Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1999, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1999, Qupperneq 4
4 MÁNUDAGUR 15. MARS 1999 Fréttir Stuttar fréttir i>v Foreldrar í Grafarvogi mótmæla flutningi skóla á Korpúlfsstaði: Gróflega brotið á réttindum barna Geir felldi Sólveigu - segir Aðalsteinn Símonarson, faðir, sem stendur fyrir undirskriftasöfnun Aðalsteinn Símonarson, fyrir miðju, ásamt foreldrum sem ekki eru alls kostar ánægðir með að börnin þeirra fari í Korpuskóla í haust. Börnin taka fyrstu skóflustungu þar sem Víkurskóli á að rísa. DV-mynd S notkun fyrr en í fyrsta lagi árið 2002. „Ég á að taka drenginn úr Engja- skóla og setja hann í Korpuskóla, en síðan flytja hann í Víkurskóla þegar hann verður tekinn í notkun. Ef ár- talið 2002 stenst hjá þeim, þá hefur drengurinn nám í sínum þriðja skóla það ár, þó að alltaf búi hann á sama staðnum. Mér þykir gróflega brotið á hans réttindum og þessar tilfæringar líklegar til þess að skemma tengsl hans við félagahópinn og kennarana, sem þó eru svo mikilvæg á þessum árum,“ segir Aðalsteinn. Aðalsteinn segir að það sem helst hafi hleypt í sig illu blóði er að hann hafi verið að reyna að kynna sér málin og komast að því hvað hægt væri að gera, en upplýsingar um það liggi ekki á lausu. „Það er alltaf verið að skoða mál- in og kannski á þetta að vera svona og ef til vill hinsegin. Maður fær ekki að vita neitt fyrir víst. Sam- kvæmt áætlunum sem eru innan við tveggja ára gamlar var gert ráð fyrir því að Víkurskóli tæki til starfa í haust og ég trúi því ennþá að okkur takist að hafa þau áhrif að svo verði. Formaður fræðsluráðs sagði við mig fyrir nokknun dögum að ef það væri eindreginn vilji foreldra hér í hverf- inu, þá væri ráðið tilbúið að endur- skoða ákvörðun sína.“ Aðalsteinn stendur nú fyrir undir- skriftasöfnun í hverfinu og hefur þegar undir höndum hátt í tvö hund- ruð undirskriftir. Hann segist leyfa sér að vera bjartsýnn og reiknar með að málið skýrist að verulegu leyti i kvöld, þegar fundur verður haldinn í fræðsluráði. „Fólk er að vakna til vitundar um þessi mál hér í hverf- inu og ég á ekki von á að það taki því þegjandi ef haldið verður fast við fyrri ákvöröun um að flytja bömin á Korpúlfsstaði," segir Aðalsteinn að lokum. -þhs Eins og fram kom í Helgarblaði DV fá Korpúlfsstaðir nýtt hlutverk í haust, en þá verður hluti af bygging- unni tekinn undir starfsemi grunn- skóla. Skólinn mun bera nafnið Korpuskóli og hýsa 1.-6. bekk grunn- skóla og þangað munu sækja börn úr nýjustu hverfunum í Grafarvogi, Víkur- og Staðarhverfi. Ekki eru allir jafnlukkulegir með þennan ráðahag og hafa foreldrar í þessum hverfum farið af stað með undirskriftasöfnun til þess að hnykkja á um að haldið verði við fyrri ákvörðun um að taka Víkur- skóla í notkun í haust. Aðalsteinn Símonarson keypti íbúð í Breiðuvík í desember 1997. Áöur hafði hann kynnt sér skólamál- in í hverfinu og þá meðal annars tal- að við Fræðslumiöstöð Reykjavíkur- borgar og skólastjóra Engjaskóla. Sonur Aðalsteins, sem nú er í öðram bekk í Engjaskóla, átti þá samkvæmt áætlun