Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1999, Page 22
22
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1999 JjV
frkamál
Lygavefurinn
Linda Brown, tuttugu og eins árs,
lá á hjónarúminu er að var komið.
Hún hafði verið skotin tveimur
skotum í brjóstið með skammbyssu.
Vopniö lá á gólfinu skammt frá.
Flest benti til að um morð væri að
ræða. Vettvangurinn var ríkulega
búið einbýlishús efnamannsins
Davids Brown, sem var þrjátíu og
fjögurra ára og bjó í Ocean Breeze í
Kalifomíu. Atvikið hafði átt sér
staö skömmu eftir miðnætti 19.
mars 1985.
David og Linda höfðu eignast
dóttur, Krystal, sem var tíu mánaða
þegar þetta gerðist en að auki bjó
þama Patti Bailey, sextán ára systir
Lindu.
Andleg vandamál
David skýrði rannsóknarlög-
lyfium. Hún var talin í bráðri lífs-
hættu og var i skyndi flutt á sjúkra-
hús þar sem hún komst ekki til
meðvitundar fyrr en fjörutíu
klukkustundum síðar. Þá skýrði
hún svo frá að hún hefði skotið
Lindu. Á eftir sagðist hún hafa tek-
ið allar þær pillur sem hún hefði
fundið í þremur glösum, þvi hún
hefði ætlaö að svipta sig lífi.
Skömmu eftir að hafa gert játn-
inguna missti Cinnamon minnið.
Tédið var að um sálræn viðbrögð
væri að ræða og mörg ár gætu liðið
þar til henni reyndist unnt að rifja
upp það sem gerst hafði.
Þann 19. september 1985 var
Cinnamon, sem var þá orðin fimmt-
án ára, dæmd í tuttugu og fimm ára
fangelsi fyrir að hafa myrt stjúp-
móður sína og sett í unglingafang-
elsi í Ventura.
andi eiginkona hans, móðir Cinna-
mon, sagði hann nánast einungis
laðast að ungum stúlkum. Þrátt fyr-
ir að um væri að ræða framburð
fyrrverandi eiginkonu tóku fulltrú-
amir mark á honum, enda reyndist
ýmsilegt renna stoðum undir að
hann væri réttur.
Margkvæntur
Linda hafði verið fjórða eigin-
kona Davids. Það var því ljóst að
hann hafði ekki verið við eina fjöl-
ina felldur. Hún hafði aðeins verið
sautján ára þegar hann kvæntist
henni. Þessu til viðbótar kom fram
við rannsókn fulltrúanna að David
hafði líftryggt Lindu hjá þremur fé-
lögum, alls fyrir 85.000 dali.
Brown átti sér athyglisverðan
feril. Hann var tölvusnillingur og
milljónamæringur. Sérgrein hans
var hönnun nýrra gagnakerfa. En
hann átti enga vini meðal karl-
manna. Hann umgekkst einungis
ungar konur og þótt hann væri
bólugrafinn í framan virtist hann
hafa mjög sterk áhrif á þær og ná
miklu valdi yfir þeim.
Næstu þrjú ár fylgdust þeir McLe-
an og Newell með ferðum Davids.
Þeir komust meðal annars að því að
Patti hafði gert hjónarúmið að
svefnstað sínum skömmu eftir morð
systur hennar. Þá hafði David keypt
annað og stærra hús og virtist Patti
hafa mikið fé milli handa. Þau Dav-
id höfðu svo gengið í hjónaband
háifu öðru ári eftir voðaverkið. Þau
eignuðust síðar dóttur sem var
skírð Heather.
Frátt sem kom á óvart
Þessi þrjú ár kom David reglulega
í heimsókn til dóttur sinnar, Cinna-
mon, í fangelsið. En hann minntist
aldrei á að hann byggi með Patti.
Cinnamon hélt því stöðugt fram
að hún gæti ekkert munað um
morðið. En það virtist fá á hana þeg-
ar heimsóknum föður hennar fækk-
aði. Dag einn kom amma hennar til
hennar og þá sagðist Cinnamon
ekki skilja hvers vegna hún sæti
enn inni því faðir hennar hefði lof-
að henni því að fá hana látna lausa
áður en langt um liði. Amman sagði
henni nú að David og Patti hefðu
gift sig og eignast dóttur og þá fékk
Cinnamon áfall. í framhaldi af því
David Brown.
reglumönnum svo frá að hann
heföi verið háttaður en ekki getað
sofnað. Um hálftólfleytið hefði
hann farið á fætur og í gönguferð á
ströndinni. Þegar hann hefði kom-
ið heim aftur hefði Patti verið með
móðursýkiskast og Krystal litlu í
fanginu. Unga stúlkan heföi sagt
sér grátandi að hún hefði vaknað
við tvo skothvelli. Nokkrum
augnablikum síðar hefði Cinna-
mon, fjórtán ára dóttir Davids,
komið út úr hjónaherberginu með
skammbyssu í hendinni og skotið
á sig en ekki hitt. Sagðist Patti
hafa komist undan og hlaupið út
úr húsinu.
David sagði fulltrúunum sem
fóru með málið, Fred McLean og
Jay Newell, að Cinnamon hefði
þjáðst af andlegum vandamálum
undanfarið hálft ár. Orsökin hefði
öðru fremur verið mikil afbrýðis-
semi út i Lindu.
