Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1999, Qupperneq 20
20
LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999 D‘\T
%-éttaljós
„Það er kominn tími til þess að
segja sannleikann um Jón Ólafsson í
stað þess að láta eignarhald ein-
stakra manna á fjölmiðlum ráða því
hvernig mál eru sett upp,“ segir
Hannes Hólmsteinn Gisssurarson.
„Besta dæmið er það að nú skuli um-
ræðan ekki snúast um hinn ótrúlega
feril Jóns Ólafssonar heldur þá sem
varað hafa við honum."
Þetta segir Hannes um Jón Ólafs-
son, stjórnarformann fjölmiölaris-
ans Norðurljósa hf. og einn mann-
anna á bak við Orca SA sem keypti
í sumar 28 prósenta hlut í Fjárfest-
ingarbanka atvinnulífsins.
Tveimur dögum eftir að upplýst
var að Jón var einn hluthafa í Orca
SA, hélt Davíð Oddsson forsætisráð-
herra ræðu á Hólahátíð þar sem
hann sagði efnahag og stjómkerfi
Rússlands ofurselt stjóm „glæpalýðs
og eiturlyfjabaróna" og varaði við
því að við íslendingar yrðum
„leiksoppur slikra afla“ eða opnuð-
um „blóðpeningum" þeirra leið inn í
hagkerfi okkar.
í ljósi þess að allt frá unglingsár-
um hefur loðað við Jón sá orðrómur
að hann tengdist með einum eða öðr-
um hætti sölu og dreifingu fikniefna
- þó að vísu hafi aldrei neitt sannast
- þóttust margir sjá samband milli
orða Davíðs og óvæntrar komu Jóns
inn á nýjan vettvang á viðskipta-
sviðinu.
Davíð hefur hingað til neitað að
tjá sig nánar um málið og ekki tekið
af öll tvímæli um merkingu orða
sinna. Hefur það og samhengi at-
burðanna í tíma verið sem olía á eld
vangaveltna um að tvíræðni orða
hans hafi ekki verið nein tilviljun og
ræða hans hafi ekki, eða a.m.k. síð-
ur, átt að vara við rússnesku glæpa-
Sigurður G. Guðjónsson segir öfl í
Sjálfstæðisflokknum æf í hvert
skipti sem Jón Ólafsson hreyfir sig.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson: „Besta dæmið er það að nú skuli umræð-
an ekki snúast um hinn ótrúlega feril Jóns Ólafssonar heldur þá sem varað
hafa við honum.“
Bolli Kristinsson: „Hann sölsaði
það fyrirtæki undir sig. Að mínu viti
var ekkert ólöglegt við það.“
Snjall, harður, ósvífinn?
hyski heldur en fjármálamanninum
Jóni Ólafssyni.
Ekki treystandi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
ritaði grein í Morgunblaði fimmtu-
daginn 12. ágúst sl. þar sem hann
spurði hvort „menn sem auðguðust
á vafasömum viðskiptum" reyndu
nú að eignast banka, til að þjóna
þannig skuggalegum markmiðum
sínum. Áuðveldlega sást á samheng-
inu að átt var við Jón Ólafsson. En
hvað veldur andstöðu Hannesar við
hlutafjáreign Jóns Ólafssonar í
FBA?
Hljómplötuútgáfan Skffan er orðin 23 ára og markaði upphafið að fjölmiðia-
veldi Jóns Ólafssonar. Hér sést Jón taka f höndina á Halldóri Ásgrímssyni
utanríkisráðherra við opnun á endurbættri Skífuverslun á Laugaveginum í
vetur.
