Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1999, Side 4
4
FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1999
Fréttir
DV
Talning þorskseiða bendir til risaþorskstofns:
Markvörður
Þarf serstakar
rannsóknir
- fari veiðistofn í 3 milljónir tonna, segir forstjóri Hafró
„Þessar fréttir eru auðvitaö stór-
kostlegar. Auðvitað er það þannig
að náttúran skiptir miklu máli en
náttúran sér ekki fyrir neinu nema
það séu til fiskar til að hrygna. Það
fer saman vel heppnað klak og hag-
stæð skilyröi í náttúrunni," segir
Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ,
um þau tíðindi frá Hafró að met-
fjöldi þorskseiða hafi fundist.
Ef gengiö er út frá því að mæling-
in standist og seiðin komist af að
teknu tilliti til 18 prósenta náttúr-
legra affalla stefnir í að eftir 3-4 ár
komi inn í veiðistofninn metárgang-
ur. í gær sagði Guðjón A. Kristjáns-
son, forseti Farmanna- og fiski-
mannasam-
bands ís-
lands, við
DV að
skoða
þyrfti hvort
lífríkið
þyldi svo
stóran
veiðistofn
og hvort
ekki væri
heppilegra
að veiða
meira fyrr
og halda
þannig
stofninum
niðri. Nú er föst regla sú að úthlut-
að er árlega kvóta sem nemur 25
prósentum af veiðistofni. Gangi
björtustu spár eftir og haldið verði
fast við 25 prósenta regluna verða
veidd 750 þúsund tonn af þorski þeg-
ar hinn sterki árgangur kemur inn
í veiðina. DV spurði Kristján hvort
til greina kæmi að hans mati að
brjóta upp 25 prósenta regluna og
jafna út þorskveiðina.
„Ef það sannreynist að þessi seiði
komist af þá hlýtur að koma til álita
hvernig viö nýtum okkur þetta.
Skili þessi þorskárgangur sér þá
hljótum við að skoða hvernig viö
nýtum hann. Öryggiö er aðalatriði
og það þarf að skoða málið í sam-
hengi við það hvemig seiðin komast
Kristján Ragnarsson.
Boggi blaðamaður starfar fyrir Baader-umboðið sem boðar nýjungar á sjáv-
arútvegssýningunni. Um er að ræða vél sem hausar þorska og aðra fiska en
skilar betri nýtingu en áður þekktist. Viðbúið er að þörf verði fyrir góðar
græjur ef veiðistofn þorsks þrefaldast á næstu árum frá því sem nú er.
DV-mynd ÞÖK
af án þess að við séum að brjóta upp
einhverja reglu fyrir fram,“ segir
Kristján.
„Það em yfirgnæfandi líkur á því
að við fáum einn góðan árgang. Það
er það sem okkur vantar til þess að
við náum að auka veiðina á næstu
ámm. Ef mikið af þessum seiðum
lifir af eram við komnir með að-
stæður sem við höfum ekki náð að
rannsaka áður. Þá verðum við að
skoða hlutina upp á nýtt,“ segir
hann.
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunar, varar við
spám um að veiðistofn þorsks þre-
faldist frá því sem nú er og fari í
þrjár milljónir tonna. Gerist það aft-
ur á móti
segir hann
að vísinda-
menn verði
að rann-
saka málið
upp á nýtt.
Þá komi
allt eins til
álita að
bregða út
af 25 pró-
senta regl-
unni í ljósi
þess að líf-
ríkið nú sé
gjörbreytt
frá því var
fyrr á öldinni þegar hvalastofnar
voru í lægð og ekki var veidd rækja
eða uppsjávarfiskar.
„25 prósent aflareglan byggist á
rannsóknum alla þessa öld. Að öllu
jöfnu er þetta skynsamleg regla en
ef það skapast mjög óvenjulegar að-
stæður verðum við að vera tilbúnir
að skoða málin," segir Jóhann.
„Viö höfum ekki miklar áhyggjur
af stómm þorskstofni í dag. Nú er
veiðistofninn rúmlega milljón tonn
og hann má stækka ansi mikið til
þess að við höfum áhyggjur. Fari
veiðistofninn í 3 milljónir tonna
yrðu það gjörbreyttar aðstæður sem
kölluðu á sérstakar rannsóknir,"
segir Jóhann. -rt
Jóhann Sigurjónsson.