að fara í Víkurskóla haustið 1999. Nú nýverið kom siðan í ljós að Víkurskóli verður ekki tekinn í Fáskrúðsíjörður: Loðnuvinnslan fengið 45 þús- und tonn DV, Fáskrúðsfirði: Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði hefúr tekið á móti 45 þúsund tonn- um af loðnu frá áramótum til 10. mars. Á síðasta ári vora fryst lið- lega 4200 tonn af loðnu en nú er að- eins búið að frysta tæp 86 tonn. Sem fyrr er það Bergur VE sem hefúr landað mestum afla til Loðnuvinnsl- unnar það sem af er, eða tæplega 13.500 tonnum. Að undanfómu hef- ur loðnumjöl verið sekKjað hjá Loðnuvinnslunni, þar sem mjölt- umar standa fúllir, og þeim komið fyrir í skemmum hjá KFFB. -ÆK Landsfundi Sjáifstæð- isflokksins lauk í gær. Sem var eiginlega synd, því þetta var afar skemmtilegur fundur og merkilegur og mark- aði tímamót í sögu flokksins, hvemig sem á hann er litið. Sjálfstæðismenn veittu konum brautar- gengi í kjöri til mið- stjómar og enda þótt Geir Haarde hafi verið kosinn varaformaður er ljóst að landsfundarfull- trúar bera mikið traust til Sólveigar, sem fékk mjög góða kosningu miðað við að hafa ekki sigrað. Hún getur vel við úrslitin unað, sem sameinaði flokksmenn í hyllingu flokksforyst- unnar og húrrahrópum í fundarlok. Landsfundurinn einkenndist að öðra leyti af mikill samstöðu, enda er ljóst að Sjálfstæðisflokk- urinn stendur afar vel að vígi í stjómmálabaráttu sinni, nokkrum vikum fyrir kosningar. Mikið góðæri ríkir i landinu sem er flokknum að þakka og þó sérstaklega styrkri forystu Davíðs Oddssonar og Davíð hefur verið góður við fólkið í landinu og þá sérstaklega þá sem minna mega sín. Dóttir Ólafs Thors mætti með öryrkjum með kröfuspjöld til handa landsfundarfufltrúum og gaf Davíð tækifæri til að spfla gamla segulbands- spólu meö Ólafi þar sem hann undirstrikar mik- flvægi þess að flokkurinn standi með öryrkjum og Davíð gat síðan farið yfir það hvað flokkurinn hefur verið góður við öryrkja sem hlýtur að hafa glatt dóttur Ólafs. Flokkurinn og Davið hafa líka verið góðir við launafólk sem hefur fengiö marg- faldan kaupmátt og það sem mestu máli skiptir þó að atvinnurekendur hafa búið við stöðugleika og stefnufestu í efnahagsmálum og var eiginlega vandfundið það mál sem landsfundurinn gat gert að umtalsefni. Endaði sú umræða raunar með því að ungir sjálfstæðismenn gátu leyft sér að mótmæla of háum styrkjum til menningarinnar, þeir gátu fellt út delluhugmyndir um stuðning við tónlist- arhús og íþróttanefndin undir forystu unga fólks- ins gat lagt fram tillögu um hnefaleika sem vakti einna mesta athygli. Þetta era auðvitað stórmál í pólitíkinni og landsfundarfufltrúar gátu rætt þessi mál án þess að hafa neinar verulegar áhyggjur að því að raska stöðugleikanum. Auk þess má geta þess að Davíð gat þess i upp- hafi fundarins að menn skyldu taka öllum hug- myndum um hvaða vitleysu sem er með opnum huga og opnum örmum, enda var formaðurinn fljótur að átta sig á því að það yrði að leyfa vit- lausar tillögur til að landsfundurinn hefði eitt- hvað til að tala um. Ástandið er það gott í þjóðfélaginu, flokkurinn hefur