Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1999, Blaðsíða 46
LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999 I W
m afmæli
lil hamingju með
afmælið 15. maí
95 ára
Jóhannes Jónsson,
Hóli, Grýtubakkahreppi.
90 ára
Björg Jónsdóttir,
Álagranda 8, Reykjavík.
80 ára
Jónatan Kristleifsson,
Hrafnistu, Hafharfirði.
Sesselja Sigurðardóttir,
Sörlaskjóli 62, Reykjavík.
75 ára
Hólmfríður
Friðbjarnardóttir,
Stangarholti 9, Reykjavík.
70 ára
Signý Guðmundsdóttir,
Höíðavegi 11, Höfn.
Hún tekur á móti gestum á
Kirkjubraut 54, Höfn, á afmæl-
isdaginn kl. 15.00-20.00.
Halldóra F. Þorvaldsdóttir,
Víkurbraut 9 b, Sandgerði.
Herdís Helgadóttir,
Eyjatakka 5, Reykjavík.
60 ára
Anna B. Jónsdóttir,
Langholtsvegi 167 a,
Reykjavík.
Ársæll Guðmundsson,
Skálholtsbraut 1, Þorlákshöfn.
Eyjólfur Sverrisson,
Hraunbæ 168, Reykjavík.
50 ára
Þórður
Magnússon
rekstrarhag-
fræðingur,
Frostaskjóli 103,
Reykjavík.
Benedikt Guðni Þórðarson,
Laugavöllum 6, Egilsstööum.
Guðfinna S. Sigurðardóttir,
Framnesvegi 48, Reykjavík.
Helgi Ágústsson,
Kambaseli 34, Reykjavík.
Jóhanna A.
Guðmundsdóttir,
Heiðarhrauni 55, Grindavík.
Jón Gunnar Edvardsson,
Rauðageröi 8, Reykjavík.
Jón Stefnir Hilmarsson,
Blönduhlíð 8, Reykjavík.
Ólafur Friðriksson,
Álfhólsvegi 43, Kópavogi.
Sverrir Stefánsson,
Skipholti 40, Reykjavík.
40 ára
Alexander Rivine,
Austurströnd 6,
Seltjamamesi.
Bjöm Jónsson,
Reynivöllum 2, Akureyri.
Eva Sólveig Úlfsdóttir,
Melasíðu 8 i, Akureyri.
Eyþór Hólm Jóhannesson,
Laugartúni 14, Akureyri.
Heimir Sigursveinsson,
Oddnýjarbraut 3, Sandgerði.
Helga Siguijónsdóttir,
Leimbakka 10, Reykjavík.
Jón Ágúst Sigurjónsson,
Stapa, Homafirði.
Lárus V. Sveinbjömsson,
Rofabæ 31, Reykjavík.
Logi Emis Sigvaldason,
Hverfisgötu 108, Reykjavík.
Qerime Vokrri,
Hlíðargötu 14, Neskaupstað.
Sigurður Ingvason,
Borgarbraut 3, Búðardal.
Sigurlína Siguijónsdóttir,
Búhamri 52,
Vestmannaeyjum.
Stefán Ingvar Stefánsson,
Brekkubarði 1, Eskifirði.
Steinar B. Sigvaldason,
Egilsgötu 16, Reykjavík.
Steingrímur Davíðsson,
Jón Guðmundsson
Jón Guðmundsson, forstjóri
Sjólaskipa, til heimilis að Háa-
hvammi 4, Hafnarfirði, er sjötugur í
dag.
Starfsferill
Jón fæddist að Hvammi í Land-
sveit og ólst þar upp. Hann flutti til
Reykjavíkur 1945 og bjó þar til 1988,
er hann flutti til Hafnarfjarðar þar
sem hann hefur átt heima síðan.
Jón er húsasmíðameistari og
starfaði við húsasmíðar og akstur
til 1963 en þá hóf hann útgerð og
fiskvinnslu í Reykjavík ásamt
tengdafóður sínum, Haraldi Krist-
jánssyni skipstjóra.
Þeir stofnuðu Sjólastöðina 1965 og
sex árum síðar var fyrirtækið flutt
til Hafnarfjarðar. Árið 1992 var fyr-
irtækinu deildaskipt og Sjólaskip
stofnað, sem gerir út togarana Sjóla
HF-1 og Harald Kristjánsson HF-2.
Jón hefur m.a. setið í stjórn
Skipafélagsins Bifrastar, Sam-
einaðra framleiðenda, Útgerðar-
mannafélags Reykjavíkur, íslenskra
sjávarafurða, Útgerðarmannafélags
Hafnarfjarðar og er nú stjómarfor-
maður Sjólaskipa.
