Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1999, Qupperneq 6
6
FIMMTUDAGUR 18. MARS 1999
Fréttir
DV
Skipti á dánarbúi í höröum hnút:
Gaf sig út fýrir að vera
á vegum skiptaréttar
- þóttist ekki vera eitt né neitt, segir Sigurður Pétur Harðarson
Siguröur Pétur Harðarson, hjálp-
arhella Sophiu Hansen í forræðisdeil-
unni við Halim Al, gaf sig út fyrir að
vera opinber sýslunarmaður í Kaup-
mannahöfn í febrúar sl. í þeim til-
gangi að fá hálfsystur Sophiu, Guð-
rúnu Á Ásgeirsdóttur, til að selja
Sophiu erfðahlut sinn í dánarbúi
móður þeirra. í fór með Sigurði var
bróðir þeirra Sophiu og Guðrúnar,
Guðmundur H. Guðmundsson. Þeir
fundu Guðrúnu í Kaupmannahöfn
eftir að hafa spurst fyrir um dvalar-
stað hennar á skrifstofu félagsmála-
stofnunar Kaupmannahafnar og
fengu hana síðan til að gera samning
við Sophiu Hansen um kaup Sophiu
á arfshlutanum. Auk þess fengu þeir
hana til að undirrita umboð til bróð-
urins til að ráðstafa öðrum arfl sem í
hennar hlut kann að koma en fast-
eignarhlutanum.
DV hefur fengið staðfest að Sigurð-
plaggi sem hann ritaði af því tilefni.
Þar segir m.a: „Jeg kommer for det
islandske kurator samt den islandske
sagfórer Ragna Hall som er sagefórer
for en del af familien." Sigurður Pét-
ur vísar því á bug að hafa sagst vera
skiptaráðandi eða að hafa látið það í
veðri vaka nokkurs staðar í um-
ræddri Kaupmannahafnarferð. DV
ræddi við fyrrum sambýlismann
Guðrúnar Á. Ásgeirsdóttur, Svend
Yde. Hann segir að Sigurður hafl
sagst vera frá skiptaréttinum á ís-
landi og hann hafi því gefið honum
upp núverandi heimilisfang fyrrum
sambýliskonu sinnar.
DV spurði Ragnar Hall, lögmann
Sophiu Hansen, um þetta mál og
hvort Kaupmannahafnarforin hefði
verið farin með vitund hans eða
vilja. Hann óskaði ekki eftir að tjá sig
um málið. DV hefur einnig spurt
skiptastjóra dánarbúsins, Jóhannes
‘C'mvo,;
Efst er samningur millf Sophiu Hansen og Guðrúnar Á. Ásgeirsdóttur þar
sem Sophia kaupir erfðahlut Guðrúnar í T úngötu 32. Undir þvf er minnisblað
félagsráðgjafa hjá félagsmálastofnun Kaupmannahafnar um heimsókn Sig-
urðar Péturs Harðarsonar sem leitaði Guðrúnar í Kaupmannahöfn. í minnis-
blaðinu er Sigurður kallaður „kurator" eða skiptastjóri. Þá kemur umboð
Guðrúnar til Guðmundar H. Guðmundssonar hálfbróður síns. Neðst er yfir-
lýsing Sigurðar um erindi sitt hjá félagsmálastofnun Kaupmannahafnar. Þar
segir: „Hendes mor er död. Jeg kommer for det islandske kurator samt den
islandske sageförer Ragna Hall som er sageförer for en del af familien. Þetta
plagg undirrita Sigurður Pétur og Guðmundur H. Guðmundsson.
ur og bróðirinn hafi komið á félags-
málastofnunina. DV hefur fengið
minnisblað frá félagsráðgjafa þar um
heimsóknina. í því er talað um Sig-
urð Pétur sem „kurator" eða skipta-
stjóra sem kominn sé til Kaupmanna-
hafnar til að leiða til lykta erfðamál
og fá skjólstæðing stofnunarinnar til
að undirrita nokkur skjöl. Sigurður
Pétur var beðinn að gera skriflega
grein fyrir sér á skrifstofu félags-
málastofnunarinnar. DV hefur
einnig undir höndum afrit af því
Sigurður Pétur Harðarson. Félags-
ráðgjafar á Félagsmálastofnun
Kaupmannahafnarborgar og vinir
systur Sophiu Hansen töldu hann
vera á vegum skiptaréttar, eða jafn-
vel skiptastjóra sjálfan.
