Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1999, Side 26
26
LAUGARDAGUR 13. MARS 1999
%ngt fólk
AuðurSif
Sigur-
geirsdótt-
ir er sext-
án ára
nemandi
Seljaskóla
og er á kafi í
hundasýn-
ingum.
DV-mynd
Hilmar Þór
hugi á hund-
um hefur
aukist mjög á und-
anfömum árum og
þá um leið áhugi á
hundasýningum.
Hundaræktarfélag
íslands heldur þijár
sýningar á hverju ári
og eru tvær þeirra al-
þjóðlegar sýningar
þar sem hundamir
geta unnið sér inn al-
þjóðlegt meistarastig
og orðið alþjóðlegir
meistarar en til þess
þarf fjögur alþjóðleg
meistarastig. Á þessum
sýningum er hundurinn dæmdur eft-
ir fegurð, göngulagi, skapgerð og
fleim. Innan sýningarinnar er til
hópur sem nefndur er „ungir sýnend-
ur“. í þeim hópi keppa krakkar á
aldrinum tíu til sautján ára.
alar glaðlega
U ngir sýnendur
Auður Sif Sigurgeirsdóttir er sext- ;
án ára nemandi í Seljaskóla og er hún ;
einn af þessum ungu sýnendum og ;
hefur hún oftast unnið í þessum
flokki. Heima hjá henni taka fimm í
hundar á móti gestum, tveir labrador }
retriever og þrír tibetan spaniel. Uppi
á vegg hanga verðlaunapeningar og á
hiilu em bikarar. Allt em þetta verð- !
iaun sem hún hefur unnið í ungum
sýnendum. Auður Sif segist hafa feng-
ið áhuga á hundum strax þegar hún
var lítil.
„Ég fór í útilegu þegar ég var
tveggja ára og þar var fólk ásamt
tveimur labrador-hundum sem ég j
hékk utan í næstum allan tímann. Á '
þessum tíma kviknaði líka áhuginn ;
hjá mömmu og pabba. Við fengum svo
okkar fyrsta hund þegar ég var fimm ;
ára.“
Hvað em ungir sýnendur?
„Ungir sýnendur er hópur krakka á
aldrinum tíu til sautján ára en þátt-
tökualdrinum var nýlega breytt úr tiu
til sextán ára. Það þýðir að ég fæ að
keppa út árið 1999 annars væri ég
hætt núna. Ég var mjög glöð aö heyra j
aö aldrinum yrði breytt því mér ;
finnst mjög gaman að keppa í þessum í
hópi. En fyrst ég er orðin nógu gömul ;
til að sýna fyrir utan unga sýnendur >
sýndi ég einn af hundunum mínum á
síöustu sýningu. Auk þess hjálpaði ég '
fólkinu sem hefur oft lánað mér hund ;
fyrir unga sýnendur með einn af
hundunum þess. Helsti munurinn á :
venjulegum sýningarflokki og ungum [
sýnendum er sá að í ungum sýnend- ;
um er ekki verið að dæma fegurð ;
hundsins heldur hvemig hundurinn
og sýnandinn ná saman."
rísvar best
Auður Sif byrjaði að keppa árið
1993 þegar hún var tíu ára, fljótlega
eftir að byrjað var að keppa í flokki j
ungra sýnenda en það var gert árið ;
1992. Hún hefur keppt sextán sinnum
á íslandi og tvisvar erlendis. „Ég hef
orðið 10 sinnum í fyrsta sæti, þar af 3 ;
sinnum besti ungi sýnandi ársins. 1
Svo hef ég orðið 2 sinnum í öðru og 1
sinni í þriðja sæti.“ Hún keppti á
heimssýningunni í Finnlandi í júlí
1998 og náði þeim frábæra árangri að
komast í hóp tíu bestu af rúmlega
íunmtíu keppendum. Hún keppti líka
á Crufts sem haldin er í Bretiandi og ;
er stærsta hundasýning í heimi en á i
þeirri sýningu náði hún ekki verð-
launasæti en gekk samt mjög vel. ;
Næstkomandi sunnudag er hún að í
fara að keppa á þessari sömu sýningu. ;
Hvemig stendur á því að þú ert að :
fara að keppa á þessari stóm hunda-
sýningu?
„Ég var valinn besti ungi sýnandi
ársins á íslandi og bestu ungu
sýnendumir frá rúmlega þrjátíu
löndum fara til Bretlands og keppa á
Crufts. Þessi keppni er eins konar
heimsmeistarakeppni fyrir unga
sýnendur og kallast Intemational
Junior handling fmal.“
Hvemig er besti ungi sýnandi árs-
ins valinn hér á íslandi?
„Á þessum þremur sýningum sem
haldnar em á hveiju ári era veitt
stig fyrir fjögur efstu sætin. Stiga-
hæsti sýnandinn eftir árið er sjálf-
krafa besti ungi sýnandi ársins og
fær hann verðlaunapening og bikar.
Tvö síðustu ár hefur Sláturfélag Suð-
urlands gefið sigurvegamnum ferð í
stóm keppnina á Crufts.“
ullna reglan
17 Hundasýningar snúast ekki all-
ar um fegurð og týpu hundsins vegna
þess að í ungum sýnendum er farið
eftir öðra.