Fjölskylda
Jón kvæntist 31.5.1952
Marinellu Ragnheiði
Hciraldsdóttur, f. 14.9.
1933. Hún er dóttir Har-
aldar Kristjánssonar, f.
1.4. 1905, d. 23.6. 1980,
skipstjóra og útgerðar-
manns, og Ragnheiðar S.
Erlendsdóttur, f. 9.3.
1896, d. 16.1. 1977, hús-
móður.
Börn Jóns og Marin-
ellu eru Haraldur R. Jónsson, f. 26.5.
1953, framkvæmdastjóri, kvæntur
Guðmundu Þ. Gísladóttur og eiga
þau þrjú böm; Guðmundur S. Jóns-
son, f. 27.3.1956, framkvæmdastjóri,
kvæntur Gígju Jónatansdóttur og
eiga þau tvö böm; Ragnheiður J.
Jónsdóttir, f. 19.3. 1960, enskukenn-
ari, gift Arnóri Víkingssyni lækni
og eiga þau fiögur böm; Berglind
Björk Jónsdóttir, f. 7.9. 1969, píanó-
kennari, gift Sigurði E. Eiríkssyni
tannlækni og eiga þau eina dóttur.
Bróðir Jóns er Þórir K. Guð-
mundsson, f. 17.11. 1936, vélgæslu-
maður i Garðabæ, var kvæntur
Bjamdísi Eygló Indriðadóttur sem
lést fyrr á árinu en þau
eignuðust fiórar dætur.
Foreldrar Jóns eru
Guðmundur Jónsson, f.
8.9. 1899, d. 1982, bóndi í
Hvammi í Landsveit, og
Steinunn Gissurardóttir,
f. 23.11. 1906, nú búsett í
Garðabæ.
Guðmundur var son-
ur Jóns, b. í Hvammi á
Jón Guðmundsson. Landi Gunnarssonar, b. í
Hvammi, bróður Jóns, langafa Mar-
grétar Guðnadóttur prófessors og
Guðnýjar, móður Guðlaugs Tryggva
Karlssonar. Gunnar var sonur
Áma, b. á Galtalæk Finnbogasonar,
b. á Reynifelli Þorgilssonar. Móðir
Gunnars var Margrét Jónsdóttir,
smiðs í Háagarði í Vestmannaeyj-
um Jónssonar. Móðir Jóns var
Guðrún Brandsdóttir, b. á Felli í
Mýrdal Brandssonar, ættfóður Vík-
inslækjarættar Halldórssonar.
Móðir Guðmundar var Ólöf Jóns-
dóttir, b. í Lunansholti á Landi Ei-
ríkssonar, b. í Tungu Jónssonar, b.
á Rauðnefsstöðum Þorgilssonar,
bróður Finnboga. Móðir Jóns í
Lunansholti var Guðrún, systir Eyj-
ólfs, langafa Odds, fóður Davíðs for-
sætisráðherra. Guðrún var dóttir
Odds, b. á Fossi á Rangárvölium
Guðmundssonar. Móðir Guðrúnar
var Margrét Ólafsdóttir, b. á Fossi
Bjamasonar, bróður Brands á Felli.
Steinunn er dóttir Gissurar, b. á
Gljúfri í Ölfusi, bróður Gottskálks,
langafa Gissurar, fóður Hannesar
Hólmsteins. Gissur var sonur Sig-
urðar, b. á Krossi Gissurarsonar, b.
á Reykjum í Ölfusi Þóroddssonar.
Móðir Gissurar var Guðrún Sigurð-
ardóttir, systir Bjarna Sívertsen
riddara. Móðir Steinunnar var Jón-
ína, systir Vilhjálms, foður Vil-
hjálms S. Vilhjálmssonar rithöfund-
ar. Jónína var dóttir Ásgríms, b. á
Gljúfri í Ölfusi Sigurðssonar, b. í
Reykjanesi í Grímsnesi Jónssonar.
Móðir Jónínu vair Þuríður Guð-
mundsdóttir, b. á Stærribæ í Gríms-
nesi Guðmundssonar og Guðrúnar
Ólafsdóttur.
Jón og Marinella taka á móti gest-
um í nýinnréttuðum sal, Tuminum,
á 7. hæð Verslunarmiðstöðvarinnar
að Fjarðargötu 13-15 í miðbæ Hafn-
arfiarðar, í dag kl. 16.00-19.00.
Kári Geirlaugsson, Hrisholti 13,
Garðabæ, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Kári fæddist á Akranesi og ólst
þar upp til sextán ára aldurs er
hann flutti til Reykjavíkur.
