Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1999, Síða 50
LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1999
* æ myndbönd
>
1
1
John Waters:
Oþekktaranginn í Hollywood
Pecker.
John Waters hefur gert einhveijar
undarlegustu myndir undanfarinna
áratuga. Þær flæða í alls konar subbu-
skap og persónurnar eru einhver
mestu viðrini sem sést hafa á hvíta
tjaldinu. Hann er konungur subbu-
myndanna og vemdardýrlingur allra
viðrina. Hann ræðst á allt það sem
hinni kaþólsku miðstétt (sem hann var
alinn upp við í Baltimore) tilheyrir og
afskræmir gildi hennar með afkára-
legu háði sínu. Þrátt fyrir subbuskap-
inn virka myndimar aldrei neikvæðar
eða illgjamar. Þvert á móti er mikil
lífsgleði og ákveðið sakleysi innbyggt i
myndir hans, sem lyftir þeim yfir
subbuskapinn, þannig að Waters virk-
ar meira eins og elskulegur óþekktar-
angi kvikmyndageirans fremur en ein-
hvers konar niðurrifsmaður. Hann
hefur mýkst allnokkuð með árunrnn,
Liti Taylor í hlutverki umboðsmanns
listmálara sem líst vel á vandræða-
gemsann Pecker.
svo mjög að síðustu myndir hans hafa
átt sinn sess í Hollywood-batteríinu.
Hann er ekki jafn groddalegur í
hneykslunaráráttu sinni og leggur
meiri áherslu á hressilegan prakkara-
skap.
Akfeitur klæðskiptingur
KvikmyndaferUI Johns Waters hófst
þegar hann fékk 8 mm vél í afmælis-
gjöf þegar hann var 17 ára. Hann hóaði
í nokkra félaga sína, stofnaði með
þeim leikhóp sem þeir kölluðu the
Dreamland Players og byrjaði strax að
gera stuttmyndir. Næstu árin gerði
hann stuttmyndimar Hag in a Black
Leather Jacket, Roman Candles og Eat
Your Make Up! Hann fékk síðan fóður
sinn til að lána sér 2000 dollara til að
gera fyrstu mynd sína, Mondo Trasho
(1969), en hann var handtekinn fyrir
samsæri um að særa blygðunarkennd
fólks þegar hann sýndi hana fyrst.
Skólafélagi hans, Harris Millstead,
var einn af upprunalega Dreamland
Players-leikhópnum og hann átti eftir
að leika í öllum mynda hans fram á tí-
unda áratuginn undir nafninu Divine.
Hann er akfeitur klæðskiptingur sem
ofleikur af krafti og var e.k. einkennis-
tákn mynda leikstjórans á áttunda og
níunda áratugnum en hefur dregið sig
í hlé síðustu árin.
Ógeðslegasta fólk alheimsins
Á eftir Mondo Trasho kom Multiple
Maniacs (1970) og síðan hin alræmda
Pink Flamingos (1972), sem var svo
groddaleg að hún var notuð sem dæmi
um enn verri mynd í málaferlum þar
sem framleiðendur klámmyndar voru
að reyna að fá sýningarbanni hnekkt.
Divine fer fyrir leikhópnum í hlut-
verki höfuðs fjölskyldu sem ber heið-
urstitilinn
„Ógeðslegasta fólk
alheimsins" og
fjallar myndin um
tilraunir öfund-
sjúkra öfugugga
tfi að ná titlinum
af þeim. Eitt fræg-
asta atriðið úr
myndum Johns
Waters er í þess-
ari mynd en það
er atriðið þar sem
Divine étur
hundaskít.
Female Trouble
(1974) og Despera-
te Living (1977)
voru í svipuðum
dúr og stöðugt
bættist í hóp fylgj-
anda leikstjórans.
Polyester (1981)
varð síðan fyrsta mynd leikstjórans til
að vera tekin til almennrar sýningar í
kvikmyndahúsum. Hann hélt upp á
þennan árangur með því að taka sér
sex ára frí ffá kvikmyndagerð og not-
aði tímann m.a. til greinaskrifa og
kennslu kvikmyndafræða í fangelsum.