staðið sig svo fullkomlega, formaðurinn er svo gjörsamlega hafinn yfir gagnrýni að pínulítiö röfl um aukaatriöi gerir bara gott. Sem sagt, finn landsfundur. Dagfari Guðrún hætt að skúra Guðrún Helga- dóttir mun ekki verða á lista Vinstri hreyfing- ar - græns fram- boðs í Reykjavík fyrir kosningam- ar eftir að ljóst varð að hún væri ekki í efstu sætum listans. í viðtali við Dag segist hún ekki vilja vera neðarlega á listanum - hún nenni ekki að „skúra fyrir strákana". Goðafoss af stað Goðafoss sigldi af stað til Banda- ríkjanna um hádegisbil á laugardag eftir að tollverðir hættu leit um borð í skipinu um morguninn. Alls fúnd- ust um 700 litrar af áfengi, nokkurt magn af bjór og vindlingar í skipinu. Mbl. greindi frá. ÞÞÞ selt ódýrt Dómkvaddir matsmenn hafa kom- ist að þeirri niðurstöðu að þegar Þórður Þórðarson seldi hlutafélagi sona sinna rekstur og eigur bifreiða- stöðvarinnar ÞÞÞ, áður en til skattsvikamála hans og síðar gjald- þrots kom, hafi hann selt eigumar á undirverði sem nemur um 30 miflj- ónum króna. Dagur sagði frá. Veitt við Azoreyjar Túnfiskveiðibáturinn Byr frá Vestmannaeyjum var við veiðar við Azoreyjar í vikunni og fékk þar átta túnfiska og tvo sverðfiska. Búist er við að Byr komi aftur til eyja í júli með allan afla veiðiferðarinnar. Morgunblaðið sagöi frá. Þuríður leiðir Þuríður Back- man, hjúkrunar- fræðingur á Eg- ilsstöðum, mim leiða framboðs- lista Vinstri hreyfingar græns framboðs við alþingiskosn- ingamar i Austurlandskjördæmi. Annað sætið skipar Gunnar Ólafs- son jarðfræðingur og það þriðja Gunnar Pálsson bóndi. Nígeríumaðurínn eftirtýstur Nígeríumaðurinn sem er í gæslu- varðhaldi hérlendis vegna ávísana- fólsunar er eftirlýstur í Austurriki fyrir fikniefnadreifmgu, skjalafals, svik og líkamsmeiðingar. Gæslu- varðhald mannsins á að renna út 18. mars. Morgunblaðið sagði frá. Lítiö brottfall Ejarkennsla Verkmenntaskólans á Akureyri er orðin griðarlega vin- sæl og nú stunda hátt í 300 manns nám með þessum hætti við skólann. Að sögn umsjónarmanna fjarkennsl- unnar er brottfall úr henni mjög lít- ið, eða um 10%. Dagur sagði frá. Ummælum fagnað Kaupmannasamtök íslands sögð- ust um helgina fagna ummælum Geirs Haarde ijármálaráöherra á landsfúndinum varðandi smásölu bjórs og léttvíns. Samtökin vonast jafnframt til að ráðherrann láti at- hafnir fylgja orðum fái hann til þess umboð eftir kosningamar. Halldór mun berjast í helgarviðtali Dags segir Hall- dór Ásgrímsson að hann hafi góða starfsorku og muni vinna af krafti í kosninga- baráttunni sem fram undan er. „Mér ftnnst ég hafa eitthvað tfl að berjast fyrir. Og ég ætla að berjast,“ segir Hafldór. Skortur á hjúkkum Félag íslenskra hjúkrunarfræð- inga kynnir í dag skýrslu um manneklu í hjúkrun. í skýrslunni eru enn fremur birt spá um þörf fyrir hjúkranarfræðinga næstu 15 árin. ViUa leyfa hnefaleika Æskulýðs- og iþróttanefnd Sjálf- stæðisflokksins hugðist í gær leggja fram tillögu á landsfúndinum um að ólympískir hnefaleikar verði leyfðir á ný hér á landi. Morgunblaðið sagði frá. -KJA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.