„Honum er einfaldlega ekki
treystandi fyrir því að eiga
banka. Ekki frekar en Mú-
hameð Al-Fayed. Það liggur al-
veg ljóst fyrir í hvers konar
mál Jón Ólafsson hefur flækst í
gegnum tíðina og allur ferill
hans sýnir að hann svífst
einskis í samskiptum sinum,
hvort sem er við keppinauta
eða samstarfsaðila. Morgun-
pósturinn sagði ítarlega frá
hans málum í mars árið 1995
og þar er meðal annars vitnað í
lögregluskýrslur sem varða að-
ild hans að fikniefnamálum."
Nú hefur engin af þessu
ásökunum verið staðfest og
Jón aldrei hlotið dóm fyrir.
Verða ekki að koma fram hald-
bærar sannanir áður en dæmt
er í málinu, hvort sem það er í
réttarsal eða í fjölmiðlum?
„Auðvitað spretta upp alls
konar sögur, samanber fjöðr-
ina sem varð að fimm hænum, og þá
telur fólk sér stundum frjálst að
segja ósatt. Vafalaust eru einhverjar
af sögunum ósannar en ekki allar.
Einhverjar eru sannar.“
Hefur þú sannanir fyrir því, aðrar
en umfjöllun dagblaða?
„Já, já. Ég hef nóg af sönnunum.
Ég veit ýmislegt sem hann hefur
gert, einfaldlega vegna þess að
mennimir sem tekið hafa þátt í því
með honum hafa sagt mér það. En
mér dettur ekki í hug að segja þér
neitt um það. Ég er enginn rann-
sóknarblaðamaður. Það er ekki mitt
hlutverk að taka þátt í því að grafa
þetta upp enda hef ég ekki áhuga á
því. Ég hef, sem upplýstur borgari,
bara tekið að mér þann kross að
skrifa um þetta enda er ég í þeirri
aðstöðu að geta skrifað það sem mér
sýnist. Það er enginn búinn að
kaupa mig. Ég er alveg óhræddur
við Jón Ólafsson."
Valdalaus kjaftaskur
Sigurður G. Guðjónsson er lög-
fræðingur Jóns og samstarfsmaður
til margra ára. Hann segir ásakanir
Hannesar úr lausu lofti gripnar. Enn
fremur var hann spurður hverjar
hann teldi vera ástæðumar fyrir
hinum harkalegu viðbrögðum við
aðild Jóns að FBA:
„Ég get í sjálfu sér ekki ímyndað
mér það. Það eina sem ég get sagt
um þau 15 ár sem ég hef verið sam-
ferða Jóni Ólafssyni er það að í
hvert sinn sem hann hefur hreyft sig
eitthvað í íslensku viðskiptalifi, þá
hafa einhver öfl í Sjálfstæðis-
flokknum orðið æf. Hannes hef-
ur oftsinnis áður dylgjað um
Jón en ummæli hans dæma sig
eiginlega sjálf. Allt þetta slúður
er bara ómerkileg orð og auðvit-
að er Hannes ekkert annað en
valdalaus kjaftaskur uppi í Há-
skóla."
Hvað um ásakanir á hendur
Jóni, sem nokkrum sinnum
hafa komið fram, um fikniefna-
misferli?
„Jón hefur aldrei verið
dæmdur fyrir neitt. Aldrei.
Hann var síðast bendlaður við
aðild að „Stóra fikniefnamál-
inu“ svokallaða í Helgarpóstin-
um fyrir nokkrum árum. Ef Jón
Ólafsson væri nú þessi mikli
glæpamaður sem reynt hefur
verið að gera hann að þá tel ég
nú ólíklegt að það mál hefði fall-
ið um sjálft sig. Þar fyrir utan
hef ég undir höndum bréf frá
fólki sem í raun og veru var flækt í
málið og segir það nafn Jóns Ólafs-
sonar hvergi hafa komið þar við
sögu. Ég held að Hannes og félagar
verði að ftnna einhverja aðra afsök-
un fyrir viðbrögðum sínum en órök-
studdar dylgjur og vandlætingu á
viðskiptaferli Jóns Ólafssonar."