Brjálaður leikstjóri
John Waters sneri síðan aftur með
Hairspray (1988), sem var stórt stökk
fyrir hann í framleiðslugæðum, kost-
aði 2,7 milljónir dollara. Með henni og
síðari myndum hans hefur hann verið
að fikra sig nær hinu hefðbundna
kvikmyndaformi og dregið úr hneyksl-
unargiminni. Jafnframt hefur fækkað
í upprunalega leikhópnum og frægari
leikarar tekið við. Cry-Baby (1990)
skartaði Johnny Depp í aðalhlutverki
og var síðasta myndin hans sem
Divine lék í.
Hollywood bauð John Waters síðan
endanlega velkominn í faðm sinn þeg-
ar hann gerði Serial Mom (1994), sem
náði þó nokkrum almennum vinsæld-
um og Kathleen Tumer þótti fara á
kostum í hlutverki morðóðu mömm-
unnar. Pecker (1998) er eðlilegt fram-
hald á ferli kappans, sem hefur ekki
misst broddinn úr háðinu þótt hann
hafi gerst vægari við áhorfendur.
Næsta mynd hans mun heita Cecil B.
Demented og flallar um bijálaðan leik-
stjóra sem rænir frægri leikkonu og
neyðir hana til að leika í mynd sinni.
-PJ
Kvikmyn,da
Jeiry 8 Tom
Leigumorðingjar
Þessi mynd segir frá tíu ára löngu samstarfi leigumorðingjanna
Jerry og Tom. Tom er búinn að vera lengi í faginu þegar hann fer
að þjálfa Jerry í starfið. í upphafi er Jerry hikandi og óömggur en með tím-
anum öðlast hann sjálfstraust sem síðan þróast í sjálfumgleði. Tom hins veg-
ar þreytist með aldrinum og fer að þykja nóg um galgopaháttinn í Jerry.
Myndin virkar eins og leikhúsverk, þar sem áherslan er öll á samtöl og eng-
in fjöldaatriöi. Leikstjórinn hressir upp á sjónræna þáttinn með smátilrauna-
starfsemi í kvikmyndatöku sem hann notar til að skapa flæði í frásögn sem
annars gæti virst stirðbusaleg, þar sem hún er í raun röð atriða á löngu tíma-
bili, en leikstjórinn lætrn' myndavélina oft líða úr einu atriði í annað án þess
að klippa. Sam Rockwell fer á kostum í hlutverki Tom, sem breytist smám
saman úr óframfæmum lúða í hrokafúllan töffara. Joe Mantegna er traustur
í hinu aðalhlutverkinu og einnig er gaman að sjá leikara eins og Charles
Duming, Peter Riegert og William H. Macy í litlum aukahlutverkum. Mynd-
in er þægileg áhorfs, krydduð með svolitlu af svörtum húmor og vel leikin.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Saul Rubinek. Aðalhlutverk: Joe Mantegna og
Sam Rockwell. Bandarísk, 1998. Lengd: 93 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Um róttæklinga og borgara
★★★ Chris (Christian Bale) býr ásamt eiginkonu
sinni Marion (Emily Watson) og bami þeirra
í rólegu úthverfi. Líf hans er komið í nokkuð fastar
skorður þegar æskufélagi hans Toni (Lee Ross) sækir
hann óvænt heim. Víðfórla róttæklingnum Toni þykir
Chris vera orðinn full borgaralegur í ljósi uppreisnargimi þeirra á yngri
árum. Chris reynir í ffamhaldi að leita uppi sitt gamla sjálf; bæði með stirð-
busalegu „djamrni" í samtimanum og nostalgískri upprifjun á ungdómsárum
sinum í París. Þar reyndi hann fyrir sér sem ljósmyndari og kynntist fyrstu
ástinni, Annick (Elsa Zylberstein). Það era árekstramir á milli borgaralegs
lífs og samfélagslegrar uppreisnargimi sem skapa þungamiðju Metroland.
