Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1999, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1999
fytðtal 13
Öflugra atvinnulíf öllum til hagsbóta
- Finnur Geirsson, nýkjörinn stjórnarformaður Samtaka atvinnulífsins, segir markmiðið um stöðugt verðlag hljóti að hafa forgang
Finnur ásamt starfsfólki sínu hjá Nóa-Síríus en þar hefur hann verið framkvæmdastjóri í nfu ár. DV-mynd ÞÖK
Stofnfundur Samtaka at-
vinnulífsins verður 15. sept-
ember næstkomandi. Það eru
Vinnumálasambandið og
Vinnuveitendasambandið
sem þar sameinast og munu
sjö aðildarsamtök standa að
þeim. Þessi samtök eru Sam-
tök iðnaðarins, Samtök
verslunar og þjónustu,
Landssamband íslenskra út-
vegsmanna, Samtök fisk-
vinnslustöðva, Samtök ferða-
þjónustunnar, Samtök fjár-
málafyrirtækja og Lands-
samtök íslenskra rafverk-
taka.
Hjá Samtökum atvinnulífsins
verður hundrað manna fulltrúaráð
sem kýs sér tuttugu manna stjóm
og úr þessum tuttugu manna hópi
veljast sex einstaklingar í fram-
kvæmdastjórn sem auk formanns
verður samninganefnd samtakanna.
Að sögn væntanlegs formanns,
Finns Geirssonar, verðasamninga-
mál mikilvægur þáttur i starfi sam-
takanna. „En jafnframt verður það
verkefni samtakanna að stuðla að
hagræðingu hjá aðildarsamtökun-
um, sinna sameiginlegum málum á
einum stað og forðast með því tví-
verknað.“
Sterkari saman
Hvaða kostir fylgja því fyrir að-
ildarsamtökin að sameinast undir
einum hatti?
„Fyrir utan augljósa hagræð-
ingu og lægri kostnað hjá aðildar-
félögunum hafa þau saman betri
möguleika á því að hafa áhrif á
starfsumhverfi sitt. Menn hafa séð
að það er miklu fleira sem samein-
ar en það sem sundrar og auðvitað
eru atvinnugreinarnar hver
annarri háðar ef út í það er farið.
Saman eru aðildarsamtökin einnig
betur fær um að láta til sín taka á
alþjóðlegum vettvangi og sinna
umhverfis- og menntamálum svo
dæmi séu nefnd. Öll aðildarfyrir-
tækin eiga að njóta góðs af þessu
og þar með auðvitað íslenska þjóð-
in.
Sameinaðir atvinnurekendur
ættu að eiga auðveldara með að
treysta í sessi þann árangur sem
náðst hefur á undanfórnum árum
og er afleiðing róttækra breytinga
á starfsramma fyrirtækja á síð-
ustu tíu eða fimmtán árum.
Frelsi á fjármagnsmarkaði, af-
nám verðlagshafta, hagkvæmt fyr-
irkomulag fiskveiða, einkavæðing
og tilkoma hlutafjármarkaðar á
áreiðanlega drjúgan þátt í hag-
vexti og batnandi lífskjörum síð-
ustu ára.“
Gömul fyrirtæki þurfa að
taka mio af nýjum að-
stæðum
Koma þessar breytingar í at-
vinnulífinu ekki til með að veikja
gömul fyrirtæki?
„Ég er sjálfur í forsvari fyrir til-
tölulega gömlu fyrirtæki, en Nói-
Síríus heldur upp á 80 ára afmæli
sitt á næsta ári, og get fullyrt að
svo þarf ekki að vera. Þessar nýju
aðstæður bjóða upp á fjölbreyttari
tækifæri en áður, en hins vegar
þurfa menn þá að fylgjast vel með
tímanum og aðlaga sig síbreytileg-
um aðstæðum til að vera í stakk
búnir að nýta sér möguleikana.
Samfara þessu sýnist mér að að-
hald með fyrirtækjum hafi aukist
mjög og kröfur starfsfólks, við-
skiptavina og stjórnvalda á hend-
ur þeim hafa vaxið verulega og
þessu þurfa gömul sem ný fyrir-
tæki að mæta með viðunandi
hætti."