Cinnamon var horfin er fulltrú-
amir komu á vettvang. En morg-
uninn eftir ákvað McLean að gera
nákvæma leit á lóðinni og fann þá
Cinnamon meðvitundarlausa í
hundahúsi. Hjá henni lá lítill miði
sem á stóð: „Fyrirgefið mér. Ég
ætlaði ekki að gera henni mein.“
Minnisleysi
Hin fjórtán ára gamla stúlka
hafði tekið stóran skammt af svefn-
Linda Brown.
Grunsemdir
Þeir McLean og Newell vom eng-
ir nýliðar í starfi og höfðu frá upp-
hafi grunsemdir um að ekki væri
allt sem sýndist í þessu máli. Þá
skoðun sína byggðu þeir meðal ann-
ars á viðtölum viö vinkonur Cinna-
mon sem þær sögöu hafa verið lifs-
glaða unga stúlku sem hefði átt vin-
samleg samskipti við Lindu. Patti,
systir Lindu, heföi hins vegar oft
rifist við hana.
Þá kom fram að David hafði
óvenjulega löngun til að vera með
ungum stúlkum. Þessi kynlífs-
hneigð hans virtist sterk. Fyrrver-
gerbreyttist framkoma hennar. í
þrjú ár haföi hún sagt að hún gæti
ekki rætt um það sem gerðist nótt-
ina örlagaríku vegna minnisleysis
en nú gerði hún boð fyrir þá McLe-
an og Newell og sagðist reiðubúin
að segja sannleikann. Hún heföi
aldrei misst minnið, aðeins sagt að
hún hefði gert það því faðir hennar
hefði sagt henni að það myndi duga
henni best.
Saga Cinnamon
Saga Cinnamon var á þá leið að
David, faðir hennar, sem hún
elskaði mjög mikið, hefði sagt sér og
Cinnamon Brown, tvítug.
una, ýtti henni inn í svefnherbergið
og sagði: „Skjóttu hana nú.“ Svo
flýtti hann sér út úr húsinu og nið-
ur á strönd.
Er Cinnamon var komin inn í
svefnherbergið gekk hún að rúminu
og skaut á Lindu. Hún vaknaði og
rak upp óp. Er Cinnamon ætlaði að
skjóta aftur stóð byssan á sér og
hún hljóp út, skelfingu lostin. Patti
stöðvaði hana, lagfærði byssuna og
sendi hana aftur inn. í þetta sinn
hitti Cinnamon beint i hjartastað.
Hún gekk síðan út úr húsinu, að
hundahúsinu, skreið inn í það og
lagðist fyrir.
Málagjöldin
Lítill vafi þykir á því leika að
David hafði talið að dóttir hans
myndi deyja af pillunum. Hann
hafði sagt fulltrúunum að hún væri
horfm þó honum væri kunnugt um
að hún lægi í hundahúsinu.
Þegar David heimsótti Cinnamon
í fangelsið í mars 1988 höfðu þeir
McLean og Newell komiö fyrir hler-
unar- og upptökubúnaði og sagt
Cinnamon að koma beint að efninu.
Hún beindi talinu að morðinu og
sagði föður sínum að hún vissi nú
allt um hann og Patti og líftrygging-
arnar þrjár. Hann gekk í gildruna.
Hann bað dóttur sina um að hlífa
sér og lofaði að gera allt sem í hans
valdi stæði til þess að fá hana látna
lausa.
Þremur vikum síðar voru þau
David og Patti handtekin og kærð
fyrir'morðið á Lindu. Patti, sem var
nú orðin nítján ára, féll saman og
játaöi. Kom saga hennar í einu og
öOu saman við sögu Cinnamon.
David var settur í gæsluvarðhald
og brátt var gefin út á hendur hon-
um ákæra fyrir morð og fyrir að
hafa ráðskast með stúlkur undir
lögaldri í þeim tilgangi að fá þær til
að vinna óhæfuverk fyrir sig.
Þann 16. júní 1990 fékk hann lífs-
tíðardóm án möguleika á náðun.
Fór dómarinn hörðum orðum um
hann. Patti fékk sömuleiðis dóm en
mun mildari.
Cinnamon var látin laus í mars
1991 en Patti fékk reynslulausn árið
1995.
Patti að hann hefði heyrt Lindu og
bróður hennar, Al, tala um að
myrða sig til þess að komast yfir
eigur sínar. Næsta hálfa ár hefði
David svo sagt stúlkunum margar
sögur um þessa fyrirætlan.
„Við verðum að koma i veg fyrir
það,“ hafði David sagt. „Við verðum
að drepa Lindu!“
David haföi átt mök við Patti síð-
an hún var þrettán ára. í byrjun
hafði hún færst undan en nú var
aUt annað uppi á teningnum. Niður-
staða fuUtrúanna varð sú að Patti
hefði vérið farin að elska hann
meira en systur sína og verið fús til
að myrða Lindu tU giftast honum.
Cinnamon hefði hins vegar vUjað
verja föður sinn.
Cinnamon var valin tU að svipta
Lindu lífi og átti David lokaorðið í
Patti Bailey.
því máli: „Þú verður að gera það því
þú ert bara fjórtán ára og færð því
enga refsingu."
r
Aætlunin verður
veruleiki
Síðla kvölds þann 19. mars 1985
sagði David að nú yrði að ganga tU
verks því næsta dag yrði hann
myrtur. Hann lét Cinnamon skrifa á
miðann sem fannst við hlið hennar
í hundahúsinu og sagði henni að
taka pillur úr þremur glösum. Hún
var komin undir áhrif svefnlyfjanna
þegar hann fékk henni skammbyss-