Komið illa við einhverja
DV leitaði til manna sem átt hafa
viðskipti við Jón í gegnum tíðina til
að fá mynd af því hvað kynni að
valda slíku fjaðrafoki er hann hygð-
ist færa út kvíarnar inn í bankakerf-
ið. Meðal fyrrum viðskiptafélaga
Jóns er Bolli Kristinsson, eða Bolli í
Sautján:
Hvað finnst þér um viðbrögðin við
Almannarómur
„Fólk öfundar alla þá sem hafa
það gott. Öðruvísi er það ekki,“ seg-
ir Ármann Óskarsson beitninga-
maður niðri á Granda sem dæmir
ekki fólk sem hann þekkir ekki
perónulega. „Hins vegar kemur Jón
mér þannig fyrir sjónir að ég myndi
ekki treysta honum fyrir peningun-
um mínum. Það myndu einhverjar
bjöilur hringja ef hann byðist til að
ávaxta pund mitt.“
Ingólfur Jóhannesson, sem situr
daglangt á Hafnarvigtinni, er sama
stjórnmálamennirnir eru að atast í
manninum."
Ingólfur Jóhannesson: „Mér finnst
Jón huggulegur maður og kann frekar
vel við hann en ekki myndi ég lána
honum peninga."
sinnis og Ármann en segist þó
kunna vel við týpuna: „Mér finnst
Jón huggulegur maður og kann
frekar vel við hann en ekki myndi
ég lána honum peninga. Það hlýtur
að gilda það sama um Jón Ólafsson
og aðra að hver er sinnar gæfu
smiður og ekki öfunda ég hann.“
Myndirðu vilja vera Jón Ólafsson?
„Nei! Ef ég þyrfti að vera einhver
annar þá myndi ég vilja vera Clint-
on eða einhver svoleiðis," segir
Ingólfur Jóhannesson.
„Ég held að afskipti stjórnmála-
manna af athöfnum Jóns Ólafssonar
helgist af minnimáttarkennd og
ekki öðru. Þetta er maður eins og
hver annar en hlýtur að vera óskap-
lega duglegur. Ef hann ætti banka
myndi ég ekki hika við að leggja
sparifé mitt inn hjá honum ef hann
byði sambærilega vexti og aðrir. Ég
skil ekki hvað stjómmálamennirnir
eru að atast í manninum," segir
Helga Dúadóttir sem hellir upp á
Ármann Óskarsson: „Hins vegar
kemur Jón mér þannig fyrir sjónir
að ég myndi ekki treysta honum fyr-
ir peningunum mínum.“
Hilmar Haraldsson: „Stjórnmála-
mennirnir eru að verja hagsmuni
annarra því uppgangur Jóns kemur
einhvers staðar niður.“
kaffið í Kaffivagninum á Granda.
Öfundaröur konuna hans?
„Nei, ég hef engan áhuga á að
vera eiginkona Jóns Ólafssonar þó
hann sé ríkur,“ segir Helga, sátt við
sitt.
„Þetta er duglegur drengur, ég er
búinn að sjá það fyrir löngu," segir
Hilmar Haraldsson járnsmiður og
dregur í efa að stjómmálamenn tali
samkvæmt bestu samvisku þegar
þeir gagnrýna uppgang og viðskipti
Jóns Ólafssonar. „Stjómmálamenn-
irnir eru að verja hagsmuni ann-
arra því uppgangur Jóns kemur ein-
hvers staðar niður. Sjálfur myndi ég
ekki treysta Jóni fyrir peningunum
mínum ef trúa skal því orðspori
sem af honum fer. Ég myndi ekki
einu sinni láta hann passa börnin
mín en kannski lána honum bílinn
gegn tryggingu," segir Hilmar járn-
smiður.
„Það sem menn skilja ekki er það
að Jón Ólafsson er brautryðjandi í
Emil Andersen segir aumkunarvert
að sjá stjórnmálamenn gráta yfir
velgengni Jóns.