Hann varð gagnfræðingur frá
Gagnfræðaskóla Austurbæjar 1965,
var í námi í Drottningborg hand-
elskole í Grimstad í Noregi 1966-67,
var í enskunámi í Boumemouth i
Englandi 1970-71, í námi í viðskipta-
og markaðsfræði í Bournemouth
Technology College 1971-76, lauk
OND-prófi í viðskiptafræðum þar
1973, HND-prófi í markaðsfræði 1976
og member of institute of market-
ing-prófi 1976.
Kári var skrifstofumaður hjá
Slippfélaginu 1967-70, framkvæmda-
stjóri hjá Sælgætisgerðinni Vikingi
1976-77 og sölustjóri hjá Gamla
kompaníinu 1977-78. Kári hefur ver-
ið innkaupa- og sölustjóri og síðan
framkvæmdastjóri heildverslunar
Guðmundar Arasonar frá 1978.
Kári var íslandsmeistari í knatt-
spymu hjá yngri flokki ÍA 1963,
keppti í sundi með ÍA og Ármanni
og varð unglingameistari og ís-
landsmeistari í sundi 1965-68. Hann
hefur starfað í KFUM, Kristilegu
skólafélagi og Gideon. Hann hefur
verið í stjóm Gideon 3 frá upphafi,
1980, og séð um bamastarf KFUM i
Garðabæ frá 1983. Kári var í stjóm
frjálsíþróttadeildar Ármanns
1985-88, hefur setið í stjórn Lands-
Kári Geirlaugsson
sambands Gideonfélaganna i nitján
ár og var forseti þess um skeið.
Fjölskylda
Kári kvæntist 28.7. 1973 Önnu Jó-
hönnu Guðmundsdóttur, f. 27.7.
1952, bókara. Foreldrar Önnu eru
Guðmundur Arason, f. 17.3. 1919,
forstjóri í Garðabæ, og k.h., Rann-
veig Þórðardóttir, f. 12.5. 1923, hús-
móðir.
Böm Kára og Önnu eru Guð-
mundur, f. 18.5.1974, sölumaður, bú-
settur í Garðabæ; Erla Björg, f. 29.8.
1978, nemi við KHÍ, búsett í Garða-
bæ; Rannveig, f. 4.5. 1983, grunn-
skólanemi.
Systkini Kára em Inga Þóra, f.
29.5. 1948, kennari í Reykjavík, gift
Jóni Dalbú Hróbjartssyni, presti í
Hallgrímskirkju; Hörður, f. 12.9.
1951, deildarstjóri hjá Sementsverk-
smiðju ríkisins í Reykjavík, kvænt-
ur Sigrúnu Gísladóttur kennara;
Þuríður Ema, f. 17.3. 1954, starfs-
stúlka í Þvottahúsi Ríkisspítalanna,
búsett í Reykjavík; Laufey Guðríð-
ur, f. 6.5. 1963, söngkona, búsett í
Reykjavík, gift Sigurbimi Þorkels-
syni, framkvæmdastjóra KFUM og
K; Geirlaug Björg, f. 24.8. 1967,
íþróttakennari, búsett i Kópavogi
en maður hennar er Kristján Harð-
arson.
Foreldrar Kára em Geirlaugur
Ámason, f. 24.8. 1926, d. 13.7. 1981,
framkvæmdastjóri og söngstjóri á
Akranesi, og k.h., Sveinbjörg Am-
mundsdóttir, f. 15.2. 1927, húsmóðir.
Ætt
Geirlaugur var sonur
Árna, rakara á Akra-
nesi, bróður Gunnvarar,
móður Gunnars M.
Magnúss rithöfundar.
Ámi var sonur Sigurð-
ar, húsmanns á Bergi í
Reykjavík Jónssonar.
Móðir Árna var Þuríður,
systir Guðmundar,
langafa Birgis ísleifs
Gunnarssonar seðla-
bankastjóra. Þuríður var dóttir
Áma, ættfoður Meiðastaðaættar í
Garði Þorvaldssonar.