Finnur Geirsson hefur verið
framkvæmdastjóri Nóa-Síríus i
níu ár. Áður var hann ritstjóri
Vísbendingar í þrjú ár og þar á
undan hagfræðingur hjá Verslun-
arráði í fjögur ár. Þegar hann er
spurður hvers vegna hann hafi
orðið fyrir valinu sem stjórnarfor-
maður nýju Samtaka atvinnulífs-
ins segir hann:
„Ég vænti þess að menn hafi
haft í huga bæði menntun og
starfsreynslu og ef til vill stjórnar-
störf, svo sem hjá Verslunarráði,
Útflutningsráði og Viðskiptahá-
skólanum í Reykjavík."
Öll aðildarsamtök undir
sama þak
Fyrirtækin sem standa að Sam-
tökum atvinnulífsins hafa tví-
þætta aðild, að sögn Finns, annars
vegar að sínum atvinnugreina-
samtökum og hins vegar beint að
SA, en forsenda fyrirtækjaaðildar
að SA er þátttaka þeirra í einu af
sjö atvinnugreinasamtökunum.
Nú var Þórarinn V. Þórarinsson
mjög áberandi í starfi fram-
kvæmdastjóra Vinnuveitendasam-
bandsins. Hvor ykkar Ara mun
verða í forsvari út á við fyrir sam-
tökin?
„Það verður eflaust hlutskipti
okkar beggja. í grófúm dráttum
mætti segja að formaður leiði
stjórnarstarfið sem markar sam-
tökunum stefnu og er þá talsmað-
ur hennar á meðan framkvæmda-
stjóri stýrir hinni daglegu starf-
semi og er talsmaður ýmissa mála
sem upp kunna að koma í starf-
inu.“
Hvar verðið þið til húsa?
„Markmiðið er að finna Samtök-
unum hentugt húsnæði sem fyrst,
sem hýsa mun starfsemi flestra ef
ekki allra aðildarsamtakanna. Það
væri til þess fallið að þjappa þess-
um aðildarsamtökum saman og
stuðla að því hagræði sem menn
sækjast eftir. Þangað til verður
starfsemin í húsakynnum Vinnu-
veitendasambandsins."
Fyrir utan að vera stjórnarfor-
maður Viðskiptaháskólans er
Firmur í stjórn Ræsis. Sem kunn-
ugt er er hann sonur Geirs heitins
Hallgrímssonar og þegar hann er
spurður hvort hann hafi verið al-
inn upp með það fyrir augum að
gegna ábyrgðarstöðum í viðskipta-
lífinu segir hann: „Ég var alinn
upp við það að maður væri sinnar
eigin gæfu smiður og ekki á
nokkurn hátt var reynt að hafa
áhrif á það hvað ég tæki mér fyrir
hendur. Vissulega var ég alinn
upp á mjög pólitísku heimili eins
og gefur að skilja og hef haft áhuga
á pólitík og sér í lagi öllu því sem
viðkemur efnahagspólitík. Þrátt
fyrir það hef ég ekki verið þátttak-
andi í flokkspólitík og hef látið
duga að leggja mitt af mörkum til
að hafa áhrif á umhverfið i gegn-
um störf mín, m.a. hjá Verslunar-
ráði og eins þegar ég skrifaði i Vís-
bendingu á sínum tíma. Síðan tók
ég að mér starfið í Nóa vegna þess
að mig langaði til að vera virkari
þátttakandi í atvinnulifinu en ég
hafði verið fram að því. Og það fer
ekki hjá því að ég sjái ýmislegt
með öðrum augum eftir þá reynslu
sem vonandi nýtist mér í for-
mannsstarfínu.“
Megum aldrei missa
sjónar á markmiðinu
um stöðugt verðlag
Hefurðu áhuga á að fara út í
pólitík?
„Ég lít ekki á starf mitt fyrir at-
vinnurekendur sem áfanga á leið
til stjórnmálaþátttöku."
Hvaða breytingar sérðu fyrir
þér í íslensku atvinnulífi á næstu
árum?
„Ég held að þær verði mjög örar
og þær munu bjóða upp á tækifæri
sem fáa órar fyrir í dag. Alþjóðleg-
ir straumar og umhverfi munu
setja vaxandi mark á íslenskt efna-
hagslíf. En skilyrði fyrir því að við
getum nýtt okkur tækifærin er að
við treystum í sessi þær ágætu
skipulagsbreytingar sem hér hafa
verið að eiga sér stað og eins meg-
um við aldrei missa sjónar á
markmiðinu um stöðugt verðlag.
Það er lykillinn að því að við
náum að efla atvinnulífið öllum til
hagsbóta. Þessar skipulagsbreyt-
ingar eru að skila okkur miklu og
lífskjör hafa batnað, og tækifærin
sem eru að opnast eru gríðarleg."
Það er jákvætt og spennandi.
-sús