Rúnar Jóhannsson, hvort förin hefði
verið farin á hans vegum eða dánar-
búsins. Hann kvað svo ekki vera.
Sjálfur vill Sigurður ekkert um það
segja á hvers vegum ferðin var farin.
Fordæmum gerninginn
Rósa, systir Sophiu, sem stutt hef-
ur systur sína dyggilega í forræðis-
deilunni við Halim A1 og m.a. farið 43
sinnum með henni til Tyrklands, og
Runólfur Vigfús Jóhannsson, lækna-
kandídat í Kaupmannahöfn, sonur
Guðrúnar, fordæma þennan geming.
Með honum hafi verið gripið freklega
inn í opinber skipti dánarbúsins og
gripið fram fyrir hendur Runólfs og
logmanns þeirra, Sigurðar Helga
Guðjónssonar hæstaréttarlögmanns,
sem saman gæta hagsmuna Guðrún-
ar. Þau Rósa, Runólfur og Sigurður
Helgi segja að frmnkvæði þeirra Sig-
urðar Péturs og bróðurins sé ekki
síst ámælisvert í því ljósi að Guðrún
er langt leidd af völdum áfengisfikn-
ar og alls ófær um að gera sér grein
fyrir hagsmunum sínum og taka
ákvarðanir um fjárhagsleg mál sín.
Með því að fá hana til að undirrita
illskiljanlegan samning - verri en
drög sem fyrir lágu - um sölu á arfs-
hluta sínum til Sophiu Hansen og
gefa út umboð til bróðurins til að
ganga frá skiptum dánarbúsins að
öðm leyti hafi þeir verið að færa sér
í nyt ástand Guðrúnar og ráðist á
Húseignin Túngata 32 í Reykjavík. Sophia Hansen hefur keypt upp arfshluta allra systkina sinna. Sonur einnar syst-
urinnar segir móöur sína hafa verið narraða til að skrifa undir sölu á hennar hluta.
garðinn þar sem hann var lægstur.
Þau segja að umræddur samningur,
sem Guðrún undirritaði í Kaup-
mannahöfn þann 19. febrúar sL, við
Sophiu Hansen sé þannig orðaður að
nánast sé um að ræða sjálfdæmi
Sophiu um hvemig hún efnir hann. í
stað staðgreiðslutilboðs sem Sophia
hafði áður gefið hyggist hún nú
skammta Guðrúnu úr hnefa án þess
aö nokkur trygging sé fyrir efndum
af hennar hálfu.
Þóf um búskipti
Opinber skipti á dánarbúi Rúnu
Guðmundsdóttur hafa staðið í þófi
um nokkurt skeið. Deilt var um
verðmæti megineignar búsins, sem
er meginhluti fasteignarinnar að
Túngötu 32 í Reykjavík, og hvernig
eigi að ráðstafa henni milli erfingj-
anna, sjö bama Rúnu. Sophia Han-
sen hefur búið í eigninni, fyrst í
skjóli móður sinnar en síðan í skjóli
dánarbúsins um árabil. Sigurður
Pétur Harðarson hefur ennfremur
búið þar, að minnsta kosti með ann-
an fótinn, að því er Runólfur, Rósa
og lögmaður þeirra segja. í þjóðskrá
er hann hins vegar skráður til
heimilis annars staðar.
Sophia hefur nú eignast arfshlut-
deild allra erfingja að eigninni ann-
arra en Guðrúnar. Auk eigin arfs-
hlutdeildar fékk Sophia arfshluta
Jónu Rúnu Kvaran hálfsystur sinn-
ar að gjöf frá henni. Hina fimm
eignarhlutana hefur hún staðgreitt
með rúmum tveimur milljónum
króna hvem. Um er að ræða tvær
íbúðir í húsinu að Túngötu 32, en sú
þriðja, kjallaraíbúðin, er séreign
Runólfs, sonar Guðrúnar. Lætur
nærri að hún hafi reitt fram rúmar
6 milljónir vegna þessara kaupa og
yfirtekið tveggja milljóna króna veð
sem á eigninni hvílir. Hlutur Guð-
rúnar i dánarbúinu var sá eini sem
Sophia hafði ekki enn eignast.