Móðir Geirlaugs var Þóra Einars-
dóttir, b. í Landakoti á Akranesi Ás-
geirssonar Möller, silfursmiðs á
Læk Christianssonar Möller, kaup-
manns í Reykjavík. Móðir Ásgeirs
var Sigríður, systir Bjarna, langafa
Svanhildar, móður Ólafs Ragnars
Grímssonar forseta. Sigríður var
dóttir Eiríks, b. á Rauðará Hjartar-
sonar. Móðir Eiríks var Rannveig
Oddsdóttir Hjaltalin, Irm. í Reykja-
vík Jónssonar Hjaltalín, sýslu-
manns í Reykjavík og ættföður
Hjaltalínsættarinnar. Móðir Einars
var Petrína, móðir Guðmundar, afa
Birgis Þorgilssonar, fyrrv. ferða-
málastjóra og langafa Árna
Mathiesen alþm. Petrína var dóttir
Péturs Rist, verslunarstjóra í
Reykjavík, og Þorbjargar Jónsdótt-
ur. Móðir Þóra var Geirlaug, systir
Margrétar, langamma Friðriks
Ólafssonar, stórmeistara
og skrifstofustjóra Al-
þingis. Geirlaug var
dóttir Kristjáns, b. á
Akri á Akranesi Símon-
arsonar, bróður Bjama,
langafa Rögnvaldar Sig-
urjónssonar píanóleik-
ara. Móðir Geirlaugar
var Þóra Jónsdóttir, b. á
Kópsvatni Einarssonar
og Katrínar Jónsdóttur,
b. í Reykjadal Eiríksson-
ar, ættfoður Bol-
holtsættar Jónssonar.
Móðursystkini Kára eru Jó-
hanna, móðir Ammundar Backman
hrl. og Eddu Heiðrúnar Backman
leikkonu; Sigurður, kvæntur Val-
gerði Þórólfsdóttur, og Amfríður,
kona Jónasar Gíslasonar, prófess-
ors í guðfræði, móðir Gísla pr. og
Arnmundar, formanns KFÚM í
Reykavík. Sveinbjörg var dóttir
Arnmundar, kaupmanns og skálds
á Akranesi Gíslasonar, b. í Kverkár-
tungu í Norður-Múlasýslu Ámason-
ar. Móðir Sveinbjargar var Ingiríð-
ur Sigurðadóttir, b. Grímsstöðum í
Reykholtsdal, Jónssonar og konu
hans, Jóreiðar Jónsdóttur.
Kári og Anna Jóhanna verða með
gestamóttöku í aðalstöðvum KFUM
og K við Holtaveg á afmælisdaginn
milli kl. 16.00 og 19.00.
Gestamóttakan hefst með tón-
leikahaldi stundvíslega kl. 16.00 en
síðan verða reiddar fram veitingar.
Kári Geirlaugsson.
Ævar Birgisson Olsen
Ævar Birgisson Olser
matreiðslumeistari,
Heiðarbóli 17, Keflavík
er fertugur i dag.
Starfsferill
Ævar fæddist í Kefla
vík en ólst upp í Njarð
vík. Hann lauk gagn
fræðaprófi og stundaði
nám við Hótel- og veit
ingaskóla íslands
1977-81.
Ævar starfaði við Hót-
el Ólafsfiörð 1981 og
meistari á Keflavíkur-
flugvelli 1982-93. Hann
stofnaði síðan veitinga-
staðinn Olsen Olsen í
Keflavík og hefur starf-
rækt hann síðan.
Ævar er meðstjórandi
í íþróttaráði Reykjanes-
bæjar frá 1998.
Fjölskylda
Ævar kvæntist 15.7.
1989 Eddu Gunnarsdótt-
ur, f. 18.9. 1966, fram-
var fram- kvæmdastjóra. Hún er dóttir Gunn-
Ævar Birgisson Olsen.
kvæmdastjóri og yfirmatreiðslu- ars Skarphéðinssonar, rafeinda-
virkjameistara í Garðabæ, og Ragn-
hildar Gunnlaugsdóttur, húsmóður
og listamanns.
Börn Ævars og Eddu em Gunnar
Ævarsson Olsen, f. 24.8. 1990; Elín
Ævarsdóttir Olsen, f. 10.7.1998.
Sonur Gunnars frá því áður er
Birgir Júlíus Olsen, f. 23.11. 1985,
búsettur í Hafnarfirði.
Systkini Ævars era Jón B. Olsen,
f. 14.12. 1956, skrúðgarðyrkjumeist-
ari í Keflavík; María M.S. Olsen, f.
13.10.1962, tollvörður, búsett í Kefla-
vík; Björk B. Olsen, f. 12.8.1964, hús-
móðir, búsett á Egilsstöðum.
Foreldrar Ævars eru Birgir 01-
sen, f. 22.3.1937, járnsmiður í Njarð-
vík, og Alda Jónsdóttir, f. 28.6. 1937,
húsmóðir.
Ætt
Birgir er sonur Olav Olsen, vél-
smiðs frá Noregi, og k.h., Bjarnrún-
ar M. Jónatansdóttur húsmóður.
Alda er dóttir Jóns Jóhannsson,
skipstjóra á Siglufirði, og k.h., Mar-
íu Hjálmarsdóttur húsmóður, frá
Helgustöðum í Skagafirði.
Ævar verður að heiman á afmæl-
isdaginn.