Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1999, Blaðsíða 16
16
LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1999 IjV
fréttir
www.visirJs
NÝR HEIMUR Á NETINU
Nú líður senn að lokum Sumar-
myndasamkeppni DV. Það er óhætt að
segja að þátttakan hafi sjaldan verið
meiri, enda verðlaunin eftirsóknar-
verð. í fyrstu verðlaun allra aldurs-
hópa eru Canon EOS IX-7 myndavél
með 22-55 USM linsu að verðmæti
54.900 kr. í önnur verðlaun er Canon
KUS L-I pakki og í þriðju verðlaun
Canon IXUS M-1 pakki.
Fyrstu verðlaunin í aldurshópi 16
ára og yngri er Canon IXus pakki að
verðmæti 29.900 kr. Aukaverðlaun eru
tuttugu Canon IXUS 225 myndavélar,
tíu Polaroid myndavélar, þrjátíu
Kodak bakpokar og Kodak filma, þrjá-
tíu vinningshafar fá Kodak filmu og
námskeið í ljósmyndun og 135 fá
Kodak filmu með afslátt af framköllun.
Myndir í keppnina má leggja inn hjá
Kodak Express um land allt eða senda
þær beint til DV, Þverholti 11, 105
Reykjavik, merktar „SUMARMYNDA-
KEPPNI". Skilafrestur er til 15. sept-
ember.
„Hann á líka eftir að stækka, alveg
eins og ég,“ gæti þessi ungi, efni-
legi veiðimaðu verið að segja.
Myndina tók Kristófer Hólmþór
Arnfjörð Björnsson í Kópavogi.
Það er ekki seinna vænna að fara að
bæta vegakerfi landsins. Myndina
tók Rocio Sarabia á Seltjarnarnesi.
„Blómarós" heitir myndin af þessari ungu stúlku sem hefur ofið fífilbrekkuna um höf-
uðið. Sendandi er Ingibjörg Hannesdóttir í Reykjavík.
Það er húllandi sumarstemning í myndinni
sem Margrét Georgsdóttir í Reykjavík sendi.
Minnir óneitanlega á ijóðlínur
Laxness: „Folöldin þá fara á sprett og
fuglinn sýngur/og kýrnar leika við hvurn
sinn fíngur."
BIFREIÐASTILLINGAR
NIC0LAI
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Niður-
í mörgum stærðmn
og gerðnm
Morgunkyrrð við Veiðivötn heitir
þessi kyrrláta mynd sem
Dagný Vilhjálmsdóttir í Kópavogi
sendi.
Hún Katla litla Þórleifsdóttir er of-
boð lukkuleg í gulu peysunni sinni,
sem greinilega er heimaprjónuð;
ekki amalegur kvenleggur þar.
Myndina tók Héðinn Björnsson á
Akureyri.
Sól úti, sól inni, sól í hjarta, sól í
sinni, sól bara sól heitir þessi
mynd sem Anna Bára Pétursdóttir í
Reykjavík tók af þeim Katrínu Ósk
Freysteinsdóttur og hundinum
Pjakki.