Hún gerir þessum ólíku pólum skil án þess að setjast í predikunarstól og er
það vel. Þetta era jú illleysanlegar andstæður sem hafa mótað vestræn sam-
félög umfram flest annað á þessari öld. í Metroland birtist togstreitan í formi
ljúfsárs persónudrama, sem býr bæði yfir áhugaverðri atburðarás og af-
bragðsleik.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Philip Saville. Aðalhlutverk: Christian Bale, Emily
Watson, Lee Ross og Elsa Zylberstein. Bresk/frönsk, 1997.
Lengd: 114 mín. Bönnuð innan 12. -BÆN
Pecker
Skinhelgi og listasnobb
Jolln Waters verður æ markaðsvænni Wit
með hverri myndinni sem hann gerir.
Pecker er auðvitað troðfull af skrítnum persónum og
prakkaralegu háði en það er ekkert í henni sem ætti
að ganga fram af fólki. í rauninni er aðeins eitt atriði
í myndinni sem gæti valdið hneykslun hjá viðkvæm-
um. Fyrir harðsvíraða aðdáendur fyrri verka leikstjórans gæti þessi mynd virk-
að flöt og óspennandi í samanburði við subbumyndimar hans en það er ósann-
gjam samanburður, því að þrátt fyrir allt er John Waters enn þá einhver mesti
rugludallur bandarískrar kvikmyndagerðar og myndir eins og Serial Mom og
Pecker era engu ófyndnari en fyrri myndir hans og háðið alveg jafn beitt.
Edward Furlong fer á kostum í hlutverki hins brosmilda Pecker, sem hef-
ur þá áráttu að taka myndir af öllu sem hann sér og er síðan uppgötvaður af
listasnobbspakkinu í New York. Hann er i fyrstu hæstánægður en síðan fer
frægðin að koma honum í koll. Eins og vanalega er John Waters að stríða
skinheilagri miðstéttinni en tekur hér einnig fyrir hræsnisfulla listasnobbara.
Pecker er í alla staði fersk og fyndin háðsádeila.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: John Waters. Aðalhlutverk: Edward Furlong og
Christina Ricci. Bandarísk, 1998. Lengd: 90 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ
Myndbandalisti vikunnar
1'£'
19«
Vikan 17. - 23. ágúst
SÆTI j j FYRRI VIKA j VIKUR j ÍA LISTAj j i TITILL j ÚTGEF. j j TEG. t . -
1 NÝ J i J i 1 j You ve Got Mail j Wamer Myndir J Gaman j
j 2 J j 2 j J i 3 J j J Blast From The Past j j Myndform DHH J j Gaman J
3 i 1 j . J j 4 J Waterboy j SAM Myndbönd ! Gaman
J: 4 J j 3 j J i 2 i Soldier J j Wamer Myndir J j Spenna
5 NÝ i 1 i Basketball i CIC Myndbönd i Gaman
j 6 i J 7 i 2 i j 1 J , | Night At The Roxbury ■JMHBH j CIC Myndbönd J ■J.. j Gaman J
7 J 1 4 J 1 1 5 i American History X J Myndform l J Drama l
8 i i 5 J j i 4 í j J Stepmom J j Skrfan J J j Drama J
9 i 6 i 6 i Practical Magic j Wamer Myndir j Gaman
j 10 J j 8 i 7 i j J MeetJoeBlack J j CIC Myndbönd i J J Drama J
11 NÝ J , J j 1 J ■ Thin Red Line Skrfan j Drama
j 12 j 9 j J i 3 i EverAfter i 1 Skífan j J J Gaman )
13 i 10 i 8 i Very Bad Things j j Myndform j Spenna
HÍ J 15 J ; 1 11 j J J i; J j 5 J i | Elisabeth J ; Háskólabíó j J ; Drama I
14 J J i 9 i Enemy Of The State J SAM Myndbönd J i SAM Myndbönd j J J Spenna 1
16 i . -t-.'j. 16 J J J , j J • 4 J J ' J - Belly J| ÉHH j Spenna J
17 ! 12 J 5 1 i 3 j Bullworth Skffan j Gaman
J 18 j J 19 j J J 10 J j • J Saving Private Ryan J J CIC Myndbönd J J j Drama J
19 i 18 J 9 J 1 2 J From Dusk Till Dawn Skffan ' Spenna
j 20 NÝ J J ! 1 i Jerry & Tom J Myndform i J Gaman J
S3S