„Þegar besti ungi sýnandinn er val-
inn er farið eftir því hvemig hundur-
inn er sýndur, hvemig sambandið
milli sýnandans og hundsins er og
Á íslandi geta sýnend-
ur keppt með sina eigin
hunda eða fengið þá
lánaða hjá öðra hunda-
fólki. Það fer bara eftir
því hvað krakkamir
vilja. Það er þá hægt
að þjálfa hundana
eins og hver þarf fyr-
ir sýningar. Ef mað-
ur á ekki hundinn
sjálfur getur verið
mjög gott að heim-
sækja hann öðra
hvora og fara út í
göngutúr. Auður
Sif segir að fyrir
sýningar séu oft-
ast haldnar
þijár eða fjórar
æfingar sem
allir geta mætt
á, bæði ungir
sýnendur og aðrir. Þar era leiðbein-
endur frá Hundaskólanum á Bala,
sem kenna grundvallaratriðin og
hjálpa til við að þjálfa hundana.
Hvemig era hundamir verðlaunaðir
fyrir góðan árangur?
„Sumir gefa hundunum sínum
nammi en aðrir hrósa þeim eða
klappa þeim og knúsa.“
Hvað gerir þú?
„Það er misjafht, oftast tala ég
bara glaðlega við hundinn og svo fær
hann stundum nammi.“
Geta allir hundar keppt á þessum
hundasýningum?
„Nei, bara þeir hundar sem era
hreinræktaðir, með ættbók og skráð-
ir í Hundaræktarfélag íslands".
Era hundamir stressaðir fyrir
þessar sýningar?
„Það er mjög misjafnt. Sumir
hundar era stressaðir en aðrir salla-
rólegir. Margir hundar era líka
stressaðir fyrir sýninguna en era svo
eins og einhverjir kóngar um leið og
þeir koma inn í hringinn. Þetta fer
allt eftir týpu hundsins. Annars held
ég að við sýnendumir séum miklu
stressaðari en hundamir."
kkert leyndarmál
Auður Sif ætlar sér að halda
9* áfram í hundunum og eignast
draumategundimar sínar. En
draumategundimar era rotweiler,
norwich terrier, irish setter og svo
auðvitað tibetan spaniel og labrador
retriever. Þegar hún er spurð um
hvort það sé eitthvað leyndarmál á
bak við alla þessa sigra fer hún að
hlæja og segir: „Nei, ég held ekki,
það þarf bara að muna eftir gullnu
reglunni og gera sitt besta“.
Ásta María Guðbergsdóttir
Höfundur er 16 ára nemandi í
Seljaskóla og var þetta viötal verkefni
hennar í fjölmiölafrœði.
Sextán ára og á kafí í
hundasýningum:
hvort krakkarnir kunna megin-
reglumar. Það er ein meginregla
þegar hundur er sýndur, sem við
hundafólkið köllum „gullnu regl-
una“, og það er að fara aldrei á
milli hunds og dómara" segir Auð-
ur Sif.
Hvemig era ungir sýnendur á
Crufts?
„Þetta er næstum eins og héma
heima nema það að keppendur era
allir með ókunnuga hunda sem
þeim er afhentir klukkutima fyrir
sýningu. Á þessum tíma fá þeir að
kynnast hundinum og æfa sig með
hann. Við fáum að vísu að velja
hundategundina sjálf. Við veljum
þær tvær tegundir sem við vildum
helst sýna og reynt er að redda
annarri hvorri tegundinni en þeir
hundar sem era valdir era vanir
sýningarhundar.“
Islenskir hundaeigendur fara
ekki með hundana sína á erlend-
ar sýningar. Af hverju ekki?
„Til þess að fara með himd
inn og út úr landi þarf að láta
hann vera í einangrun. Á ís-
landi þurfa hundar að vera
frekar langan tíma í einangr-
un og þess vegna held ég að
engin manneskja með til-
flnningar myndi leggja það
á hundinn sinn fyrir eina
sýningu.“
... í prófíl
Jóhann G.
leikari
Fullt nafn: Jóhann Gunnar Jó-
hannsson.
Fæðingardagur og ár: 23.
11.1971.
Maki: Guðrún Kaldal.
Böm: Bráðum.
Starf: Leikari.
Skemmtilegast: Réttir.
Leiðinlegast:
Veikindi.
Uppáhaldsmatur: Svið.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn.
Fallegasta manneskjan (fyrir
utan maka): Bergur vinur
minn Geirsson.
Fallegasta röddin: Engin
spuming; Jói Gísla.
Uppáhaldslíkamshluti: Rass-
inn, hann er eitthvaö svo
nauðsynlegur.
Hlynnt(ur) eða andvíg(ur) rík-
isstjóminni: Hlynntur.
Með hvaða teiknimyndaper-
sónu myndir þú vilja eyða
nótt? Hómer Simpson.
Uppáhaldsleikari: Kevin
Spacey.
Uppáhaldstónlistarmaður:
Allra tíma er Michael
Jackson.
Sætasti stjómmálamaðurinn:
Magnús Ámi Magnússon.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur:
The Late Show.
Leiðinlegasta auglýsingin:
Sjónvarpsmarkaðurinn eins
og hann leggur sig.
Leiðinlegasta kvikmyndin:
Þær eru svo margar jafnvond-
ar, það væri óréttlátt gagnvart
hinum ef ég tæki eina vonda
fram yfir aðra.
Sætasti sjónvarpsmaðurinnj
Það hlýtur að vera sá kyn-j
þokkafyllsti, Þórhallur GunnJ
arson.
Uppáhaldsskemmtistaður:
Vegamót.
Besta „pikköpp“-línan: „Hey I
píka, áttu sígó“. Ég held hún I
hafi aldrei virkað en ég hvet ]
til frekari reynslu.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór: Eitthvað mik-
ilvægt.
Eitthvað að lokum: Gleöilegt
vor!!!!!