Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1999, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999
13
- íslendingar gera upp sögu árþúsundsins
Á þessu síöasta ári árþúsundsins munu DV, Bylgjan
og Vísir.is standa fyrir viöamikilli könnun meöal
landsmanna um hvaöa íslendingar og hvaða atburðir
hafi mótaö mest líf okkar undanfarin þúsund ár.
I hverri viku verður kastljósinu beint að ákveönum
geirum sögunnar meö greinum í DV, umræðum á
Bylgjunni og ýmisskonar fróðleik á Vísi.is og reynt
að draga fram þá menn og þau mannanna verk
sem hafa haft einna afdrifaríkustu áhrif
á söguna.
Landsmenn geta tilnefnt þá einstaklinga, atburöi
og þau bókmenntaverk sem þeir telja að beri af í
1000 ára sögu þjóðarinnar.
Tilnefningar berist DV, Bylgjunni eða Vísi.is fyrir
10. júní nk.
Almenningur getur síðan sagt skoðun sína í beinni
útsendingu á Bylgjunni eða á Lögréttu á Vísi.is
og greitt atkvæði um hver íslendinga hafi dugað
þjóð sinni best.
Á fullveldisdaginn, 1. desember, verða atkvæðin
úr öllum flokkum dregin saman og tilkynnt hver er
íslendingur árþúsundsins.
m
V <2 m ■ UT
Hr é
IBYL GJANj