Ástæða þess er sú, að sögn Sigurðar
Helga Guðjónssonar, lögmanns Guð-
rúnar, að Runólfur sonur hennar
taldi verðið sem í boði var of lágt og
vildi ræða málið við hana sjálfa.
Áður en af þeim fundi þeirra varð
höfðu Sigurður Pétur og Guðmund-
ur náð til Guðrúnar. -SÁ
Skipti dánarbús Rúnu Guðmundsdóttur:
Skiptafundur fljótlega
- íhuga aðgerðir, segir lögmaður Guðrúnar
„Ég hef fengið í hendur ákveðinn
hluta þessara gagna en hver við-
brögð mín verða í framhaldinu get
ég ekkert um sagt á þessari stundu.
Ég mun væntanlega halda skipta-
fund í búinu áður en ég aðhefst eitt-
hvað frekar," sagði Jóhannes Rúnar
Jóhannsson, skiptastjóri dánarbús
Rúnu Guðmundsdóttur, í samtali
við DV um kaupsamning Sophiu
Hansen á erfðahluta systur hennar,
Guðrúnar Á. Ásgeirsdóttur og önn-
ur gögn úr Kaupmannahafnarför
Sigurðar Péturs Harðarsonar.
Sigurðm Helgi Guðjónsson, lög-
maður Guðrúnar, og Runólfur Vig-
fús Jóhannsson, sonur hennar,
segja báðir í samtali við DV að drög
að samkomulagi hafi verið komin á
horðiö í samningaumleitunum
Sophiu Hansen og lögmanns henn-
ar, Ragnars H. Hall um kaup Sophiu
á erfðahluta Guðrúnar í Túngötu 32.
Sá erfðahluti var sá eini sem Sophia
átti eftir að eignast. Þeir Runólfm
aúr heiðskiru lofti
Harðarson og Guð-
mundur H. Guð-
Sophiu, komu frá
Sigurður Helgi Kaupmannahöfn
Guðjónsson með undirritaðan
hæstaréttar- kaupsamning milli
lögmaður, lög- Guðrúnar og
maður Guðrún- Sophiu á þessum
ar Á. Ásgeirs- erfðahluta. Sigurð-
dóttur. ur Helgi segir að
samningurinn sé
mun óhagstæðari skjólstæðingi sín-
um en þau drög sem fyrir lágu og að
hann íhugi næstu skref í málinu,
ekki síst í ljósi ástands Guðrúnar og
þess á hversu ósvifinn hátt var
gengið fram hjá þeim sem gættu
hagsmuna hennar i málinu við öfl-
un samningsins.
Jóhannes Rúnar Jóhannsson
skiptastjóri segist ekki hafa séð um-
rædd drög en vitað af þeim. Spurð-
ur um afdrif þeirra eftir Kaup-
mannahafnarferðina þá séu drögin
væntanlega úr gildi fallin. Aðspurð-
ur um Kaupmannahafnarsamning-
inn vildi skiptastjóri ekki segja ann-
að en það að hann væri nokkuð sér-
stakur.
Auk þess að Guðrún undirritaði
fyrrnefndan kaupsamning við
Sophiu í Kaupmannahöfn undirrit-
aði hún einnig handskrifað umboð
til hálfbróður síns, Guðmundar H.
Guðmundssonar, til að annast loka-
skipti á dánarbúi Rúnu, móður
þeirra. Það umboð er dagsett 19.
febrúar sl. Fimm dögum síðar, þann
24. febrúar, endumýjaði Guðrún
fyrra umboð sitt til Runólfs, sonar
síns, til að annast persónuleg mál
sín og fjárhagsmál og veitir honum
fulla heimild til að taka ákvarðanir
um þau. -SÁ