Óvinir Austfirðinga
Austfirðingar eru þessa
dagana æfir út í höfuð-
borgarbullur, kirkjunnar
menn, Skotveiðifélag ís-
lands og fréttastofu Sjón-
varpsins. Reiði þeirra er
öllu rétthugsandi fólki
skiljanleg því umræddir
aðilar hafa sammælst um
að skjóta niður atvinnu-
tækifærin í fjóröungnum.
Finnur Ingólfsson iðnaðar-
ráðherra hefur marglofað
að það komi álver austur
gegn því hógværa gjaldi að
sökkt verði náttúruperlum
á hálendinu sem hvort eð
er hafa verið til óþurftar.
Ráðherrann veit sem er að
hálendiö er til þess eins
fallið að þar týnist feröa-
menn sem leita þarf að
með ærnum tilkostnaði.
Þetta vita Austfirðingar líka og hafa því ákveðið
að hentugast sé að breyta hálendinu í stöðuvatn
og fá jafnframt umhverfisvænt álver í Reyðar-
íjörð. Allir vita að stanslaus flótti fólks hefur ver-
ið frá dreifbýlinu til höfuðborgarinnar og með að-
geröunum snúa Austfirðingar stöðunni sér í hag.
Blómi starfsmanna í höfuðborginni mun að sjálf-
sögðu taka sig upp og flytja austur til að vinna í
álverinu góða.
Austfirðingar þekkja vini sína jafnt sem óvini.
Helsti óvinur þeirra er fyrrum skemmtikraftur
sem hin síðari ár hefur snúið sér að frétta-
mennsku. Sá heitir Ómar Ragnarsson og skemmt-
ir nú skrattanum og öðrum íbúum höfuðborgar-
innar með stöðugum fréttaflutningi af hálendis-
svæðum sem á að fara að sökkva. Ekki má gæs
fara úr fjöðrum á virkjunarsvæöi án þess að
Ómar endurómi fréttum til landsmanna af at-
burðinum. Ómar skilur ekki að gæsir eiga að
halda sig í húsdýragarðinum og á Reykjavíkur-
tjöm en ekki að vera þvælast uppi á hálendinu
hættulega. Aðrir furðufuglar sem vilja hefta
framgang atvinnumála á Austfjörðum em félagar
í Skotveiðifélagi íslands. Þeir rövla um að ekki
megi eyðileggja griðland gæsanna á Eyjabökkum.
Þessi umhyggja kaldrifjaðra skotveiðimanna
skýtur mörgum skelk í bringu og þá ekki aðeins
Austfirðingum. Skyttumar þykjast nefnilega
bera fyrir brjósti hag fugla svo þeir geti drepið þá
seinna. Það á sem sagt að skjóta en ekki drekkja.
Austfirðingar munu hafa íhugað að segja sig úr
þjóðkirkjunni eftir að biskup íslands upplýsti að
hjarta hans vildi ekki að Eyjabökkum yrði sökkt.
Biskupinn er augljóslega á villigötum en ráöherr-
ar framsóknar á sviði umhverfismála og iðnaðar
þegja sem betur fer þunnu hljóð. Siv umhverfis-
ráðherra veit sem er að snyrtilegra verður á há-
lendinu þegar uppistöðulónum fjölgar. Hún hefúr
því ákveðið að vera ekkert að þegja þunnu hljóði
ásamt Finni umhverfisráðherra. Það er líka
hollrara fyrir flokkinn sem hefur að geyma gæsa-
skyttur og ofstækismenn sem ekki vilja sökkva
hálendinu. Hvem fjandann eru þeir sem búa við
kjötkatla bórgarinnar og geta fariö í Kringluna
þegar þeim sýnist að skipta sér af einkamálum
heimamanna á Austfjörðum. Reykvíkingar eiga
Esjuna en Austfirðingar hálendið. Aðalhags-
munamál dreifbýlisins er að setja biskupinn af og
koma Ómari gæsapabba til byggða og helst út úr
Sjónvarpinu. Dagfari
I frægum fótboltaleik þingmanna og
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks um síð-
ustu helgi fór Jón Steinar Gunnlaugs-
son hæstaréttarlögmaður á kostum sem
dómari. Hann notaði banana sem
—\ áminningu í stað gulra
'il spjalda og sendi menn
\Æv' l miskunnarlaust út af tO
^ \\ að éta hina suðrænu
iK" ; • * 1 ávexti. Meöal þeirra sem
' |1 unnu sér inn hina vægu
\ Kfct refsingu vom hinn ást-
sæli Guðlaugur Þór
Þórðarson borgarfull-
trúi og Sigurður Kári Kristjánsson,
hinn harðvítugi formaður SUS. Sjálfur
ávann dómarinn sér epli með því að út-
hluta syni sínum víti sem hann brenndi
af en skoraði ekki svo sem hermt var í
Sandkomi í gær. Sá leikmaður sem kom
mest á óvart var nýkjörinn þingmaður,
Ásta Möller. Hún stóð í markinu og
varði sem berserkur þrumuskot borgar-
fulltrúa sem töpuðu leiknum þrátt fyrir
að um tíma hafi dómarinn leikið með
þeim. Nú er þess beðið að Ásta verði
kölluð til liðs við landsliðið ...
