fást til að
ræða við okkur," segir Erlingur.
Hann segir kvótaverð vera í mörgum
tilfellum hærra en verð á lönduðum
fiski og eitthvað verði að gera. Hann
nefndi sem dæmi að í vikunni landaði
hann steinbít fyrir 11 krónur kílóiö en
haföi leigt kvóta á 17 krónur. í sama
streng tók Kristinn Amberg, útgerð-
armaður í Grindavík. Hann sagðist
hafa verið að koma úr róðri þar sem
niðurstaðan varð sú að hann varð að
greiða tvær krónur með hveiju kílói
og þá var eftir að greiða allan kostn-
að.
„Það er ekkert annað að gera en
hunsa þessi lög. Ég á von á því að
kvótalítil skip flykkist til Reykjavíkur
um helgina og víst er að ég kem á
mínum báti. Það sýður á mönnum
vegna ástandsins," sagði hann.
-rt
MERKILEGA brother tengjanleg viö töl 8 leturgerðir, 8 stæröir, 15 letu úrval strikamerkja 6 til 36 mm borða prentar í 7 Iínur RAFI Nýbýlavegi 2£ Veffanq: wv MERKIVELIN PT-550 ný vél
/U útlit 5c r •
PORT Sími 554 4443 i/w.if.is/rafport
( MtOBLU
s OKKABUXUR
Veörið á morgun:
Úrkoma fyr-
ir norðan
Á morgun verður norðaustan-
átt, hvöss norðvestan til en
stinningskaldi um landið sunn-
an- og austanvert. Rigning eða
slydda verður norðan til en
skýjað að mestu og úrkomulítið
sunnan til. Hiti verður á bilinu
0 til 4 stig.
Veðrið i dag er á bls. 37.
K