Tvífarar
Vikublaðið Fókus hefur fastan dálk,
Tvifara, þar sem hlið við hlið eru birtar
myndir tveggja líkra persóna eins og
nafn. dálksins gefur til kynna. Telja
menn að erfitt verði að finna líkari ein-
staklinga í útliti en þær stöllur Önnu
Kristjánsdóttur vélstjóra
og fréttakonuna Rósu
Guðbjartsdóttur. Hins
vegar heyrist það að
norðan að þar sé þegar
búið að finna þá tvo ein-
staklinga sem bæði llkj-
ast hvor öðrum í útliti
og allri framkomu.
Þessir tveir einstaklingar, Halldór
Blöndal, forseti Alþingis, og blaðamaður
Dags, Sigurður Bogi Sævarsson, voru
staddir á blaðamannafundi á dögunum
þar sem sveitamaður vatt sér að Sigurði
Boga og sagði: „Gaman að þú skulir vera
hérna með honum pabba þínum, Pétur
minn.“ Þar átti sveitamaðurinn vitan-
lega við son Halldórs, Pétur Blöndal...
Davíð og Golíat
Mikill titringur er meðal stjómenda
Kaupþings vegna þeirra ávirðinga sem
Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur
sett fram á fyrirtækið sem hann segir
hafa sýnt af sér siðleysi og jafnvel lög-
brot. Sá alvörugefni forstjóri Siguröur
Einarsson mun eiga erf-
iða daga. Innan Sjálfstæð-
isflokks heyrast þær
raddir að ekki þýði fyrir
forstjórann að ætla að
berjast við Davíð í þvi
skyni að fá uppreisn
æra. Eina ráðið sé að
henda svo sem hund-
rað milljónum í ímyndarherferð og
lágmarka þannig tjóni fyrirtækisins.
Þannig sé Goliat dæmdur til að tapa
slagnum við Davíð...
Óljós bæjarmörk
Þær sameiningar sem átt hafa sér
stað á sveitarfélögum undanfarin ár
hafa valdið mörgum misskilningi og þó
sérstaklega ókunnugum. Alkunna er að
ísafiarðarbær vestra samanstendur af
ísafirði hinum foma kaupstað og þorp-
unum Flateyri, Suðureyri
og Þingeyri. í síðustu
viku var mikið um dýrðir
á Þingeyri þar sem for-
seti íslands opnaði ís-
lenska miðlun sem skap
ar tugi starfa í ísafjarð-
arbæ. Ragnheiður Há-
konardóttir, forseti bæjarstjórnar
ísafiarðarbæjar, mætti að sjálfsögðu til
hátíðarinnar á Þingeyri. Þar sem hún
stóð á tröppum skrifstofu fyrirtækisins
lét hún þess getið að þetta væri yndisleg-
ur dagur: „Það er meira að segja flaggað
við bæjarmörkin," sagöi hún og vísaði
til að þess að við hlið að þorpinu blöktu
fánar við hún. Henni varð fátt um svör
þegar innfæddir bentu henni á að hvergi
væru bæjarmörk í öllum Dýrafiröi enda
næði ísafiarðarbær í Amarfiörð ...
Umsjón: Reynir Traustason
Netfang: sandkorn @JT. is